Morgunblaðið - 07.07.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976
13
Kyrsta landsýn við Island
voru komin rúm 7 vindstig.
Þetta hentaði okkur ágætlega
og meðalhraðinn var kominn í 7
hnúta. Klukkan tæplega hálf
tvö komum við svo til Eyja.
t Vestmannaeyjum
í Vestmannaeyjum beið okk-
ar veizlumatur sem móðir Arna
Johnsen hafði haldið heitum
handa okkur. Svo fengum við
að skolpa af okkur skítinn sem
ekki var vanþörf á og eftir það
vorum við alsælir.
Um miðnættið daginn eftir
taldi Óskar vitavörður á Stór-
höfða að veðrið væri að ganga
niður og með það fórum við frá
Eyjum.
Ragnar, sonur Axels og ljós-
myndari Morgunblaðsins, slóst
í förina með okkur I Vest-
mannaeyjum. Það var líka kom-
inn tími til að næðist mynd af
söguhetjunum þrem saman á
sjó. Mest af leiðinni yfir hafið
hafði einn okkar alltaf verið
sofandi og stundum tveir. Vakt-
ir skiptust í 6 tfma að degi og 4
að nóttu en sá sem næst átti
vakt var á bakvakt ef skipta
þurfti um segl. Til Reykjavikur
var sólarhrings sigling og feng-
um við gott veður á leiðinni.
Við lögðumst að bryggjunni í
Kópavogi rétt eftir miðnættið 4.
júní og fengum við hressilegar
Eiturbrasarinn
móttökur hjá ættingjum og
kunningjum sem biðu okkar
þar.
Heima er bezt
Þannig endaði þetta 1600
mílna langa ferðaiag og við urð-
um sammála um að allt væri
gott sem endaði vel.
Stefán Sæmundsson.
Lögin um veiðar
í fiskveiðilandhelg-
inni taka gildi
L(jG um veiðar f fiskveiðiland-
helgi islands tóku gildi hinn 1.
júlf, eða í gær, en þessi lög voru
samþykkt á alþingi 31. maf sl. og
eru nr. 81. 16. júní sl. voru sfðan
gefin út bráðabirgðalög um breyt-
ingu á þessum lögum, þar sem
nauðsynlegt reyndist að leiðrétta
atriði f lögunum sem snertu
togveiðiheimildir fsl. skipa á
þremur tilteknum svæðum og
ennfremur eina ritvillu f staðar-
ákvörðun.
1 þessum lögum er gert ráð fyr-
ir stóraukinni fiskvernd, stór-
auknum friðunarsvæðum og mik-
illi stækkun möskva í botnvörpu
og dragnót, banni við veiðum með
flotvörpu -á hrygningarsvæðum,
skertum togveiðiheimildum alls
staðar kringum landið og sérstak-
lega á uppeldisstöðvum þorsksins
fyrir Norður- og Norðausturlandi.
Þá er i lögunum gert ráð fyrir
að stefnt skuli að því að auka
eftirlit landhelgisgæzlu, einnig
skuli sérstök eftirlitsskip á vegum
Hafrannsóknastofnunarinnar
fylgjast með fiskveiðum í land-
helgi í því skyni að koma í veg
fyrir óhóflegt smáfiskadráp eða
aðrar skaðlegar veiðar. Skipstjóri
hvers eftirlitsskips skal vera sér-
stakur trúnaðarmaður sjávarút-
vegsráðherra og skal ráðinn af
honum í samráði við Hafrann-
sóknastofnunina. Ráðherra getur
Framhald á bls. 29
Kort þetta fylgir lögunum um veiðar f fiskveiðilandhelgi Islands og
sýnir friðuð svæði f landhelginni.
Frá bridgefélaginu
Ásarnir í Kópavogi
Urslitin á mánudaginn (28.
júnf) sanna að allir geta náð
árangri, sem einhverja rækt
leggja við fþrótt sfna. Að þessu
sinni báru þeir félagar Gfsli
Hafliðason og Sigurður Þor-
steinsson sigur úr býtum, vel
fyrir ofan næstu pör. Mörg
„ný“ andlit sáust nú á toppn-
um, og er það vel.
Röð efstu para varð þessi:
1. Gísli — Sigurður 195 stig.
2. Sigríður Rögnvaldsdóttir —
Einar Einarsson 176 stig.
3. Birgir ísleifsson — Karl
Stefánsson 174 stig.
