Morgunblaðið - 17.07.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JULI 1976
13
Sætta Bretar sig við *
12 mílna einkalögsögu?
Briissel 16. júlf. NTB.
AÐ ÞVt er áreiðanlegar heimild-
ir greindu frá að loknum fundi i
fastaráði Efnahagsbandalagsins i
Briissel í dag, munu aðildarríkin
I þann veginn að koma sér saman
um að lýsayfir útfærslu fiskveiði-
lögsögu sinnar í 200 milur. Talið
er, að útfærsian muni ekki eiga
sér stað siðar en um næstu ára-
mót, og er i þvi sambandi bent á,
að þegar hafi nokkur iönd utan
bandalagsins lýst yfir 200 milna
fiskveiðilögsögu, og önnur séu i
þann múnd að fara að dæmi
þeirra, t.d. Noregur og Bandarik-
Enn munu ákveðin lögfræðileg
vandamál vera óleyst i sambandi
við útfærslu EBE, og munu Hol-
lendingar m.a. eiga þar hlut að
máli. Af þessum sökum er ekki
víst, að endanleg yfirlýsing um
útfggi fyrir að loknum utanrikis-
ráðherrafundi aðildarríkjanna,
sem haldinn verður í Briissel n.k.
mánudag og þriðjudag, eins og þó
hafði verið búizt við.
Enn hefur ekki náðst samkomu-
iag vegna kröfu Breta um 50
milna einkalögsögu, en þó hefur
heyrzt, að þessi krafa Breta sé
ekki jafn eindregin og hingað til,
heldur sé nú einkum rætt um 12
milna einkalögsögu.
Að írlandi undanskildu eru
önnur EBE-riki andvíg hugmynd-
um um einkalögsögu, enda þótt
þau viðurkenni, að tillit skuli tek-
ið til sérhagsmuna þeirra, sem
hingað til hafa veitt á heimamið-
um, t.d. með þvi að segja reglur
um stærð fiskiskipa.
Dvöl bandarísks her-
liðs lokið 1 Thailandi
Bankok, 16. júl(. Reuter.
RlKISSTJÓRNIR Banda-
ríkjanna og Thailands
lýstu því yfir í dag, að í
næstu viku lyki dvöl
bandarísks herliðs i Thai-
Frankinn í botni
París. 16. júli. Reuter.
FRAKKLANDSBANKI varði i
dag 100 milljónum franka til
stuðnings frankanum eftir mestu
lækkun hans á þessu ári.
V-þýzkir
sjómenn
vilja
samninga
Hamborg, 16 júli Reuter.
Í YFIRLÝSINGU v-þýzkra sjómanna,
sem sækja á fjarlægð mið, segir, að
útfærsla fiskveiðilögsögu Noregs,
Bandarikjanna og Kanada í 200
milur, muni stefna sjávarútvegi V-
Þjóðverja i hættu.
Samtök útgerðarmanna halda þvi
fram, að afli utan 200 milna við
strendur þessara ríkja sé svo rýr, að
veiðar á þessum miðum geti ekki
borgað sig.
Sjómannasamtökin hafa skorað á
v-þýzku stjórnina að semja við
stjórnir Noregs, Bandarikjanna og
Kanada um gagnkvæmar veiði-
heimildir, þannig að v-þýzkum skip-
um verði tryggður nægilegur afli
innan fiskveiðilögsögu þeirra.
Spákaupmennska hefur aukizt
og ástæðurnar eru llklega áhrif
þurrka á landbúnaðinn og spár
um aukna verðbólgu.
Rétt áður en frankinn lækkaði
sagði Jean-Pierre Fourcade fjár-
málaráðherra að stjórnin réði við
ástandið og að litlar breytingar
yrðu á genginu næstu daga.
Jafnframt var tilkynnt að
greiðsluhalli Frakka hefði minnk-
að úr 762 milljónum franka i maí í
104 milljónir franka i júní, en
hallinn er talinn nema 6.000 millj-
ónum franka á ársgrundvelli.
