Morgunblaðið - 07.07.1976, Síða 27

Morgunblaðið - 07.07.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976 27 Minning: Arnór Stefánsson ógleymdum afa og ömmum við svo skyndilegt fráfall. Því hvað er sviplegra en standa fyrirvaralaust við dánarbeð yndislegs sonar, bróður og barnabarns og ástríks frænda? Hve erfitt slíkt er veit sá einn er reynir. Ég veit að söknuður vina minna er mikill, en við eigum þá huggun að kveðja hér góðan dreng sem alls staðar skildi eftir sig góðar minningar. Allra framtíð er óráðin og við þökkum fyrir að hafa fengið að njóta samvista við Arnór og biðj- um honum blessunar á nýjum vegum í faðmi Drottins. Við hjónin sendum innilegar samúðarkveðjur heim í Reyni- hvamm 7, heim að Þverá og til afa og ömmu í Hveragerði og Tómas- arhaga og til annarra ættingja. Drottinn minn, huggaðu þá sem hryggðin slær. Kári Arnórsson. Hér er verið að koma fyrir steinsteyptum loftbitum í íþróttahúsi Selfyssinga. mesti efnis piltur, sem þeir er til þekktu væntu sér mikils af. Arnór hafði dvalist hjá frænd- fólki sinu að Þverá í Fnjóskadal hvert sumar frá sjö ára aldri. Hann hafói tekið miklu ástfóstri við staðinn. Hann var hændur að skepnum og naut dvalarinnar á Þverá, enda hef ég það fyrir satt að hann hafi verið uppáhalds frændi i miklu dálæti. Það er því mikill harmur kveðinn að frænd- fólkinu þar við þetta hörmulega slys og söknuður þess mikill, en jafnframt er þakkiæti fyrir þau sumur er þau fengu að njóta hans. Fæddur 20. mars 1961. Dáinn 29. júní 1976. Það syrti snögglega að. Mér barst sú harmafregn, að Arnór Stefánsson hefði látist af slysför- um siðla dags 29. júní. Svipur þessa dags var mér þungbúinn. Unglingur í fullum blóma er skyndilega hrifinn burt, burt úr systkinahópi, frá foreldrum og frændum. Það er örðug reynsla. Arnór, sem kvaddur var hinstu kveðju 5. júlí, virtist hafa allt til að bera, sem mannsefni prýðir. Hann var gæddur miklum næm- ieika, enda mjög létt um alit nám. Hann var geðprúður í besta lagi og yfirlætislaus, hægur í fram- komu en bjó yfir farsælum metn- aði. Hann var í fáum orðum sagt Þeir sem Guðirnir elska deyja ungir. Hann Arnór er horfinn. Það er erfitt að trúa þvf að Nóri eins og við kölluðum hann, bekkjarbróðir okkar sé horfinn fyrir fullt og allt úr þessu lifi. Hann var hrókur alls fagnaóar i bekknum, alltaf kátur og fjörugur og leysti gjarnan vandamál okkar hinna. Hann kom ungur i Kópa- voginn og slóst strax í för með okkur í barnaskóla og fylgdi okk- ur i skóla og frítímum til dauða- dags. Nóri var samviskusamur og stundvís á allan hátt, duglegur að læra og áhugasamur. Hann var góður trúnaðarvinur og varð aldrei þreyttur á að hlusta á okkur. En við verðum að sætta okkur við stóra skarðið sem höggvist hefur í vinahóp okkar við hvarf hans. Við vottum foreldrum hans og systkinum innilegustu samúðar- kveðjur. Minning hans lifir meðal okkar allra. Bekkjarsystkinin. Ný útisundlaug og íþróttahús á Selfossi Á Selfossi er hafinn undirbúningur á skipuiagningu úti- vistarsvæðis, þar sem m.a. mun verða úti- sundlaug, boltavellir, mini-golfvöllur og sól- baðsaðstaða. (Jtivistar- svæðið verður mið- svæðis i bænum, eða vestan við Sundhöll Selfoss. Morgunblaðið hafði samband við Jón B. Stefánsson, fþrótta og æskulýðsfulltrúa Selfosshrepps, til að inna hann eftir fram- kvæmdum. Sagði hann, að hreppurinn hefði fest kaup á plastsundlaug áf Landsmótsnefnd Ungmennafélags Is- lands og væri verið að bjóða verkið út þessa dagana. Sundlaugin er 11x25 m og gerði Jón ráð fyrir, að hún kæm- ist í gagnið næsta sum- ar. I viðtalinu við Jón kom enn fremur fram, að verið er að reisa íþróttahús við Gagn- fræðaskólann á Sel- fossi. I húsinu verður m.a. íþróttavöllur af löglegri stærð, eða 25x11 m, og er þessi íþróttaaðstaða i fyrsta lagi ætluð til leik- fimiskennslu við. skól- ann, en einnig til al- mennra íþróttaæfinga. Verður þetta fyrsta íþróttahúsið með lög- legum keppnisvelli á gjörvöllu Suðurlands- undirlendinu, og sagði Jón B. Stefánsson, að vonandi yrði íþrótta- húsið mikil lyftistöng fyrir innanhúsíþróttir á því landsvæði, en gert er ráð fyrir að byggingin verði full- gerð seint á næsta ári. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl' AIGLYSIR t M ALLT LAND ÞEGAR ÞL' AUGLYSIR I MORGl'NBLADINl' FVESTUR-ÞÝZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA' Ætíð fylgir því ný reynsla að kynnast fólki. Svo var einnig er samskipti jukust milli míns heim- ilis og heimilis foreldra Arnórs, þeirra Arnþrúðar og Stefáns. Ég minnist Arnórs frá mörgum heim- sóknum mínum í Reynihvamm 7. Það vakti athygli mina hve prúð- ur hann var á heimili og fyrirferð- ar lítill, en fylgdist þó vel með öllu, hve látlaus hann var en þó friskur i hverjum leik. Hann virt- ist í rikum mæli hafa erft hina bestu kosti ættmenna sinna. Það er mikill harmur kveðinn að foreldrum og systkinum að Afmælis- og minning- argreinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast 1 sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu linubili. stílhreinn og vandaður Ýmsa kosti vaeri hægt að telja, svo sem sérlega vönduð framsæti með höfuðpúðum, rúmgóð og þægileg aftursæti. Fullkomnustu gerð af loftræsti- og hitunarkerfi og óvenju^ stórt farangursrými. En það eru ýmsir aðrir bílar sem eru glæsilegir og góðum kostum búnir. VW Passat hefir þó mikilvægan kost umfram aðra bíla. Hann er framleiddur af Volkswagen verksmiðjunum. Hann er vestur-þýzk gæðaframleiðsla, sem ber vott um hug- kvæmni og vöruvöndun. Hann er ódýr í rekstri og hann nýtur hinnar þekktu Volkswagen varahluta- og viðgerða- þjónustu með tölvustýrðum bilanagreini. VW Passat «r fáanlegur 2ja dyra, 4ra dyra. © PASSAT — bíllinn sem hentar yður FYRIRLIGGJANDI HEKLA Laugavegi 170—172 HF. Sfmi 21240

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.