Morgunblaðið - 08.07.1976, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.07.1976, Qupperneq 32
Al'GI.VslNGASlMrNN ER: 22480 JH«r£unbln&it) ffsguitfrlUifófr AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 JHoreunblabiti FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1976 Banamenxiimir fundnir » i - - > i hafa játað verknaðinn TVEIR ungir menn játuðu um kvöldmatarleytið í gær f yfirheyrslum hjá rannsóknarlögreglunni í Reykjavík að hafa orðið Guðjóni Atla Árnasyni að bana aðfararnótt þriðjudags, en lík hans fannst, sem kunnugt er, með allmiklum höfuðáverkum rétt utan við Fífuhvammsveg f Kópavogi, í grennd við Rörsteypuna hf., árla á þriðju- dagsmorgun. Hvorki rannsóknarlögreglumenn í Reykja- vfk né f Kópavogi vildu í gær láta uppi hvað kæmi fram í játningum tvfmenninganna um tildrög þess að þeir réðu Guðjóni bana, en eftir því sem Morgunblaðið komst næst munu mennirnir hafa verið ölvaðir og hafa tekið nokkuð af fjármunum af Guðjóni eftir að hafa unnið á honum. Unnið var að rannsókn þessa máls með náinni samvinnu rann- sóknarlögreglumanna í Reykjavík og rannsóknarlögreglunnar í Sláttur er nú hafinn eða að hefjast víðast hvar á land- inu og hafa bændur norðanlands notfært sér veðurbllðuna fyrir norðan til heyskapar. Kýrin hér á myndinni virðist lika kunna vel að meta þurrk- inn. Ljósm. Rax. Dreng bjarg- að úr sjó á Borgar- fírði eystra Borgarfirdi eystra. 7. júlf. SIÐASTLIÐIÐ mánudags- kvöld vildi það til að 12 ára drengur sem var að leika sér í bát við hafnargarðinn hérna datt í sjóinn. Svo vel vildi til að nokkrir drengir voru á ára- bát þar skammt hjá og urðu varir við þetta. Einn drengj- anna sem f bátnum var Magn- ús Ásgrfmsson 12 ára gamall stakk sér umsvifalaust útbyrð- is og náði drengnum, sem þá var búinn að sökkva einu sinni. Hélt Magnús honum uppi þar til hjálp barst. Þykir mönnum þetta vel af sér vikið af svo ungum dreng. Héðan er annars lítið að frétta. Nokkrir bændur byrj- uðu heyskap og er spretta sæmileg. Sumarveður er hér dag hvern eins og það getur bezt orðið, sólskin og hiti um 20 stig, en þótt gæftir séu sæmilegar og sjómenn rói dag hvern þá er varla hægt að segja að þeir fái bein úr sjó, svo að það nálgast ördeyðu. Sr. Sverrir. Kópavogi, þar sem verknaðurinn var framinn. Rannsóknarlög- reglumenn í Reykjavik höfðu annazt vettvangsrannsókn þar sem lík Guðjóns fannst og einnig tæknilega hlið rannsóknarinnar. Leiddi hún til þess, að grunur beindist að ákveðnum mönnum, og um 11 leytið í gærmorgun handtóku rannsóknarlögreglu- menn í Reykjavík annan manninn en hinn síðan skömmu eftir há- degi. Eftir að mennirnir höfðu verið handteknir, tókst einnig að hafa upp á vitnum, sem gátu með framburði sínum styrjct mjög þann grun að mennirnir tveir hefðu aðfararnótt mánudagsins verið í slagtogi með Guðjóni heitnum. Mennirnir voru yfirheyrðir í allan gærdag og um kvöldverðar- leytið lá fyrir játning þeirra um að hafa orðið Guðjóni að bana. Sem fyrr segir vildu rannsóknar- lögreglumenn ekki láta uppi að svo stöddu um nánari tildrög þess að piltarnir tveir réðu Guðjóni bana, né veita neinar aðrar upp- lýsingar um gang málsins. En eft- ir þeim upplýsingum sem Morg- unblaðið gat aflað sér í gær er Ijóst, að mennirnir voru allir ölvaðir. Talið er að Guðjón hafi verið meðnokkratugi þúsunda króna á sér er hann fór að heiman frá sér á mánudagskvöld, en þeg- ar veski hans kom í leitirnar nokkur hundruð metra frá þeim stað, þar sem líkið fannst, reynd- ust aðeins vera í því persónuleg skilríki mannsins. Eftir þeim upplýsingum sem Mbl. hefur aflað sér, er annar mannanna, sem nú hafa játað, Reykvikingur, en hinn utan- bæjarmaður. Hefur hinn fyrr- Framhald á bls. 18 Kvikmynd um í slenzka laxinn FYRIRTÆKIÐ lsfilm hf. vinnur nú að gerð kvikmyndar um ís- lenzka iaxinn og er ráðgert að myndin verði tilbúin næsta vor. Að tsfilm standa Jón Hermanns- son tæknifræðingur og Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur en auk þeirra vinna að myndinni þeir Sigurður Sverrir Pálsson og Þrándur Thoroddsen kvikmynda- gerðarmenn. Jón Hermannsson sagði í sam- tali við Mbl. i gær, að fyrirhugað væri að myndin tæki um hálftíma í sýningu, en í myndinni yrði iögð áherzla á að sýna uppeldi laxins og laxarækt, en minna fjallað um sjálfar veiðarnar. Myndin verður tekin i laxeldistöðinni í Kolla- firði, en einnig verður kvikmynd- að við helztu laxveiðiár