Morgunblaðið - 08.07.1976, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULÍ 1976
Brezkir sjómenn
harðir gegn EBE
íslendingar gegn
— segir James Johnson
Morgunhlaðid leitaði í
gær fregna hjá James
Johnson, þingmanni
Verkamannaflokksins frá
Ilull, um frumvarp sem nú
er í undirhúningi í Lund-
únum um útfærslu Breta í
200 mílur og ráðgert er að
leggja fram komi Efna-
hagsbandalagið sér ekki
saman um sameiginlega
fiskveiðistefnu aðildar-
ríkjanna áður en hafréttar-
ráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna hefst í New York í
næsta mánuði.
James Johnson, sem er formað-
ur sjávarútvegsnefndar brezka
þingsins, sagði, að ekkert væri að
frétta af málinu fyrr en í næstu
viku þegar Anthony Crosland ut-
anrikisráðherra kæmi heim úr för
sinni til Bandaríkjanna og Kan-
ada, en málið væri nú algjörlega i
höndum hans. Johnson sagði, að
James Johnson.
nýlega hefði birzt kort í dagblaði
þar sem sýnt væri hvaða einkalög-
sögumörk væru nú til umræðu
milli Breta og EBE. Þar væri gert
ráð fyrir 12 mílna einkalögsögu
vestur af Skotlandi, 50 mílum
austur af Skotlandi, við Orkneyj-
ar og Hjaltlandseyjar og suður
fyrir Aberdeen en þegar kæmi að
ströndinni við Hull hefði línan
verið dregin við 12 mílur. Við
Lowestoft væri á kortinu gert ráð
fyrir 35 mílum.
Johnson sagði, að ekki hefði
jafn
og
Bretum
fengizt staðfest hvort kort þetta
gæfi rétta mynd af því, sem samn-
ingaviðræðurnar snerust um, en
margir teldu vist, að svo væri.
,,Mér og mörgum öðrum þing-
mönnum lízt ekki á blikuna, ef
þetta er það, sem koma skal, því
að við viljum fá 50 milna einka-
lögsögu við strendur landsins. Við
erum harðir. i afstöðu okkar
vegna þessa máls og munum eiga
fund um það með Anthony Cros-
land i næstu viku,“ sagði James
Johnson.
- Spurningunni um það, hvort
Johnson teldi, að Efnahagsbanda-
lagið yrði Bretum þyngra i skauti
en jafnvel íslendingar, svaraði
hann svo, að það ætti eftir að
koma í ljós, „en eitt er víst og það
er það, að eftir að sjómennirnir
okkar hafa séð hvernig þið fóruð
með okkur, þá verða þeir að
minnsta kosti eins harðir í horn
að taka gagnvart EBE. Ég held, að
það sé sama hvert litið er — okk-
ar menn eru orðnir alveg eins
þreyttir á framkomu EBE eins og
þið íslendingar voruð á okkur,“
sagði James Johnson að lokum.
.Moskva:
Mínni geislun í sendi-
ráði Bandaríkjanna
Washington, 7. júlí — Reuter.
UTANRÍKISRAÐUNEYTI Bandaríkjanna upp-
lýsti f dag, að Rússar hefðu dregið mikið úr
örby Igjugeislunum, sem þeir hafa heint að
bandarfska sendiráðinu f Moskvu. Talsmaður
ráðuneytisins, Robert Funseth, kvaðst harma. að
geislasendingarnar skyldu ekki hafa verið stöðv-
aðar fyrir fullt og allt. Örbylgjugeislarnir eru
taldir koma frá tækjum, sem notuð eru til út-
varpstruflana og sfmahlerana. Þeirra hefur orðið
vart í sendiráðinu f 16 ár. Styrkleiki geislanna er
sem stendur 2 mfkróvött á hvern fersentimetra.
Þegar álplötur voru settar fyrir gluggana, minnk-
aði styrkleiki geislanna f sendiráðinu niður f
aðeins brot úr mfkróvatti, en, þegar styrkurinn
var í hámarki, mældist hann u.þ.b. 30 mfkróvött
að sögn talsmannsins. Grunur leikur á að geisl-
arnir séu hættulegir heilsu manna f sendiráðinu,
en talsmaður tók þó fram f dag, að sá grunur
hefði ekki verið staðfestur. Utanríkisráðuneytið
hefur þó samið við læknadeild John Hopkins
háskólans að hefja rannsókn á öllum þeim, sem
starfað hafa við sendiráðið, svo og ættingjum
þeirra til þess að ganga úr skugga um, hvort þessi
grunur gæti átt við rök að styðjast. Tvö börn
bandarfsks sendiráðsmanns í Moskvu voru nýlega
flutt til Bandarfkjanna vegna veikinda sem gætu
verið afleiðing örbylgjugeislanna. Annað þeirra
er farið aftur til Moskvu. Talsmaðurinn, Funseth,
vildi ekki gefa nánari upplýsingar um eðli veik
indanna. Rannsóknin á vegum háskólans mun
m.a. beinast að þeim möguleika, að lítill styrk-
leiki á örbylgjum vfir langan tíma geti verið
hættulegur heilsunni. Funseth tók fram, að
Bandarfkin hefðu ekki á neinn hátt slakað til
gagnvart Rússum til að fá þá til að draga úr
geislavirkninni.
