Morgunblaðið - 08.07.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULl 1976
31
ISLAND VANN KVENNAKEPPNINA EN FINNAR
KARLAKEPPNINA OG HLUTU FLEST STIG
FINNAR báru öruggan sigur úr být-
um ( karlakeppni Kalottkeppninnar I
frjálsum (þróttum sem lauk á Laugar-
dalsvellinum I gærkvöldi, en (slenzku
stúlkurnar sigruSu hins vegar (
kvennakeppninni. Stigamunurinn
var þó það mikill ( karlakeppninni, að
Finnar hlutu flest stig, samtals 355,
en islendingar hrepptu annað sætið
með 317 stig. Norðmenn urðu I
þriðja sæti með 287 stig og Svíar
ráku lestina með 252 stig.
Keppnin ( gærkvöldi bauð upp á
mikla spennu lengst af, og var sann-
kölluð keppnisstemmning á áhorf-
endapöllunum, en á þeim var fleira
fólk en um langt skeið á frjálslþrótta-
móti hérlendis. í nær öllum greinun-
um var um harða baráttu að ræða
þar sem ekki mátti milli sjá fyrr en (
lokin.
INGUNN HETJA MÓTSINS
Það leikur ekki á tveim tungum að
Ingunn Einarsdóttir var sá keppandi
á þessu móti sem stóð sig bezt.
Þrlvegis ( gærkvöldi var hún ( sviðs-
Ijósinu og -þrfvegis kom hún fyrst að
marki, og þrjú voru jslandsmet henn-
ar. Framfarir Ingunnar um þessar
mundir eru með óllkindum og skaði
að hún skyldi ekki fá keppnisrétt á
Ólympluleikunum I Montreal. Fyrsta
metið ( gærkvöldi setti Ingunn I 100
metra grindahlaupinu, sem hún hljóp
á 14,1 sek., — meira en sekúndu
betri tlma en sú er varð I öðru sæti.
Erna Guðmundsdóttir varð þriðja (
þessu hlaupi. en hefði átt annað
sætið örugg hefði hún ekki orðið
fyrir því óhappi að hrasa um sfðustu
grindina og hálfdetta.
Næsti sigur met Ingunnar kom svo
( 200 metra hlaupi sem hún hljóp á
24,6 sek., sem er 3/ 10 úr sek. betri
t(mi en gildandi íslandsmet. Ekki er
vlst hvort þetta met Ingunnar fær
staðfestingu, þar sem vindmælir
sýndi of mikinn meðvind I hlaupinu.
Eftir á komu fram grunsemdir um að
vindmælirinn myndi ekki vera réttur,
og hlógu sumir útlendingarnir af
þeim fréttum, að um of mikinn með-
vind hefði verið að ræða.
í 4x400 metra boðhlaupinu hljóp
Ingunn svo slðasta sprettinn fyrir
(slenzku sveitina — jafnglæsilega og
hún hafði hlaupið áður I keppninni,
og tlmi sveitarinnar var nýtt íslands-
met, 3:54,5 mfn. í sveitinni voru auk
Ingunnar þær Sigríður Kjartansdóttir
KA, Lilja Guðmundsdóttir ÍR. og
Ema Guðmundsdóttir KR.
LILJA ÖRUGGUR
SIGURVEGARI
Lilja Guðmundsdóttir vann fyrir-
hafnarlltinn sigur I 800 metra hlaup-
inu, hljóp létt og leikandi og hafði
forystu frá upphafi til enda. án þess
að henni væri ógnað. T(mi hennar
reyndist vera 2:11,7 m(n.
— Ég er mjög ánægð með þennan
árangur sagði Lilja, eftir hlaupið. Ég
er orðin óvön að hlaupa á öðru en
tartan, og sllkt munar glfurlega
miklu, sennilega 6—7 sekúndum.
Þessi árangur ( kvöld eykur mér
bjartsýni á að mér takist að hlaupa á
2:05—2:06 m(n. á Ólympluleikun-
um.
