Morgunblaðið - 07.07.1976, Síða 32

Morgunblaðið - 07.07.1976, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1976 Skipbrotið í sameiningu. Ég geröi honum aftur 'skiljanlegt með bendingum, að ég hefði viðbjóð og andstyggð á slíku. Nú fórum við þangað, sem villimenn- irnir höfðu haldið máltíð sína. Hér sá ég þá hryllingar sjón, að blóðið ætlaði að stirðna í æðum mínum. Jörðin var öll blóði drifin; sumstaðar lágu hálfsteykt kjötstykki, sumstaðar nagaðar beinhnútur og hauskúpur. Nú gerði Frjádagur eins og ég sagöi honum fyrir með bendingum; hann bar saman við, lagði beinin þar ofan á og kveikti síðan í með eldglæðum, sem fund- ust enn í öskunni eftir bál það, er villi- mennirnir höfðu kynt daginn áður. Þegar þvi var lokið, þá fyrst fór ég með Frjádag inn í hellishíbýli mín. í skútan- um voru ekki miklir munir. En þegar hér var komið, féll hann hreint í stafi yfir nægtaforða mínum og þeim margbreyttu hlutum, sem hann sá. Hann horfði á mig með óttablandinni lotningu, og oft var rétt að honum komið að falla fram fyrir mér og tilbiðja mig. Fyrst af öllu lét ég mér um það hugað, aó klæða hann, því að ég hafði óbeit á að Það var skynsamleg ákvörðun að leyfa Lúlla litla ekki að sjá þessa mynd. sjá hann hlaupa svona nakinn í kringum mig. Þegar ég tók til klæðagerðarinnar, horfði hann á mig með grandgæfilegustu eftirtekt. Ég gerði honum skiljanlegt, hvaó það væri, sem ég ætlaði að búa til handa honum, og var eins og honum þætti vænt um það. Fatnaðinn gerði ég sem líkastan þeim, er ég var i sjálfur, og er ég hafði lokið þessu skraddarastarfi mínu, þá varð ég sjálfur að hafa fyrir að færa Frjádag minn í spjarirnar, og gekk það ekki þrautalaust. Nokkrum dögum síðar hittum við villi- geit úti í skógi; lagði ég þá byssuna til hæfis og skaut geitina. Frjádagur varó dauðhræddur, reif af sér fötin og skoðaði á sér brjóstið. Það var auðskilið, hvað honum bjó í huga. Hann hafði sem sé hugað mjög vandlega að sárinu á brjósti villimanns- ins, og hélt, að skotið hefði ef til vill í þetta sinn lent í sínu eigin brjósti. Nú er hann sá, að hann var ósærður, þá féll hann fram fyrir mér og faðmaði kné mín. ég hughreisti hann með bendingum og lét hann fara með mér til dauðu geitar- innar. Meðan hann var að horfa á hana, hljóð ég byssu mína. Rétt á eftir sá ég, hvar fálki sat hátt uppi í tré. Reyndi ég þá að gera Frjádag skiljanlegt, aó ég hefði í hyggju að skjóta fuglinn. Því næst miðaði ég og hleypti af, og datt fálkinn þá dauður til jaröar. Frjádagur horfði á byssu mína með helgum ótta og dirfðist ekki að snerta á henni. Hann varð nú aö bera geitina heim. Sauð ég eitt kjötsfykki, og varð af því hin ágætasta súpa, og sá ég ekki betur en að Frjádag smakkaðist hún vel. Þó vantaði mikið á, að honum þætti hún eins góð og steikin, sem ég steikti á teini daginn eftir. Frjádagur var afbragðs námfús. Það leið ekki á löngu, áður en hann gat aðstoðað mig i öllu við mín margbreyttu heimastörf, og þar að auki fór hann einnig að geta talað við mig.. .. Bardaginn Það var einhvern morgun, að Frjádag- ur var genginn ofan í fjöru til að leita að skjaldbökum. Haltu naglanum fyrir mig, ég Hann er ekki aðeins of breiður er búinn að lemja á mér putt- heldur líka of langur. ann til blóðs. Nokkrir háttsettir hers- höfðingjar komu eitt sinn I eftirlitsferð I fremstu vfgllnu. — Kapteinn, sem var leiðsögu- maður þeirra, sneri sér að her- foringja þeim, er var næstur honum og hvfslaði: „Við erum nú I þriðju virkjalfnu.“ Hershöfðinginn sneri sér að hershöfðingjanum fyrir aftan sig og hvfslaði þessum upp- lýsingum að honum og þannig gekk það mann frá manni. Nokkru seinna hvfslaði kapteinninn aftur: „Núna er- um við f annarri virkjalfnu.“ Hershöfðinginn lét það ganga til næsta manns og svo koll af kolli. Að nokkurri stundu liðinni hvfslar kapteinninn enn: „Þá erum við víst f fremstu vfg- línu.“ Hvfslið gekk eins og fyrr. „Jæja,“ hvíslaði nú hers- höfðinginn. „Hvar eru óvinirn- ir?“ „Hér um bil fjórðung mfiu f burtu,“ svaraði kapteinninn. „Fjórðung mflu,“ hrópaði hershöfðinginn. ,4Ivers vegna erum við þá að hvfslast á?