Morgunblaðið - 08.07.1976, Síða 1

Morgunblaðið - 08.07.1976, Síða 1
146. tb. 63. árg. FIMMTUDAGUR 8. JULÍ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Líbanon: Mesta blóðbað frá upp- hafi styrjaldarinnar — 300 féllu 1 gær og 600 særðust Beirút — 7. júlí — AP—Reuter. UM 300 manns féllu f bardögunum f Lfbanon f dag, og um 600 særðust. Þetta er mesta blóðbað, sem orðið hefur á einum degi frá upphafi styrjaldarinnar, en talið er að f gær hafi um 200 fallið. Hörðustu bardagarnir í dag urðu við bæinn Chekka, þar sem hægri menn gerðu mikla gagnárás á um 8 þúsund manna herlið Múhammeðstrú- armanna og bandamanna þeirra. Við flóttamannabúð- irnar Tel Zaatar var einnig barizt og segjast hægri menn hafa náð þar undirtökunum. Nú hefur umsátrið um flóttamannabúðirnar staðið f 15 daga. Hjálparsveitir Rauða krossins hafa gert margítekaðar tilraunir til að koma fólki í Tel Zadfar til hjálpar undanfarna daga, en ár- angurslaust. Fólkið er mjög illa haldið, en í búðunum er vatns- laust, auk þess sem lyf og ýmsar nauðsynjar eru löngu uppurnar. Fréttaritarar i norðurhluta landsins segja, að hægri menn hafi betur í bardögunum þar og séu enn í sókn. I Beirút er enn Spassky vann BRASILlSKI stórmeistarinn Mecking tapaði fyrstu skák sinni á millisvæðamótinu f Maníla í gær fyrir Boris Spassky, fyrrum heimsmeist- ara, í 17. umferð. Skák Hort við Balashov frá Rússlandi fór hins vegar I bið meðan Polugaevsky sigraði Harandi frá tran. Mecking heldur þó enn for- ustunni með 11,5 vinninga og á eina biðskák, Hort er i öðru sæti með 11 vinninga en tvær biðskákir, og Polugaevsky er með 11 vinninga og eina bið- skák. Ribli frá Ungverjalandi er með 10,5 vinninga, Czes- kovsky frá Sovétrikjunum er Framhald á bls. 18 barizt af mikilli hörku á mörgum stöðum. Þar varð mikiðöngþveitií dag, þegar ekið var þar um götur og hrópað úr hátölurum, að sýr- lenzkar hersveitir væru í þann veginn að gera eldflaugaárás á Beirút. Af slíkri árás varð þó ekki, en borgin hefur nú verið vatns- og rafmagnslaus að heita má i næstum þrjár vikur, auk þess sem fjarskiptasamband við borgina er ekkert og hreinlætis- ástandið fer stöðugt versnandi. Slitin á stjórnmálasambandi Súdans og Líbanons hafa orðið til þess að auka enn á erfiðleikana innan Arababandalagsins, sem reynir að stilla til friðar i Líban- on. Haldinn verður fundur utan- ríkisráðherra Arabalandanna í Kaíró n.k. mánudag, og er talið að niðurstaða fundarins verði jafn- framt úrslitatilraun bandalagsins til að koma á friði í Líbanon. Að sögn Beirút-útvarpsins, sem er á valdi vinstri sinna, hefur Jassir Arafat ákveðið að höfuð- stöðvar PLO-skæruliða verði fluttar frá Damaskus til Beirút, og var ástæðan sögð sú, að Arafat vildi koma á nánara sambandi yf- irmanna hreyfingarinnar og bar- dagasveita hennar. Síðan bardagarnir i Líbanon hófust fyrir 15 mánuðum hafa fallið þar yfir 30 þúsund manns. Myndir úr safni lög- reglunnar i V-Berlín. — Talið frá vinstri: Inge Viett (32 ára), Gabriela Rollnik (24 ára) Monika Berber- ich (34 ára) og Juli- ane Plambeck (24 ára). Hryðjuverkakvennanna ákaft leitað um allt land V.