Morgunblaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULI 1976 „Eigum við ekki bara að segja að þetta sé gert a aevintýralöng NORSKA skemmtiferðaskipið Vista- fjord kom hingað til lands í gær í annað skiptið á sumrinu. Með skip- inu eru nú 520 farþegar, flestir Þjóð- verjar, en einnig stór hópur Banda- ríkjamanna. í áhöfninni eru um 350 manns af mörgum þjóðernum og verkefni hennar er fyrst og fremst að sjá um að farþegunum líði sem allra bezt og þá skorti ekki nokkurn hlut. Norðmenn eru sennilega í meirihluta í áhöfn skipsins, Þjóðverjar, Spán- verjar og Englendingar eru einnig margir, Kínverjar starfa í eldhúsinu og ísland á sinn fulltrúa þar sem er hjúkrunarkonan Björg Ólafsdóttir. Hafði Björg í mörgu að snúast í gæræorgun áður en hún hafði tíma til að fara ..heim" til foreldra sinna við Laugarásveginn og borða þar uppá- haldsmatinn og hitta vini og ættingja Morgunblaðsmenn voru komnir i heimsókn og skoðuðu skipið hátt og lágt undir leiðsögn Bjargar og auk þeirra voru bræður hennar þrír i heim- sókn, þeir Halldór Óli. Ólafur Kristinn og Sigurður Ólafssynir, en sá síðast- nefndi heldurá mánudaginn til Kanada þar sem hann verður einn af islenzku keppendunum á Ólympíuleikunum — Eigum við ekki bara að segja að það hafi verið af ævintýralöngun, sem ég sóttí um starfið, sagði Björg, er við spurðum hana hvers vegna hún hefði sótt um þennan starfa — Nei, nei, þátturinn „læknir til sjós" hafði engin áhrif í þessu sambandi, segir Björg og hlær og bætir því síðan við að starfið um borð í Vistafjord sé ekki á nokkurn hátt svipað þessum vinsælu gaman- þáttum, sem bæði norska og islenzka sjónvarpið hafa sýnt Björg hélt til Noregs siðastliðið haust og starfaði þar á sjúkrahúsi fram eftir vetri, en tók í vor nauðsynlegt próf til að komast i framhaldsnám í hjúkrun- arfræðum i Noregi Hvenær hún sezt á skólabekk aftur sagðist hún ekki vita — Það er erfitt að komast inn á þá skóla í Noregi. sem ég hef áhuga á, jafnvel þó maður sé íslendingur og ég reikna með að vinna lika næsta vetur, sagði Björg — Ég er ráðm á Vistafjord út september, en það má vel vera að ég sæki um starf hér á skipinu eitthvað áfram, þetta er geysilega spennandi, auk þess sem maður fer viða og kynn- ist mörgum í október verður skipið á ferðum i karabiska hafinu og ég hefði ekkert á móti þvi að komast þangað Fullkomið fijótandi sj'úkrahús Á ferð okkar um skipið fór það ekki á milli mála að það er smíðað með öll hugsanleg þægindi ferðamannanna í huga. Það kostar líka drjúgt að ferðast með Vistafjord og Björg gizkaði á að sólarhringurinn kóstaði um 10 þúsund krónur um borð í skipinu Reyndar er hægt að panta sérstakar svítur í skip- inu eins og prinsinn frá Kuwait gerði í síðustu ferð skipsins Hann lét sér ekki duga minna en eina hæð af svítum á efsta þilfari og kveinkaði sér ekki hið minnsta þegar hann fékk reikninginn. imtiitHu i unn ttatt ttmm n mtmw* i«»»«m«»««»«*«* «. *«««»«« Bitii HKttn tmm* nmm * ■ Norsk hjúkrunarkona, læknirinn Per og Björg Ólafsdóttir i hinni fullkomnu sjúkrastofu. fyrir sig, lækna sína og annað aðstoð- arfólk, upp á nokkrar milljónir króna Af þeim þægindum, sem farþegum er boðið upp á um borð má nefna kvikmyndasal, konsertsal, danssal, næturklúbb, aðskiljanlega bari, bóka- safn, matsali, gufubað, nudd og síðast en ekki sizt þrjár sundlaugar Þeim sýndi Sigurður Ólafsson mikinn áhuga, enda ekki nema