Morgunblaðið - 12.01.1977, Side 1
32 SIÐUR
8. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Veggspjöldin í Peking:
Afdráttarlaus krafa um að
Teng verði forsætisráðherra
Peking, 11. janúar. Reuter — NTB.
„VIÐ kref jumst þess eindregið að Teng Hsiao-ping verði
forsætisráðherra" og „Með Teng Hsiao-ping í sæti for-
sætisráðherra getur Chou En-lai hvílt í friði“ stendur á
nýjum veggspjöldum, sem sett voru upp í Peking í dag.
meiri en einmitt nú. Þá segir, að
hann sé góður félagi og hafi orðið
til þess að auka mjög á vegsemd
og virðingu kommúnistaflokksins
í Kina, hersins og stjórnarinnar.
Fulltrúar Pekingstjórnarinnar
sem undanfarna daga hafa verið
inntir eftir þvi hver sé hin opin-
bera staða Tengs nú um stundir
hafa varizt allra frétta, og af opin-
berri hálfu hefur enn engin yfir-
lýsing verið birt um hvað í vænd-
um sé.
Hafa kröfurnar um endurreisn
Tengs, fyrrverandi varaforsætis-
ráðherra, og skipun hans í forsæt-
isráðherraembætti aldrei verið
svo afdráttarlausar síðan bera fór
á þeim fyrir alvöru á dánarafmæli
Chou En-lais fyrir fimm dögum.
Á spjöldunum er Teng hælt á
hvert reipi, — hann er sagður
búinn fágætum hæfileikum og
hafi hróður hans aldrei verið
Ráðizt
á verka-
menní
Radom
Varsjá, 11. janúar. Heuter.
RÁÐIZT var að félögum í
„Varnarsamtökum verka-
manna" með barsmíð og eggja-
kasti i gær, en samtökin voru
stofnuð til stuónings við verka-
menn sem handteknir voru i
kjölfar óeirðanna í Póllandi i
júní i fyrra. Atburður þessi
átti sér stað að loknum vitna-
leiðslum í máli verkamannsins
Josefs Smagowski fyrir rétti i
Radom.
Að sögn heimildarmanns úr
hópi verkamanna réðust um 20
manns að fulltrúum samtak-
anna, sem viðstaddir voru yfir-
heyrslurnar, i gangi fyrir
framan réttarsalinn, og hróp-
uðu: „Burt frá Radom. Þið er-
um að selja Pólland i hendur
Gyðinga og „Radio Free
Europe“.‘‘
Réttarhöldunum yfir
Smagowski var frestað um niu
daga á grundvelli ósamræmis i
framburði vitna fyrir réttin-
um, og var um leið ákveðið á
láta hann lausan á meðan.
Vmsir sérfræðingar um málefni
Kina telja að boðskapur á vegg-
spjöldum verði á sömu lund þar
til opinber tilkynning verði birt
um framtið Tengs, en þykir slík
tilkynning vera farin að dragast
nokkuð á langinn.
Gagnrýnin á ýmsa samherja
„þorparanna fjögurra“ heldur
áfram á veggspjöldum i Peking,
og visbending um andúð á frænku
Mao Tse-tung, Wang Hai-dung
varautanríkisráðherra, hefur
komið fram, en ekki var skil-
greint af hverju hún stafaði.
Teng
Austur-Berlín:
Vopnadir verd-
ir hindra aðgang að
skrifstofu V-Þjóðverja
Austur-Berlfn, 11. janúar.
Reuter-NTB.
VOPNAÐIR verðir tóku sér I
Abu llaoud, til hægri á myndinni, ásamt frönskum lögreglumanni,
leggur af stað til Orly-flugvallar eftir að dómstóll hafði úrskurðað að
hafna tilmælum Israelsstjórnar um að framselja hann. (AP-
sfmamynd).
morgun stöðu fyrir utan skrif-
stofu v-þýzka fastafulltrúans f
Austur-Berlfn, og vörnuðu inn-
göngu fólki, sem ekki hafði skrif-
lega heimild austur-þýzkra
stjórnvalda til að sinna erindum
sfnum f byggingunni.
Fulltrúi v-þýzku stjórnarinnar f
Austur-Berlfn sagði f kvöld, að
hér væri um að ræða alvarlegustu
tilraun a-þýzku stjórnarinnar til
að hindra starfsemi V-Þjóðverja
frá þvf að skrifstofunni var komið
á fót árið 1974, en talið er, að
tilgangurinn sé að draga úr vax-
andi straumi þeirra A-Þjóðverja,
sem viija flytjast úr landi.