Aðspurður hvort njósnastarfsemi Bandaríkj-
anna sjálfra f Rússlandi hefði goldið afhroð
vegna örbylgjugeislanna kvaðst Funseth ekkert
vilja um segja. Hann sagðist að lokum harma
þann skort Rússa á mannúð og velvild f garð
vinnandi fólks f Moskvu, sem fram kæmi f notkun
þeirra á þessum geislum.
Svona Iftur botninn á ánni Rfn út, en vatnsyfirborð árinnar hefur
lækkað um 5 sentimetra á dag f þurrkunum að undanförnu.
Drykkjarvatn í Bretlar.di
hættulegt ungbörnum
Lundúnum — 7. júli — Reuler.
SLtK aukning hefur orðið á ólff-
rænum efnum í neyzluvatni f
Bretlandi að undanförnu, að ekki
er lengur óhætt að ungbörn neyti
þess. Hér er um að ræða úrgangs-
efni frá verksmiðjum og úr
áburði, sem f venjulegu árferði
skolast burt með rigningum, en
aukning þessara efna f drykkjar-
vatninu á rætur sfnar að rekja til
þurrkanna miklu.
Mengunarefni þessi geta valdið
blóðsjúkdómi i börnum (cyannos-
is), og dregur hann úr hæfni
blóðsins til að dreifa súrefni um
líkamann, þannig að sýkt barn
stendur á öndinni og blánar upp.
Aðalhættan af sjúkdómi þessum
stafar af þvi hversu sjaldgæfur
hann er og rangrar sjúkdóms-
greiningar af þeim sökum, en
sjúkdómurinn getur verið lífs-
hættulegur hljóti sjúklingarnír
ekki rétta meðhöndlun.
Nú er hafin dreifing ó flöskum
með sérstöku diykkjarvatni
handa ungbörnum. Yfirvöld i
Bretlandi lra mál fetta mjög al-
varlegum augum, og sagði fulltrúi
vatnsveitunnar þar i dag, að þetta
væri i fyrsta sinn, sem hlutfall
ólífrænna efna i neyzluvatni yrði
svo hátt, að hætta stafaði af, og
færi ástandið stöðugt versnandi
að þessu leyti. Tók hann sérstak-
lega fram, að þótt úrhellisrigning
kæmi nú, mundi það ekki bæta
ástandið umsvifalaust, þar sem
fyrst í stað mundi enn meira af
ólífrænum efnum berast í vatns-
ból af þurru landi.
Gefin verða út bráðabirgðalög
með fyrirmælum vegna neyðar-
ástandsins sem þurrkarnir hafa
valdið en þeir eru þeir verstu sem
komið hafa i Bretlandi i tvær ald-
ir. Víða er fyrirsjáanleg skömmt-
un á drykkjarvatni.
Gaddafi og Al-
Madhi hinir seku
— segir Nemeyri forseti
Khartoum — Reuter —7. júlí.
NEMEYRI forseti Súdans sagði í
dag, að Sadik Al-Madhi, sem var
forsætisráðherra Súdans á árun-
um 1966 og 1967, hefði ásamt
Muammar Gaddafi forsætisráð-
herra Líbýu staðið að byltingar-
tilrauninni, sem gerð var I Súdan
í síðustu viku. Sagði Nemeyri, að
Al-Madhi hefði sveimað í flugvél
yfir Khartoum meðan hersveitir
hans hefðu barizt gegn bvltingar-
hermönnum. Að sögn Nemeyris
tók ekki einn einasti súdanskur
hermaður þátt í uppreisninni,
heldur var þar um að ræða um
200 málaliða frá ýmsum Afríku-
löndum.
Útvarpið í Súdan hefur í dag
Framhald á bls. 18
Vegna flutnings verzlunar
okkar frá Bankastræti 11
bjóöum við
20%
afslátt ;
af öllum vörum þar dagana 1 —9. júlí
NOTIÐ EINSTAKT TÆKIFÆRI OG GERIÐ GÓÐ KAUP T D Á
VEGGFÓÐRI, BAÐMOTTUM, BAÐSKÁPUM
GLUGGATJALDASTÖNGUM, GÓLFDREGLUM
OG ÝMIS KONAR BÚSÁHÖLDUM.
J. Þorláksson 8- Norðmann