Morgunblaðið - 17.07.1976, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLI 1976
Loftbelgurinn TF-HOF flaug yfir Reykjavík um hádegis-
bil í gær í góðu veðri og var Holberg Másson við annan
mann í hclgnum, en myndina tók ungur piltur, Þórir
Guðmundsson, af loftfleyinu þegar það sveif yfir
Seltjarnarnesið. Fremst á myndinni er Pálsbær.
Norrænt endurskoðendaþing í Reykjavík:
Fjallað um aðferðir og
tækni við endurskoðun
Á ÞINGI norrænna endurskoð-
enda, sem hefsl í Reykjavík 19.
júlí næstkomandi verða aðallega
tvö málefni tekin til umræðu. Eru
það um aðferðir og tækni, hvern-
ig aðgerðum endurskoðandi skuli
beita til að geta endanlega látið f
Ijósi álit sitt á árciðanleika árs-
reikninga fyrirtækja. Síðara efn-
ið er áritun endurskoðanda og
fjallar það um hvernig og með
hvaða hætti endurskoðandi kem-
ur á framfæri til lesenda árs-
reiknings áliti sínu.
Nú um nokkurt skeið hefur ver-
ið unnið að samrærningu laga um
hiutafélög á Norðurlöndum og
hafa ný lög verið samþykkt n-
þegar i Danmörku og Noregi um
það efni, en í þeim er nánar kveð-
ið á um starf endurskoðenda en
áður var. Gera má ráð fyrir að
væntanleg ný lög um hlutafélög
hér á landi verði mjög svipuð
þeim dönsku og norsku. Hin nýja
hlutafélagalöggjöf mun koma til
umræðu á þinginu, enda hefur
hún haft og mun hafa veruleg
áhrif á störf endurskoðenda. Alls
sækja ráðstefnuna 700 þátttak-
endur og eru lslendingar um 55
sem er rúmlega helmingur starf-
andi löggiltra endurskoðenda hér
á landi.
Spánarkonungur afsalar
sér rétti til að skipa biskupa
Madrid. It>. júlí. AP-ReuU*r.
Jl'AN Carlos Spánarkonungur
hefur afsalað sér þeim rétti sín-
um að skipa kaþólska biskupa á
Spáni. Það hafa verið sérstök for-
réttindi þjóðhöfðingja Spánar að
skipa biskupa kaþólsku kirkjunn-
ar í landinu síðan 1953, en sú
Bandalag
háskólamanna
og verkfræð-
ingaverkfallið
BANDALAG Háskólamanna
sendi frá sér fréttatilkynningu í
gær þar sem það hvetur félags-
menn sína til þess að ganga ekki
inn í störf þeirra verkfræðinga,
sem eru í verkfalli og standa í
deilu við Reykjavíkurborg.
JAFNTEFLI
í 2. DEILD
EINN leikur fór fram í 2. deild í
gærkviildi. Armann og Selfoss
léku á Laugardalsvelli og varð
jafntefli 2:2. Staðan í hálfleik var
1:0 Selfossi f vil.
málsmeðferð var viðurkennd í
sérstökum samningi Franeos
þjóðarleiðtoga og Píusar páfa
tólfta um samskipti Spánar og
páfastóls.
Sú ákvörðun konungs að afsala
sér þessum réttindum er talin
boða stefnubreytingu í samskipt-
um Spánverja og Vatíkansins, að
því er áreiðanlegar heimildir i
Madrid telja.
Hin nýja ríkisstjdrn Spánar
kemur saman ttl fundar í dag, þar
sem stefnuskrá stjórnarinnar
verður á dagskrá. Búizt er við
yfirlýsingu stjórnarinnar að fund-
inum ioknum, þar sem áherzla
verði lögð á aukna samstöðu með-
al þjóðarinnar, og telja margir að
í yfirlýsingunni muni stjórnin
boða náðun pólitískrafanga.
— Olympíuleikar
Framhald af bls. 1
þremur skilyrðum sínum fyrir
þátttöku Taiwans. Eina skilyrðið
sem var eftir var að Taiwanmenn
gengju ekki undir merki með
nafni lýóveidisins Taiwan og á
það gátu þeir ekki fallizt og
ákváðu að hætta við þátttöku
sína.
Hins vegar gekk Alþjóðaolym-
píunefndin að þessu skilyrði þótt
hún væri treg til þess að Banda-
ríkjamenn féllu frá hótun sinni
um að hætta við þátttöku siha í
leikunum í samúðarskyni við Tai-
wan. Þannig var það undir Tai-
wanmönnum sjálfum komið hvort
þeir tækju þátt i leikunum eða
ekki.