Að undanförnu hefur stöðugur
straumur A-Þjóðverja verið i v-
þýzku skrifstofuna, en talið er að
þar hafi alls um 10 þúsund manns
óskað eftir fyrirgreiðslu vegna
brottflutnings úr landi frá þvi að
skrifstofan tók til starfa fyrir
tveimur árum. í gagnkvæmum
samningi ríkjanna um starf-
rækslu skrifstofa í höfuðborgum
beggja er ákvæði um að þar skuli
veita „aðstoð og stuðning“ þeim,
sem eftir kunni að leita.
Forráðamaður v-þýzku skrif-
stofunnar, Gúnter Gaus, hefur
óskað eftir sérstökum fundi
vegna málsins með fulltrúum
utanrikisráðuneytis A-
Þýzkalands, og í Bonn sagði full-
trúi v-þýzku stjórnarinnar, að
þessar aógerðir Austur-Þjóðverja
væri litnar mjög alvarlegum aug-
um, og hefði formlega verið óskað
eftir skýringum.
Þá báru fulltrúar Breta, Frakka
og Bandarikjamanna í Moskvu í
Framhald á bls. 18
Andófshreyfingin í Tékkóslóvakíu:
Y firheyrslum
haldið áfram
Vfnarborg, 11. janúar Reuter
SEX tékkneskir andófsmenn, sem
öryggislögreglan f Prag handtók í
gær voru leystir úr haldi seint f
gærkvöldi, en voru á ný kallaðir
til yfirheyrslu f morgun.
Reuters-fréttastofunni tókst f
gærkvöldi að ná sambandi við
einn andófsmannanna, leikrita-
skáldið Vacloav Havel. Kvaðst
Allon bregður Frökkum um
hugleysi og ódrenglyndi
Skæruliðaforinginn kominn til Alsír
París 11. janúar Reuter
ÁKVÖRÐUN franskra stjóm-
valda um að láta palestínuskæru-
liðann Abu Daoud lausan úr haldi
og senda hann til Alsfr hefur
valdið miklum úlfaþyt og hefur
málið orsakað mikla spennu f
samskiptum Israelsst jórnar og
frönsku rfkisst jórnarinnar.
Skömmu eftir að fregnin barst
um þessa ákvörðun kallaði
fsraelsstjórn sendiherra sinn f
Frakklandi heim til viðræðna um
málið, og Yigal Allon, utanrfkis-
ráðherra lsraels, lét svo um mælt
f kvöld, að þessi ráðstöfun bæri
vott um hugleysi og ódrenglyndi.
Hann ásakaði Frakka um van-
efndir á alþjóðasamningum.
Þá hefur Bandarfkjastjórn látið
f Ijós megna óánægju yfir þvf að
hvorki ísraelskum dómstólum né
v-þýzkum skuli hafa verið gefið
tækifæri til að yfirheyra Daoud
um hin hroðalegu morð á
fsraelsku fþróttamönnunum
ellefu á Olympfuleikunum f
Múnchen árið 1972. f yfirlýsing-
unni segir að hryðjuverkamenn
eigi að sæta ábyrgð gerða sinna
gagnvart löglegum yfirvöldum f
öllum löndum.
Einn helzti leiðtogi kristilegra
jafnaðarmanna á sambandsþing-
inu f Bonn, Friedrieh Zimmer-
Framhald á bls. 18
Ilavel hafa verið boðaður til
frekari yfirheyrslu á morgun og
væri svo einnig um þá féiaga hans
sem hann hefði talað við.
Areiðanlegar heimildir f Prag
herma að Gustav Husak, leiðtogi
kommúnistaflokksins i landinu.
hafi gefið fyrirmæli um að
öryggislögreglan skuli fara aó
andófsmönnunum með gát og er
talið að yfirvöld í Tékköslóvakiu
vilji forðast að gera þá að píslar-
vottum af ótta við almenn mót-
mæli og andstöðu vegna þessa
máls.
Pavel Kohout annar leikrita-
höfundur sem öryggislögrelgan
handtók var i dag stöðvaður
ásamt konu sinni. Hjónin neituðu
að hlýðnast fyrirskipunum um að
yfirgefa bifreið sina og var þá
ógnað með byssum.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst fréttamönnum i Vin ekki að
ná simasambandi við aðra andófs-
menn en Havel i dag en hann
kvaðst hafa ástæðu til að halda að
langtum fleiri hafi verið færðir til
yfirheyrslu en þeir sem hann hafi
hitt fyrir i Ruzine, sem er i
senn fangelsi og bækistöð
Framhald á bls. 18