Morgunblaðið - 17.07.1976, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLl 1976
Bandarfska flugmóður-
skipið Coral Sea á fullri
ferð f átt til Koh Tay.
Eftir John
Cornwell
Ford forseti bendir örygg-
isráði sfnu á kort yfir
Kambódfu meðan á að-
gerðum stóð vegna áhafn-
arinnará Mayaguez
Bandarfskir landgöngulið-
ar koma til Koh Tay.
r
Israelsmenn hafa enn skotið
Bandaríkjamönnum ref fyrir rass
London
ÞAÐ er enginn vafi á þvi, að athygli
hernaðarsérfræðinga i heiminum, sem
brjóta til mergjar hina snilldarlegu að-
gerð ísraelsmanna á Entebbe-flugvelli,
muni beinast í því sambandi að tveim-
ur hernaðaraðgerðum Bandarikja
manna sem urðu lítill álitsauki fyrir
foringjana í Pentagon varnarmálaráðu
neytmu í Washington)
Samanburður er varhugaverður, en
aðgerðir bandarísku landgönguliðanna
í Son-Tay i Norður-Vietnam árið 19 70
og ,,björgun' bandariska flutningskips
ms Mayaguez undan ströndum
Kambódiu á siðasta ári hlýtur að minna
á þá staðreynd, að leifturárásir eru
enginn barnaleikur — hver sem i hlut
á
Nixón Bandarikjaforseti gaf út fyrir-
skipun um, að nóttina 24 nóvember
1970 færu þyrlur 300 mílur inn í
Norður-Vietnam til að reyna að bjarga
bandariskum flugmönnum sem voru í
fangabúðum 20 mílur vestur af Hanoi
Bandaríkjamennirnir komust á
áfangastað kl 2 að nóttu og misstu
eina þyrlu og orustuþotu, sem var til
varnar, og skotin var niður með SAM
eldflaug Aðgerðin'mistókst, því engir
fangar voru i búðunum.
Á sinum tima leit Nixon stjórnin á
aðgerðina sem hetjudáð, sem „ætti að
auka stolt Bandarikjamanna ", að þvi er
Melvin Laird varnarmálaráðherra
sagði En hernaðarorðstir og öryggi
striðsfanga eykst ekki við mistök eins
og þau er þarna áttu sér stað
Af einhverjum ástæðum brást
njósnaþjónusta hersins Hafði lekið út
um þessa fyrirhuggðu leifturárás?
Höfðu Norður-Víetnamar myrt fanga
sina i hasti og grafið þá í grenndinni?
Foringi árásarhópsins skýrði frá því, að
þrátt fyrir leit hefðu engin merki um
slik grimmdarverk fundizt, en hann
bætti því við, að menn hans hefðu haft
nauman tima Yfirforingjar hersins
fengust ekki einu sinni til þess að velta
fyrir sér öðrum möguleika hvort upp-
lýsingarnar hefðu verið rangar sem
áætlunin byggðist á
Það er enginn vafi á þvi, að björgun
fanganna hefði fengið Bandaríkjamenn
til að dansa á götum úti af gleði. En
niðurstaðan varð sú, að menn fylltust
alvarlegum efasemdum um hvort slíkar
leifturárásir svöruðu kostnaði
„Ég óttast um framtíð stríðsfanga
Okkar,'' sagði einn þingmaðurinn.
Wiliam Fulbright öldunadeildarþing-
maður sagði í þessu sambandi „Það
gefur svo sannarlega tilefni til mótað-
gerða þegar gripið er til innrásar Ég
óttast afleiðingarnar ''
Þrátt fyrir áhyggjur af þessu tæi
fyrirskipaði Ford forseti umfangsmiklar
björgunaraðgerðir 11 maí 1975 und-
an kambódísku eyjunni Koh Tay til að
frelsa 40 manna áhöfn bandaríska
flutningaskipsins Mayaguez og ná því
sjálfu úr höndum Kambódíumanna. í
aðgerðinni tóku þátt fjöldi orustuþota
og sprengjuþota og 250 landgöngulið-
ar
Þessi aðgerð var ekki sízt prófsteinn
á hæfni Fords til að slíta af sér fjötra
þingsins á sviði utanrikismála sem
fylgt höfðu í kjölfar afsagnar Nixons.
Hann vildi sýna umheiminum að
Bandarikjaforseti gæti i stöðu sinni
sem æðstráðandi heraflans ennþá grip-
ið til fyrirvaralausra og ákveðinna að-
gerða — jafnvel þótt Saigon hefði
skömmu áður verið hertekin af komm-
únistum.
Hernaðaraðgerðin sem hann beitti
var kröftug í meira lagi. Orustuþotur
veittust að Kambódiumönnum og
bandariskum sjómönnurh einnig með
gassprengjum og eldflaugum og all-
stór floti herskipa, þar á meðal þrjú
flugmóðurskip, sigldi á fullri ferð á
staðinn.
