Morgunblaðið - 08.07.1976, Side 2

Morgunblaðið - 08.07.1976, Side 2
2 MORC.UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULl 1976 Fitumagn loðnunn- ar rúmlega 13% LOÐNAN sem Sigurður RE land- aði á Siglufirði f fyrradag reynd- ist vera mjög væn ng var fitu- magn hennar 13.1% og meðal- lengd 16 cm. Enginn fiskur var undir 12 cm. að lengd. Allur afli Sigurðar fer því í efsta verðflokk, en fyrir loðnu sem er feitari en 12% eru greiddar 7,20 krónur, þannig að verðmæti þeirrar loðnu sem Sigurður Iandaði f gær mun vera rúmar 6 milljónir króna. Guðmundur RE landaði í Siglu- firði í gær um 700 tonnum af loðnu og var sú loðna einnig góð. Björn Dagbjartsson hjá rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins tjáði Mbl. í gær að loðnan sem nú hefði veiðzt væri þriggja ára gömul og gæti hún átt eftir að verða feitari þegar líður á sumarið. Björn sagði að hér væri á ferðinni loðnan sem leitað hefði verið að án árangurs í fyrra. Auk Sigurðar og Guðmundar eru nú tveir aðrir bátar á til- raunaveiðum, en eftir 15. júlf verður öllum heimilt að veiða loðnuna. Ágúst Einarsson hjá LtU sagði í gær í samtali við Mbl. að margir útgerðarmenn hefðu hug á að hefja loðnuveiðar, og væru menn mjög áhugasamir um hvern árangur tilraunaveiðarnar bæru. Löndun loðnunnar úr Sigurði tók alls um 12 tíma og er landað með lyftum en ekki dælt sem er mun fljótlegra. Að sögn Ágústs Einarssonar var verðlagning loðn- unnar við það miðuð að henni yrði ekki dælt í land, því með því að nota lyftur í stað dæla fengist mun betri nýting á hráefninu. Hefði því Verðlagsráð sjávarút- vegsins sett það að skilyrði fyrir verðlagningunni að dælur yrðu ekki notaðar. V erkfr æðingaverkf allið: Enn lítil áhrif í byggingaiðnaðinum MBL. leitaöi í gær til nokk- urra fyrirtækja í bygginga- iönaói í Reykjavík og spuröist fyrir um það hvort einhverra áhrifa væri tekið að gæta af völdum verkfalls nokkurra verk- fræðinga hjá Reykjavíkur- borg. Flestir þeirra sem rætt var við töldu sig ekki Veiðileyfin seld í Húsafelli I ÞÆTTINUM Eru þeir að fá’ann? í gær var sagt að veiði-1 leyfi í Arnarvatni stóra væru seld í Kalmannstungu. Jóhannes Björnsson oddviti hafði samband við okkur í gær og bað um leið- réttingu á því að leyfin væru ekki seld í Kalmannstungu heldur í Húsafelli hjá Kristleifi Þorsteins- syni. Sagði Jóhannes að hann hefði ekki heyrt annað en að þeir sem stunduðu veiðarnar að ráði hefðu borið góðan afla úr býtum, jafnvel á 2. hundrað fiska á dag. hafa orðið vara við áhrif verkfallsins enn sem komið væri, en margir bjuggust við að þeirra tæki fljótlega að gæta. Hjá steypustöð- inni B. M. Vallá var okkur á hinn bóginn tjáð að veru- legur samdráttur hefði orðið í sölu steypu í síðustu viku og væri þar vafalaust verkfallinu um að kenna. Hjá Breiðholti hf. varð fyrir svörum Birgir Björnsson og sagði hann að þeir merktu ekki nein áhrif enn þá, en það kæmi sjálf- sagt að því innan tíðar. Þeirra verk væru þannig á vegi stödd að þau tefðust ekki, en steypusalan væri