Morgunblaðið - 08.07.1976, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLl 1976
23
Ársskýrsla Búnaðarbanka íslands:
Hagfelldasta árið 1 nær
hálfrar aldar sögu bankans
Bókfært eigið fé jókst um 59% —
heildareignir um 42% — Inneignir
í Seðlabanka hærri en heildarend-
urkaup hans af Búnaðarbankanum
GEIRASKIPTING ÚTLÁNA
„ÁRIÐ 1975 var hagfelldasta ír I
nær hálfrar aldar sögu BúnaSar-
banka íslands. Gildir þar einu hvort
litíS ar á innlánsaukningu. ágaata
lausafjárstöðu allt árið eSa betri
rekstrarafkomu en nokkru sinni fyrr.
segir I nýútkominni ársskýrslu bank-
ans fyrir ári8 1975. — BúnaSar-
bankinn er annar stærsti viBskipta
banki þjóBarinnar. Hann hefur þó
enn ekki fengi8 leyfi til gjaldeyris-
verzlunnar.
Innlðn.
Heildarinnlán Búnaðarbankans juk-
ust um 2360 milljónir(32%)á liðnu ári
og námu í árslok 9.725 m.kr. —
Spariinnlán. þ e innstæður i bundnum
bókum og almennum. námu 73% allra
innlána og voru 7087 m.kr. um sl.
áramót; jukust um 29.4%. — Velti-
innlán á ávisana- og hlaupareikningum
voru 2838 m kr., aukning 752 m.kr
eða 39.9%
Innlán i aðalbanka og útibúum í
Reykjavík námu 5332 m.kr. en í útibú-
um banka, utan Reykjavikur. 4.393
m.kr
Útlán.
Heildarútlán um sl áramót námu
8.922 m.kr Aukning á árinu 2.157
m.kr. eða 31 9%. Tilsvarandi aukning
árið áður var 43.3%. I heildartölum
útlána eru meðtalin öll endurseld lán i
Seðlabanka íslands, sem að langmestu
leyti eru afurðalán landbúnaðarins. svo
og verðbréfakaup bankans af Fram-
kvæmdasjóði, sem er 10% af bindi-
skyldri innlánsaukningu ársins
Þegar afurðalán landbúnaðar og
skuldabréf Framkvæmdastofnunar eru
dregin frá, standa eftir hin sjálfráðu
útlán, en þau námu 5 332 m kr , juk-
ust um 837 m.kr. eða 18 6% á árinu
(34.5% árið áður). Afurðalán jukust
mun meir eða um 1.346 m kr., i
3 008 m.kr , aukning á árinu 81%.
Fyrir 5 árum námu afurðalán 17 9%
heildarútlána bankans, en voru um sl
áramót 33.7% þeirra; höfðu þvi nær
sexfaldast á sama tima og heildarútlán
tæplega þrefölduðust
Útlán til atvinnuveganna.
Útlán bankans til atvinnuveganna
námu í árslok 6 775 m kr , til opm-
berra aðila 1.227 m.kr. og til einstak-
linga 920 m.kf. í fyrst nefnda flokkn-
um er landbúnaður langstærstur
3.541 m.kr. eða 52% Aukning á
lánum til þessarar atvinnugreinar varð
mjög mikil á árinu, eða 1.437 m.kr. Til
iðnaðar og byggingarstarfsemi námu
útlán 1.217 m.kr.# samvinnu- og
kaupmannaverzlunar 1.072 m.kr.#
samgangna. ferðamála og ýmiss konar
þjónustustarfsemi 613 m.kr. og til
sjávarútvegs 331 m.kr.
StaSan vi8 Seðlabankann.
í skýrslu bankans segir að seðla-
bankinn grfpi á þrennan hátt inn f
stöðu hans: með bindingu sparifjár,
endurkaupum á lánum og viðskipta-
reikningi, sem raunverulega spegli
lausafjárstöðu hans. Á viðskiptareikn-
ingi kom aldrei til yfirdráttar og inn-
stæða þar f árslok nam 1.037 m.kr.
(423 m.kr. árið áður), þann veg að
lausafjárstaða bankans batnaði enn
verulega Innstæða bankans á bundn-
um reikningi f Seðlabanka nam í árslok
l. 983 m.kr.. jókst á árinu um 529
m. kr. — Endurkaup Seðlabankans
voru 2.810 m.kr. um áramót sl., þar af
2.424 m.kr. afurðalán atvinnuveg-
anna (1.207 m.kr. sl. ár) — Inneign-
ir Búnaðarbankans í Seðlabankanum
námu því hærri fjárhæð en heildar
endurkaup Seðlabankans af Búnaðar-
bankanum
Rekstur bankans.
