Morgunblaðið - 08.07.1976, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1976
4
LOFTLEIDIR
ZT 2 1190 2 11 88
P
l
O
'BILALEIGAN
5IEYSIR
CAR LAUGAVEGI66 ^
RENTAL 24460 ^
28810 n
Útvarpog stereo. kasettutæki
FERÐABÍLAR hf.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbilar, stationbilar, sendibil-
ar, hópferðabilar og jeppar.
litRóm
MÚSCiöGIM
Grensásvegi7
Sími 86511
Skrifstofu-
stólarnir
vinsælu
Ábyrgd og þjónusta
Skrifborösstólar
11 geröir
Verð frá kr. 13.430.—
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
\l (iLVSINÍiA-
SÍMINN KR:
22480
Brezkar húsmæð-
ur halda tryggð
við þorskinn
NEYTENDUR virðast ekki á því
að draga úr kaupum sínum á
þorski og beina þeim í staðinn að
öðrum fisktegundum.
Þetta kom fram í skoðanakönn-
un, sem Birds Eye fyrirtaekið i
Bretlandi lét nýlega gera á
neyzluvenjum viðskiptavina
sinna. Niðurstaða könnunarinnar
staðfesti þá skoðun forráðamanna
fyrirtækisins, að erfitt muni að
breyta neyzluvenjum almennings,
sem enn sem fyrr tekur þorskinn
fram yfir allar aðrar fisktegundir.
Tæpur helmingur húsmæðranna,
sem spurðarvoru ikönnun Birds
Eye, hafði reynt fisktegundir eins
og t.d. skötu og ufsa, en nánast
allar höfðu borið á borð þorsk,
ýsu og skarkola. Tregða húsmæðr-
anna til að reyna tiltölulega vel
þekktar fisktegundir, sem þó
hefðu ekki verið aigengar á borð-
um hingað til, ber þess ljósan vott
hve húsmæður eru ihaldssamar í
fiskkaupum að því er framleið-
endur telja.
Úlvarp ReykjavlK
FIMMTUDkGUR
8. júlí
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Örn Eiðsson byrjar lest-
ur sinn á „Dýrasögum“eftir
Böðvar Magnússon á Laugar-
vatni.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milii atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson ræðir við Tijmas
Þorvaldsson í Grindavfk;
fyrsti þáttur (áður útv. í
október). Tónleikar.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Gábor Gabos og Sinfóniu-
hljómsveit ungverska út-
varpsins leika Píanókonsert
nr. 2 eftir Béla Bartók;
György Lehel stjórnar /
Suisse Romandehljómsveitin
leikur „Ástarglettur galdra-
mannsins", tónverk fyrir
hljómsveit og messósópran
eftir Manuel de Falla. Mar-
ina De Gabarain syngur ein-
söng; Ernest Ansermet
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
Á frívaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Farðu
burt, skuggi" eftir Steinar
Sigurjónsson.
Karl Guðmundsson leikari
lýkur lestri sögunnar (6).
15.00 Miðdegistónleikar
Börje Márelius og félagar úr
Sinfóniuhljómsveit sænska
útvarpsins leika Pastoral-
svitu fyrir flautu og strengja-
sveit eftir Gunnar de Fru-
merie; Stig Westerberg
stjórnar.
Janos Starker og hljómsveit-
in Fílharmónia leika Selló-
konsert nr. 1 í a-moll op. 33
eftir Camilla Saint-Saéns;
Carlo Naria Giulini stjórnar.
Félagar úr Fflharmóníusveit
Lundúna leika tvö verk fyrir
strengjasveit eftir Edward
Elgar; Introduction og
Allegro op. 47 og Serenöðu í
e-moll op. 20; Sir Adrian
Boult stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatfminn
Finnborg Scheving hefur
umsjón með höndum.
17.00 Tónleikar
17.30 Bækur, sem breyttu
heiminum — IV
„Uppruni tegundanna“ eftir
Charles Darwin.
Bárður Jakobsson lögfræð-
ingur tekur saman og flytur.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Nasasjón
Arni Þórarinsson og Björn
Vignir Sigurpálsson ræða við
Svövu Jakobsdóttur rithöf-
und og alþingismann.
20.10 Samleikur í útvarpssal:
Christina Tryk og Sigrfður
Sveinsdóttir leika saman á
horn og píaná
a. Allemande eftir Purcell.
b. Air eftir Bach.
c. Preludia eftir Liadoff.
d. Intermezzó eftir Gliére.
e. Aprés um réve eftir
Fauré.
f. Rómansa eftir Davidoff.
g. Fantasíuþáttur eftir
Heise.
