Morgunblaðið - 07.07.1976, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.07.1976, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1976 María Olafsdóttir fulltrúi—Minning Fyrir hart nær einni öld fluttist til Hafnarfjarðar norðan úr Húnavatnssýslu ungur bóndi aó nafni Böðvar Böðvarsson. Böðvar faðir hans, prófastur á Melstað í Miðfirði, var sonur síra Þorvaldar Böðvarssonar, sálmaskálds og prófasts í Hoiti undir Eyjafjöll- um, en frá honum er mikiil ætt- bogi kominn. Hálfbróðir Böðvars, sira Þórarinn Böðvarsson, hafði fengið Garða á Álftanesi 1868 og gerðist sem kunnugt er mikill for- ystumaður hér um slóðir, prófast- ur, alþingismaður, og siðast en ekki sízt, mikill forystumaður á sviði menningarmála. Er Flens- borgarskóli óbrotgjarn minnis- varði prófastshjónanna i Görðum. Eflaust hafa áhrif síra Þórarins orðið til þess, að Böðvar bróðir hans tekur sig upp og flyzt búferl- um til Hafnarfjarðar með siðari konu sinni, Kristínu Ólafsdóttur, dómkirkjuprests Pálssonar, en fyrri konu sína, Guðrúnu Guð- mundsdóttur, prófasts á Melstað Vigfússonar, hafði Böðvar misst frá þremur ungum börnum. Þegar Böðvar Böðvarsson flutt- ist til Hafnarfjarðar, voru börn hans orðin 5, en barnahópurinn stækkaði, og af 15 börnum Böðvars komust 11 til fullorðins- ára. A þeim tíma, sem Böðvar kem- ur til Hafnarfjarðar og gerist veit- ingamaður og síðar kennari, var byggðarlagið ekki fjöl- mennt. Það var því ekki óeðlilegt, að svo stór fjölskylda setti fljótt svip á staðinn og ætti eftir, þegar fram líðu stundír, að koma víða við. Sú varð og raunin á. Flest þeirra Böðvarssystkina, og ætt- menni þeirra, hafa verið búsett í Hafnarfirði og nágrenni, og mörg þeirra komið þar mjög við sögu. I dag er kvödd sonardóttir Böðvars Böðvarssonar, Maria Elisabet Ólafsdóttir, Böðvarsson- ar sparisjóðsstjóra, og konu hans, Ingileifar Sigurðardóttur Bach- manns kaupmanns á Patreksfirði, en María lézt hinn 28. júní s.l. María var fædd í Hafnarfirði 2. nóvember 1905 og var einkabarn foreldra sinna, en tvo frændur hennar, Knút Jónsson og Jón Lárusson, fóstruðu þau Ingileif og Ólafur. Sem barn var María ekki heilsu- hraust og hafði það áhrif á skóla- göngu hennar, sem mest var því heimanám, en síðar stundaði hún nám við Kvennaskólann í Reykja- vík. Þegar María hafði náð heilsu, stundaði hún verzlunarrekstur um tima, ásamt frændkonum sín- um, en 1937 hóf hún störf hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, og þar starfaði hún á meðan kraftar entust. Ólafur, faðir Maríu, tók við for- stöðu Sparisjóðs Hafnarfjarðar 1929, þá rúmlega fimmtugur að aldri. Gegndi hann starfi spari- sjóðsstjóra til áttræðisaldurs, og átti veigamikinn þátt í vexti og viðgangi sparisjóðsins. Hann naut alla tíð góðrar aðstoðar Maríu dóttur sinnar, ekki hvað sízt þeg- ar halla tók undir fæti, aldurinn fór að segja til sín og sjónin að hverfa, enda hafði verið mjög ná- ið með Maríu og foreldrum henn- ar alla tið. í nærri fjóra áratugi starfaði María í Sparisjóði Hafnarfjarðar og innti þar af hendi ómetanlegt starf fyrir stofnunina, ósérhlífin og samvizkusöm, en samtímis af- burða skilningsrík á málefni við- skiptamanna