Morgunblaðið - 08.07.1976, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULI 1976
Tryggja Valsmenn forystu
sína eða opna V íkingar mótið
Eiríkur Þorsteinsson ásamt félögum sfnum f Vlking I varnarstöðu. I
kvöld er það spurningin hvort hinni sterku framlfnu Vals teksi að
brjótast gegnum múrinn.
Víkingur vinnur 2:1
- sagði Eiríkur Þorsteinsson
EINN af úrslitaleikjum Islands-
mótsins í knattspyrnu fer fram á
Laugardalsvellinum í kvöld. Þar
mætast Valur og Víkingur, en
þessi tvö lið standa nú bezt að vfgi
f haráttunni um Islandsmeistara-
titilinn, og þó Valur betur, en
Valur er eina liðið sem til þessa
hefur ekki tapað leik í Islands-
mótinu. Ef að Ifkum lætur verður
um hörkuleik að ræða í kvöld, og
erfitt er að spá um úrslit. I leik
liðanna f fyrri umferð sigraði
Valur með þremur mörkum gegn
einu, eftir að staðan hafði verið
jöfn unz skammt var eftir af leik-
tímanum.
Vinni Valsmenn leikinn i kvöld
er, staða þeirra í mótinu orðin
mjög góð, þar sem þeir hafa þar
með 4 stiga forskot á næstu lið.
Fari hins vegar svo að Víkingar
vinni má segja að mótið galopnist
að nýju. Þá stæðu Vikingar jafn-
fætis Val — bæði iiðin hefðu tap-
að fimm stigum. Fram hefur tap-
að sex stigum og Akranes einnig
sex stigum.
Valsmenn eiga hins vegar einna
erfiðasta „prógrammið" eftir af
þeim liðum sem eru i toppbarátt-
unni, þar sem þeir eiga eftir að
leika við Akranes, Keflavík og FH
á útivelli, en reynslan hefur sýnt
að stig eru ekki auðsótt til þessara
félaga er þau leika heima.
Leikurinn í kvöid hefst kl. 20.00
og stóðu i gær vonir til þess að
hann gæti farið fram á „gamla“
Laugardalsvellinum. Búist er við
miklum fjölda áhorfenda, en eins
og kemur fram í annarri frétt í
blaðinu, hefur aðsókn að leikjum
þessara tveggja liða verið góð i
sumar — sérstaklega þó Vals-
manna.
M
— ÞETTA verður hörkuleikur,
sagði Eirfkur Þorsteinsson Vfk-
ingur um leikinn í kvöld. — Við
verðum að vinna þennan leik ef
við ætlum okkur að vera með f
toppbaráttunni, og ég hef mikla
trú á þvf að það takist hjá okkur.
Sóknarleikmenn Vals verða okk-
ur þó örugglega erfiðir viðfangs,
þeir eru fljótir og hættulegir og
það er betra að gæta sín á þeim og
sleppa þeim aldrei lausum. Eg
hef ekki mikla trú á þvf að mörg
mörk verði skoruð f leiknum, —
ætli hann fari ekki 2—1 fyrir
okkur.
Um knattspyrnuna f sumar
sagði Eirfkur, að það væri sitt álit
að hún væri nú betri en undanfar-
in ár. — Liðin reyna miklu meira
að spila, og árangurinn er svo
beittari sóknarleikur og fleiri
mörk en verið hefur, sagði Eirfk-
ur. — Að mínum dómi skera f jög-
ur lið sig nokkuð úr: Valur, Vfk-
ingur, Akranes og Fram, en KR-
ingar eru ekki þarna langt undan.
Þeir gætu alveg blandað sér f
baráttuna. Hin liðin eru nokkru
slakari, en geta þó átt góða leiki.
Að minnsta kosti er óhætt að full-
yrða, að það er enginn leikur létt-
ur f mótinu að þessu sinni.
VALUR VINNUR 3:1
- sagði Hermann Gunnarsson
t^pLYMPIULEIKAR
7?vv/í s/iti eere'J/se/te/*/
/ s'/94ír/> s/'J'J / ?/9't/s /gí’V
i//9/i e/te/nsr / e/■<?»/*<'/
v//t i. 5 rtlooÞÝ f/lU (J.S./* .
//ó>s/ //■/>£/'///ee>///) u c/rrtf
/mss //otj/s/i /j^ce "/ts jbri //í/// cer
/>‘-Þ/te / t csoS r/os/*//,# 6//n. j /*//)*.