Leikarnir geta því hafizt þótt
þeir hafi verið í hættu, nú siðast
vegna pólitiskra deilna og fyrst
vegna tafa sem urðu á smiði leik-
vangsins, þrátt fyrir óvissuna um
þátttöku Afríkumanna. Kenya-
manna verður ekki sizt saknað úr
hópi þeirra þar sem þeir eiga frá-
bæra íþróttamenn — og einnig
Eþíópíumenn.
Um 8.000 íþróttamenn taka þátt
í leikunum sem standa til 2. ágúst
og keppa um 600 verðlaunapen-
inga. Aðeins 70.000 manns geta
fylgzt með leikunum á vettvang-
inum sjálfum en gert er ráð fyrir
að 1.000 milljón manna fylgist
með þeim í sjónvarpi um víða
veröld.
Elísabet Bretadrottning setur
þessa 21. Olympíuleika í Montreal
kl. 3 að staðartima (19.00 að ísl.
tíma). Hún er þjóðhöfðingi
Kanada en tveir af hverjum
þremur frönskumælandi Kanada-
mönnum eru andvígir því að hún
setji leikana samkvæmt skoðana-
könnunum. Montreal er höfuðvígi
þeirra. Þó er ekki búizt við mót-
mælaaðgerðum gegn drottning-
unni.
— 26 börn
Framhald af bls. 1
barnahóp til sundlaugarinnar
og siðan komið aftur og náð i
börnin sem nú eru horfin.
„Við biðum eftir að samband
verði haft við okkur,“ sagði
Bates lögreglustjóri. Alríkislög-
reglan FBI hefur tekið að sér
yfirstjórnina og það rennir
stoðum undir þá skoðun að um
mannrán sé að ræða. Ford for-
seti lét í ljós samúð sína og bað
um upplýsingar um málið.
í skrifstofu lögreglustjórans í
Madera County, sýslunni sem
Chowchilla er í, var gefið í skyn
að börnin hefðu verið flutt frá
þvi svæði sem leitað er á. Lög-
regla á öðrum stöðum hefur
verið beðin um að taka þátt í
leitinni.
Harmi lostnir foreldrar hafa
fínkembt svæðið þar sem börn-
in hurfu og leitað hefur verið í
hverju einasta húsi í bænum en
þau standa flest öll við eina
aðalgötu. Foreldrarnir eru
heizt þeirrar skoðunar að börn-
unum hafi verið rænt af póli-
tiskum ástæðum.
„Þetta er lítill bær og hefnd
kemur ekki til greina,“ sagði
vélvirki sem hefur týnt einka-
barni sínu og gaf i skyn að
ástæðunnar væri að leita ann-
ars staðar í Kaliforníu. Þar með
virtist hann meðal annars eiga
við réttarhöld sem fara fram í
málum liðsmanna Symbiones-
iska frelsishersins.
Bærinn Chowshilla er í San
Joaquin-dalnum 80 km norður
af Fresno. íbúar bæjarins eru
5.000.
Bates lögreglustjóri sagði að
tilkynningar hefðu borizt fyrir
einu ári um vopnaða menn sem
eltu skólabíla og að nú væri
verið að rannsaka þær.
Starfsmaður skólans sagði að
foreldrar hefðu verið beðnir að
vera við síma sína ef ske kynni
að einhver sem kynni að hafa
börnin eða vita um þau hringdi
eða sendi skilaboð.
• •
— Oryggi hert
Framhald af bls. 1
mæli um að vera við öllu búin.
Kruger dómsmálaráðherra segir að
frestað hafi verið að opna aftur skóla
blökkumanna í nágrenni Jóhannes
arborgar og Pretoria. Hann hefur
einnig bannað alla opinbera fundi og
gripið í fyrsta skipti til ákvæðis í
nýjum öryggislögum um handtökur
til að koma I veg fyrir óeirðir.
Dómsmálaráðherra sagði að þess-
ar ströngu ráðstafanir væru nauð
synlegar þar sem stöðugt væri haldið
áfram áróðri I hverfum blökkumanna
í því skyni að æsa blökkumenn til
óeirða.
Kruger sagði að æsingamenn ætl-
uðu að nota tækifærið þegar skólar
yrðu aftur opnaðir á þriðjudag til að
koma af stað nýjum óeirðum. Hann
tók fram að skólar annar staðar en
umhverfis Jóhannesarborg og
Pretoria yrðu opnaðir.