sjóðsins. Sá mikli fjöldi Hafnfirðinga, sem átt hefur viðskipti við Sparisjóð Hafnar- fjarðar, kynntist Maríu og hennar góðu eiginleikum, og til hennar var leitað með smátt og stórt, og henni treyst til þess að finna beztu lausn á aðsteðjandi vanda- málum. Það er rétt, sem sameiginlegur vinur okkar Maríu sagði: ,,Hún Maja var með þekktustu persón- um í Hafnarfirði um langt skeið." Þegar ég hóf störf í Sparisjóði Hafnarfjarðar 1958, naut ég til- + Maðurinn minn KRISTJÁN HALLDÓRSSON, kennari frá Patreksfirði, Laufásveg 36, Reykjavik, varð bráðkvaddur þann 5. júlí Fyrir hönd fjölskyldunnar Jóhanna Ólafsdóttir t ÁGÚST JÓNSSON fyrrverandi yfirvélstjóri, Hraunbæ 1 32 andaðist að morgni 5 |úlí á Landspltalanum Katrín Helga Agústsdóttir Haukur Ágústsson Hilda-Torfadóttir Stefðn Halldórsson. Útför t HELGU GUÐJÓNSDÓTTUR, Austurbrún 6, fer fram frá Fossvogskirk/u, fimmtudaginn 8 /úli kl 3 Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Alma Einarsdóttir, Hjörtur Guðmundsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ELISEUSAR JÓNSSONAR Mánabraut 6. Sigrún Eliseusdóttir Hörður Jónasson Ruth Sigurhannesdóttir Sigurður Bjarnason Sigurbjörg Sigurhannesdóttir Sigurbjorn Bjarnason Þórunn S. Taylor Raymond R. Taylor Eirika Sigurhannesdóttir _________________ og barnaböm.____________________________ sagnar fyrirrennara míns, Ólafs, um nokkurt skeið, og ómetanlegr- ar aðstoðar Mariu allan þann tíma, sem ég var starfsmaður Sparisjóðsins. Þegar ég svo vegna ahnarra starfa var fjarverandi úr spari- sjóðnum, var hún hinn trausti og ósérhlifni starfsmaður á staðnum, og henni treysti ég til umsjónar og ákvarðanatöku í minni fjar- veru. María Ólafsdóttir var sérstæður persónuleiki, um það deila ekki þeir fjölmörgu, sem hana þekktu. Hún hafði ánægju af góðum fé- lagsskap og lét sig fjölmörg mál efni skipta, andleg og veraldleg. Hún var í hópi stofnenda Vorboð- ans, félags Sjálfstæðiskvenna i Hafnarfirði, i stjórn þar um ára- tuga skeið, og innti þar af hendi mikið starf, sem nú er þakkað. Fríkirkjan var hennar, og lét hún sér mjög annt um hana alla tíð og veitti þar þann stuðning, sem hún bezt gat, sem mér er kunnugt um að var mikils metinn. Hábær er þáð hús nefnt, sem Ólafur Böðvarsson og fjölskylda hans bjó í, og stendur það við Skúlaskeið. Skömmu fyrir andlát sitt hvatti Ólafur til þess, að húsið yrði selt og íbúð keypt við Sunnu- veg. Með því móti tryggði hann nærveru Maríu við skyldfólk hennar, þegar hann væri horfinn. Vissulega reyndist henni þessi ráðstöfun heilladrjúg, því frænd- fólk hennar og vinir, sem hún mat mikils, gættu hennar og fylgdust með henni ævikvöldið á enda. Þegar ég með þessum línum minnist vinkonu minnar, Maríu, og flyt henni kveðjur og þakkir mínar og fjölskyldu minnar, veit ég að undir það tekur hinn stóri hópur frændfólks og vina og reyndar fjöldi Hafnfirðinga, og þá ekki sízt stofnunin, sem hún helgaði alla starfskrafta sfna, Sparisjóður Hafnarfjarðar. Guð blessi minningu Maríu E. Ólafsdóttur. Matthfas A. Mathiesen. María Ólafsdóttir starfsstúlka í Sparisjóði Hafnarfjarðar var meðal fyrstu Hafnfirðinganna, sem ég kynntist, þegar ég kom í