Morgunblaðið - 14.10.1976, Side 36

Morgunblaðið - 14.10.1976, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976 Sykurnáma Siggu gömlu Eftir Ann Richards 6. „Ég skal ná mér niðri á ykkur, Alli árrisuli og Sigga gamla,“ tautaði hann. „Ég skal svei mér kenna ykkur að vera ekki aö hæðast að mér“. Og svo þrammaði hann af stað til heim- ilis síns, en það var í gömlu eikartré. Þegar þangað var komið, setti hann upp hugvekjuhúfu, sem hann átti, þetta var galdrahúfa og ekki gat hann hugsaó án hennar, en stundum var hann jafnvel svo latur, aö hann nennti ekki aö sækja hana, svo hann gæti hugsað hálfa hugsun. En í þetta skipti hét hann því með sjálfum sér, að aldrei aftur mundi hann reyna að hugsa, án þess að hafa galdrahúfuna á höfðinu. Að hugsa án húfunnar, hafði oft komið honum í koll, en aldrei þó jafn áþreifanlega og þennan morgun! ANNAR KAFLI. 1 skógi þeim, sem Gráálfur bjó í, var heilmikið af grasi grónum trjárjóðrum, þar sem tré höfðu verið felld i eldinn. Hann leitaði upp eitt af þessum rjóðrum, til að hugsa. Hann settist meó krosslagða fætur á trjábol og setti upp hugvekjuhúf- una sína. Hann var í svo vondu skapi, að hann fór strax að hugsa um það, hvernig hann gæti hefnt sín á Alla árrisula. Fyrst velti hann því fyrir sér, hvort hann gæti ekki sett eitur í eitthvað af kökum Siggu gömlu, og stútað Alla þannig fyrir fullt og allt. Svo datt honum í hug, hvort hann gæti ekki strengt band yfir eldhúsglugga Siggu gömlu, þannig að Alli mundi detta um hann og meiða sig. En ekki leist honum allskostar vel á þá hugmynd, því að ekkert var að vita, nema, Alla myndi fljótlega batna. En svo datt honum allt í einu í hug það versta af öllum þeim vondum brögðum, og þetta hafði slík áhrif á hann, að hann sat grafkyrr, eins og hann svæfi. Um líkt leyti og þetta skeði, var ungfrú Ingunn íkorni á göngutúr og veðrið var svo gott, að hún var full af gáska og glettni. Svo einkennilega vildi til, að hún Hann var eimreiðarstjóri í hálfa öld, en er nýhættur störf- um. vt« MORö-dK/ kAFF/NO GRANI göslari Það kemur mfr ekki við hve iengi þú erl að mála þetta skilti, en ég heiti Karl með K-i! rDB.'plvKj Við hvaða vanda eigið þér að strlða? Kennarinn gekk niður skðla- götuna og sá tvo nemendurna vera að siást upp á ltf og dauða. Hann flýtti sér til þeirra, þreif I kragann á öðr- um þeirra og sagði: „Um hvað eruð þið að slást?“ „Við vorum að slást um yð- ur, herra kennari," sagði sá, sem fyrir takinu varð, „hann Pétur sagði að það væri ekki jafnmikið vit I kollinum á yð- ur og í hænuhaus, en ég sagði að það væri.“ Vinstúlkur tala saman. — Eg sagði honum að ég vildi ekki sjá hann framar. — Hvað gerði hann þá? — Hann slökkti Ijósið. — Og nú, herrar mlnir og frúr, þurfið þið ekki annað en að nefna nafnið á einhverju dýri, sama hvert það er, þá skal ég undir eins herma eftir rödd þess. Einn af tilheyrendum: — Reykt síld. Tveir litlir drengir hittast. Nonni: Það liggur eitthvað illa á þér I dag, Bjössi. Hvað er að? Bjössi: I gær hýddi pabbi mig fyrir það að ég vildi ekki þvo mér og I dag hýddi hann mig aftur vegna þess að ég datt I lækinn. Framhaldssaga eftir Rosemary Gatenby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 50 allan tlmann verið I námunda við hann og sfðan hafði hann lagt ð sig ómælt erfiði til að koma honum til hjálpar. Fyrst óku þeir að bifreið Verns og tlndu muni hans og föggur saman. Það tók ekki ýkja langan tfma núna, svona Ijómandi vel akandi. — Vitíð þér ekki hvað hefur komið fyrir vin yðar? spurði Miguel þegar þeir voru lagðir aftur af stað. — Nei, en ég get sem hægast gert mér það f hugarlund Ilann sagði Miguel frá atburðum næturinnar og morgunsins og Miguel þýddi frásögnina jafnóð- um yfir á spænsku og tók hann