I
Lilja Guðmundsdóttir kemur að
marki sem yfirburðasigurvegari I
800 metra hlaupi kvenna.
ÞÓRDÍS ÖNNUR
íslenzki kvenkeppandinn á Ólym
pfuleikunum, Þórdís Glsladóttir, stóð
sig einnig með ágætum I gærkvöldi.
Hún fór hátt yfir 1.72 metra. en
virtist of hrædd við 1.75 til þess að
stökka þá hæð, sem hún ætti þó að
geta hvenær sem væri. Lára er
greinilega að ná sér á strik í hástökk-
inu aftur, stökk 1.66 metra I gær-
kvöldi og var vel yfir þeirri hæð.
Í öðrum kvennagreinum ( gær-
kvöldi var útkoman svipuð og búizt
hafði verið við fyrirfram. Einna
mesta athygli vakti 12 ára stúlka úr
Kópavogi, Thelma Bjömsdóttir, sem
hljóp 3000 metra hlaupið mjög vel.
— Þessi verður sigurvegari í Kalott
eftir svona 2—3 ár, varð einum
Norðmanni að orði, er hann fylgdist
með hlaupi Thelmu.
- —
. .....11
Hreinn Halldórsson sigraði f kúluvarpi með 19,35 metr.
ALLT ER FERTUGUM FÆRT
Öðru hverju hefur verið gert hálf-
gert grln að (slenzkum hlaupurum
fyrir að láta Valbjöm Þorláksson.
sem nú er kominn yfir fertugt, vinna
sig I keppni. Valbjöm sýndi I gær-
kvöldi, að það þarf þá l(ka að gera
grln að erlendum hlaupurum. Hann
sigraði ( 110 metra grindahlaupi á
ágætum tlma, 15.0 sek.. þrátt fyrir
að hann byrjaði hlaupið fremur illa
og væri með slðustu mönnum yfir
fyrstu grind. Þama sá maður keppn-
isskap ( lagi, þar sem ekki er gefizt
upp fyrr en I fulla hnefana. Tækni
Valbjöms yfir grindunum var llka
áberandi betri en keppinauta hans.
SIGUR í KÚLUVARPI
OG SLEGGJUKASTI
íslendingar unnu örugga sigra I
kúluvarpi og sleggjukasti ( gær-
kvöldi. Erlendur þeytti sleggjunni
tæpum sex metrum lengra en næsti
maður og náði ágætu afreki, 58,42
metra. Þetta sýnir glögglega að
Erlendur gæti komizt ( fremstu röð
sleggjukastara legði hann rækt við
þá grein. Hreinn var svo yfirburða-
maður ( kúluvarpinu, varpaði lengst
19.35 metra, en vel yfjr 20 metra (
upphituninni, eins og s.l. föstudag.
Það er aðeins tlmaspursmál hvenær
„Stóra kastið" kemur, — vonandi
verður þaðá Ólympfuleikunum.
í þriðju kastgreininni ( gærkvöldi
gekk ekki eins vel. Óskar náði sér
ekki vel á strik ( spjótkastinu og varð
að gera sér fjórða sætið að góðu með
68.72 metra kasti.
SKEMMTILEG HLAUP
i hlaupagreinunum var gffurleg
barátta ( gærkvöldi, en þargekk ekki
eins vel hjá íslendingunum og I
fyrrakvöld. í 100 metra hlaupinu
sátu þeir Bjami og Sigurður báðir
herfilega eftir í startinu og áttu ekki
Hring eftir hring fylgdust þeir Ágúst Asgeirsson og Finninn Seppo
Helenius að, en þar fór að Agúst varð að gefa eftir.
von eftir það. Sigurður hreppti þó
annað sætið ( hlaupinu á mjög góð-
um t(ma, 10.6 sek.. og er ekkert
vafamál að hann á eftir að gera
atlögu að íslandsmeti Hilmars Þor-
bjömssonar, jafnvel þegar I sumar.