Frakklandsbanki hefur varið
um 500 milljónum dollara til
stuðnings frankanum á undan-
förnum vikum. Frankinn hefur
lækkað um 7% síðan gengi hans
var látið fljóta í marz.
landi, að öðru leyti en þvl,
að bandarískir hernaðar-
ráðgjafar verða áfram í
landinu. Brottflutningi
liðsins á að Ijúka næsta
þriðjudag, en 12 ár eru síð-
an bandarískt herlið kom
til landsins.
Þegar styrjöldin í Víet-
nam stðð sem hæst var um
50 þúsund manna lið
Bandarfkjamanna I Thai-
landi.
FALL ER FARARHEILL. Þannig hugsar sjálfsagt sovézka fimleika-
stúlkan Olga Korbut sem sést hér falla af jafnvægisslánni á æfingu f
Montreal, en slfkt mun ekki oft henda hana. Olga Korbut vann hug og
hjörtu áhorfenda á Olympíuleikunum f Miinchen 1972, og hefur æ
sfðan verið f hálfgerðri ónáð f heimalandi sfnu, þar sem forystumenn
telja hana bera tilfinningar sfnar of mikið á borð. Til Montreal er
Korbut komin til þess að verja Olympfutitla sfna, en róðurinn verður
ugglaust erfiður fyrir hana. Telja margir að erfiðustu keppinautar
hannar verði landa hennar Maria Filatova, sem aðeins er 14 ára að
aldri og rúmenska stúlkan Nadja Comaneci, sem nú er nýlega orðin 15
ára.
Kenya og Úganda:
BRIGZLYUÐIN GANGA Á VÍXL
Nairobi, 16. júlf. Reuter.
VARNARMÁLARÁÐHERRA
Kenya, James Gichuru, lét svo
um mælt f dag, að her Kenya
mundi umsvifalaust ráða niður-
lögum hermanna frá Uganda
stigju þeir eitt fótmál á land-
svæði Kenya. Gichuru bætti þvf
við að Kenyamenn væru friðelsk
þjóð, sem ekki ætlaði að ráðast á
aðrar þjóðir að fyrra bragði, en
hins vegar yrði brugðist harka-
lega við óvinaárás.
Idi Amin, forseti Uganda, hélt
áfram ásökunum sinum í garð
Kenyamanna í dag, og ítrekaði
fyrri ummæli um, að þeir hefðu
verið í vitorði með Israelsmönn-
um þegar þeir gerðu árás á Ent-
ebbe-flugvöll til frelsunar gíslun-
um á dögunum. Amin sagði einn-
ig að allir lögreglumenn, sem
Ítalía:
Árangurslaus fundur
Andreottis og sósíalista
Járn brautarslys
Landskrona, 16 júlí Reuter
HRAÐLEST á leiðinni frá Málmey til
Gautaborgar fór út af járnbrautar-
teinunum skammt frá Landskrona i
dag Fjórir vagnar fóru af teinunum og
^hvolfdi þremur þeirra
Talið er, að minnsta kosti 20 manns
hafi slasazt
RAm. 16. júlf. Reuter.
STJORNARMYNDUNARTIL-
RAUNIR Giulio Andreottis héldu
áfram f Róm f dag, en þá átti
hann fund með nýkjörnum ritara
Sósfalistaffokksins, Bettino
Craxi. Fundurinn stóð f þrjár
klukkustundir, en ekki er tafið að
vænlegar horfi um stjórnarmynd-
un á Itaffu að honum loknum.
Bettino Craxi var kjörinn ritari
Sósialistaflokksins i morgun, og
tekur við þeirri stöðu af
Fransesco de Martino. Craxi er 42
ára að aldri. Hann var áður vara-
ritari flokksins og hafa áhrif hans
í þingflokki sósíalista aukizt mjög
að undanförnu. Kjör hans i stöðu
ritara flokksins er talið benda
eindregið til þess, að áhrif yngri
manna séu að aukast i flokknum.
