Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 3

Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977 3 Sinfóníutónleikar: Israelskur fiðluleik- ari, en Vladimir Ashkenazy stjórnar tSRAELSKUR fiðluleikari, Boris Belkin að nafni verður einleikari á sjöundu regluleg- um tónleikum Sinfónfuhljóm- sveitarinnar I Háskólahfói annað kvöld, en Vladimir Ashkenazy stjórnar hljómsveit- inni á þessum tónleikum. Á verkefnaskrá þessara tónlcika verða tvö verk eftir Tsjaikovsky — Forleikur að Rómeó og Júliu og fiðlukonsert en auk þess píanókonsert nr. 2 eftir Rachmaninoff. Boris Belkan er fæddur i Rússlandi 1948, hóf fiðlunám 6 ára og kom fyrst fram sem fiðluleikari ári siðar. Á náms- árum sínum lék hann með ýmsum rússneskum hljómsveit- um, og árið 1972 vann hann fyrstu verðlaun í keppni fiðlu- leikara sem haldin er árlega í Sovétríkjunum. Arið 1974 fiuttist Belkin til ísraels og hefur siðan leikið víða, m.a. undir stjórn Zubin Mehta og Leonard Bernstein. Á þessu ári mun Belkin m.a. leika með hljómsveitunum New Phil- harmonia og Royal Philharmonic í London og fara í hljómleikaferðir til Hollands, Þýzkalands, Grikklands, Sviss og Danmerkur. Ashkenazy er á hinn bóginn nýkominn heim úr tónleikaför um Bandaríkin en þar lék hann með ýmsum hljómsveitum auk þess sem hann hélt sjálfstæða hljómleika, m.a. í Carnegie Hall. Ashkenazy heldur héðan til Árósa til hljómleikahalds og þaðan fer hann til London til hljómplötuupptöku. Fjármálaráðuneytið: Setur ráðuneytum og ríkisstofnunum strang- ar reglur um útgjöld FJÁRMALARAÐUNEYTIÐ mun gera strangar kröfur til þess, að á árinu, sem f hönd fer, verði tryggt, að rfkisstofnanir starfi innan ramma fjárlaga og mun af hálfu ráðuneytisins verða fylgzt náið með útgjöldum hinna einstöku rfkisstofnana í samráði við rfkisendurskoð- un. Frá þessu er skýrt í bréfi Matthfasar A. Mathiesens fjármálaráð- herra og Jóns Sigurðssonar ráðuneytisstjóra til allra ráðuneyta og stofnana rfkisins. Með þessu bréfi, sem sent hefur verið áðurnefndum aðilum, er sérstakt eyðublað fyrir greiðslu- áætiun viðkomandi stofnunar og er forsvarsmönnum hennar veitt- ur frestur til 15. janúar að skila greiðsluáætlun fyrir árið 1977. Er i þvi sambandi sérstaklega tekíð fram, að ekki sé unnt að hefja útgreiðslu samkvæmt fjárlögum 1977, fyrr en greiðsluáætlanir stofnana hafa borizt ráðuneytinu, að undanskildum greiðslum vegna launa. í bréfi fjármálaráðu- neytisins segir m.a.: „Enda þótt endanlegar reikn- ingstölur ársins 1976 liggi ekki fyrir er ljóst að umtalsverður bati hefur náðst í fjármálum rikisins á þessu ári. Rekja má bata þennan m.a. til þess, að þær útgjaldaáætl- anir, sem byggðar eru á greiðslu- áætlun ríkisstofnana hafa staðist að verulegu leyti og viil ráðuneyt- ið þakka það þeim fjölmörgu aðil- um sem starfað hafa innan ramma fjárheimildar á árinu 1976.