Morgunblaðið - 17.07.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.07.1976, Blaðsíða 28
> AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 LAUGARDAGUR 17. JULl 1976 Landhelgisbrot á friðuðu svæði: Fangelsisdóm- ur og ein millj. króna í sekt SKIPSTJÓRINN á Lárusi Sveinssyni SH 126, sem tekinn var aö ólöglegum veiðum á friðuðu svæði út af Breiðafirði fyrr í vik- unni var dæmdur í Saka- dómi Snæfells- og Hnappa- dalssýslu í gærdag og kvað Jón Magnússon fulltrúi upp dóminn. Skipstjórinn var dæmdur í þriggja mán- aða fangelsi, I millj. kr. sekt og vararefsing ef ekki veröur staðið við sektar- greiðslu innan ákveðins tima, er 4 mánaða fangelsi. Þá voru afli og veiðarfæri bátsins gerð upptæk til landhelgissjóðs og skip- stjórinn var sviptur skip- stjórnarréttindum í þrjá mánuði, en hér var um ítrekað landhelgisbrot að ræða. Skipstjórinn hefur áfrýjað dóminum. Suðurland: Tún byrjuð að spretta úr sér TÚNIN eru víða að byrja að spretta úr sér og ef ekki fer að koma þurrkur er þess ekki langt að bfða að fóðurgildið minnki, sagði Hjalti Gestsson.ráðunautur á Selfossi, þegar Mbl. ræddi við hann í gær um heyskaparhorfur á Suðurlandi. Hjalti sagði að hey- skapur á Suðurlandi hefði gengið mjög stirðlega og þurrkdagarnir um sfðustu helgi hefðu verið of Sameig m- legur skatt- og gjald- heimtuseðill EINS og komið hefur fram f Mbl. verður skattskráin í Reykjavfk væntanlega lögð fram næsta föstudag. Hins veg- ar hefst útsending álagningar- seðla á þriðjudag eða miðviku- dag, samkvæmt þeim upplýs- ingum, sem blaðið fékk hjá Skattstofunni f gær. Nú hefur sá háttur verið tek- inn upp í fyrsta sinn, að senda út aðeins einn sameiginlegan seðil frá Skattstofunni og Gjaldheimtunni í stað tveggja áöur. Á þessum seðli kemur fram hver eru álögð gjöld við- komandi, sundurgreining á þeim og aðrar nauðsynlegar upplýsingar frá Skattstofunni. Ennfremur kemur þar fram hve há skuld viðkomandi er þegar fyrirframgreiðsla hefur verið innt af hendi og hve mik- ið viðkomandi á að greiða jafn- aðarlega á þeim mánuðum sem eftir eru á árinu. Þessar upp- lýsingar hafa fram til þessa komið á sérstökum seðli, sem Gjaldheimtan hefur sent skatt- greiðendum skömmu eftir út- komu skattskrár. fáir til að nýtast fyflilega. Margir bændur slógu mikið og þeim, sem hafa góða súgþurrkun tókst að ná töluverðu inn. Sumir eiga enn flatt og það er tekið að hrekjast, þvf síðustu daga hefur veður ver- ið fremur hlýtt og gengið á með skúrum. Hjá Hjalta kom fram að margir bændur hirða nú í vothey en þeir hafa átt í nokkrum erfiðleikum með að komast um túnin vegna votviðrisins. Spretta er nú ör og komið mikið gras og sagði Hjalti, að ef veður batnaði fljótlega mætti vera ráð fyrir að mikil hey næðust. — Þó túnin séu að byrja að spretta úr sér minnkar fóðrið ekki að magni til en það versnar og það virðist útséð með að heyin verði eins og þau gætu verið best, sagði Hjalti. Þess eru dæmi að menn séu ekki enn byrjaðir að slá en Hjaltí sagðist gera ráð fyrir að heyskap- ur hjá bændum á Suðurlandi kæmist langt ef þeir fengju 2 vikna þurrkakafla. — Bændur eru ekki búnir að gleyma óþurrkunum í fyrrasumar og þeir eru illa undir það búnir að mæta öðru slíku sumri en það vona allir hið besta í lengstu lög, sagði Hjalti að lokum. IJrskurður i sérkjara- samningum BSRB og BHM: 24 úrskurðir kveðnir upp í gærkvöldi KJARADÓMUR og kjaranefnd sem hafa starfað sfðan í júníbyrj- un vegna sérsamninga BSRB og BHM kváðu upp úrskurð um kjör félaganna f gærkvöldi og verða niðurstöður birtar f dag en hér er um að ræða 24 úrskurði. Guðrún Erlends- dóttir skipuð formaður jafn- réttisráðs