Morgunblaðið - 08.07.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULl 1976
29
VELVAKAINIIDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Vinmargur
maður
„Austurbæingur" skrifar eftir-
farandi bréf:
„Kæri Velvakandi.
Eins og fram kom í dálkum þín-
um núna á dögunum eru umferð-
armál mjög vinsælt efni — eigum
við kannski að segja nöldursefni
— hjá bréfriturum þinum. Mér
finnst þetta eðlilegt með tilliti til
hinna miklu fórna, sem við fær-
um í umferðinni. Og því miður má
rekja orsök margra slysa til kæru-
leysis eða hugsunarleysis akandi
og gangandi vegfarenda.
En því skrifa ég þér þetta, að
litlu munaði einn daginn, að bíll-
inn minn væri „keyrður í klessu“
vegna þess að ég ók á eftir vin-
mörgum manni, sem jafnframt
því að aka bíl sinum þurfti að
heilsa svo mörgum kunningjum.
% Á miðri
Lækjargötu
Við biðum báðir eftir að taka
vinstri beygju úr Lækjargötu yfir
á Skólabrú. Loks var „auður sjór“
og ég ók á eftir vininum. En allt i
einu stanzaði hann rétt kominn
inn á merktu gangbrautina vió
Skólabrú. Hver fjárinn, hugsaði
ég, var maður, sem ég hafði ekki
séð, þarna á ferð? Nei, svo reynd-
ist ekki heldur hafði sá vinmargi
séð tvo vini sína upp við húsvegg
og nú byrjaði hann að veifa til
þeirra og lagði ekki af stað eftur
fyrren þeir höfðu svarað kveðju
hans með handauppréttingu.
Ég í mínum bil var eins og illa
gerður hlutur úti á Lækjargötu og
lokaði alveg annarri akreininni.
Ekki leið mér betur, þegar ég fór
að svipast um eftir umferðinni og
sá tvo bila koma askvaðandi sinn
á hvorri akrein rétt eins og þeir
væru í kappakstri. Til allrar ham-
ingju sáu þeir, hvernig í málum lá
og sá, sem var min megin, hægði
niður og stanzaði. Ég sendi hon-
um þakkarskeyti.
• Fleiri
kunningjar
En öllu var ekki lokíð enn, sá
vinmargi sá mann á gangi við
Dómkirkjuna. Hann hægði niður
og reyndi með handapati að vekja
athygli hans á sér, en það tókst þó
ekki því sá gangandi beygði fyrir
hornið inn í Kirkjustræti.
Vininum hefur sennilega þótt
miður því nú skimaði hann meira |
en nokkru sinni i allar áttir hvar
hann ók norður Pósthússtræti.
Þegar hann beygði svo inn í
Austurstræti sá hann einhvern,
sem hann þekkti á horninu við
Landsbandann og enn reyndi
hann að vekja á sér athygli með
handsveiflu en mistókst. Síðan
lúsaðist hann eftir Austurstræti
og hér skyldi sýnilega enginn
sleppa, svo ákaft var horft til
hægri og vinstri. Það kom þó ekki
mál við mig því að eftir fyrstu
atrennuna var ég við öllu búinn.
Ég hugsaði með mér hvílik
heppni það væri að þessi ágæti
maður ætti ekki jafnmarga vini í
útlandinu og hér heima, því ef
marka má tS-merkið á bílnum
hans hefur hann ekið honum er-
lendis — og þar ku hart tekið á
svona akstursmáta.
Austurbæingur."
Þetta er sígilt dæmi um það
sem getur komið fyrir í umferð-
inni í Reykjavik. Það var drepið á
það í Velvakanda nýlega að
sofandaháttur og hugsunarleysi
sumra bílstjóra spillti stórlega
fyrir greiðri umferð um bæinn og
getur slíkt verið mjög bagalegt
fyrir þá sem þurfa að komast
hindrunarlaust leiðar sinnar. Ein-
staka bílstjórar virðast ekki
hugsa lengra en um sinn eigin bíl,
og þar með ekki gera sér grein
grein fyrir því að þeir eru alls
ekkert einir i umferðinni og
verða að taka tillit til svo fjöl-
margra annarra.
0 Hættuleg
sölumennska
Það eru fleiri atriði í umferð-
inni sem eru ámælisverð en fram-
ferði bilstjóra. Þeir eru ekki einu
vegfarendurnir, — og nýlega
hafði sambandi við Velvakanda
kona nokkur sem kvaðst furða sig
á því að ekki skyldu menn hafa
neitt að athuga við athafnir blaða-
söludrengja á miklum umferðar-
götuhornum.
Konan sagði m.a.: „Það hafa
áreiðanlega fleiri en ég tekið eftir
þeim rnikla fjölda drengja sem
selja siðdegisblöðin og hafa það
fyrir sið að bíða á umferðareyjum
við umferðarljós eftir viðskipta-
vinum. Þeir ramba fram og aftur
mílli eyjanna og taka umferðar-
Ijósin oft ekki svo mjög hátíðlega,
sem að sjálfsögðu skapar stór-
hættu. Þetta er á vissan hátt snið-
ug leið til að afla sér viðskipta-
vina, þeir hljóta að selja vel á
slíkum umferðarhornum og
kannski er það þess vegna sem
enginn hefur séð ástæðu til að
amast við þessari iðju. En ég
furða mig á því samt sem áður að
lögregla skuli ekki stugga þeim
burtu. Ég man ekki eftir að hafa
séð það.