Þessi umfangsmikla aðqerð heppn-
oSi&THEOBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER <£&&• THE OBSERVER a&fab THE OBSERVER
Reyfaralegt viðskiptahneyksli veldur fjaðrafoki í
Eftir
Simon Kent
LONDON — Þráðurinn í þessari
sögu er ekki óáþekkur því sem gerist
í einhverri skáldsögu Harold Robin,
sem maður kaupir sér til að lesa í
flugvél Vettvangurinn er London,
þar sem eru aðalbækistöðvar fjöl-
þjóðafyrirtækis á sviði iðnaðar og
viðskipta og helztu söguhetjurnar
eru stóriðjuhöldur, meðlimur kon-
ungsfjölskyldunnar og fyrrum ráð
herra
Sögusviðið færist við og við til
glæstra einkahíbýla forstjóranna og
sundlaugar aðalframkvæmdastjór-
ans á sveitasetri hans, þar sem
brugðið er á leik til a*ð skemmta
furstum og soldánum Ennfremur er
komið við i námabæjum i Ródesiu
og hótelherbergjum í Salisbury og
Ródesíu
Sagan fer ekki varhluta af svikum
og prettum, þar eru átök og mönn-
um settir afarkostir Hatrömm valda-
barátta er háð og hvers kyns hættur
liggja i leyni. Hetjan, sem í sögulok
ber sigur úr býtum, er af lágum
stigum og hefur klifið metorðastig-
ann frá neðstu þrepum, en hún hóf
feril sinn sem þjónn og járnbrautar
starfsmaður Með kaldri rökhyggju
og baráttuhæfni tekst honum að
leika á andstæðinga sina, þar til þeir
sjá sitt óvænna og hafa sig af sjónar-
sviðinu
Þessa sögu má lesa i skýrslu
brezku rfkisstjórnarinnar. þar sem
gaumgæfilega er sagt frá starfsemi
fyrirtækisins Lonrho, en það er iðn
aðarsamsteypa, sem hefur marg-
háttaðra hagsmuna að gæta i Afríku
Hreyfiafl sögunnar er það fyrir-
brigði, sem Edward Heath fyrrum
forsætisráðherra kallaði i eftirminni-
legri ræðu, hina óviðfelldnu og
skelfilegu ásýnd kapitalismans. Frá
málavöxtu segir á 660 blaðsiðum
skýrslunnar Frásagnarháttur er æði
þurr og verð skýrslunnar er rúm 1 3
sterlingspund, þannig að hún mun
væntanlega ekki slá fyrri sölumet á
bókamarkaði Hins vegar gerðu
helztu dagblöð á Bretlandi sér mat
úr henni á forsiðum i tvo daqa
nú nýlega og líklegt er, að ýmsir
þættir máls þessa verði ræddir og
reifaðir í náinni framtið
Aðalframkvæmdastjóri Lonrho er
Tiny Rowland, sextugur að aldri Því
fór fjarri að hann leiddi fyrirtækið
fram af heljarþröminni, þvi að hagur
þess stendur með miklum blóma og
það græðir á tá og fingri Eigi að
siður sá Edward Heath fyrrum for-
sætisráðherra ástæðu til að viðhafa
tilgreind ummæli um hann og atferli
hans, og þeir sem rannsökuðu mála-
vöxtu komust að þeirri niðurstöðu,
að Rowland hefði villt um fyrir öðr-
um framkvæmdarstjórum fyrirtækis-
ins og komið í veg fyrir að þeir
fengju réttar upplýsingar í hendur
um gang mála Þá er Rowland sak-
aður um að hafa sniðgengið refsi-
ákvæði Breta gagnvart Ródeslu
Þrátt fyrir þetta er Rowland ekki
talinn eini syndaselurinn í hinum
Ijóta leik, sem háður var við stjórn
Lonhro fyrirtækisins og þegar öllu er
á botninn hvolft virðist hann fá
skárri útreið, en aðrir hlutaðeigend-
ur Rannsókn málsins var í höndum
lögfræðings og endurskoðanda við-
skiptaráðuneytisins. Var Rowland
borið á brýn að hafa gengið of langt
á ýmsum sviðum, en eigi að síður
báru rannsóknaraðilar lof á hann
fyrir skarpskyggni, einurð og taum-
lausa atorku
ROWLAND — Hann er höfuð
paurinn að best verður séð.
Hrakfallabálkurinn í sögunni er
Angus Ogilvy, eiginmaður
Alexöndru prinsessu, sem er ná-
frænka drottningar.
Hann var einn af forstjórum
Lonrho, og þegar umrædd skýrsla
var birt, var það hans fyrsta verk að
hætta öllum umsvifum i viðskiptalíf-
inu Hann sagði, að þar sem hann
virtist hafa komist i óbærilega að-
stöðu, ætti hann ekki annars úrkosti
Ogilvy hefur komið víða við í við-
skiptalifinu M a. hefur hann verið í
stjórn Midland Bank, the Rank
Organisation, the Guardian Royal
Exchange Assurance og the
Canadian Imperial Bank of
Commerce
í skýrslunni er Ogilvy sakaður um
að hafa hegðað sér mjög óviður-
kvæmilega Þar sem þetta er opin-
bert plagg getur hann ekki borið
hönd fyrir höfuð sér og fengið um-
mælin dæmd dauð og ómerk Hon-
um er einkum gefið að sök að hafa
látið undir höfuð leggjast að gera
öðrum framkvæmdastjórum fyrir-
tækisins grein fyrir loforðum, sem
Rowland hafði gefið honum þess
efnis að hann gæti fengið hlutdeild í
ýmiss konar tilboðum. í skýrslunni
er það einnig staðhæft, að Ogilvy
hafi vanrækt skyldur sínar svo mjög,
að hann sé afar ámælisverður
Skýrslan greinir í smáatriðum frá
deilum þeirra Rowland og Ogilvy,
sem urðu vegna þess, að sá síðar
nefndi ákvað að láta af störfum hjá
fyrirtækinu. Sú ákvörðun var tekin
að ráði Sír Burke Trend, sem þá var
ráðherra og hafði illan bifur á því.
hvernig Lonrho hafði búið um hnúta
sina í Ródesiu Þar segir og frá þvi,
að frú Jose Rowland skipaði Ogilvy
að hverfa á brott úr íbúð sinni
snemma morguns, og ennfremur
hafa þeir, sem gerðu rannsóknina,
það eftir Ogilvy, að markmið aðal-
framkvæmdastjórans hafi verið að
OGILVY — Tengdur drottning-
unni og ber allt af sér.