bersýnilega mikinn þátt f þessu öllu saman. Svo komust þeir aftur upp á steypta veginn. — Hvernig vissirðu hvaða leið þeir færu með mig? Það var í afturelding sem við ókum út af þjóðveginum og ég sá ekki tíl neins svo langt sem augað eygði. — Eins og ég sagði gætti ég þess vandlega að halda mig eins langt f burtu og ég mögulega gat. En ég sá f hvaða átt þið beygðuð en ég elti ekki þangað. Eg vissi að þegar á þær slóðir var komið þurfti maður að vera á vörubfl til að komast áfram. Ekkert fréttist af Erin Bruce þennan dag. Hann kom heldur ekki. Jack skrifaði sig aftur inn á hótelið án þess að minnast frekar á Mr. Johnston, sem hann hafði farið á brott með kvöldið áður. Hann kærði sig ekki um að blanda lögreglunni á staðnum f þetta viðkvæma mál. Hann fór f sturtu og þegar hann hafði lokið þvf lét hann sig fallast f rúmið og sá þá sárabindi á teppinu. Annað hvort hafði Miguel útvegað það fyrir hann eða dyravörðurinn hafði talið að honum veitti ekki af þvf. Hann sofnaði samstundis og þegar hann vaknaði var orðið aldimmt. — Hamingjan góða, sagði hann smeykur. — Hvar er Erin? Hann neri sér um augun með skárri hendinni og haltraði út á svalirnar. llann var aumur og sár f öllum skrokknum. Hvað hafði eiginlega orðið um Erin? Hafði Helene ekki verið á búgarðinum? Eða hafði hann ekki fundið hana og hafði ákveðið að gista og athuga málið betur daginn eftir? Eða HAFÐI hann fundið hana og ekki komizt undan. Hann sá fyrir sér flug- vélina f ljósum logum og flug- mann hennar helsærðan f flakinu eftir kúlnahrfð. Fjandinn hirði þetta allt. Og á þessum eyðistað myndi hann ekki frétta um það þótt smáflugvél hefði farizt f Texas. 11. kafli Earl Cady sté út úr jeppanum. — Við sjáumst seinna, sagði hann og Bill ók af stað f norður. Hann gekk þvert yfir hátt grasið f áttina að varðmannakof- anum. Langt var. um liðið sfðan hann hafi fengið vott eða þurrt þar sem hann hafði tekið daginn snemma. Gott yrði að fá kaffisopa f varðkofanum. Vél flaug yfir hann. Hún var svipuð vélinni sem hafði farið hér yfir daginn áður. Kannski var einhver rfkisbubbinn að leika sér og æfa sig á nýju vélinni sinni. Á þessum sióðum var heldur sjald- gæft að flugvélar væru mikið á sveimi. Þegar hann var kominn inn f kofann svipaðist hann um og varð sem snöggvast hugsað til stúlkunnar. Ilann hafði séð hana leggja af stað i útreiðar fyrir nokkru. Tim Donan var f fylgd með henni. 11 ún hafði verið læst inni f húsinu allan þann tfma sem hann hafði unnið hér. Herra Whelock hafði sagt honum að hún væri smáskrftin. En nú voru þeir farnir að leyfa henni að fara út — að vfsu f fylgd og undir eftirliti Tim Donans. Tim Donan ... Það var ekki beinlfnis vegna þess að hann hefði neitt á móti þvf að Tim annaðist ungfrú Everest, en honum Ifkaði ekki hvernig hann kom fram. Eins og hann réði hér öllu. Donan hafði sýnt eintim of mikið ráðrfki fannst honum. — Hvar hefur þú verið hafði Earl spurt hann. — Það kemur þér ekki við. Þú skalt hlfta ráðum mfnum, Cady, og láta það ógert að snuðra f þvf sem þér kemur ekki við. Þú lendir bara f kröggum ef þú ætlar að fara að derra þig. Þetta varð alit æ furðulegra og óskiljanlegra. Einkennilegt fólk að tarna. Það vissi hann af eigin reynslu. 1 fyrsta lagi vék hr. Everest aldrei af staðnum og f öðru lagi virtust Ðan og Reg og Whelock Ifklega einnig alltaf dauðhræddir um að einhver reyndi að ryðjast inn á búgarðinnn. Hvers vegna? Hans var svo f jarska vel gætt. Og eftir hverju var að slæjgast? Og það gat ekki verið af ótta við að Everest yrðí rænt þvf að hann var hér ekki núna. Það var f fyrsta skipti sfðan Earl kom hingað að Everest hafði farið. Samt sem áður hafði varðgæzlan verið hert að mun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.