landsins, m.a. Laxá í Kjós og Þingeyjar- sýslu og Borgarfjarðarárnar. Þá er fyrirhugað að kvikmynda eitt- hvað á Grænlandi, þegar Græn- lendingar hefja netaveiðar sínar í haust, og reynt með kortum að sýna hvar laxinn fer um eftir því sem það er vitað. Jón Hermannsson sagði að ut- anrikisráðuneytið hefði sýnt á því áhuga að fá eintök af myndinni til sýningar á vegum íslenzku sendi- ráðanna erlendis og einnig mundi íslenzka sjónvarpinu og erlendum sjónvarpsstöðvum verða boðin myndin til sýningar. Heildargjaldeyrisskammtur- inn hækkaður um 12.500 kr. Hækkunin rennur í vasa ferðamannsins en ferðaskrifstofumar fá áfram sama hluta VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ til- kynnti í gær, að ákveðið hefði verið að hækka gjaldeyrisyfir- færslur til þeirra, sem færu í skemmtiferðir til útlanda, úr kr. 37.500 í kr. 50.000. Þarna er um heildaryfirfærslu að ræða, þann- ig að hjá þeim ferðamönnum sem fara í skemmtiferðir á vegum ferðaskrifstofa, t.d. til sólarlanda, dregst frá hluti af yfirfærslunni fyrir hótclkostnaði en ferðamenn sem fara aftur á móti á eigin vegum fá þessa yfirfærslu óskipta. Forsvarsmenn ferða- skrifstofa hafa lýst þvi yfir að þeir teiji þessa hækkun of litla og hún leysi hvergi nærri þann vanda sem gjaldeyrismál vegna skemmtiferðamanna eru komin í. I viðtali vð Morgunblaðið f gær sagði Björgvin Guðmundsson, for- maður gjaldeyrisnefndar, að líta yrði á þessa ákvörðun sem veru- lega breytingu í gjaldeyrismálum. Þetta væri raunar eina breytingin sem gerð hefði verið i þessum efnum nú um nokkur ár og ekki' hefði verið ákveðin nein hækkun á ferðamannaskammtinum lengi. Hið eina sem gert hefði verið, væri að leiðrétta yfirfærsluna við gengisbreytingar, þar sem þetta væri ákveðið í íslenzkum krónum. Björgvin sagði ennfremur, að í fyrra hefði verið hætt að leggja til grundvallar tiltekinn dagskammt, þ.e. 3‘A pund, eftir að upp kom óánægja með að verið væri að takmarka lengd ferða erlendis, en fram að því hafði verið miðað við að menn fengju 3'A pund með hótelkostnaði inniföldum i 14 daga eða samtals 52'á pund. I þess stað var ákveðið að veita 37.500 kr. hámarksyfirfærslu í erlendri mynt og réðist það af þvi hversu hótelin væru dýr, hvort skammt- urinn entist í viku, hálfan mánuð eða þrjár vikur. Björgvin sagði, að áherzlu bæri að leggja á það að þarna væri um heildaryfirfærslu að ræða, en hins vegar væri verið að fjalla um það núna hjá gjaldeyrisdeildinni, hvernig skammturinn ætti að skiptast milli farþega og ferða- skrifstofu. Þó lægi þegar fyrir, að í sólarlandaferðum rynni þessi aukning fyrst og fremst i vasa farþeganna, þar sem ferðaskrif- stofurnar fengju eftir sem áður^ sömu upphæð af gjaldeyris- skammtinum fyrir hótelkostnaði. Hins vegar hefði verið ákveðið, að auka nokkuð hlutdeild ferðaskrif- stofa í gjaldeyrisskammtinum vegna hótelkostnaðar í ferðum um V-Evrópu og Bandaríkjunum og væri þar verið að taka nokkuð tillit þess hversu hótel þar væru miklu dýrari. Farþeginn fengi þá aftur á móti aðeins minna af gjaldeyri í sinn hlut. Björgvin sagði að þessi skipting væri að öðru leyti ekki endanlega frágengin, en þess væri að vænta að svo yrði þegar i dag. Björgvin nefndi einnig nokkur dæmi um það hvernig hin nýja gjaideyrisyf- Framhald á bls. 18 5 kg. kartöflupoki lækkar um 30 kr. VERÐ á innfluttum kartöflum lækkar I dag og nemur þessi lækkun um 30 krónum á kartöfl- um I fimm kílóa umbúðum. Að sögn Jóhanns Jónassonar for- stjóra Grænmetisverzlunar land- búnaðarins stafar þessi lækkun af verðlækkun á kartöflum á erlend- um markaði, en Jóhann tók fram að verð á kartöflum væri mjög ótryggt um þessar mundir og gætu þær jafnvel átt eftir að hækka f verði áður en langt um liði. Eftir þessa lækkun kosta kartöflur pakkaðar í fimm kílóa umbúðir 94,40 krónur í heildsölu en 104,20 i smásölu en kostuðu áður 135 krónur í smásölu. Jóhann sagði að útlitið með kart- öfluuppskeru í Evrópu væri nú mjög slæmt vegna þurrkanna miklu og jafnvel mætti búast við að óhægt yrði um vik með inn- kaup á kartöflum á þessu ári eins og í fyrra. Nefndi hann sem dæmi að Danir væru nú komnir í þrot með fyrstu uppskeru sína og yróu að kaupa kartöflur erlendis frá þar til þeir fengju seinni uppsker- una ef hún yrði þá einhver. Vart er við því að búast að íslenzkar kartöflur komi á markað fyrr en í byrjun ágústmánaðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.