20.35 Leikrit „Hefðarfrúin"
eftir Valentin Chorell.
Þýðandi: Sigurjón Guðjóns-
son. Leikstjóri: Gfsli Hall-
dórsson.
Persónur og leikendur:
Itona Silver Sigríður Hagalín
Boubou.....................
........Guðrún Stephensen
Læknirinn....Gisli Alfreðsson
21.40 Kórsöngur: Sunnukór-
inn syngur íslenzk og erlend
lög
Sigrfður Ragnarsdóttir leik-
ur með á píanó og Jónas
Tómasson á altflautu. Hjálm-
ar Helgi Ragnarsson stjórn-
ar.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Litli dýrling-
urinn“ eftir Georges
Simenon
Kristinn Reyr les þýðingu
Ásmundar Jónssonar (7).
22.40 Á sumarkvöldi
Guðmundur Jónsson kynnir
tónlist úr ýmsum áttum.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Kl. 20.35 — Leikrit vikunnar:
Gömul leikkona rifjar
upp endurminningar
í KVÖLD kl. 20.35 verður
flutt leikritið „Hefðar-
frúin“ eftir finnska rit-
höfundinn Walentin
Chorell. Þýðinguna gerði
sr. Sigurjón Guðjónsson,
Sigrfður Hagalfn
en leikstjóri er Gísli Hall-
dórsson. í hlutverkum
eTu þau Sigríður Haga-
lín, Guðrún Stephensen
og Gísli Alfreðsson.
Leikurinn lýsir síðustu
Gfsli Alfreðsson
stundum í lífi gamallar leik-
konu. Þjónustustúlka hennar,
sem reyndar er líka orðin öldr-
uð, er hjá henni, og þær rifja
upp endurminningar frá liðn-
um dögum. Leikkonunni finnst
hún komin á sviðið aftur, böðuð
ljósum, hún heyrir fagnaðar-
læti áhorfenda og tekur við
blómum frá aðdáendum. Hún á
enn sitt stolt, hún ætlar að
kveðja leiksvið lífsins með
sama glæsibrag og hún kvaddi
svið ieikhússins.
Walentin Chorell er fæddur í
Abo árið 1912. Hann hóf ritferil
sinn sem ljóðskáld, en fór fljót-
lega að semja skáldsögur og
leikrit. Chorell tekur oft til
meðferðar skipti einstaklings-
ins við samfélagið, en raun-
verulega þjóðfélagsádeilu er
sjaldnast að finna í verkum
hans. Hann er nærfærinn höf-
undur, ekki sizt þegar hann
fjallar um sálarlíf konunnar,
sem honum er jafnan hugstætt
viðfangsefni. Hann getur verið
Guðrún Stephensen.
gamansamur á stundum, en
undirtónninn er alvarlegur, allt
að þvi harmþrunginn í sumum
verkum hans.
Áður hafa verið flutt nokkur
leikrit eftir Chorell í útvarpinu
og má þar m.a. nefna „Fabian
opnar hliðin“, og „Samtal við
glugga“.
HOl HEVHH
Fyrir börnin...
LITLI barnatíminn er á
dagskrá útvarpsins kl.
16.40 í dag. Það er Finn-
borg Scheving fóstra,
.sem hefur umsjón þáttar-
Lns með höndum. Að
þessu sinni er efni þátt-
arins tvíþætt. Fyrst les
Eva Sigurbjörnsdóttir
söguna Kisan með
rófurnar 6 og síðan verð-
ur söngleikurinn um
Litlu Ljót fluttur af plötu
telpnakórs Langholts-
skóla.
Að venju er morgun-
stund barnanna á dag-
skrá kl. 8.45. í dag verður
byrjað aó lesa nýjar sög-
ur eftir Böðvar Magnús-
son á Laugarvatni. Sög-
urnar heita Dýrasögur og
eins og nafnið ber með
sér eru þetta sögur um
dýr. Þessar sögur eru all-
ar sannar, eins konar
endurminningar Böðvars
um dýr, sem hann hefur
þekkt. Það er örn Eiðs-
son, sem les sögurnar.
1 morgunstund barnanna
byrjar Örn Eiðsson lestur á
„Dýrasögum“ eftir Böðvar
Magnússon á Laugarvatni.