Morgunblaðið - 07.07.1976, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1976
Hnífjöfn barátta í Karlottkeppninni
Finnar og Norðmenn með 144 stig, íslendingar 136, Svíar 126
Ingunn Einarsdóttir stórbætti met sitt í 400 metra hlaupi
EFTIR fyrri dag Kalott landskeppninnar í frjálsum Iþróttum verður ekki
annað sagt en að stigabaráttan gæti tæpast verið tvlsýnni og jafnari.
Norðmenn og Finnar voru þá I forystu með 144 stig, en íslendingar I
þriðja sæti með 136 stig og Svíar I fjórða sæti með 126 stig. Hvaða þjóð
sem er getur þvi unnið keppnina, en seinni hluti hennar fer fram á
Laugardalsvellinum I kvöld. Góðar vonir eru á islenzkum sigri, og er
vonandi að islenzkir áhorfendur láti ekki sitt eftir liggja til þess að hvetja
frjálsiþróttafólkið að þvi marki. Fjölmargir áhorfendur voru á keppninni í
gær, og hafði þátttaka þeirra i baráttu íslendinganna sýnileg áhrif.
Eitt íslandsmet var slegið i keppninni I gær. Það gerði Ingunn
Einarsdóttir i 400 metra hlaupi sem hún hljóp á 56,6 sek. og bætti eigið
met um 6/10 úr sek. Ingunn var tvimælalaust „maður mótsins" I
gærkvöldi fyrir vikið, svo og glæsilegan sprett i boðhlaupi kvenna og
annað sætið é *»ftir Ernu Guðmundsdóttur í 100 metra hlaupinu.
EKKI ER hægt að segja að keppnin [
gærkvöldi hafi byrjað vel fyrir íslend-
inga. 400 metra grindahlaupið átti
að vera örugg „islenzk" grein, en
Stefán Hallgrimsson, methafi i
hlaupinu, treysti sár ekki til þess að
keppa vegna meiðsla, og þar með
var úti vonin um sigurinn. Ungu
mánnirnir tveir sem hlupu, Jón S.
Þórðarson og Þorvaldur Þórsson
stóðu sig með mikilli prýði og gerðu
betur en búizt var við af þeim, hlutu
fjórða og fimmta sætið, á ágætum
tima miðað víð það að gjósturinn i
fangið á endasprettinum var hvað
mestur meðan þetta hlaup fór fram.
— Ég var að reyna að hlaupa
grindahlaup i fyrrakvöld, sagði Stef-
án Hallgrímsson, — en ég fann strax
að meiðslin háðu mér. þannig að ég
tók þann kostinn að keppa ekki.
Stefán bætti þvi við að með öllu væri
óvist hvort hann færi til Olympíu-
leikanna i Montreal — það gerði
hann ekki nema hann væri búinn að
ná sér vel af meiðslunum.
Næsta hlaupagrein, sem var 400
metra grindahlaup kvenna, var held-
ur nöturleg fyrir islendinga. enda
alls ekki við þvi að búast að ungu
stúlkurnar tvær: Aðalbjörg Haf-
steinsdóttir og Áslaug ivarsdóttir
sem kepptu i fyrsta sinn i þessari
grein blönduðu sér I baráttuna
Hlaup þetta var annars heldur slakt
og bar þess vitni að stúlkurnar sem
hlupu það höfðu ekki mikla reynslu
né tækni í greininni, enda er þarna
um að ræða grein sem ekki er viður-
kennd i landskeppni. Sagði Örn Eiðs
son, formaður FRÍ i viðtali við Morg-
unblaðið i gær, að hinar þjóðirnar
hefðu lagt mikla áherzlu á að fá
þessa keppnisgrein inn og hefðu ís-
lendingar ekki geta staðið á móti
þvi.
Eftir tvær fyrstu greinarnar voru
Íslendingar neðstir með 12 stig.
Norðmenn höfðu hlotið 26. Finnar
21 og Sviar 14.
SVO FÓR AÐ GANGA BETUR
í næstu hlaupagrein, 200 metra
hlaupi, fór að ganga betur. Hlaupið
var i tveimur riðlum og vann Sigurð-
ur Sigurðsson öruggan sigur í fyrri
riðlinum, þrátt fyrir greinilegt þjóf-
start Svians Runald Báckman. Hljóp
Sigurður mjög vel og kröftuglega. í
seinni riðlinum hafði Bjarni Stefáns-
son svo yfirburði og átti ágætt
hlaup. Tvöfaldur islenzkur sigur og
timi Bjarna 22.4 sek. og Sigurðar
22.6 sek. er mjög góður og er ekki
vafi á þvi að þeir leika sér báðir að
þvi að hlaupa vel undir 22 sek. þegar
skilyrði verða hagstæðari, en mót-
vindur var meginhluta leiðarinnar.
