Morgunblaðið - 08.02.1977, Side 27

Morgunblaðið - 08.02.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977 27 ar hefur tveimur eldri stúlkum verið bætt í inn þann hóp, sem stundar æfingar hjá landsliðs- nefndinni. Handknattleikssambandið vill taka skýrt fram, að fyrrnefnt aldurstakmark er aðeins tima- bundin ráðstöfun og að ekki er ætlun þess að framtiðarlandslið íslands verði ekki skipuð eldri stúlkum. Þessi leið, H.S.I hefur valið, hefur einnig verið farin i ýmsum Evrópulöndum og má m.a. benda þar á Holland og Vestur- Þýzkaland I því efni. Starf landsliðsnefndar hefur ætið beinzt að þvi að mæta óskum starfandi handknattleiksstúlkna og hefur hún reynt að velja þær leiðir, sem hún hefur talið vera iþróttinni mest til framdráttar á hverjum tima. En það hefur kom- ið fyrir oftar en einu sinni, að áhugi stúlknanna hefur verið mjög sveiflukenndur svo ekki sé meira sagt. Samið hefur verið um landsleiki fram i tímann, en þeg- ar á átti að herða og tekið skyldi til við æfingar, hafa mætingar verið mjög lélegar. í blaðaskrifum hefur því verið haldið fram af handknattleiks- stúlkum, að landsliðið í dag sé lélegt og litt áhugavert, en um landslið hefur ekki verið að ræða sian í maí á síðastliðnu ári. Það hefur aldrei verið hlutverk landsliðsnefnda að kenna hand- knattleik og handknattleiksíþrótt- ina verða stúlkurnar, eins og pilt- arnir að læra í sinum félögum. Landsliósnefndir hafa hins vegar það verkefni að skapa og viðhalda samskiptum við erlendar þjóðir, að gefa völdum hópi kost á æfing- um undir handleiðslu þeirra þjálfara, sem völ er á á hverjum tíma og hvetja slíka landsliðshópa áfram til starfs. Ef að þær sýna ekki þann þroska og áhuga að vilja fórna einhverju fyrir þátt- töku i landsliði og landsliðsæfing- um, þá verður aldrei gott landslið til. Það er og verður þvi fyrSt og fremst stúlknanna sjálfra að mynda gott og áhugavert landslið. Baldvin Berndsen skrifar: Golf árið1976 Á SÍÐASTLIÐNUM árum hafa átt sér stað mörg glæsileg golfhögg, en hversu mörg eru enn í manna minnum. Högg eins og stórlaxarnir Ben Hogan, Arnold Palmér og Jack Nicklaus hafa unnið stórmót á. Síðastliðinn júní bætti Jerry Pate einu slíku höggi á listann. Þetta var innáhögg með 5 járni á síðustu holunni í U.S. Open keppninni. Það var allt útlit fyrir að þrír eða fjórir menn yrðu jafnir og Pate þurfti par fjóra á síðustu holunni til þess að vinna mótið. Teighöggið hans lá í brautarkantinum hægra megin og varð hann að lyfta kúlunni yfir vatnstorfæru, sem var fyrir framan flötina. Pate sló kúluna 175 metra inn á flötina og lenti hún 3 fet frá holu. Hann setti púttið niður i einu höggi og vann mótið með tveimur höggum. Arið 1976 var sérstætt að einu leyti. Jaek Nieklaus vann ekkert af stórmótunum fjórum, en hann vann samt Tourna- ment Players mótið og World Seroes og Golf. Nicklaus var einnig það nálægt toppnum í keppnunum á árinu að hann vann samtals 266 þúsund dollara og var hæstur á peningalist- anum í áttunda sinn (Dágóð árslaun). Nicklaus var einnig valinn Golfari ársins af P.G.A. sambandinu. Raymond Floyd sigraði i Masters-keppninni í Augusta, Georgia, með átta höggum, sem er eitt það albezta afrek i fjörutíu ára sögu mótsins. Floyd barðist við par 5 holurnar í Augusta með 5 trékylfu, sem hann keypti einungis í þeim tilgangi, og er ekki hægt annað en að segja að þetta hafi tekizt vel, þar sem hann var 14 undir pari á þessum fjórunt par 5 holum: einn „eagle", 12 „birdies" og þrjú pör. Floyd vann mótið á 17 undir pari, sem er aðeins einu höggi verra en metið. Johnny Miller vann British Open keppnina á Royal Birk- dale, en hann varð að spila siðasta hringinn á 66 höggum til þess að vinna hinn unga Spánverja Severiano Ballesteros, sem leiddi mótið í þrjá fyrstu dagana. Ballesteros varð annar ásamt Jack Nicklaus Golfheimurinn er örugglega ekki búinn að heyra það síðasta af Ballesteros. A P.G.A. mótinu í Bethesda, Maryland, gátu sex menn unnið á síðustu holunum