Bókfært eigið fé bankans í árslok var
304,4 m.kr. og hafði aukizt um 59% á
árinu. Heildareignir voru tæplega
13 000 m.kr. og nam eignaaukning
42%.
Niðurstaða á rekstrarreikmngi sýndi
ráðstöfunarfé 1 24 0 m.kr. (69 1 m.kr
árið áður). 10 7 m kr. var varið til
afskrifta, en 113 3 m.kr. ráðstafað í
varasjóð.
Heildarkostnaður varð 372.5 m.kr.
og jókst um 42%. Langstærstur kostn-
aðarliður voru laun og tengd útgjöld
Aukning á þessum gjaldalið nam 35%,
sem er mun minna en árið áður, og er
,,þar að finna aðalskýringuna á betri
afkomu bankans á liðnu ári", segir í
skýrslunni
Starfsmannafjöldi I bankanum. að
meðtalinni Veðdeild Búnaðarbankans
og Stofnlánadeildar landbúnaðarins,
var 221 (214 árið áður). 65 starfa í
útibúum utan Reykjavíkur Nýtt útibú, í
Vík í Mýrdal tók til starfa á árinu
1975
! Innlán 9725
| Endurseld lán 2849
| önnur útlán 6073
as'>'V
s°
10000
9500
9000
I
8500
8000
7500
7000
6500
6000
3000
2500
2000
1500
1966 1967 1968 1969 1970 , 1971 1972 1973 197$ 1975
Bankinn er eignaraðili að Reiknistofu
bankanna Bankinn rekur 5 útibú í
Reykjavík og 1 1 utan höfuðborgarinn-
ar. Nýtt útibú verður opnað innan tíðar
í Görðum (Garðabæ).
Stofnlánadeild landbúnaðar
ins.
Heildarútlán Stofnlánadeildar land-
búnaðarins voru í árslok 1975 4 244
m.kr., aukning á árinu 1 249 m.kr. eða
41.7%. Heildarskuldir deildarinnar
námu aftur á móti 3.951 m.kr. og
hækkuðu á árinu um 1.391 m.kr. eða
54.3%. — Greiðslustreymi inn- og
útborgana sýnir að innborganir námu I
heild 2.414 m.kr. en útborganir
2.157 m.kr.. þann veg að innborganir
voru 257 m.kr. hærri. sem kemur fram
f betrí stöðu deildarinnar við spari-
sjóðsdeild Búnaðarbankans.
Lánveitingar deildarínnar námu
l. 375 m.kr. á árinu (1.054 m.kr. árið
áður). Aukning 323 m.kr. eða 30.6%.
Sundurliðun lána: Ibúðarhús ! sveitum
185 m.kr., ræktun og útihús 738
m. kr.. dráttar- og vinnuvélar 154
m.kr., gróðurhús 22 m.kr., vinnslu-
w,
Til
atvinnuveganna
Til
einkaaðila
Til
opinberra
aðila
stöðvar 162 m.kr.. verkstæði 31
m.kr.. lax og silungseldi 26 m.kr.,
minnkabú 1 1 m.kr., bústofnslán 46
m.kr.
Veðdeild Búnaðarbankans.
Veðdeildin lánaði til 83 lán að fjár-
hæð 49 m.kr. til jarðakaupa (99 lán
árið áður). Lántökur deildarinnar námu
65 m.kr. (frá Framkvæmdasjóði 15
m.kr., Llfeyrissj. bænda 50 m kr ). Inn-
borganir námu 125 m.kr. en útborg-
anir 139 m.kr. á greiðsluyfirliti Stað-
an á viðskiptareikningi ! Búnaðarbank-
anum versnaði því á árinu um 14
m.kr.. en á reikningi var innstæða i
árslok á fjárhæð 10 m.kr. ..Afkoma
deildarinnar fer ört versnandi." segir i
ársskýrslunni, ,.og var halli á rekstrar-
reikningi 15 m.kr, Stendur nú fyrir
dyrum athugun á fjárhag deildarinnar
og ákvörðun um framtlðarstarfsemi
hennar."
FLAUELS-
BUXUR
BARNA
1200
MUSSUR II
7900
DENIM
BUXUR
m/beinum skálmum,
4.200
Geysilegt úrval af rúllukragapeysum
VIÐLEGUBÚNAÐUR
Fatnaður í ferðalagið á alla fjölskylduna
MATVARA
Á HAGKAUPSVERÐI
Opið til kl. 10 á föstudögum.
Lokað á laugardögum.
IsKEIFUNNI 15llsÍMI 86566
'____________________