“ I bréfinu er forstöðumönnum ríkisstofnana settar talsverðar skorður um fjármál þeirra fyrir- tækja, sem þeir bera ábyrgð á. T.d. segir að séu framkvæmdir fjármagnaðar með lánsfé, skuli taka tillit til þess kostnaðar, sem af lántöku leiðir. Óheimilt er að framkvæma fyrir hærri fjárhæðir er nemur lánsfjárhæðinni að frá- dregnum lántökukostnaði. Þá er óheimilt að gera verk- samning fyrir hærri fjárhæð en sem nemur 90% af þeirri fjárveit- ingu, sem ætluð er til viðkomandi verks. Þeim 10%, sem halda skal eftir, er ætlað að mæta ófyrirséð- um útgjöldum. Við skiptingu ann- arra rekstrargjaida fyrir hvern mánuð leggur ráðuneytið áherzlu á að stofnanir hafi til ráðstöfunar í desembermánuði umfram út- gjöld mánaðarins eigi lægri fjár- hæð en nemi 5% af heildarfjár- hæðinni, sem ætlað er að mæta ófyrirséðum útgjöldum vegna þessa útgjaldaliðar. Þær ríkisstofnanir, sem fjár- magnaðar eru að einhverju eða öllu leyti með mörkuðum tekju- stofnum, skulu, ef i ljós kemur, að hinir mörkuðu tekjustofnar nái ekki þeirri fjárhæð, sem fram kemur í fjárlögum, endurskoða framkvæmda- og greiðsluáætlanir sinar, þannig að starfað sé innan þess fjármagns, sem mörkuðu tekjustofnarnir leyfa. Bréf fjármálaráðuneytisins til ráðuneyta og ríkisstofnana lýkur svo: „Að lokum vill ráðuneytið vekja athygli ráðuneyta og stofn- ana á þvi, að sé óskað eftir til- færslum á greiðsluáætluninni milli mánaða innan fjárlagaárs- ins, skal hafa samband við gjalda- deild fjármálaráðuneytisins. Komi hins vegar í ijós að stofnan- ir telji sig þurfa að fá leiðréttingu á fjárlagaheimild, skulu slíkar beiðnir berast fjárlaga- og hag- sýslustofnun, sem i samráði við ríkisendurskoðun metur fram komnar umframbeiðnir." Reykjavíkurveg- ur skiptir sókn- um í Hafnarfirði Rafmagnsbil- un í Breiðholti Rafmagnsbilun varö i Breiðholti um tíma i gær. Bilun varó i háspennu- streng en fljótlega tókst að finna bilunina og einangra hana. Straumurinn fór af hverfinu um kl. 3.30 í gær en rafmagn var komið á allt hverfið um fimmleyt- ið aftur. REYKJAVlKURVEGUR verður markallnan á milli prestakall- anna I Ilafnarfirði, þ.e. Hafnar- fjaróarprestakalls og hins nýja Vfðistaðaprestakalls, sem nýlega var auglýst laust til umsóknar. Verður Norðurbærinn og hluti Vesturbæjarins I Hafnarfirði I hinni nýju sókn. Gert er ráð fyrir að fhúar I Vfðistaðaprestakalli verði um 6.200 þegar lokið verður við þær byggingarframkvæmdir, sem nú standa yfir I Norðurbæn- um. lbúar I Hafnarfjarðarpresta- kalli eru hins vegar um 6.700, en þar er fjölgun íbúa mun hægari. Fyrsti safnaðarfundur í Víði- staðaprestakalli verður i Viði- staðaskóla næstkomandi þriðju- dag og hefst klukkan 20.30. Verð- ur þar kosin safnaðarstjórn, sem siðan fær m.a. það verkefni að ræða við bæjaryfirvöld um stað fyrir safnaðarheimili og kirkju siðar meir. Hafði kirkju í þessari nýju sókn reyndar verið fundinn staður nyrzt i Norðurbænum, en sá staður þykir ekki heppilegur. Þar til aðstaða verður sköpuð i Viðistaðasókn verða guðsþjónust- ur væntanlega i Hafnarfjarðar- kirkju. V" Skídaferð um páskana\ 5 dagai Brottför 6. apríl Flugferð, gisting og morgunverður Verð kr. 24.000 - Barnagjald: 4ra ára og yngri kr. 4.000 - 5—1 2 ára kr. 12.300 - Skíðakennsla Kvöldvökur Ferðaskrifstofan Ferðaskrifstofan *.._ .... 4T UTSYH, AUSTURSTRÆTI 17 — SIMI 26611 OG 20100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.