Þ//trs*/ &G r/*.«*//
t/'/p/ttsr'ii>/> i/fiíívív/
*£/'*'*,* ees/'// //eegt
f/9 /vyt* síx r/c. //,*s ÝT't/isr/i
s/0'Ze/Wz>A , S/Ji"i/"r6S/30C7>i "
OC- KJ///// ý/n/s /49<t/l/epi .
hefur yfir að ráða við mjög sterka
vörn. Vikingarnir hafa það einnig
með sér í þessum leik að þeir hafa
allt að vinna, þar sem tap í leikn-
um minnkar verulega möguleika
þeirra til að berjast um íslands-
meistaratitilinn. Ég hef þó trú á
þvi að okkur takist að snúa á
Víkingsvörnina og vinna. En hver
svo sem úrslitin verða er óhætt að
spá þvi að þetta verður hörkuleik-
ur.
Hermann sagði það sitt álit að
Valur, Víkingur, Fram og Akra-
nes væru um þessar mundir i
sérflokki og Valsmenn þó sterk/
astir. — Sigur í leiknum við Vik-
inga þýðir alls ekki að við séum
orðnir öruggir með íslands-
meistaratitilinn. Síður en svo. Við
eigum eftir að leika við KR og
síðan þrjá erfiða útileiki í röð.
Um knattspyrnuna í sumar
sagði Hermann að sér fyndist hún
betri en undanfarin ár, og sér-
staklega þó hjá Valsmönnum. —
Leikskipulag sovézka þjálfarans
fellur okkur vel, sagði hann, —
það er leikin óþvinguð knatt-
spyrna og mikií áherzla lögð á
sókn og mörk. Víkingarnir leika
hins vegar töluvert öðruvísi og
kerfisbundnari knattspyrnu.
— ÉG spái þvi að Valur vinni
leikinn 3—1, sagði Hermann
Gunnarsson, annar af markakóng-
um Valsliðsins í viðtali við
Morgunblaðið í gær, þar sem
hann var spurður álits um leikinn
í kvöld. — Þetta verður barátta
beztu framlínu sem lið á íslandi
/flOOD/ i//>/x.
■B/tAJr/i y þjA'Jd i
fet/t't'i/t t/zxJ
#*> a£/t/> &£/>
é t/ó e ti/'/iJ, /
e’erP'J/ . //j'J
t/écr Á£*/*/*.
StcjKreitc/ sí//j'T)^
S/f/tAP/ 9 S/'S'/JA>
i *//'*&/.£PO/J, /zfx-P
*■
06
ER EKKINOGU GOÐUR
FYRIR OLYMPÍULÐKA
- sagöi Erlendur Valdimarsson, sem ætlar ekki til Montreal
— Ég býst alls ekki við þvf að
ég fari á Olympfuleikana í
Montreal, sagði Erlendur
Valdimarsson kringlukastari,
er Morgunblaðið ræddi við
hann eftir krínglukastskeppni
Kaiottkeppninnar, en þar varð
Erlendur óvænt f öðru sæti, en
náði samt ágætum árangri,
kastaði rösklega 56 metra. —
Ég tel mig ekkert erindi eiga á
leikana, sagði Erlendur, — ég
hef einfaldlega ekki náð mér
eins vel á strik og ég gerði mér
vonir um, og þvf lágmarki sem
ég setti mér sjálfur, hef ég ekki
náð. Hefði ég kastað 60 metra f
kvöld þá hefði ég sennilega far-
ið, en því var ekki að heilsa. —
Ég næ ekki að samræma nógu
vel atrennuna og útkastið,
þannig að kringlan fer beint
upp f loftið hjá mér. Ég er viss
um að þetta kemur, en það er
svo skammt til leikanna, að ég
er vonlftill að ég nái að laga
þetta hjá mér fyrir þann tfma.
Erlendur hefur átt við
meiðsli að strfða að undan-
förnu, og hafði aðeins getað
farið á fjórar kastæfingar fyrir
Kalottkeppnina. I keppninni
virtist hann geysilega sterkur
og snöggur, en hins vegar tókst
honum ekki nógu vel að sam-
ræma atrennu sfna og útkastið,
svo sem hann segir sjálfur.
Virtist Erlendur ætla að ná
risaköstum f hvert skipti sem
hann kastaði, en kringlan sner-
ist sfðan niður „á miðri leið“.
Erlendur kvaðst vera orðinn
góður af meiðslunum, og hann
vonaðist nú tii að geta einbeitt
sér að æfingunum.
Þá er og óvfst hvort Stefán
Hallgrfmsson getur farið á leik-
ana. Hann héfur átt f meiðslum
að undanförnu og á grinda-
hlaupsæfingu f vikunni kom f
Ijós að hann hafði ekki náð sér
eins vel og hann hafði haldið.
Einn fþróttamaður til, sem val-
inn hafði verið f Olympfuliðið,
Gústaf Agnarsson, er einnig á
sjúkralista eftir keppni f fyrri
viku og óvfst hvort hann getur
farið.