Morgunblaðið - 08.02.1977, Síða 10

Morgunblaðið - 08.02.1977, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977 Kristófar Bjarnason skipstjóri á Haraldi (t.v.) og Gtsli Hallbjörnsson vélstjóri I brúnni ð Haraldi. (Ljósm. Friðþjófur). nefndu skipunum er mun meiri peningur, það er vitað mál, en sllkar veiðar eru ekki fyrir alla og peningar eru ekki allt, segir Kristófer. — Við róum mikið út fyrir Hraunið núna, en á Jökul- tungunum, sem oft hafa gef- ið vel, hefur varla fengizt bein úr sjó það sem af er vertiðinni. Friðunin I Flóan- um hefur haft gífurlega mikið að segja, sérstaklega hvað varðar ýsuveiðarnar. Ég held meira að segja að Keflvíking- arnir sem voru manna mest á móti þessari friðun viður- kenni réttmæti hennar nú orðið. Árið á bát éins og Haraldi frá Akranesi skiptist I þrjá hluta ef svo má segja. Frá því I miðjum september og allt fram I endaðan febrúar eru stundaðar línuveiðar. Þá tek- „Sæmilegt kropp það sem af er vertíðinni — AFLINN er ekkert meiri en í fyrra, en hins vegar byggjast veiðarnar núna meira á grunnslóð og því er ekki að neita að fiskur- inn er frekar f smærra lagi. í fyrra vorum við yfirleitt dýpra og feng- um þá stærri fisk. Þetta hefur1 verið sæmilegt kropp það sem af er vertíðinni og það er alveg Ijóst að friðunin í Faxaflóa hef- ur haft gífurlega mikið að segja, sérstaklega hvað varðar ýsumagn- ið f aflanum. Þannig mæltist Kristófer Bjarnasyni skipstjóra á vél- bátnum Haraldi frá Akranesi, en Morgunblaðsmenn hittu hann er hann kom úr róðri eitt kvöldið I vikunni. Harald- ur AK 10 er 1 99 tonna skip, smiðað í Noregi 1961. Hefur Kristófer, sem er 32 ára, ver- ið með skipið síðan i septem- ber 1973. í janúarmánuði fengu þeir 101 tonn í 18 linuróðrum, en sex eru á og fimm beitingamenn i landi. Að sögn Kristófers eru niu bátar nú gerðir út á línu frá Akranesi, tveir þeir stærstu eru Haraldur og Grótta, um 200 tonn, en þeir minnstu 60—70 tonn að stærð Ekki sagði Kristófer að línuveið- arnar gæfu mikið i aðra hönd, sjaldan meira eh trygginguna, sem losaði um 100 þúsund krónur á mán- uði. Hver túr tekur um 18 tima, þannig að það er ör- ugglega unnið fyrir þessu. — Það gengur þó ágæt- lega að fá mannskap á þessa báta, þetta er ágætt fyrir menn, sem vilja vera nálægt heimilum sínum og fjölskyld- um. Þetta eru dagróðrar og þó þetta sé strembið meðan hávertíðin stendur, þá eru menn þó meira heima hjá sér én t.d. á~ skuttogurunum og loðnubátunum. Á siðast- UnniB s8 löndun úr Haraldi f rá Akranesi. ur netavertíðin við og er fram í miðjan mai. Siðan eru það handfæri í um 2 mánuði, en þá fá sjómennirnir sumarfrí, sem þó er einnig notað til að „skvera" bátinn og gera klárt fyrir næstu törn. Svona líður árið, eitt tekur við af öðru hring eftir hring, með litils- háttar frávikum þó til að krydda tilveruna. Á dögunum gerðist það að bil var hreinlega ekið um borð i Harald þar sem hann lá við bryggju á Akranesi og Kristófer segir okkur frá því i lokin: — Þetta var sögulegt með bildjöfulinn og mikil mildi að enginn skyldi slasa sig er bíllinn lenti á þilfarinu hjá okkur Reyndar höfðum við fært bátinn um eina báts- lengd klukkustund áður en bílnum var ekið um borð, ef við hefðum ekki gert það hefði bíllinn fari beint i sjó- inn. Við vorum heppnir að ekkert skyldi skemmast og við ekki missa túr. Það eina sem skemmdist i rauninni var „dráttarkall" en við gát- um reddað öðrum fljótlega. — áij. LandformaSurinn hampar einum vænum Sigurður Arnmundsson og Jóhann Ár- sælsson f (þróttahúsinu gamla. þar sem þeir nú starfrækja bátaviðgerðir og ný- smfðar. Rimlarnir f baksýn eru nú not- aðir til að hengja á verkfæri. Bátavið- gerðir þar sem áður var íþrótta- salur 1 GAMLA fþróttahúsinu við Laugabraut á Akranesi hefur fyrirtækið KNÖRR sf. starfað undanfarna mánuði. Þeir félagar Sigurður Arnmundsson og Jó- hann Ársælsson reka þetta fyrir- tæki og láta vel af aðstöðunni f fþróttahúsinu, sem áður fyrr var vettvangur skólaæskunnar á Akranesi og þar undirbjuggu nokkrir af okkar fræknustu knattspyrnumönnum fyrr og sfð- ar sig fyrir átök sumarsins hér á árum áður. Á gólfi íþróttahússins eru nú ýmiss konar verkfæri til báta- smíði og viðgerða og þar eru tveir rúmlega 5 tonna bátar, sem verið er að gera við, auk tveggja minni fleytna. Þegar nýja iþróttahúsið var tekið I notkun á Akranesi var ákveðið að selja gamla húsið og buðu þeir Sigurður og Jóhann í húsið. Fengu þeir það fyrir 4 milljónir og 750 þúsund og fylgdi eignarlóð með I kaupunum. Húsið er um 380 fermetrar að flatar- máli. Á ferð Morgunblaðsmanna um Akranes á dögunum var litið við hjá þeim félöguhum í gamla íþróttahúsinu. Létu þeir mjög vel af aðstöðunni þar: — Þetta er al- veg skínandi aðtaða fyrir okkur, hér er hátt til lofts og vítt til veggja, auk þess sem húsið er bæði vatns- og vindhelt, en það er meira en hægt er að segja um mörg hús, sem notuð er fyrir starfsemi sem okkar, sögðu þeir Sigurður og Jóhann. Þeir eru bæði með nýsmiði og viðgerðir, en sögðu að svo virtist

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.