Annað atriði langar mig einnig
til að taka fram í þessu sambandi
þótt það sé ekki mikilvægt. Einu
sinni man ég eftir því, að bilstjóri
sem keypti sér blað, gleymdi sér
svo gjörsamlega við lestur ein-
hverrar æsifréttar, að hann rank-
aði ekki við sér fyrr en heill
flautukór upphófst. Þetta er
kannski ónauðsynlegt röfl i mér,
en samt fannst mér rétt að vekja á
þessu athygli hér.“
Velvakandi þakkar fyrir þessi
bréf og það er rétt sem segir i
fyrra bréfinu að umferðarmál
koma oft til umræðu hér. Er það
sennilega vegna þess að þetta er
mál, sem öllum kemur við, það
eru allir meira eða minna á ferli í
umferðinni hvort sem þeir eru
akandi eða gangandi eða eitthvað
allt annað og hver hópur fyrir sig
hefur eitthvað upp á hinn hópinn
að klaga.
persónulegri skoðun sinni á ein-
stökum fjölskyldumeðlimum, svo
og lækninum Gregor Isander. Hún
lagði sig fram um að láta hann
finna stemninguna... og skynja
spennuna... eins konar mann-
vonsku sem lá í loftinu... spennu
sem hafði náð hámarki slnu á
afmælisdegi Cecilfu og með
dauða Jóns um nóttina. Þegar
hún hafði loks lokið máli sinu
uppgötvaði hún að klukkan var
orðin hálf fimm og hún hrópaði
upp yfir sig.
— Hamingjan góða! Ég hef
gleymt að Ifta eftir þvf hvort bfll-
inn kæmi.
— Hann hefur ekki farið fram-
hjá enn, sagði hann sefandi.
— En Björg... Eg skil ekki,
hvernig stendur á þvf að hún er
svona lengi?
— Það get ég kannski reiknað
út.
Það vottaði fyrir hörku í rödd
Petrus.
— En svo getur vel verið að hún
skjóti upp kollinum á hverri
stundu og ég býst þvf við að það
sé bezt ég hafi hraðan á og segi
þér hvernig þetta litla ævíntýri
kemur mér fyrir eyru.
Hvorugt þeirra veitti því at-
HÖGNI HREKKVÍSI
©1»76
McNaught Syad., Inc.
.. og þegar.'þú ert búinn að nota sólarolíuna þá
Bændur athugið
Heybindigarn fyrirliggjandi, þrír sverleikar,
hagstætt verð, sendum gegn póstkröfu.
R. JÓNSSON sf.
umboðs- og heildverslun
Nýlendugötu 14, Reykjavík
simi 1 7480.
FERÐALANGAR
er rykið að kæfa ykkur.
Akið út af hringveginum og gistið á
HÓTEL VÍKURRÖST,
— DALVÍK —
Upplýsingar í síma 96-61 354.
Lánasjóður íslenskra námsmanna auglýsir:
Námslán og/eða
f erðastyrkir til náms
n.k. skólaár:
Auglýst eru til umsóknar lán og/eða ferðastyrkir úr Lánasjóði ísl
námsmanna skv lögum nr. 57. 28 mai 1976 um námslán og
námsstyrki
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu Lánasjóðsins, að Laugavegi
7 7, Reykjavík, á skrifstofu SHÍ og Sine í Félagsheimili stúdenta við
Hringbraut, í send ráðum íslands erlendis og hlutaðeigandi skólastofn-
unum.
Námsmenn, aðrir en 1 árs nemar, geta, að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum, fengið úthlutað hluta námsláns fyrri hluta skólaárs, ef þeir
óska þess i umsókn. Verður sá hluti greiddur út ef fjármagn fæst
Aætlaður afgreiðslutími ákvarðast af umsóknarfresti á eftirfarandi hátt
UMSÓKNARFRESTUR:
Umsókn skilað fyrir 1 5. júlí
Umsókn skilaðfyrir 10 sept
Umsókn skilað fyrir 1 0 okt
Umsókn skilaðfyrir 10 feb
Áætlaður afgreiðslutimi
Haustlán Alm. lán
1.— 15 okt 1 —15 feb
1—15. nóv. 15.-28 feb
1 5, — 31. jan
1 5. — 31. mars.
Sjóðurinn getur ekki ábyrgst að áætlaður afgreiðslutimi standist nema
nægjanlegt fjármagn fáist.
f umsóknum sem skilað er fyrir 10 júli ber að áætla tekjur fyrir árið
19 76 — leiðréttingum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1
sept 1976
Upplýsingar um endanlegar tekjur fyrir árið 1 976 verða að hafa borist
sjóðnum a.m.k. 1 5 dögum fyrir afgreiðslu almenns láns.
Ef nauðsynleg gögn (s.s prófvottorð. ábyrgð. tekjuvottorð) eru ekki
fyrir hendi áður en afgreiðslutimabil hefst, tekur a m k 5 daga að
afgreiða lánið eftir að þau hafa borist sjóðnum
SUMARLÁN:
Umsóknum skal skilað fyrir 10 júli Áætlað er að lánin verði afgreidd
1 5. — 30 ágúsf (Sumarlán eru einungis ætluð þeim sem Ijúka námi á
timabilinuágúst—nóv 1976)
Reykjavik 23. júnl 1976.
LánasjóSur íslenskra námsmanna.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AKÍI.VSINGA-
SÍMINN F.R:
22480