í kringlukastinu hreppti ísland svo
annað og þriðja sætið. Flestir höfðu
gert sér vonir um islenzkan sigur i
þeirri grein, en bæði var að finnska
tröllið Matti Kemppainen náði ágæt
um- árangri og Erlendur Valdimars-
son náði sér ekki vel á strik. Kraftur-
inn I atrennunni hjá honum var mjög
góður og útkastið virtist einnig gott,
en i öllum köstum hans fór kringlan
of hátt — náði ekki fluginu i gol-
unni, og datt dauð niður úr mikilli
hæð. Erlendur á ekkert annað eftir
en að finna „tempóið,. i kastinu til
þess að ná mjög góðum árangri og
var þess ef til vill ekki að vænta að
hann næði betri árangri, þar sem
hann hefur sáralitið getað æft að
undanförnu vegna meiðsla. Óskar
Jakobsson kastaði mjög vel, en það
var hið sama að hjá honum og Er-
lendi, — það vantaði herzlumuninn I
samræmingu atrennu og útkasts til
þess að kastið yrði til muna lengra
Guðrún Ingólf sdóttir lét hins vegar
ekki sinn hlut i kúluvarpinu. Hún
náði snemma forystu og varð ekki
ógnað. Árangur hennar 11,48 metr-
ar verður að teljast ágætur, a.m.k. ef
miðað er við það að Guðrún hefur
lítið æft að undanförnu. Um næstu
sæti var svo gifurleg barátta, og i
henni varð hinn islenzki keppandinn,
Sigurlina Hreiðarsdóttir, að láta I
sek., og var það vel af sér vikið i
mótvindinum. Tími Ingunnar var
12.6 sek.
f 800 metra hlaupi karla var um
mikla baráttu að ræða og léku Norð-
mennimir þar aðalhlutverkið. Gunn-
ar Páll hafði forystu fyrri 400 metr-
ana, en varð siðan að gefa örlitið
eftir og missti við það keppinauta
sina fram úr sér. Hann var þó enn vel
með i baráttunni þegar komið var á
beinu brautina og 100 metrar eftir,
en lokaðist nokkuð af á endasprett-
inum. Jón Diðriksson byrjaði þetta
hlaup fremur rólega, an sótti siðan
verulega á undir lokin og skaut báð
um Sviunum vel aftur fyrir sig.
í langstökki kvenna var mikið
sentimetrastrið. í þvi hafði sænska
stúlkan Louise Hedkvist bezt, en
Lára Sveinsdóttir stóð sig með mikl-
um ágætum og stökk 5,73^ métra,
Ingunn Einarsdóttir stóð sig með miklum ágætum I keppninni '
gærkvöldi og setti nýtt met f 400 metra hlaupi. Það er grindahlaupar-
inn Jón Sævar Þórðarson sem aðstoðar hana eftir methlaupið.
minni pokann og hafnaði hún i sjö-
unda sæti.
EFTIR fimm greinar var staðan þann-
ig að Finnland var i forystu með 53
stig, Ísland var með 52 stig, Noregur
með 47 stig og Sviþjóð 33 stig.
TVÖFALTÍ 100 M
HLAUPI KVENNA
íslenzku stúlkurnar tryggðu svo
tvöfaldan sigur i 100 metra hlaupi
kvenna og munaði um minna i stiga-
baráttunni. Ingunn hljóp i fyrri riðlin
um og var vel á undan keppinautum
sinum, en Ema sem hljóp I seinni
riðlinum gerði þó enn betur og kom
langfyrst að marki. Reyndist tfmi
hennar sá bezti i keppninni, 12,4
mun lengra en Islandsmetið I greín-
inni er. Afrek hennar verður þó ekki
viðurkennt met, þar sem meðvindur
var of mikill. f þriðja sæti varð svo
norska stúlkan Ann Karin Aanes sem
stökk 5,72 metra — aðeins 7 senti-
metra munur á fyrstu og þriðju.
Eftir átta keppnisgreinar var stað-
an orðin sú. að ísland var I forystu
með 84 stig, Norðmenn voru óvænt
komnir i annað sætið með 80 stig,
Finnar voru með 74 stig og Sviar
ráku svo lestina með 58 stig.
GLÆSILEGT MET HJÁ
INGUNNI
Það var ekki að sjá á Ingunni
Einarsdóttur, er hún hóf 400 metra
hlaupið að hún væri nýbúin að Ijúka
100 metra hlaupi. Ingunn hljóp fyrri
hluta hlaupsins geysilega vel —
nýtti meðvindinn sem þá var, og tók
yfirburðaforystu. Og þótt hún væri
greinilega orðin útkeyrð á siðustu
100 metrunum og hefði að auki
vindinn i fangið, gaf hún hvergi eftir
og kom langfyrst i markið á nýju
fslandsmeti 56,6 sek. Yfirburði Ing-
unnar má bezt marka af því að timi
helzta keppinautar hennar var 59,0
sek. Þess má geta að Olympíulág-
markið í 400 metra hlaupi kvenna
var 55,0 sek. og enginn efi á þvi að
Ingunn getur náð þeim árangri hvar
og hvenær sem er við sæmileg skil-
yrði og keppni.