tekin að minnka, þar sem ekki fengist mælt út fyrir nýjum húsgrunnum. Guðmundur Einarsson forstjóri Aðalbrautar sagði að þeir væru með ýmsar framkvæmdir á veg- um borgarinnar og væri tekið að bera á töfum á þeim vegna seink- unar á afhendingu efnis og einnig bæri á því að vissum eftirlitsstörf- um væri ekki sinnt. Héraðsmót Sjálfstæð- isflokksins fyrir norð- an um næstu helgi HÉRAÐSMÖT Sjálfstæðisflokks- ins um næstu helgi verða f Siglu- firði á föstudagskvöld, Sauðár- króki laugardagskvöld og Ásbyrgi f Miðfirði á sunnudagskvöldið. Matthfas Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra mun ávarpa mótsgesti á öllum mótunum og auk hans al- þingismennirnir Eyjólfur Konráð Jónsson f Siglufirði, Pálmi Jóns- son á Sauðárkróki og Ingólfur Jónsson f Ásbyrgi. Skemmtiatriði á héraðsmótun- um annast hljómsveitin Nætur- galar og söngvarinn Ágúst Atla- son ásamt óperusöngvurunum Kristni Hallssyni og Magnúsi Jónssyni og grínistanum Jörundi. Efnt verður til ókeypis happ- drættis og eru vinningar tvær sól- arlandaferðir til Kanaríeyja með Flugleiðum. Verður dregið í happdrættinu að héraðsmótunum loknum þann 18. ágúst n.k. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleikur til kl. 2 e.m. þar sem Næturgalar leika fyrir dansi en hljómsveitina skipa auk Ágústs Atlasonar Karl K. Gíslason, Einar Hólm og Birgir Karfsson. Herjólfur gamli leggur frá bryggju f Vestmannaeyjahöfn í sfðasta sinn. Gamli Herjólfur kvaddur f FYRRAKVÖLD var gamli Herjólfur kvaddur við hátfð- lega athöfn í Vestmannaeyja- höfn og skipinu þökkuð rúm- lega 16 ára dygg þjónusta við Vestmanneyinga. Mikili mannfjöldi safnaðist saman á bryggjunni þegar skip- ið var kvatt og lætur nærri að fleiri hafi verið við kveðjuat- höfn gamla Herjólfs en við mót- tökuathöfn nýja Herjólfs. Nokkur ávörp voru flutt við þetta tækifæri og skipshöfn gamla skipsins afhentur blóm- vöndur. Lúðrasveit Vestmanna- eyja lék og var það mál manna að skipið hefði verið kvatt á viðeigandi hátt. Vísindanefnd NATO: Hefur greitt til gróðurrannsókna og jarðskjálftamælinga á íslandi Lúðrasveit Vestmannaeyja lék á bryggjunni þegar Herjólfur gamli var kvaddur. Ljósm. Guðlaugur Sigurgeirsson. VÍSINDANEFND Nato, sem stendur fyrir ráðstefnu um umhverfismál I Reykjavík um þessar mundir, var stofnuS fyrir 18 árum og starfar aS fimm þáttum, eins og fram kom I ræSu dr. T.D. Allans, framkvæmda- stjóra ráSstefnunnar, viS opnun hennar: þ.e. 1) veitingu rannsókna- styrkja, 2) veitingu styrkja til sér- náms og þjálfunar, sem stjómvöld í hverju landi úthluta, 3) veitingu ferSastyrkja til eldri vísindamanna, 4) starfrækslu sumarháskóla meS ráSstefnum þar sem vísindamönnum meS sérþekkingu er boSiS aS flytja fyrirlestra fyrir yngri vísindamenn. 