eðlilegt, þar sem maðurinn eyðir þremur—fjórum klukkutímum á degi hverjum í sund- m lauginni í Laugardal til æfinga fyrir Ólympiuleikana. Ekki má heldur gleyma sjúkrastof- unni um borð, þar sem Björg starfar ásamt norskri hjúkrunarkonu og norsk- um lækni. Er aðbúnaður allur þar hinn fullkomnasti og að sögn Bjargar eitt fullkomnasta sjúkrahús sem finnst á1 nokkru skemmtiferðaskipi Þar eru rúm fyrir 14 manns, aðstaða til erfiðra uppskurða og flestra þeirra aðgerða, Rabbað við Björgu Ólafsdóttur, hjúkrun- arkonu um borð í skemmtiferðaskip- inu Vistafjord sem á annað borð er mögulegt að framkvæma úti á rúmsjó. „Einhver verður að gæta sjoppunnar" Á leið okkar upp í brú hittum við fyrir skipstjórann á þessu 25 þúsund tonna fljótandi hóteli. Sá heitir Sverre Brakstad og er hinn geðugasti náungi, frá Stavanger. Kvartaði hann fyrSt yfir kuldanum á islandi og sagðist ekki trúa því að 1 6 stiga híti væri í lofti. —Ég hefði þó drifið mig i land ef ég hefði komizt, sagði hann, en einhver verður vístað gæta sjoppunnar. Flestir skipverjar Vistafjord fóru i skoðunarferð um Reykjavík í gær og farþegarnir austur fyrir Fjall í gær- kvöldi hélt skipið vestur fyrir ísland til Jan Mayen og þaðan til Svalbarða Síðan er ætlunin að sigla suður með ströndum Noregs og þá innan skerja lengst af leiðina til Bergen. Þar endar ferðin í rauninni, en flestir farþegarnir halda þó áfram til Hamborgar, þar sem nýtt fólk kemur um borð til að njóta þægindanna og þjónustunnar í Vista- fjord Um borð í Vistafjord stendur þessa dagana yfir læknaþing og eru haldnir fyrirlestrar í kvikmyndasalnum Þar eru síðan sýndar kvikmyndir tvisvar á dag og-það eru yfirleitt nýjar myndir sem boðið er upp á. í þessari ferð er farþegum m.a. boðið upp á myndir eins og Sting, Ókindina, Jarðskjálft- ann, Gatsby og Three days of the Condor svo eittbvað sé nefnt Ekki er nauðsynlegt að fara í kvikmyndasalinn til að njóta þessara mynda. I flestum herbergjum eru sjónvarpstæki og nóg er að kveikja á þeim til að geta séð myndina í eigin herbergi n skýrandinn á Umferðarmiðstöðinni og Árbæjarsafninu. — Það var hálfleiðinlegt fyrir mig að verða vitni að svona vitleysu, sagði Björg —Ég talaði þó við hann og leiðrétti vitleysurnar, þannig að þegar við komum hingað aftur i lok mánaðar- ins held ég að hann ætti að koma þessum upplýsingum rétt til skila. —áij. Litli báturinn við hlið Vista- fjord er einn þeirra báta sem notaðir eru til að flytja far- þega I land i hinum ýmsu höfnum. Ekki vantar skrautmunina um borð i þetta skip í næturklúbbnum eru skreytingar úr 18 karata gulli og reyndar var mynd af Ólafi Noregskon- ungi til skamms tima skreytt með krónu úr skiragulli Það er þó liðin tið því einhverjir bíræfnír náungar stálu krónunni er skipið kom í höfn fyrir nokkru. Ruglaðist á Árbæ og Umferðarmiðstöðinni Bræðurnir Halldór Óti, Ólafur Kristinn og Sigurður Ólafs- son brugðu á leik með íþróttatæki farþeganna. Björg og Sigurður við eina af þremur sundlaugum skipsins. (Ijósm. Friðþjófur). Áður en komið er í land i nýrri höfn er staðurinn kynntur farþegum með fyrirlestri og myndum. í fyrrakvöld var fyrirlestur um ísland og fræddust far- þegar þar nokkuð um land og þjóð Ýmislegt komst þó ekki rétt til skila Þannig var sagt er mynd birtist af Ingólfi Arnarsyni að hann væri Jón Sigurðsson og sömuleiðis ruglaðist út-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.