Ekki gekk eins vel í hástökki karla,
en þar voru flestir keppendur nokk-
uð frá sinu bezta og kvörtuðu yfir
aðstæðum. Hafsteinn var sá fyrsti
sem féll úr, á 1,95 metrum, en yfir
þá hæð fóru allir aðrir. Þrir keppend-
ur staðnæmdust á 1,95 metr. og var
Elias Sveinsson meðal þeirra Átti
Elias ágætar tilraunir við 1.98
metra. en hafði ekki heppnina með
sér. Mikið og langt strið varð siðan
um sigurinn i greininni og lauk því
neð sigri Svíans Ingemar Nyman
sem stökk 2,01 metra. en á bezt
2,14 metra í ár. .
1500 metra hlaup kvenna varð
islendingum nokkur vonbrigði Lilja
Guðmundsdóttir tók strax forystuna
og fór geyst. en þegar á hlaupið leið
dofnaði yfir henni og á endasprettin-
um tókst norsku stúlkunni Elin
Skjellnes að skjótast fram úr henni.
Virtist Lilju fyrst og fremst skorta
hörku á endasprettinum, en hlaupa-
still hennar er mjög skemmtilegur og
hún greinilega til muna sterkari en
hún var i fyrra.
Staðan eftir 11 keppnisgreinar var
sú, að Ísland hafði misst forystuna i
hendur Norðmanna. Var norska liðið
með 113 stig, íslendingar með 107
stig, Finnar i þriðja sæti með 99 stig
og enn sem fyrr ráku Sviar lestina
með 88 stig.
AFTUR HALLAR A LANDANN
i þremur næstu greinum: 5000
metra hlaupi. langstökki, og spjót-
kasti kvenna hallaði á landann. Sig-
fús Jónsson. okkar sterkasti lang-
hlaupari tók ekki þátt i 5000 metra
hlaupinu — vildi einbeita sér að
10.000 metra hlaupinu i kvöld. þar
sem hann á góða sigurmöguleika.
Ágúst hélt i við þá beztu útlending-
ana til að byrja með, en gaf siðan
eftir og virtist ekki ieggja mikla
áherzlu á hlaupið eftir það. Hefur
sennilega haft 3000 metra hindrun-
arhlaupið i kvöld í huga.
í spjótkasti kvenna stóð Arndis
Björnsdóttir vel fyrir sinu, en það
þýddi samt sem áður fimmta sætið
og Sólrún Ástvaldsdóttir varð að
gera sér áttunda sætið að góðu.
Þegar sýnt var að Friðrik Þór gæti
ekki keppt i langstökkinu vegna
meiðsla munu flestir hafa bókað að
íslendingar yrðu i tveimur neðstu
sætunum. Jóhann Pétursson kom þó
á óvart og tókst að skjóta Norð-
manni og Finna aftur fyrir sig og
hreppa fimmta sætið.
Guðrún Ingólfsdóttir — vann ör-
uggan sigur I kúluvarpinu.
UPPREISN í BOÐHLAUPUNUM
í boðhlaupunum fengu íslendingar
svo uppreisn, en þar gjörsigruðu is-
lenzku sveitimar keppinauta sina og
hlupu stórglæsilega, einkum þó
karlasveitin sem var aðeins 3 brot-
um úr sekúndu frá íslandsmeti boð-
hlaupssveitarinnar frægu á Evrópu-
meistaramótinu 1950. Af öðrum
ólöstuðum hljóp Vilmundur
Vilhjálmsson bezt. en sprettur hans
var f einu orði sagt frábær. Þá átti
Ingunn einnig frábæran þátt i boð-
hlaupi kvenna. og kórónaði frammi-
stöðu sina um kvöldið.
Urslit í
einstökum
greinum:
400 M GRINDAHLAUP KARLA:
Einar Hernes N. 55.0
Markku Rajala F. 55.2
Torolf Kruger N. 55.7
Jón S. Þórðarson i. 56.1
Þorvaldur Þórsson i. 57.0
UK Karlsson S. 57.5
Timo Alatalo F. 59.5
Lars Hágglund S. 61.8
STIG:
Noregur 15
Finnland 9
Sviþjóð 4
Ísland 9
400 M GRINDAHLAUP KVENNA
Anna Leena Manninen F. 65.9
Aina Tollefsen S. 67.6
Elisabet Udnes N. 67.8
Guri Hoff Pettersen N. 67.8
Riitta Manninen F. 68.7
Bjarni Stefánsson hefur tekió góða forystu f 200 metra hlaupinu (
þarna öruggiega tvöfaldan sigur og er vonandi að þeir leiki það afrek
gærkvöldi er komið er út á beinu brautina. Bjarni og Sigurður unnu
eftir í 100 metra hlaupinu i kvöld.