5) I verkefnanefndum, sem starfa á sviSi haffræSi, vistfræSi, samskipta sjávar og lofts, á sviSi kerfarann- sókna og loks ein, sem fjallar um mannleg samskipti. Fulltrúi íslands í vísindanefndinni er dr. Guðmundur Sigvaldason, jarðefna- fræðingur Hann upplýsti Mbl. um að visindanefndin hefði engu hernaðar- hlutverki að gegna i bandalaginu. Fé það sem hún ráðstafar fer eingöngu til verkefna, sem fulltrúar landanna i henni, hafa áhuga á og telja þess virði Mörg verkefni hafa verið styrkt á ís- landi, t.d. er jarðskjálftamælinganetið á íslandi mikið til sett upp með slíkum Guðmundur og Friðrik efstir ásamt þrem öðrum FRIÐRIK Ólafsson og Guðmund- ur Sigurjónsson gerðu báðir jafn- tefli í skákum sínum í annarri umferð IBM skákmótsins f Am- sterdam. Friðrik tefldi við Szabo en Guðmundur við Miles. Staðan í mótinu er nú sú, að Guðmundur og Friðrik, Kortsnoj, Farago og Ligterink hafa allir 1,5 vinninga. Ivkov, Sax, Szabo, Böhm, Miles, Kurajica og Gipslis hafa 1 vinn- ing. Ree, Velimirovic og Donner Framhald á bls. 18 styrk til tækjakaupa, svo og gróður- rannsóknirnar, sem Yngvi Þorsteinsson hefur verið að vinna o.fl. Og mikill fjöldi vísindamanna íslenzkra hafa fengið þaðan styrki til einstakra verk- efna Rannsóknastyrkirnir eru veittir ein- staklingum eða rannsóknahópum og umsóknir þeirra valdar af alþjóðlega kjörnum fulltrúum Einkum er lögð áherzla á aukin samskipti milli vísinda- manna. Af 368 umsækjendum á sl ári hlutu 259 styrki, að því er dr Alfan sagði Styrkir til sérnáms og þjálfunar beinast mjög að þvi að efla samskipti milli vísindamanna þátttökuþjóðanna Á 15 árum hafa verið veittir 10 þúsund slíkir styrkir. Af ferðastyrkjun- um voru veittir 10 á sl. ári, en þeir eiga einkum að liðka fyrir því að eldri vís- indamenn geti unnið með félögum sinum i öðrum löndum Ráðstefnum sumarháskólans var einkum komið upp til að veita ungum vísindamönn- um tækifæri til að heyra fyrirlestra hinna, sem lengra eru komnir um ný visindaverkefni, sem ofarlega eru á baugi. Eru um 50 slikar ráðstefnur haldnar á ári og fyrirlestrarnir birtir I bókum, sem eru gefnir út sem áfram- haldandi safn. Hafa margir vísinda- menn frá öðrum löndum en Nato- rikjum tekið þátt í þessum ráðstefnum Framhald á bls. 18 Steel leiðtogi frjálslyndra London, 7. júlí. Reuter. DAVID Steel var í dag kjörinn leiðtogi Frjálslynda flokksins f Bretlandi í stað Jeremy Thorpes sem sagði af sér í maf vegna ásakana um kynvillu en sfðan hefur Jo Grimond, fyrr- verandi leiðtogi flokksins, gegnt stöðunni til bráðabirgða. 20.000 flokksfélagar kusu leiðtogann og Steel hlaut 64% atkvæða þannig að hann vann öruggan sigur á keppinaut sin- um, John Pardoe, sem er rót- tækari í skoðunum. Steel er 38 ára gamall og hef- ur barizt fyrir þjóðfélagsbreyt- ingum. Hann bar fram frum- varp um fóstureyðingar 1967, Stjórnaði mótmælaaðgerðum gegn suður-afrískum íþrótta- mönnum vegna stefnu stjórnar þeirra í kynþáttamálum og var tilkynnt 1972 að hann fengi ekki að fara til Rhódesíu vegna stuðnings við baráttu blökku- manna þar. David Steél ásamt konu sinni, Judith, eftir að hann hafði verið kosinn formaður Frjálslyndafiokksins f gær. AP-símamynd Frjálslyndi flokkurinn hefur aðeins 13 þingsæti en hlaut Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.