Morgunblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1976
33
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
% Annars flokks
fólk?
„Mig langar að gefnu tilefni að
bera fram þá spurningu, hvort
fatagjafir til Kópavogshæli séu
nauðsynlegar, hvort ekki séu ein-
hverjir vissir aðilar, sem eiga að
sjá þvl fólki, sem þarna dvelst
fyrir fötum. Mér hefur skilizt að
sumt af þvi, sem þangað er gefið
af hinum og öðrum, eigi hvergi
heima nema i ruslatunnunni, sé
auk þess af heilbrigðisástæðum
varhugavert.
Sjálfsagt er þetta af góðum hug
gert, en getur verið særandi fyrir
aðstandendur þessa fólks, að
minnsta kosti sumra. Það er leið-
ur hugsunarháttur, sem örlögin
hafa mismunað, að bjóða megi
þeim það sem heilbrigðir láta
ekki bjóða sér.
I sambandi við þetta vil ég
benda á að mér finnst það sjálf-
sögð krafa, að við fatakaup á þá,
sem þarna dveljast, séu föt valin á
hvern einstakling fyrir sig en
ekki tilviljun ein látin ráða hvort
fötin passa eða ekki. Sömuleiðis
sé persónuléiki hvers og eins virt-
ur svo, að hann hafi sin eigin föt
að ganga i. Ég vil ékki að það sem
ég hef sagt hér sé skoðað sem
ádeila, heldur ábending. Það er
svo margt gott um þennan stað að
segja, að ég lýk þessum línum
með því að þakka forstöðufólki
þarna og öllum öðrum, sem þarna
eiga hlut að máli. Það þakklæti
skýrist bezt með þvi að bróðir
minn, sem þarna hefur dvalizt frá
upphafi þessarar stofnunar, er
mjög ánægður, vill hvergi annars
staðar vera og liður þar svo vel, að
á betra er vart kosið.
Vinsamlegast,
Þuriður Sigurðardóttir."
0 Ókurteisi
„Agæti Velvakandi.
Ég er einn þeirra þrjú þúsund
tónleikagesta, sem fóru í Laugar-
dalshöllina s.l. þriðjudag til að
hlýða á söng Cleo Laine og annað
það, sem þar var til skemmtunar.
Er skemmst frá að segja, að ég
skemmti mér konunglega eins og
áreiðanlega allir, sem þarna voru.
Erindið var nú samt ekki að lýsa
dýrðinni, heldur að gagnrýna
nokkuð, sem mér fannst skyggja
verulega á ánægjuna.
Aðgöngumiðinn að tónleikun-
um kostaði hvorki meira né
minna en 2000 krónur. Þetta er
ærið verð, en maður lætur sig
samt hafa það að borga þetta, ef
eitthvað sérstakt er á ferðinni,
eins og hér var um að ræða. Mér
bfl út úr skúrnum, sem var vlð
hliðina á litla gróðurhúsinu og
það var hreinasta ævintýri að sjá
hliðið Ijúkast upp og leggja að
baki bæði húsið og háan múrvegg-
inn umhverfis. Björg sem var
virðulega klædd f svarta dragt
með lftinn hatt á Ijósu hári ók
hratt og örugglega og gaf samtím-
is Malin heilmiklar upplýsingar
um, hvernig áformað væri aðhaga
jarðarförinni.
Þetta verður afskaplega mik-
il áreynsla fyrir Andreas, sagði
hún. — En Gregor hefur tekið að
sér að hugsa um allt sem honum
viðkemur og tala svo við þá sem
sjá um útförina og ræða við prest-
inn og allt það og ég vona það
takist að gera þetta án þess að það
fréttist mikið út. Eg veit að hann
hefur sagt frá þvf f bænum að
athöfnin verði á miðvikudag. Svo
að ef heppnin verður með okkur
sleppum við vonandi við hóp af
hnýsnum áhorfendum.
Þær voru komnar til Kila eftir
örstutta stund.