-Berlín —7. júli — AP. HRYÐJUVERKAKVENNANNA fjögurra, sem brutust út úr fang- elsinu I V-Berlln ( dag, er nú leitað um allt V-Þýzkaland og hef- ur öryggisvarzla verið aukin mjög á landinu vegna flóttans. Ein kvennanna er Inge Viett, sem var meðal þeirra 53 hryðjuverka- manna, sem flugræningjarnir á Entebbe-flugvelli kröfðust í skiptum fyrir glsla sfna um dag- inn. Inge Viett strauk úr sama fengelsi fyrir þremur árum. Inge Viett, Juliane Plambeck og Gabriele Rollnik eru í hópi, sem nefndur hefur verið „2. júní- hreyfingin", en sú fjórða, Monika Berberich var að afplána 12 ára fangelsi fyrir bankarán. Hún hef- ur verið i Baader-Meinhof hópn- um. Stjórn kvennafangelsisins hef- ur lýst þvi yfir, að konurnar hafi fengið aðstoð við að flýja bæði utan veggja fangelsisins og innan. Dómsmálaráðherra V-Þýzka- lands, Hermann Oxfort, sagði á fundi með fréttamönnum í dag, að sig brysti orð til að tjá sig um atburð þennan, sem væri þó hryllileg staðreynd. Ráðherrann sagði, að konunum hefði tekizt að komast yfir lykla og hafi þær því komizt út úr klefum sinum. Á ganginum fvrir framan klefana Framhald á bls. 18 Spánn: Deinkennisklæddur lögreglumað- ur bendir á staðinn þar sem hryðjuverkakonurnar sigu I rekkjuvoðum niður eftir fangels- isveggnum I gær. (AP-mynd). Suarez mynd- ar nýja stjórn Madrid —7. júli — Reuler. ADOLFO Suarez h“f«ir myndað nýja ríkisstjórn á Spáni. I stjórn- Ugandamenn sáu þrjátíu óvinaflugvélar í ratsjám Kampala, 7. júlí. Reuter. AP. HERNUM I Uganda var skipað að vera I viðbragðsstöðu I dag vegna frétta um að óvinaflug- vélar væru á leiðinni frá Ken- ya. Talsmaður hersins hvatti fólk til þess að hræðast ekki og hafa augu með vestrænum njósnurum. Hann sagði að talið væri að flugvélarnar væru fsraelskar eða bandarískar og þær hefðu sézt f ratsjám. Talsmaðurinn bætti þvf við að ef Uganda- menn sæju óvinaflugvél lenda ættu þeir að beita öllum tiltæk- um vopnum og gera út af við áhöfnina þvf engrar samúðar væri að vænta frá óvinunum. Almenningur var hvattur til þess að gefa blóð og ráðstafanir voru gerðar til þess að veita tafarlausa læknisþjónustu. Talsmaður hersins sagði að Ug- andamenn væru fullfærir um að verja sig en bætti því við að vinveitt ríki vaéri reiðubúin að koma þeim til hjálpar. LÍBÝA HJ^LPAR Uganda-útvarpið skýrði frá Idi Amin. því að óvinaflugvélar nálguðust og sams konar frétt var útvarp- að tiu kiukkustundum siðar, þótt bent sé á að flugtíminn frá Kenya sé nokkrar minútur. Seinna sagði útvarpið að stuðn- ingsyfirlýsing hefði borizt frá þjóðarleiðtoga líbýu, Muammar Gaddafi. Gaddafi fullvissaði Idi Amin forseta um að Libýumenn mundu gera allt sem i þeirra valdi stæði til að veita Uganda- mönnum aðstoð ef þeir yrðu fyrir annarri árás. Amin svar- Framhald á bls. 18 inni eiga sæti sjö ráðherrar úr fráfarandi stjórn, en tfu ráð- herrar eru nýir. Einn hinna nýju ráðherra er Marcelino Oreja, sem fara mun með utanrfkismál, en hann hefur verið varautanrfkis- ráðherra og náinn samstarfsmað- ur Areilza, sem var utanrfkisráð- herra f fráfarandi stjórn. Oreja er talinn frjálslyndastur nýju ráðherranna. Er búizi við því að hann muni beita sér mjög fyrir inngöngu Spánar í Efna- hagsbandalagið. Hinn nýi utan- ríkisráðherra er fertugur að aldri. Manuel Fraga og Areilza voru meðal þeirra frjálslyndu ráðherra í fráfarandi stjórn, sem höfnuðu sæti i stjórn Suarezar á þeirri forsendu að hann væri reynslu- laus og hefði þar að auki of náin tengsl við hægri öflin í landinu og trúarhreyfinguna Opus Dei. í stjórninni er enginn ráðherra, sem vitað er að sé i Opus Dei, en þrir eru taidir hlynntir hreyfing- unni. Margir nýju ráðherranna hafa reynslu á sviði efnahags- mála. Fyrrverandi upplýsinga- Framhald á bls. 18 í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.