Að loknum fundi sinum með
Andreotti sagðist Craxi vera
þeirrar skoðunar, að enn liði á
löngu áður en myndun rikis-
stjórnar tækist, og treglega gengi
að samræma skoðanir kristilegra
demókrata og sósialista. Annar
leiðtogi sósíalista, Giuseppe de
Vagno, sagði i dag, að flokkur
hans hefði enn itrekað þá afstöðu
sína, að bráðabirgðastjórn ætti að
taka við völdum á Italíu, auk þess
sem sósíalistaflokkurinn hafnaði
enn þeirri lausn, að sósíalistar og
kristilegir demókratar beittu sér
fyrir myndun meirihlutastjórnar.
voru að störfum á flugvellinum
þegar árásin var gerð, hefðu lagt
á flótta, og hefði framkoma þeirra
verið skammarleg. Þetta kom
fram í frásögn Ugandaútvarpsins
af ræðu, sem Amin flutti yfir
háttsettum lögreglumönnum, en
þar lét hann m.a. þau ummæli
falla, að fyrrverandi yfirmaður
lögreglunnar hefði tekið þátt í
samsæri bandarísku leyniþjónust-
unnar um að steypa honum af
stóli. 1 ræðunni ráðlagði Amin
lögreglumönnunum að skipta sér
ekki af stjórnmálum og vara sig á
CIA og útlögum frá Uganda, sem
hann kvað bandarísku leyniþjón-
ustuna nota til að koma af stað
vandræðum í Úganda.
Um 40 Evrópumenn komu til
Nairobi frá Uganda í dag, og
sögðu þeir, að eldsneyti væri nú á
þrotum í Kampala. Að sögn
Ugandaútvarpsins átti Amin for-
seti i dag viðræður við sendiherra
frá Zaire, Rwanda og Súdan um
ólíuflutninga. Hélt hann þvi m.a.
fram að Kenyamenn hindruðu um
200 olíuflutningaskip í því að
flytja eldsneyti til Uganda.
10 ára sundafmæli Maós
Peking, 16. júlf. Reuter.
MILLJÓNIR Kínverja
lögðust I dag til sunds I
ám og vötnum og minnt-
ust með þeim hætti þess,
að nú eru 10 ár liðin frá
því að Maó formaður
synti 1 Gulu ánni.
Dagblað alþýðunnar gerir
þessum eftirminnilega atburði
ýtarleg skil, auk þess sem fri-
merki með mynd af Maó á
sundi kom út í tilefni dagsins. 1
forystugrein í Dagblaði alþýð-
unnar í dag segir m.a.: „Reynsl-
an hefur sýnt, að með þvi að
fara eftir lífsreglum þeim, sem
Maó formaður hefúr lagt okk-
ur, getum við komizt heilu og
höldnu i gegnum brim og boða-
föll, og unnið þannig hvern sig-
urinn á fætur öðrum, á leið
hinnar sósíalistísku byltingar.“
Þúsundir barna syntu í dag í
Kun Ming-vatninu í Peking, og
rauðir fánar blöktu meðfram
ströndinni, þar sem reist höfðu
verið skilti með áletruninni
„Lengi lifi Maó formaður“.
Mao — 10 ár eru liðin frá hinu
mikla sundafrcki hans
Paul
Gallico
látinn
New York — 16. júli — Reuter
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Paul Gallico lézt af hjartaslagi að
heimili sinu í Monaco í dag, en
hann hefði orðið 79 ára í þessum
mánuði.
Fyrsta verk Gallicos, sem veru-
lega athygli vakti var skáldsagan
„The Snow Goose", en alls kom út
eftir hann 41 bók, auk þess sem
hann var afkastamikill greina-
höfundur.