í 400 metra hlaupinu voru þeir
Bjami og Sigurður aftur á ferð. Virt-
ist sem Bjami myndi vinna þar ör-
uggan sigur, en þegar út á beinu
brautina kom stffnaði hann nokkuð
og varð að sleppa Jaako Kemola
fram úr sér. Sigurður varð svo I 4.
sæti ( 50,0 sek.
j 300 metra hindrunarhlaupinu
var skemmtileg keppni. Seppo
Helenius frá Finnlandi og Ágúst
Ásgeirsson fylgdust að hring eftir
hring og var það ekki fyrr en um
1000 metrar voru eftir að Ágúst
missti hann frá sér.
— Hann tók skyndilega mikinn
kipp, og ég áttaði mig hreinlega ekki
fyrr en hann var kominn það langt á
undan, að vonlaust var að reyna að
berjast við hann, sagði Ágúst eftir
hlaupið. Tlminn hjá Ágústi var þó
allgóður ( hlaupinu, 9:07.2 mln.
í 10.000 metra hlaupinu lagði Sig-
Framhald á bls. 18
Urslit í einstökum greinum
SLEGGJUKAST KARLA
Erlendur Valdemarsson I. 58.42
Aage Mölstad N. 52.74
Risto Sorvoja F. 51.46
Hannu Kesti F. 50.44
Martin Wedin S. 49.48
Ragnar Stensrud N. 47.52
Óskar Jakobsson t. 47.12
Karl Zerpe S. 39.84
100 M GRINDAHLAUP KVENNA
Ingunn Einarsdóttir t. 14.1
Erja Kinnunen F. 15.2
Erna Guómundsdóttir t. 15.4
Carina Ström S. 16.2
Anne Karjaluoto F. 16.2
Inger Strömsnes N. 16.2
Maria Olsson S. 16.3
Guri Hoff Pettersen N. 16.7
100 M GRINDAHLAUP KARLA
Valbjöm Þorláksson 1. 15.0
Einar Hernes N. 15.0
Markku Pekkala F. 15.2
Odd Ivar Sövik N. 15.4
Bertil Johansson S. 15.4
Jón S. Þórðarson t. 15.5
Jan Erik Westman S. 15.5
Markku Rajala F. 15.6
200 M HLAUP KVENNA
Ingunn Einarsdóttir t. 24.6
Mona Evjen N. 24.8
Erna Guómundsdóttir t. 25.7
Louise Hedkvist S. 25.8
Sirpa Merilaeinen F. 25.9
Lena Johansson S. 26.7
Ann Karen Aanes N. 27.1
Soile Joona F. 27.4
KÚLUVARPKARLA
Hreinn Halldórsson t. 19.35
Matti Kemppainen F. 18.10
Guóni Halldórsson t. 17.68
Per Nilson S. 17.51
Esa Pajuniemi F. 15.97
Tom Feldberg N. 15.34
Nils Otto Petttersen N. 15.30
Gustav Nyberg S. 15.30
100 M HLAUP KARLA
Simo Lamsa F. 10.5
Siguróur Sigurósson í. 10.6
Tapani Turunen F. 10.7
Runald Báckman S. 10.8
Bjarni Stefánsson t. 10.9
Ole B. Skarstein N. 11.2
Tommy Person S. 11.2
Eirik Lilland N. 11.3
STANGARSTÖKK KARLA
Antti Haapalahti F. 4.70
Kimmo Jokivartio F. 4.40
Tomas Widmark S. 4.30
Valbjörn Þorláksson I. 4.10
Stefán Hallgrfmsson t. 4.10
Björn Morstöl N. 4.10
I. Nyman S. 4.00
Jan Albrigtsen N. 3.50
ÞRtSTÖKK
Veli Jukkola F. 15.02
Eirik Karlsson S. 14.73
Jan Albrigtsen N. 14.56
Eero Jormakka F. 14.54
Pétur Pétursson I. 14.34
