Morgunblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1976
15
kelsstöðum. Var hann að reka
um 400 fjár til fjalls og sagði
Þorgeir að förinni væri heitið
inn í Svínárnes og vfir Sandá.
ef hún væri fær vegna vatna-
vaxta. 1 allt tekur ferðin 3 dæg-
ur eða I 'A sólarhring.
„Eg hef allan minn búskap
rekið féið á fjall á vorin nema
hvað ég fór með einn vagn í
fyrra og Ifkaði það engan veg-
inn, bæði var það leiðinlegt og
erfitt og ekki sfzt fór þetta illa
með dráttarvélina," sagði Þor-
geir og hélt áfram: „Sumir eru
að tala um að reksturinn fari
illa með skepnurnar en ef veðr-
ið er gott og farið er rólega og
gætilega, þá get ég ekki séð að
nein hætta sé á ferðum. Það er
líka gaman að vera með fénu
þennan tfma og ekki síður að
fara um afréttinn. Þá er þetta
að mfnum dómi ein besta tamn-
ing, sem trippi í tamningu geta
fengið. Eg þekkti mörg dæmi
þess að trippi, sem hafa verið
mannhrædd og hvumpin, þegar
lagt var af stað, voru orðin al-
þæg við heimkomu.“
Hvernig er hljóðið f bændum,
vegna þeirra breytinga, sem
gerðar voru á verði ullar í vet-
ur?
„Menn eru nokkuð ánægðir
með að verðið á ullinni sk.vldi
hækka en það má bara ekki láta
það koma niður á kjötverðinu.
Það þýðir ekki að láta annað
lækka til að hækka hitt en fólk
verður að skilja hvers virði ís-
lenska ullin er. Vafalaust verða
betri skil á ullinni eftir þessa
hækkun og menn fara að hugsa
betur um ullina. En hvað sem
þessu líður þá hefur mér fund-
ist matið á ullinni i þvottastöðv-
unum nokkuð handahófskennt.
Persónulega hef ég rekið mig á
þetta, vegna þess að ég á mikið
af gráu fé. Þessi litarflokkur
hefur ekki skilað sér nema að
litlu leyti, þó í heild sé þungi
ullarinnar réttur."
En nú var ekki lengur til
setunnar boðið. Forystufé Þor-
geirs hafði tekið á rás og við
kvöddum Þorgeir og menn
hans, sem héldu áfam með
reksturinn og stefndu til fjalls.
„Fæ aðeins útborgað
þrisvar á ári“
Eirfkur Kristófersson, bóndi
á Grafarbakka f Hrunamanna-
hreppi var f þann veginn að
Ijúka við að rýja fé sitt, þegar
okkur bar að garði. Eiríkur er
einn þeirra mörgu bænda, sem
flvtja fé sitt á afrétt á bílum.
Sagðist Eirfkur þurfa að flytja
á þessu vori um 650 fjár á af-
rétt en vegalengdin, sem hann
fer er um 60 km og tekur hver
ferð um 2 klukkutíma. Við
spurðum Eirík hvers vegna
hann flytti fé sitt frekar á bfl-
um á afrétt heldur en að reka
það?
„Það ræðst einfaldlega af því
að ég hef ekki mannskap til að
reka. Kekstarferðin tekur um 2
sólarhringa og ég þ.vrfti ekki
færri en 5 menn til að reka auk
hrossa. Með þvf að aka fénu get
ég gripið f þetta eftir veðri og
aðstæðum en í allt þarf ég að
fara með 9 bflfarma."
Nú hefur ullarverðinu verið
breytt. Ertu ánægður með
þessa bre.vtingu?
„Þetta er vissulega mikil
hækkun á ullinni en gallinn er
bara sá að þessi hækkun kemur
niður á kjötverðinu. Það er
staðreynd að aðeins lítill hluti
ullarinnar fer f úrvalsflokk en
það er sá flokkur, sem mest
munar um hvað verð snertir.
Við megum heldur ekki gleyma
þvf að ullin skilar sér ekki eins
vel og kjötið, því nokkur hluti
áf ullinni fer alltaf forgörðum f
högum. Því miður veit fólk Iftið
um hversu seint við bændur
fáum laun okkar greidd. Eg er
ekki viss um að allir sættu sig
við að fá aðeins úthorgað þrisv-
ar á ári og eiga inni frá f.vrra
hausti þegar lagt er inn á haust-
in. Við bændur verðum hins
vegar að staðgreiða allar okkar
rekstrarvörur, s.s. fóðurbæti og
éburð.,, — t.g.
Ljósm Friðþjófur
Glattáhjalla
í Glœsibœ
ÞAÐ VAR glatt á
hjalla í Glæsibæ þeg-
ar söngkonan Wilma
Reading skemmti
gestum þar sl.
sunnudagskvöld.
Skemmti Wilma í
u.þ.b. klukkustund
og undir lokin tóku
gestir virkan þátt í
söngnum þar sem
fram komu ýmsar út-
gáfur af laginu gam-
alkunna „When the
Saints go marching
in“. Enski hljóm-
sveitarstjórinn Step-
han Hill sem hingað
kom í fylgd með
Wilmu annaðist
undirleik ásamt
hljómsveitinni
Galdrakörlum.
Fyrr um daginn
hafði Wilma skemmt
á hátíðarhljómleik-
um á Keflavíkurflug-
velli sem haldnir
voru í tilefni 200 ára
afmælis Bandaríkj-
anna. Á mánudag
hélt Wilma ásamt
undirleikurum sín-
um í hljómleikaför
út á land og var
fyrsti viðkomustað-
urinn Hótel Akra-
nes. Síðan lá leiðin í
Stykkishólm og í
kvöld verða hljóm-
leikar í Hnífsdal. Á
morgun eru fyrir-
hugaðir tvennir
hljómleikar í Sjálf-
stæðishúsinu á Akur-
eyri og á laugardags-
kvöldið verður hald-
ið í Félagsheimilið
Árnes í Gnúpverja-
hreppi. Hljómleika-
förinni lýkur svo í
Glæsibæ n.k. sunnu-
dagskvöld.