— Kolmunna-
vinnsla
Framhald af bls. 2
reyndar upphafið að miklu meirs
en búið er að semja um sölu á. Kg
af marningi er nú á um 80—90 kr
eða heldur minna en kg af þorski
og kg af kolmunnaskreið er á um
320 kr. kg. Auk Neskaupstaðar
eru fiskvinnsluhús i Hafnarfirði,
Þorlákshöfn og í Garði tilbúin til
að vinna kolmunna.
— Carter
Framhald af bls. 1
50 rikjum Bandarikjanna í
nóvember. Richard Nixon fyrrum
fcfrseti sigraði i öllum rikjum
nema einu — Massachusetts.
Val Mondales i varaforseta-
framboðið hefur mælzt vel fyrir
hjá demókrötum. Á flokksþinginu
i New York fögnuðu fulltrúar frá
öllum landshlutum vali hans.
Eins mikill einhugur hefur sjald-
an ríkt á flokksþingum demó-
krata. Bæði Carter og Mondale
lögðu áherzlu á „nýtt hugarfar í
Bandaríkjunum" í ræðum sem
þeir héldu þegar þeir höfðu verið
tilnefndir.
Carter sagði að 1976 væri ekk-
ert venjulegt ár. Kjósendur hefðu
ruglað stjórnmálasérfræðinga í
ríminu og þjóðin væri að endur-
meta skaphöfn sina og tilgang.
Hann sagði að þetta ár gæti reynzt
ár innblásturs og vonar og hét þvi
að fá stjórn landsins aftur í hend-
ur þjóðinni.
Hann gerði gys að sundrungu í
röðum repúblikana og spáði
demókrötum sigri hvort sem for-
setaefni repúblikana yrði Ford
eða Reagan.
Aðalstöðvar Carters verða sem
fyrr í Atlanta, en Robert Strauss
formanni Demókrataflokksins,
verður falið að samræma kosn-
ingabaráttuna í Bandaríkjunum í
heild. Starfslið Carters verður
óbreytt en bætt verður við sér-
fræðingum í kosningum sem ná
til alls landsins.
1 sinni ræðu sagði Mondale að
hann og Carter heyrðu til nýrri
kynslóð dugandi og reyndra
stjórnmálamanna. Hann sagði að
barátta Carters hefði sýnt að völd-
in væru hjá þjóðinni en ekki bak-
tjaldamökkurum. Þjóðin hefði
orðið fyrir áföllum heima og er-
lendis og svipaðist um eftir nýj-
um mönnum og hugmyndum.
Ríkisstjórnir gætu ekki leyst all-
an vanda en Bandaríkjamenn
gætu ekki sætt sig við mistök,
meðalmennsku og lágkúru.
Carter kvaðst mundu beita sér
fyrir atvinnu handa öllum sem
gætu unnið, víðtækum skatta-
breytingum, almennri heilbrigðis-
þjónustu og strangri löggæzlu og
berjast gegn kynþátta- og kyn-
ferðismisrétti og tvöföldu siðgæði
í dómsmálum. Hann sagði blaða-
mönnum að hann gæti náð mark-
miðum sínum á fjórum árum.
Carter fordæmdi Watergate-
hneykslið án þess að nefna nöfn,
Mondale sagði að eitt mesta
stjórnmálahneyksli í sögu Banda-
ríkjanna væri afstaðið og þjóðin
væri undir stjörn forseta sem
hefði náðað manninn sem væri
ábyrgur.
Ummæli Carters um utanríkis-
mál minntu á innsetningarræðu
John F. Kennedy fyrir 15 árum.
Hann sagði að það sem sameinaði
Bandaríkjamenn og vini þeirra í
trú á lýðræði skipti meira máli en
það sem stundum aðskildi þá í
efnahagsmálum og stjórnmálum.
Samúð og traust voru megin-
stefin í ræðu Carters. Hann sagði
að demókrötum hefði mistekizt en
flokkur þeirra byggði á arfleifð
forystu, samúðar og framfara.
— Lögmenn
Framhald af bls. 2
eigna þeirra og ljúka síðan skipt-
um.
Á íslandi er hins vegar oft sá
háttur á hafður þegar gjaldþrot
verður, að rekstur fyrirtækis er
stöðvaður, allar eignir búsins
seldar á nauðungaruppboði, oft
fyrir verð, sem er langt undir
sannvirði, en búið síðan látið
liggja óskipt, oft á tíðum um
fjölda ára.