— Ég læt þig úr hérna, sagði
Björg og stöðvaði bílinn á horni
aðalgötunnar. — Við hittumst á
sama stað aftur milli klukkan
fjögur og hálffimm. Ef það fer að
taldist til, að samtals hefðu
fengizt um sex milljónir fyrir
aðgöngumiðana, og svipað hlýtur
þá að hafa komið inn fyrir tón-
Ieika Anneliese Rothenberger.
Það er auðvitað mál út af fyrir
sig, að fáir frábærir listamenn
séu látnir halda uppi heilli lista-
hátið fjárhagslega, a.m.k. að veru-
legu leyti, eða öllu heldur þeir,
sem vilja njóta listar þeirra, en
þeir verða þá sem sagt að borga
fyrir þá listamenn, sem minni
háttar eru, en þurfa samt að fá að
Iáta Ijós sitt skína á listahátíð.
En hvað um það — þegar tón-
leikarnir góðu hófust varð ég þess
fljótlega vör, að myndatökumenn
sjónvarpsins voru komnir á stað-
inn. Hófu þeir nú að aka tækjum
sínum og vögnum um salinn í gríð
og ergi, og héldu því áfram þar til
yfir lauk. Af þessum erli stafaði
að sjálfsögðu mikið ónæði og ég
tók eftir því oftar en einu sinni,
að sjálfu listafólkinu stóð ekki á
sama um þetta brambolt. Ljós-
myndarar blaðanna voru einnig á
staðnum, en þeir fóru hljóðlega
og létu lítt á sér bera. Nú veit og
ofurvel, að þessir umræddu
starfsmenn sjónvarpsins geta
ekki athafnað sig án þess að við
þá verði vart, þannig er ekki við
þá að sakast persónulega. En ef
sjónvarpið vill fá svona efni til
sýningar, sem mér finnst vel til
fundið og raunar alveg sjálfsagt,
þá á að taka slíka dagskrá upp i
sjónvarpssal i stað þess að spilla
ánægju þeirra, sem kaupa sig inn
á tónleika fyrir ærið fé. Að sjálf-
sögðu yrði þetta e.t.v. nokkru
dýrara fyrir sjónvarpið, en það
getur ekki búizt við að fá hlutina
fyrir ekki neitt frekar en aðrir i
þjóðfélaginu. Að minnsta kosti er
það ekki fallega gert að skemma
fyrir öðrum í sparnaðarskyni.
Tónleikagestur."
HÖGNI HREKKVÍSI
„Heyrdu, þú lætur köttinn hans afskiptalausan héd-
an í frá.“
Umferðarfræðsla
fyrir 5 og 6 ára börn
í Kópavogi
Umferðarfræðsla verður í þremur barnaskólum í Kópa-
vogi dagana 7. til 9. júlí.
Fræðslan fer fram með viðtölum við börnin, beinni
kennslu, brúðuleikhúsi og kvikmyndasýningu.
Einnig fá börnin verkefni við sitt hæfi til úrlausnar.
Hvert barn þarf að koma tvisvar
Niðurröðun eftir aldri, stað og tíma:
Miðvikudag 7/7
Fimmtudag 8/7
Föstudag 9/7
Umferðarráð
Lögreglan í Kópavogi
Kópavogsskó'li 5 ára ki 9.30
6 ára kl. 1 1.00
Kársnesskóli 5 ára kl. 14.00
6 ára kl. 16.00
Kópavogsskóli 5 ára kl 9.30
6 ára kl. 11 00
Kársnesskóli 5 ára kl. 14.00
6 ára kl. 16.00
Digranesskóli 5 ára kl. 9 30
6 ára kl 1 1.00
Digranesskóli aftur 5 ára kl 14.00
6 ára kl. 16 00
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
U h a a / AUGLÝSINGA- SÍMINN ER: 22480
S'* <-v 'vV. 1
Ein glæsilegasta
ísbúö landsins.
Jafnan 21 bragðtegund
Úrvalið
er hjá okkur.
.v
G3? SIGEA V/öGA t iliVtMH
w waw W£vwr um
AUYIIN&)/] 5IGGU \IIGGLl
Gfóy/9. WÚH W bÚM AV
ZO-i
vi wa
SA6T AM
MYPM 5/6,