en það virtist sem enginn vildi vinna. Uave Stockton setti loks niður 4 metra pútt á síðustu holunni og vann nteð einu höggi. Raymond Floyd og Don January voru númer tvö. Þess má loks geta að Jerry Pate var kosinn Golfari ársins af blaðamönnum Bandaríkjanna, en Raymond Floyd var valinn Golfari ársins af blaóinu Golf Digest. Bobbv Nichols var einn þeirra golíara sem kom við sögu á árinu 1976, og náði góðum árangri í mörgum mótum. Svo virðist sem kappinn sé þó nokkuð áhyggjufullur er þessi mynd var tekin á móti í Augusta í Bandaríkjunum s.I. sumar. Einstaklingar og íþróttastarf á Austurlandi Sigurjón Bjarna- son skrifar: ins séu peningar fyrir hendi til þess að halda námskeið fyrir íþróttakennara, þjálfara og íþróttamenn og ganga þá frá mál- um við rétta aðila. Eins á að styrkja efnilega menn til þess að sækja námskeið erlendis. Íslenzk- um þjálfurum er of sjaldan gef- inn kostur á að fara með í ferðir til útlanda með keppnisliðum og einstaklingum. Sjaldan og litið eru þeir studdir f því að fara á þjálfaranámskeið erlendis og ekki látnir ráða stefnunni i upp- byggingu þjálfunar á tslandi. Fyrst og fremst eiga íslendingar sjálfir að bera starfið uppi. í heildina met ég mikils störf frjálsiþróttaþjálfara á islandi enda hafa islendingar hvergi náð lengra en í frjálsum íþróttum. Frjálsiþróttasamband íslands, U.M.F.Í. og iþróttasamband islands þurfa nú að gera stórátak í þvi að mennta velviljaða félags- málaleiðtoga og leiðbeinendur í iþróttum. Þetta er vandamál í dag sem þarf að sinna í auknum mæli. Það má ekki láta viðvaninga koma inn í starfsemina, sem ekki hafa alist upp í iþróttah reyfingunni og skilja ekki sitt hlutverk og drepa niður starf hugsjónar- manna. Einnig get ég gethér, að ég starfa ekki hjá K.R. að frjáls- íþróttaþjálfun meðan þeir sem nú eru I forsvari stjórna þar málum. Eins segi ég mig úr tækninefnd F.R.Í., sem ég tók sæti í vegna þess að ég var þjálfari K.R.. Með öllu er óvíst hvort ég vinni nokk- ur verkefni fyrir F.R.i. á næst- unni. Mér þykir ieitt að þurfa að taka þessa afstöðu, þvi að mörgu leyti hefi ég átt gott samstarf við F.R.Í. stjórniná á liðnum árum. Knattspyrna: Útlendir þjálfarar á tslandi. Á siðustu árum hefu sú stefha verið tekin að ráða nær eihgöngu útlenda þjálfara i I. deild. Þessir þjálfarar fá mikil laun, þótt fæst- ir þeirra hafi skilað milílum árangri og verið upphafnir yfir íslenzka þjálfara af íþróttafrétta- riturum og forystumönnum félaga á röngum forsendum oft og tiðum. Ég tel, að með þessu hafi nær tekizt að drepa niður hæfa þjálfara fyrir I. deild á síðustu árum. Efnilegir knattspyrnu- þjálfarar hafa nær engin tæki- færi fengið til þess að vaxa með verkefnum. Þetta getur ekki ver- ið framtiðarstefna. Það er furðu- legt, hversu margir hafa legið flatir fyrir þessum erlendu þjálfurum og tekið á sig miklar skuldbindingar þeirra vegna. íslendingar eiga i dag marga menn, sem gætu náð góðum árangri með félagslið og lands- liðið. Má nefna árangur Fram- liðsins á síðustu árum undir stjórn íslenzkra þjálfara og árang- ur þjálfara unglinglandsliðsins þessari skoóun til rökstuðnings. Handknattleikur islenzka landsliðið hefur oftast staöið sig með afbrigðum vel á liðnum árum. Landsliðið hefiir sta'ðið sig best undir handleióslu Hallsteins Hinrikssonar íþrótta- kennara í Hrfnarfirði, þegar liðið lenti í 6. sæti í heimsmeistara- keppni. Nú eigum við aftur afburðamenn, sem eiga mögu- leika á þvi að ná langt. Nú í vetur hefur Janusz Czerwinski frá Pól- landi náð umtalsverðum árangri með liðið, enda ekkert til sparað. íslandsmótið er sett til hliðar vegna landsliðsins. Ég hef fylgst með starfi landsliðsþjálfarans og hann hefur mitt traust enda afburðaþjálfari. Hann hefur lika dugnaðarforka með sér við undir- búning liðsins. Það breytir því ekki, að ég tel, að Viðar Simonar- son iþróttakennari hafi á liðnum vetri sýnt, að hann var á réttri leið með stórlið. Að minu áliti efast ég um, að liðið stæði verra