Morgunblaðið - 07.07.1976, Page 36

Morgunblaðið - 07.07.1976, Page 36
JGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 iWor0unbl«í)ií> AUGLÝSINGASIMINN ER: 22480 iHorðunlifobib ÍVIIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1976 Fannst látmn 1 sand- gryfju 1 Kópavogi Lfk Guðjóns Atla Árnasonar fannst í þessari sandkvos, og hafa flekarnir verið lagðir yfir staðinn, þar sem líkið lá. Ljósm. RAX Fullvíst að um manndráp er að ræða RANNSOKNARLÖGREÍiLlJlVIKNN í Reykjavík og Kópavof>i leituðu f jíærkvöldi banamanns eða banamanna 49 ára Kamals manns. Guðjóns Atla Arnasonar, til heimilis í sumarbústaðnum Elliða við Elliðavatn en lík hans fannst árla f gærmorgun í grvfju f grennd við stevpustöð Breiðholts við Fffuhvammsveg. Töluverðir höfuðáverkar voru á Ifkinu og fullvíst talið að um manndráp sé að ræða. Bifreið hins látna fannst í gærdag í vesturborginni og voru ummerki í hifreiðinni þannig, að Ijóst má vera að hún hafi verið notuð við verknaðinn. Rannsóknarlögreglan biður alla þá, sem eitthvað vita um ferðir Guðjóns frá um kl. 7 á mánudagskvöld, að gefa sig fram við lögregluna. Það var Asgeir Olafsson, bif- reiðastjóri einnar af steypubif- reiðum Breiðholts h.f, sem fann Ifk (Juðjóns heitins. en steypistöð Breiðholts er þarna skammt frá. Ásgeir sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að hann hefði átt þarna leið um kl. 8.30 um morgun- inn og þá séð mann liggja litið eitt Guðjón Atli Árnason. frá veginum inni í sandkvos. Töluvert blóð var í kringum munninn, en að öðru leyti sagði Asgeir, að honum hefði ekki virzt hann mjög illa leikinn. Þó kvaðst hann ekki hafa aðgætt það nánar nema gengið úr skugga um hvort maðurinn væri stirnaður og síðan gert lögreglunni viðvart. Að sögn Leos E. Löve, fulltrúa hjá bæjarfógetanum f Kópavogi, reyndist líkið vera af Oiuðjóni Atla Arnasyni, en hann hafði undanfarið verið heimilisfastur í sumarbústaðnum Elliða við Ell- iðavatn. Eftir því sem bezt var vitað i gær mun Guðjón ekki láta eftir sig neina afkomendur né heldur var hann kvæntur. Þá lá heldur ekki fyrir hvort Guðjón kynni að hafa verið rændur, er honum var ráðinn bani, en engir fjármunir fundust á líkinu. Sagði Leo, að bæði lögregluyfirvöld í Kópavogi og rannsóknarlögreglan í Reykjavík ynnu nú að rannsókn þessa máls. I gærdag auglýsti síðan rann- sóknarlögreglan eftir bifreið Guð- jóns Atla Árnasonar, sem vitað var, að hann hafði nýlega fest Framhald á bls. 20 Rannsóknariögreglumenn voru í gær að kanna bifreið Guðjóns, og þykir Ijóst að hún hafi verið notuð við verknaðinn. Ljósm. Br.H. I GÆR voru komnir á land í Hval- stöðinni í Hvalfirði 120 hvalir, 105 langreyðar, 14 búrhveli og 1 sandreyður. A sama tfma f fyrra var búið að veiða 101 hval, en þá byrjaði veiðin hálfum mánuði seinna en f ár. Viðræðurnar við Stóra Norræna: Vafasamt að fallizt verði á að stytta samningstímann ir á land VIÐRÆÐUM íslenzku sendinefndarinnar við Stóra norræna ritsímafé- lagið lauk í gærmorgun í Kaupmannahöfn, en við- ræðurnar hófust sl. fimmtudag. í]kki hefur fengizt upplýst hver niður- staða fundanna var, en vafasamt þykir að Stóra norræna fáist til að stytta þann samningstíma sem tiltekinn er í samn- ingi félagsins við íslenzka ríkið. Virðist sem félagið hyggist standa fast á rétti sínum samkvæmt samn- ingnum frá 1960, en í hon- um er gert ráð fyrir að félagið hafi einkarétt á fjarskiptaþjónustu milli íslands og annarra landa til ársins 1985. Ekki mun þó útilokað að félagið telji sér einhvern hag i því að ná samkomu- lagi við íslendinga um end- urskoðaðan samning og 120 hval- komast með þvi móti fram hjá hugsanlegum málaferl- um komi til þess að íslend- ingar rjúfi samninginn upp á eigin spýtur. Fyrirhugað mun að halda fleiri við- ræðufundi síðar á þessu sumri. Ljónsunginn við það sama LIÐAN ljónsungans sem einn er eftirlifandi af ljónafjölskyldunni í Sæ- dýrasafninu í Hafnarfirði er að mestu óbreytt frá því sem verið hefur. Dýriö get- ur ekki staðið í fæturna og ekki er enn séð hvort hann lifir af fár það sem greip ljónin í safninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.