bæinn. Ekki reiknaði ég með því þá, að við hjónin, þegar við stofnuðum heimili, myndum byrja okkar búskap undir sama þaki og hún, en sú varð raunin, því fyrstu búskaparárin leigðum við íbúð hjá foreldrum hennar, Ingileif Sigurðardóttur og Ólafi Böðvarssyni að Skúlaskeiði 3. Fjölskyldan öll var okkur mjög elskuleg og hjálpleg og tókst strax með okkur sú vinátta, sem ekki rofnaði fyrr en dauðinn tók í taumana. En hans vald nær ekki til að rjúfa góða minningu né breyta góðri handleiðslu og hlý- hug farins vegar. Þar ljómar enn birta horfinna samferðarmanna. María hlaut gott uppeldi. Hún var greind vel og fróð um marga hluti enda fylgdist hún vel með og las margt góðra bóka. Einkum var henni hugleikið allt, sem að manninum sjálfum sneri. Hún kunni góð skil á ættum fólks og þótt maður þekkti ekki þann, sem um var rætt, þá var hún innan stundar búin að rekja ættir hans og innan þess hrings var oft ein- hver, sem maður kunni deili á eða þekkti. Skoðanir Maríu voru fastmótað- ar og ákveðnar. Hún mat mikils orðheldni og áreiðanleik, dreng- lyndi og dug. Hún var ávallt heil i starfi og vildi skila þvf fullunnu. Regla var á hverjum hlut. Hún fylgdi Sjálfstæðisflokknum að málum og var m.a. i stjórn Sjálf- stæðiskvennafélagsins Vorboðinn um langt árabil. Kirkju sinni, Fríkirkjunni, unni hún mjög og vildi hag hennar og velferð sem mesta. Henni þótti vænt um sam- ferðarfólk sitt. Fylgist vel með högum þess, dáðist að dugnaði ungs fólks og harmaði er fólk lenti í erfiðleikum eða ógæfu. Og hún var þeim mjög þakklát, sem á einn eða annan hátt létu sér annt um hana. Á þvi þurfti hún að halda i veikindum sínum síðustu árin. Henni þótti vænt um foreldra sína og ávallt bjó hún hjá þeim meðan bæði lifðu. Við erum mörg, sem þekktum Maju í Sparisjóðnum, misjafnlega náið en öil að góðu. Það fylgja henni þvi margar hlýjar kveðjur, þakkir og góóar bænir að leiðar- lokum. Góð kona er kvödd. Blessuð sé minning hennar. Páll V. Daníelsson. Minningarorð: Halldór Ásgeirs- son fv. kjötbúð- ar- og sölustjóri Hinn 18, júní sl. andaðist Hall- dór Ásgeirsson fv. kjötbúðar- og sölustjóri hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga. Halldór hafði hin siðustu ár átt við mikla vanheilsu að striða. Hann var jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju hinn 25. þ.m. Þeim fækkar nú óðum full- trúum eldri kynslóðarinnar á Ak- ureyri, sem á sínum tima settu sérstakan svip á bæjarlífið, en Halldór Ásgeirsson var einkenn- andi fulltrúi sins tíma. Halldór var fæddur 5. ágúst árið 1893 í Dagverðartungu í Hörgárdal. Hann fluttist ungur til Akureyrar og þar var starfsvettvangur hans alla tíð uns yfir' lauk. Halldór hóf ungur starf hjá Kaupfélagi Ey- firðinga, sem aðstoðarmaður i kjötbúð félagsins, síðar sem kjöt- búðarstjóri, og sinnti hann því starfi lengstan hluta starfsæfi sinnar, en síðustu starfsárin vann hann sem sölustjóri verksmiðja Kaupfélags Eyfirðinga. Halldór mun hafa átt einna lengstan starfsferil af starfsmönnum Kaupf. Eyfirðinga, eða um eða yfir 50 ár. Halldór var dyggur og traustur starfsmaður, sérstaklega vel látinn af yfirboðurum sinum og öllu samstarfsfólki. Halldór + Móðir okkar, JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Viðey lézt að heimili sinu, Laugarnes- vegi 61,4.7 Jarðarförin auglýst síðar Fyrir hönd barna og tengda- barna. Guðmundur R. Magnússon. var einlægur samvinnumaður og naut óskoraðs trausts félags- manna KEA svo og annarra við- skiptamanna sem hann átti sam- skipti við. Sérstaklega er mér minnisstætt hve vinsæll hann var hjá öllum brytum á farþega- og flutningaskipum sem hingað komu, svo og matsveinum og öðr- um forráðamönnum fiskiskipa- flotans, en stundum hér áður fyrr, var oft ákaflega erilssamt i kringum Halldór þegar hann var kjötbúðarstjóri, sérstaklega þegar að sildarvertíðin stóð sem hæst. Það var ekki alltaf umsvifamest eða mesta fyrirhöfnin, við að af- greiða vörurnar sem fengust í kjötbúðinni hjá Halldóri, heldur þurfti hann að snúast út og suður um allan bæ og jafnvel lengra til þess að útvega hitt og þetta, sem sett hafði verið á pöntunarlist- ann, sem i þá daga var oftast sendur gegnum talstöð skipanna. En það var sama, hvort heldur var að nóttu eða degi, hjá Halldóri komst það eitt að, að reyna að leysa fljótt og vel úr þeim vand- kvæðum sem að bar hverju sinni, og það var oft með ólíkindum hve vel honum tókst i þeim efnum. Ég fylgdist vel með flotanum í þá daga og var vel kunnugur þessum málum, og maður fann það best í vertiðarlokin, hve margir það voru sem áttu Halldóri þakkar- skuld að gjalda, og hve hlýjan hug menn báru til hans. Atvikin höguðu því þannig, að ég kynntist ungur Halldóri Ás- geirssyni og þó nokkur aldurs- munur væri milli okkar, uróum við miklir vinir og nánir félagar. í mínum kunningjahópi var Hall- dór eins konar Nestor hópsins, og einhvern veginn var það svo, að okkur strákunum sem vor- um þó töluvert yngri en hann. fannst selskapið eiginlega ekki alveg fullkomið nema að Halldór væri með. Halldór var gæddur einstakri kímnigáfu og gat verið mjög spaug- samur. Hann hafði frábæra frásagnarhæfileika og það var hrein unun að vera í félagsskap hans þegar sá gállinn var á hon- um. Honum virtist svo létt að finna björtu hliðarnar á lífinu og ef eitthvað bar i móti var hann uppörfandi og úrræðagóður. Þess vegna var svo gott að leita til Halldórs ef eitthvað bjátaði á og maður fór aldrei vonsvikinn af hans fundi. Enda voru þeir marg- ir sem um árin lögðu leið sína til Halldórs Ásgeirssonar, þegar vandræði steðjuðu að, og ótöldum veitti hann margvíslega hjálp og aðstoð. Af mínum .kynnum við hann, fann ég að Halldóri ieið sjaldan betur en ef hann hafði getað orðið einhverjum að liði, eða gert einhverjum greiða. Nú er þessi aldni góði vinur minn genginn á vit feðra sinna. Hin siðustu ár átti hann við van- heilsu að striða og eilin var hon- um erfið. Undir slíkum kringum- stæðum er dauðinn hin mesta líkn, og ég er ekki í nokkrum vafa um, að hinum megin bíða Hall- dórs margir vinir í varpa. Ég kveð þennan látna heiðurs- mann með angurværum huga. Ég er forsjóninni þakklátur fyrir að hafa átt hann sem vin og félaga. Eftirlifandi eiginkonu hans og öðrum ástvinum votta ég einlæga samúð og bið þeim blessunar. Jón G. Sólnes.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.