Jóhann Pétursson t. 14.00
Kurt Engman S. 13.76
Torfinn Overn N. 13.39
SPJÓTKAST KARLA
Leif Lundmark S. 76.82
Jerry Holmström S. 74.00
Vesa Honka F. 71.68
óskar Jakobsson I. 68.72
Torgeir Boldermo N. 68.66
Jorma Markus F. 64.58
Elfas Sveinsson t. 63.88
Helge Lorentsen N. 62.96
HÁSTÖKK KVENNA
Eija Puolakka F. 1.72
Þórdfs Gfsladóttir t. 1.72
Ingrid Marcusson S. 1.66
Carina Ström S. 1.66
Lóra Sveinsdóttir I. 1.66
Jaana Rusanen F. 1.60
Janne Gunnarsrud N. 1.60
Irine Storjörd N. 1.55
10000 M HLAUP KARLA
Seppo Matela F. 30:10.8
Ari VehkaojaF/ 30:13.8
Sigfús Jónsson t. 30:36.4
Bengt Nordkvist S. 30:42.2
Thorbjörn Larsen N. 30:44.8
Henry Ölsen N. 30:45.0
LarsVinosS. 33:32.8
Agúst Gunnarsson t. 34:55.6
4X400 METRA BOÐHLAUP KVENNA
Sveit tslands 3:54,5
Sveit Noregs 3:56,0
Sveit Finnlands 4:02,4
Sveit Svfþjóóar 4:03.9
4X400 METRA BOÐHLAUP KARLA
Sveit Finnlands 3:21,9
Sveit tslands 3:22.6
Sveit Svfþjóðar 3:25.8
Sveit Noregs 3:27,5
1500 M HLAUP KARLA
Thor Höydal, N 3:57.1
Terje Johanson, N 3:57.3
Jouko Niskanen, F 3:57.8
Jón Dióriksson, t 3:58.8
Hanu Holappa, F 3:59.7
Gunnar P. Jóakimsson. I 4:04.5
Stefan Wrige, S 4:06.5
PerNorlin.S 4:09.9
800 M HLAUP KVENNA:
Lilja Guómundsdóttir, I 2:11.7
Ingvill Eimhjellen, N 2:13.3
Hanna Kiuru, F 2:14.6
Ewa Ludwigsson, S 2:18.1
Teija Virkberg. F 2:18.1
Elisabeth Udnes. N 2:22.2
Mariann Hedkvist. S 2:23.5
Ingibjörg tvarsdóttir. t 2:29.8
KRINGLUKAST KVENNA:
Lilsa Anttelainen. F 40.36
Anita Nilsen, N 39.86
Sirka Kauppinen, F 39.70
Anne Brit Nöro, N 37.30
Guórún Ingólfsdóttir, t 36.40
Ingibjörg Guómundsdóttir. I 35.00
Anna Stina ögren, S 34.52
Gunnila Moreus, S 33.82
3000 M HLAUP KVENNA:
Elin Skjellnes, N 10:07.6
Berit Jensen, N 10:07.8
Lilsa Haapanieni, F 10:11.5
Ritva Martin, F 10:18.6
Siw Larsson, S 11:08.8
Ulla Karlsson, S 11:09.0
Thelma Björnsdóttir, t 11:19.6
Lilja Steingrfmsdóttir, t 11:55.2
3000 M HINDRUNARHLAUP KARLA:
Seppo Helenius, F 8:58.2
Ágúst Ásgeirsson, t 9:07.6
Trules Mökleby, N 9:16.0
LeifHaug, N 9:19.0
Erkki Anunti, F 9:22.2
Hákon Strandberg, S 9:24.6
Siguróur P. Sigmundsson, t 10:16.6
Dick Vaksjö, S 10:40.6
400 M HLAUP KÁRLA:
Jaako Kemola, 48.6
Bjarni Stefánsson, t 49.2
Tapani Heiska. F 50.0
Siguróur Sigurósson, t 50.5
Torstein Hampusson. S 51.0
B.O. Hietala, S 51.4
Knut Kjölsöy. N 51.7
Birgir Lundestad, N 52.2
Urslit stigakeppninnar
Konur Karlar Samtals
Finnland 130 225 355
tsland 138 179 317
Noregur 131 156 287
Svfþjóó 114 138 252