4. Kristján Þórarinsson —
Jóhannes Gíslason 172 stig.
5. Ármann J. Lárusson — Vig-
fús Pálsson 171 stig.
6. Soffía Guðmundsdóttir —
Jón Gunnar Pálsson 162 stig.
Hjónin urðu því að lúta í
lægra haldi, í þetta sinni. Þátt-
taka var allgöð, eða 14 pör.
Nokkuð hefur verið um það, að
menn hafa mætt makkerslaus-
ir, en því miður er ekki alltaf að
treysta á slíkt. 'Því vil ég skora á
menn að mæta og hafa sam-
band við okkur, og við munum
aðstoða menn við myndun para,
ef þess er óskað. Spilað verður
á mánudaginn kemur og hefst
keppni kl. 20.00. Mætum öll.
XXX
Frá Tafl- og bridge-
klúbbnum
Tvo undanfarna fimmtudaga
hafa 44 pör tekið þátt f sumar-
tvfmenningnum og hefir verið
spilað f þremur riðlum.
Urslit síðasta fimmtudag
urðu þessi:
A-riðill:
Arnar Ingólfsson —
Þorsteinn Bergmann 250
Guðmundur Pálsson —
Grímur Thorarensen 242
Jón Pálsson —
Kristín Þórðardóttir 238
B-riðill:
Gísli Sigurðsson —
Ólafur Gislason 239
Ásmundur Pálsson —
Einar Guðjohnsen 237
Jakob Ármannsson —
Jakob Möller 235
C-riðill:
Bernharður Guðmundsson —
Júlíus Guðmundsson 197
Jón Sigurðsson —
Gísli Sigtryggsson 184
Baldur Ásgeirsson —
Jón Oddsson 178
Jón Gíslason —
Ólafur Jóhannsson 178
Meðalskor i A- og B-riðli 210
en 165 í Cðriðli.
Næst verður spilað á fimmtu-
daginn kemur og eru væntan-
legir þátttakendur beðnir að
mæta timanlega. a. G. R.
Heilsugæzlustöð
Á FUNDI stjórnar Hellulæknishér-
aðs, sem haldinn var nýlega, var
ákveðið að taka á leigu 1. hæð I
nýbyggingu Verkalýðsfélagsins
Rangæings og Ltfeyrissjóðs Rang
æinga við Suðurlandsveg á Hellu.
Stefnt er að því, að heilsugæzlustöð-
in taki til starfa snemma á næsta ári.
Er hér um að ræða 360 ferm. hús
næði og er gert ráð fyrir lyfjaaf
greiðslu. aðgerðarstofu, tannlækna
stofu og röntgenstofu auk lækna
stofu og aðstöðu fyrir hjúkrunar
konu.
Þessar upplýsingar komu fram á
borgarafundi á Hellu 14. júnl s.l.
Bygging á húsi Verkalýðsfélagsins
og Llfeyrissjóðs Rangæinga hófst á
s.l. ári. Auk heilsugæzlustöðvarinnar
á Hellu
mun byggingin hýsa skrifstofur,
fundarsal og kaffiaðstöðu fyrir
verkalýðsfélagið og lifeyrissjóðinn,
auk þess sem ráðstafað hefur verið
handavinnuaðstöðu skólanemenda
Helluskóla. Um þessar mundir er
verið að ganga frá húsinu að utan en
það er 375 ferm. að flatarmáli, tvær
hæðir og kjallari og var hannað af
Magnúsi Ingvarssyni byggingafræð-
ingi.
»
I S
£ I
H|
Fðanlegur
2ja og 3ja dyra
Krómaðir
hurðarhúnar
Ryðfríir stállistar
með gúmmikanti
Nýir hjólkoppar
' ;---------------------\
Berlina og Special 2ja
og 3ja dyra nýkominn
til afgreiðslu strax.
FIAT 1 27 er vinsæll
bíll um allan heim
vegna aksturseigin-
leika og glæsilegs út-
lits.
v________________________,
Nýr hitamœlir
Nýtt mælaborð
úr mjúku plastefni
— Kveikjari
Kraftmikil
2ja hraða
miðstöð.
FIAT 127 var í öðru sæti íhinni erfiðu RaHy-keppni 1976
og sýndi með því
sína frábæru
FIAT EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson hf.
SÍÐUMULA 35. SÍMAR 38845 — 38888.