JAFNRÉTTISRÁÐ hefur verið skipað samkvæmt lögum frá 31. maf sl. og mun ráðið væntanlega koma saman til fyrsta fundar inn- an skamms. I ráðinu eiga þessir sæti: Guðrún Erlendsdóttir hrl. for- maður, skipuð af Hæstarétti, varamaður hennar er Jón Finns- son hrl., Geirþrúður Hildur Bern- höft ellimálafulltrúi, skipuð af fé- lagsmálaráðherra, varamaður hennar er Sigurlaug Bjarnadóttir alþingismaður. Áslaug Thorlacius, skipuð af BSRB, vara- maður hennar er Björg Einars- dóttir, Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, formaður Starfsstúlknafé- lagsins Sóknar, skipuð af ASÍ, varamaður hennar er Auður Torfadóttir, félagi í VR, Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri, skip- aður af Vinnuveitendasambandi íslands, varamaður hans er Barði Friðriksson. Ungur Mosfellssveitarbúi á varðbergi f góða veðrinu f gær. Ljósm.vnd Mbl. Brynjólfur. Hækkun trygginganna 1. ág. kostar ríkið 400 millj. 1976 ALLAR almannatryggingar hækka I. ágúst nk. um 9% en tekjutrygging elli- og örorkulff- eyrisþega, sem ekki hafa aðrar tekjur en almannatryggingar, hækkar um 18%, eins og skýrt var frá f blaðinu í gær. Helztu bótaupphæðir verða frá 1. ágúst eftirfarandi (f sviga verður greint frá þeirri upphæð sem nú er greidd): Elli- og örorkulífeyrir 20.318 (18.640), tekjutrygging 17.832 (15.112), barnalffeyrir 10.398 (9.539), mæðralaun fyrir 3 börn eða fleiri 19.350 (17.752), ekkjubætur 6 mánaða og 8 ára slysabætur 25.458 (23.356) og ekkjubætur 12 mánaða 19.119 (17.514). Skv. upplýsingum Páls Sigurðs- 11% útsvör í öllum kaupstöðum landsins og 32 af 203 hreppum FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur heimilað sveitarstjórnum f öllum kaupstöðum landsins og f 32 hreppum að leggja á 11% út- svör á þessu ári. Var umrædd heimild veitt öllum þeim sveitar- stjórnum, sem um hana sóttu eða sveitarstjórnum allra kaupstaða f landinu 21 að tölu og sveitar- stjórnum 32 af 203 hreppum f landinu. I fréttatilkynningu frá ráðu- neytinu kemur fram að á árinu 1972 bárust því beiðnir um heim- ild til að leggja á 11 % útsvör á því ári fr>á sveitarstjórnum í 12 kaup- stöðum landsins eða öllum nema á Akranesi og Húsavík og 14 hreppsfélögum og var orðið við beim öllum. Tvö næstu ár, 1973 og 1974 veitti félagsmálaráðherra ekki samþykki sitt til hækkunar útsvara á þeim árum. Á árinu 1975 bárust ráðuneytinu beiðnir um heimild til að leggja á 11% útsvör á árinu frá sveitarstjórn- um í öllum 19 kaupstöðum lands- ins og 37 hreppsfélögum af 205, sem þá voru í öllu Iandinu og var öllum sveitarstjórnum véitt um- beðin heimild. Algengast var að sveitarstjórnir legðu á 10% út- svar á árinu 1975 en 77 lögðu á það ár útsvar á bilinu 2%—9% og þar af 10 á bilinu 2% til 5%. sonar ráðuneytisstjóra heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að þessar hækkanir á tryggingabótum muni kosta rikissjóð um 400 milljónir króna, það sem eftir er af þessu ári en um 900 milljónir á heilu ári. Hækkun sú sem varð 1. júlí sl. á tekjuviðmiðun þeirri sem tekju- trygging elli- og örorkulífeyris- þega er miðuð við, er talin munu kosta ríkissjóð um 200 milljónir króna. Bætur almannatrygginga hafa hækkað tvívegis áður á þessu ári, 1. janúar um 5% og 1. aprfl um 10%. Hækkunin i byrjun ársins var talin mundu kosta ríkissjóð um 400 milljónir króna á þessu ári en hækkunin 1. april um 600 milljónir. A f járlögum ársins 1976 var gert ráð fyrir að heildar- kostnaður lífeyristrygginga næmi rúmum 8 milljörðum króna, en nú er gert ráð fyrir að heildar- kostnaður trygginganna á þessu ári verði rúmir 9 milljarðar króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.