nú hefði hann fengið tækifæri til þess að halda áfram með liðið og sömu aðstæður að starfa við. Eins vil ég nefna, að ég tel, að Geir Hallsteinsson iþróttakennari geti gert stóra hluti með landsliðið Framhald á bls. 33 Vaxandi umræður hafa orðið um íþróttalif á Austurlandi und- anfarin missiri, og þann félags- skap, sem að íþróttalífi stendur, þ.e. ungmenna- og íþróttafélögin. Ein er sú íþróttagrein, sem mest hefur verið stunduð hér eystra, knattspyrnan. Einhvern veginn hefur þessi íþróttagrein orðið svo ríkjandi í félögunum, að áhugamenn fyrir öðrum iþrótta- greinum hafa orðið nær áhrifa- lausir í sinum félögum. Þær raddir gerast nú æ hávær- ari, að félögin séu að verða hrein knattspyrnufélög, og önnur starf- semi á þeirra vegum liggi niðri. Nú vil ég beina orðum mínum til þeirra sem þessa skoðun hafa og benda þeim á nokkrar stað- reyndir i málinu. Öll íþrótta- og ungmennafélög eru opin öllum almenningi „án tillits til aldurs eða kynferðis", og hlýtur því hver íþróttaáhugamað- ur eða hópur að geta skipulagt sitt íþróttastarf innan viðkoma di félags. Það er til of mikils mælst að stjórn eins íþróttafélags skipu- •leggi starfsemi fyrir fólk sem ekki starfar í félaginu. Ef ákveð- inn einstaklingur eða hópur finn- ur hjá sér hvöt til að stunda vissa iþrótt ætti hann að láta það veróa sitt fyrsta verk að ganga í sitt heimafélag, mæta á næsta aðal- fund þess, og beita sér fyrir þvi að skipuð verði sérstök nefnd til að skipuleggja viðkomandi íþrótta- grein, eóa a.m.k. vinna að því að ötull fulltrúi hennar eigi sæti i stjórn félagsins. Þegar iþróttafélag kallar saman almennan fund skulu menn hafa það hugfast, að barna er hinn rétti vettvangur til að koma máli sinu á framfæri. Aðalfundir fél- aganna þurfa ekki að vera ein- hæfir knattspyrnufundir, nema þá að engir sjái sér fært að mæta nema knattspyrnumenn. Sem betur fer er einhæfni starfseminnar ekki eins mikil og af er látið. Mörg félög hafa skipu- legar innanhússæfingar að vetrin- um fyrir ýmsar iþróttagreinar, en grunur leikur á að margir sem þannig stunda æfingar hjá félög- unum, sjái ekki sóma sinn i að gerast reglulegir félagar í við- komandi félagi.- Þeir eru þannig ómagar á framfæri sins félags. greiða e.t.v. æfingagjöld en eru fullkomlega óábyrgir í sjálfu félagsstarfinu. Þessu þarf að kippa i lag, og i öllum fjölmennari félögum er nauðsynlegt aö skipa ráð, sem sér um hverja íþrótta- grein undir eftirliti stjórnar. Ef íþróttaiðkendur skiptast hins vegar í marga óábyrga flokka, fer ekki hjá því að sjálft iþrótta- eða ungmennafélagið verður óþekkjanlegt frá hinum klikunum. FYRSTU UMFERÐUNUM I BIKARKEPPNI HSÍ LOKIÐ TVEIMUR umferSum í bikarkeppni Handknattleikssambands islands I meistaraflokki karla er nú að mestu lokið. Aðeins einn leikur i annarri umferðinni er eftir, milli Vals og Víkings, en honum hefur verið frest- að fram I marz, eða fram yfir B- heimsmeistarakeppnina i Austurriki Sjö 1. deildar lið eru því enn með i keppninni og tvö lið úr 2. deild. Úrslit leikja i tveimur fyrstu umferðunum hafa orðið þessi: I. UMFERÐ: Leiknir—Afturelding 23—18 Stjarnan — KA Þór— ÍBK Fylkir ÍA 2. UMFERÐ: KA — Fylkir Haukar — Leiknir Grótta — ÍR Armann — Fram KR — Breiðablik Þróttur— Þór, Akureyri Týr — FH 21 — 25 ÍBK gaf leikinn 22—21 19—14 27—17 24—26 18—21 27— 18 28— 22 17—36 Eftir er leikur Vals og Vikings sem fyrr greinir. Dregið hefur verið um það hvaða lið leika saman i 3. um- ferð og varð niðursstaðan þessi: FH — KA ÍR — Þróttur Fram — KR Haukar — Valur/Vikingur BIKARKEPPNI KVENNA: Þá er fyrstu umferð i bikarkeppni kvenna lokið og urðu úrslit leikja þessi: Fram— Þór Akureyri 20—8 Stjarnan — KR Stjarnan gaf Ármann— ÍBK 15—5 UBK— Haukar 12—17 FH — ÍR 25—15 Þróttur — Vikingur 9—20 Fylkir — Valur Fylkir gaf UMFS— UMFG 9—21 Dregið hefur verið I 2. umferð og leika þá eftirtalin lið saman: Ármann — FH Vikingur — KR UMFG — Valur Haukar— Fram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.