“ „Vegna þess að ég er þegjandi hás þessa stundina." Einn sólbjartan mafdag stóð blindur maður á Central Park. Hann bar stórt merki, sem á var letrað „Hjálpið blindum". Það voru fáir sem veittu honum eftirtekt og hagnaður hans var Iftill þann dag. Nokkru sfðar kom annar blindur betlari á torgið. Fólkið þyrptist að honum og allir létu hann fá eitthvað, sumir jafnvel sneru aftur til þess að bæta við framlag sitt. Hann hafði spjald, sem á var letrað: „Það er maf — og ég er blindur." Höskadraumar Pramhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 20 panta hana eftir teikningu sem hann gerði sjálfur og ég kom pakkanum til hans á miðvikudag- inn elns og afráðið hafði verið. Hann tók pappfrinn utan af og f Ijós kom Iftil askja. Á hvftu flaueli lá gullhringur með fimm ólýsanlega fallegum gimmstein- um sem glitruðu svo að maður fékk næstum ofbirtu í augun. — Ja, hamingjan góða; sagði Kári lotningarfullur. — Hann hefur kostað formúu þessi. — Já, það máttu bóka. Gregor rétti hringinn í áttina til Cecilíu torkennilegur á svip. Hún starði sem dáleidd á gersem- ina f nokkrar sekúndur. Svo lét hún öskjuna á borðið. fól andlit sitt f höndum sér og fór að gráta. svo beizklega að það var næstum ómögulegt að skilja hverju hún reyndi að stynja upp milli grát- hviðanna. — Ö.... hann er.... nákvæm- lega eins og ég óskaði mér... og ég sem var svo fúl og önug allan daginn... og þá hefur hann Ifk- lega bara geymt að gefa mér hann.... en hvers vegna... HVERS VEGNA beið hann með að gefa mér hann... Þá hefði ég aldrei.... Gráturinn varð æ hömiulausari og þar sem allar tilraunir við- staddra til að sefa hana, mistók- ust, varð Gregor loks að gefa henni róandi sprautu. Og enda þótt Andreas mótmælti harðlega neyddi læknirinn hann einnig til að taka töflur og skipaði bæði honum og öllum öðrum að fara aftur f rúmið. Næstu klukkutfmana lá Malin alklædd ofan á rúminu sfnu og horfði á skugga næturinnar vfkja smám saman fyrir dagsbirt* unni.... ef þessi drungalegu regnský voru þá dagsbirta... og hún varð æ sannfærðari um ... og gat ekki fosað sig við þá tilhugs- un... að það væri eitthvað stór- kostlega og ægilega mikið athuga- vert við það sem hafði gerzt á Hall þennan sfðasta sólarhring. Hún gat ekki skilgreint hvað það var. Henni fannst hún hafa greint það dulúðuga og einkenni- lega andrúmsloft sem rfkti á Hall og hún hafði einhvern veginn haft hugboð um að eitthvað myndi gerast. En hún hafði verið svo hjartanlega sannfærð um að þegar höggið riði af myndi það lenda á öðrum. Þar af leiðandi neitaði hún að sætta sig við dauða Jóns, sem virtist vissulega eðli- legur og f raun kannski það sem hefði mátt búast við. Skilningar- vit hennar sem höfðu skerpzt bæði af hræðslu og tortryggni sögðu henni að hún ætti að rækta með sér meiri árvekni og gætni. En gagnvart hverju... og hverjum? Allt i einu fannst henni einangrunin frá umheiminum leggjast á sig eins og óþolandi taugafarg. Hún óskaði þess af öllu hjarta að hún gæti rætt við ein- hvern góðan vin og sagt honum frá hinum óskýranlegu grun- semdum.... og áhyggjum. Láta einhvern hugga sig og láta sann- færa sig um að þetta væri of- skynjun og fmyndun. F.n sú veika von sem hún ól með sér þessar klukkustundir: að Andreas myndi vegna þess sem gerzt hafði hætta vlð skáldsögu sfna og segja ritaranum að fara sfna leið, varð að engu daginn eftir, þegar hún var kvödd á fund hans f bókaher- berginu. Hann var f inniskóm og peysu. Hann var öskugrár f andliti og þreytt augu hans báru vott um þvflfka örvæntingu að hún gat ekki fengið af sér að horfa framan f hann. Formálalaust hóf hann að lesa henni fyrir bréf til Rambergs for- leggjara: „Kæri vinur. Sonur minn, Jón, andaðist sl. nótt. Eg mun hlffa þér við nánari lýsíngu á Ifðan minni, og þess f stað segja þér það sem máli skiptir. I.æknirinn minn hefur skipað mér að vinna sem mest og segír það beztu lækninguna til að fyila það tómarúm sem verður þó ekki fyilt. Eg hallast að þvf að hann hafi rétt fyrir sér. Þú skalt fá bók þfna, en ég þori ekki að svo komnu máli að lofa þér sfðasta hluta handritsins fyrr en 15. nóvember f stað 3. nóvember eins og við höfðum talað um. Ef þú telur að ekki sé hægt að koma henni á markað fyrir jól, verður þú að bfða með prentunina eftir þvf sem þú telur réttast. Andreas. Þar. næst tilkynnti hann stuttaralega að jarðarförin yrði frá Kila á mánudeginum og að Malin gæti fengið frf það sem eftir væri dagsins. Hún varð ákaflega glöð þegar Björg stakk upp á þvf að hún slægist ( föi með henni til Kila að verzla. — Ég hef óskaplega mikið að gera. Hvorki Cecilía né Ylva eiga nein viðeigandi föt til að vera f við útförina og hvorug þeirra treystir sér til að koma með mér. Svo verð ég að útvega blóm og kransa og auðvitað mat, en ef við skiptum með okkur verkum býst ég við þetta hljóti að takast. Þær óku dökkbláum Chrystler-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.