Aður fyrr voru í lögum ákvæði
um að skiptaráðendum væri skylt
að ljúka skiptum innan 18 mán-
aða, en með lögum nr. 32/1972,
segir að skiptum skuli lokið eins
fljótt og verða má.
Þessi lagaákvæði virðast ekki
hafa haft þau áhrif að skipta
gangi fljótar fyrir sig og ástandið
fer sífellt versnandi.
Stjórn L.M.F.1. telur höfuð-
nauðsyn að dómsmálaráðherra
geri nú þegar ráðstafanir til að
þrotabúum, sem liggja óskipt,
verði skipt án frekari dráttar, og
ennfremur að hann láti hraða
gerð löggjafar, sem miði að því að
koma málum þessum í nútíma-
legra horf.
Lögmenn eru reiðubúnir til að
taka þátt í störfum að undirbún-
ingi nýrrar löggjafar um þetta
efni“.
Stjórn L.M.F.Í. er nú þannig
skipuð:
Guðjón Steingrímsson hrl., for-
maður,
Jón Finnsson hrl., varaformaður,
Gylfi Thorlacius hdl., gjaldkeri,
Hjalti Steinþórsson hdl., ritari
Brynjólfur Kjartansson hdl., með-
stjórnandi.
— Tony Knapp
Framhald af bls. 27
blaðaskrif sem orðið hafa verða þeim
ekki til góðs í þeim leikjum ef til
kemur Þeir munu þá leika undir mikilli
pressu. Og í þessu sambandi vil ég að
það komi fram, að það er munur á því
að leika í 1 deild á íslandi og í
landsleikjum. Þetta sagði ég fyrir leik-
inn við Finna og þetta sannaðist þar
Okkar efnilegasti knattspyrnumaður í
dag og markhæsti maður 1 deildar,
Guðmundur Þorbjörnsson náði ekki að
sýna sitt bezta gegn finnsku vorninni
Og hann sagði við mig eftir leikinn, að
munurinn á því að leika gegn þessum
mönnum og að leilja í deildinni heima
væri mjög mikill Þrátt fyrir þetta verð-
ur Guðmundur áfram í hópnum, því ég
hef trú á honum
— Leikirnir þrír við Southamton og
Luxemburg verða notaðir til að finna
rétta hópinn fyrir leikina gegn Belgíu
og Hollandi Þeir eru því mikilvægur
áfangi í undirbúningnum en koma þó
ekki að fullum notum því við getum
ekki fengið atvinnumennina með Þetta
er vandamál, sem við eigum við að
glíma en aðrar þjóðir ekki Þær geta
ætíð náð saman sínum beztu mönnum
fyrir mikilvæg verkefni.
— Ég vil að lokum segja það, að
aðeins eitt blað sendi fréttamann á
leikinn Hann gagnrýndi islenzka
landsliðið og ég sætti mig við það því
ég get tekið réttmætri gagnrýni En ég
get ekki skilið, hvernig blöð eins og
Tíminn og Þjóðviljinn, sem ekki sendu
mann á leikinn, geta skrifað eins og
þau gerðu daginn eftir leikinn Það var
eins og fréttamennirnir vonuðust eftir
tapi liðsins til að geta sagt: Hafði ég
ekki rétt fyrir mér um val og undirbún-
ing liðsins Þetta finnst mér slæm
blaðamennska
— Fréttabréf
Framhald af bls. 26
hrapaði i klettum og meiddist
illa á höfði. Oftast vill svo vel til
að læknir eða hjúkrunarkona
er hér meðal gesta og stendur
þá aldrei á þeirra liðsinni ef til
þeirra næst. Ástæðulaust er þó
að ónáða það fólk nema i meiri-
háttar tilvikum.
Gæslufólk í Þórsmörk býður
alla velkomna í þennan fagra
reit og óskar eftir sem bestri
umgengni.
Einar Helgason.
— Hljómleikar
Framhald af bls. 26
inu lýkur með hinu fagra Máriu-
versi „Máriá mild og há“, en þar
var sem englar syngju. Hér verð-
ur ekki rætt um hlutverkaskipun,
en þó verður ekki komist framhjá
„kerlingu" sem Ásdís Krist-
mundsdóttir lék og „óvininum"
sem var leikinn af Ragnari Skúla-
syni; þar virðast vera efni í af-
bragðs leikara, ef lif og ástæður
leyfa.
Þessir hljómleikar voru öllum
hlutaðeigendum til mikils sóma
og óskandi að þetta fólk eigi eftir
að þroskast á þeirri braut, sem
það nú hefur valið sér.
Sigrún Glsladóttir.