Morgunblaðið - 08.02.1977, Síða 47
1
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1977
47
Eggjum kastað
að sendiráði
Sovétríkjanna
LÖGREGLAN var I gær kvödd að
sovézka sendiráðinu við Garða-
stræti, en þar hafði þá tveimur
eggjum verið kastað að húsinu.
Brotnaði annað eggið á húsinu en
hitt á tröppum þess. Engar
skemmdir urðu á sendiráðs-
byggingunni.
Sovézka sendiráðið gerði lög-
reglunni viðvart um klukkan 17 I
gær. Ekki tökst að hafa uppi á
þeim, sem köstuðu eggjunum en
málið er I rannsókn. Lögreglan
mun hafa auga með sendiráðinu
— að þvf er Morgunblaðinu var
tjáð I gærkveldi.
— Skotnir með
köldu blóði
Framhald af bls. 1.
Rómversk kaþóslka kirkjan hef-
ur harðlega gagnrýnt stjórn hvita
minnihlutans í Rhódesíu og
stefnu hennar. En í desember
myrtu skæruliðar fyrrverandi
biskup, nunnu og prest norðan
við Bulawayo.
Lögreglan telur að þeir sem
stóðu að árásinni hafi verið úr
hreyfingunni ZANU sem er undir
forystu Robert Mugabe. Víðtæk
leit er hafin að skæruliðunum,
sem eru einnig taldir hafa myrt
þrjá óbreytta afríska borgara sem
fundust látnir á laugardag.
— Bretar semja
við Rússa
Framhald af bls. 1.
27 sovézkum togurum, sex austur-
þýzkum og fimm pólskum fiski-
skipum að veiða i lögsögu banda-
lagsins. Aðeins 17 sovézkum, og
fimm austur-þýzkum og pólskum
verður leyft að veiða i einu í nýju
lögsögunni. Kvóti Rússa á þessu
ári er 38.000 lestir en Austur-
Þjóðverja og Pólverja 6.000 lestir
til samans.
Bretar hafa sagt Rússum að
þeir verði að viðurkenna reglur
EBE fyrir miðnætti i kvöld og
kalla togara sina burt úr lögsögu
sinni ella en EBE veitir Rússum
líklega nokkurra daga frest ef
þeir samþykkja reglurnar. Utan-
ríkisráðherrar EBE fjalla um
málið á morgun. Tilboð Rússa er
talið mikilvægt og geta leitt til
viðurkenningar á EBE.
— Kommúnistar
Framhald af bls. 2
bandalagsmenn ekki fleiri tillög-
ur um menn í stjórn og drógu sig i
hlé. Stjórnin er skipuð fjórum
framsóknarmönnum og þremur
sjálfstæðismönnum. Formaður er
Gunnar Kristmundsson, Selfossi,
varaformaður er Hilmar Jónasson
á Hellu, gjaldkeri er Þorsteinn
Bjarnason, Hveragerði, ritari er
Grétar Jónsson á Selfossi og með-
stjórnendur: Tryggvi Magnússon
á Hellu, Birgir Hinriksson, Vik,
og Kjartan Guðjónsson, Eyrar-
bakka. Þingið samþykkti ályktan-
ir, sem síðar verða sendar
blöðum.
Hilmar Jónasson, varaformaður
Alþýðusambands Suðurlands,
kvað augljóst að þessi kosning
væri andsvar við þvi, hvernig
kosningum var háttað á þingi
Alþýðusambands íslands, er
Alþýðubandalagsmenn komu í
veg fyrir að lýðræðissinnar yrðu
kosnir i trúnaðarstöður sem áður
hefur verið. „Kommúnistar skilja
ekkert annað en sin eigin vinnu-
brögð“, sagði Hilmar. „Til átóð að
kjósa stjórnina á breiðum og vin-
samlegum grundvelli, en þegar
kommúnistar koma með einhiiða
framboð og vildu ekki aðra en
Alþýðubandalagsmenn í stjórn,
snerumst við öndverðir við því
svöruðum í sömu mynt með ein-
hliða uppstillingu á móti.“ Hilmar
kvað athyglisverðar ályktanir
hafa verið samþykktar, m.a. í stór-
iðjumálum, sem sambandið telur
að skoða verði niður í kjölinn, en
ekki staðið gegn öllu að óathug-
uðu máli. Þá er einnig áskorun til
ASÍ um að á kjaramálaráðstefnu
þess verði tekið fullt tillit til
héraðssambandanna.
— Carter-stjórn-
in lýsir ugg
Framhald af bls. 1.
sovézk blöð hafa sakað hann um
ólögleg gjaldeyrisviðskipti.
Andófsmenn í Moskvu sögðu L
dag að lögreglan hefði I dag hand-
tekið tvo félaga úr úkraínskum
samtökum sem fylgjast með þvi
hvort mannréttindaákvæði Hels-
inki-sáttmálans séu virt — Mikola
Rudenko, 56 ára gamlan rithöf-
und og leiðtoga samtakanna, og
Olexy Tihky, kennara. Handtök-
urnar eru taldar enn ein sönnun
þess að baráttan gegn pólitisku
andófi í Sovétríkjunum hafi verið
hert.
Talsmaður bandaríska utan-
rikisráðuneytisins, Frederick
Brown, ■ sagði blaðamönnum að
yfirlýsingin hefði verið samin
vegna þess að Ginzburg stæði
framarlega i baráttu fyrir virð-
ingu fyrir mannréttindum og
„virtist hafa verið valinn til að
sæta sérstaklega harðri meðferð".
Fyrir tiu dögum gaf bandariska
utanrikisráðuneytið út yfirlýs-
ingu til stuðnings Andrei Sakhar-
ov. Sovézki sendiherrann, Ana-
toly Dobrynin, dró hana til baka
og Carter forseti sagði að hún
hefði átt að koma frá honum eða
Cyrus Vance utanríkisráðherra.
Þar með var talið að stjórn Cart-
ers hefði dregið í land.
Brown sagði í dag að Vance
hefði samþykkt yfirlýsinguna um
Ginzburg. Á föstuaginn kallaði
Vance Dobrynin sendiherra á
sinn fund til að mótmæla brottvis-
un AP-fréttaritarans George
Krimsky frá Moskvu. Daginn eftir
skipaði bandaríska stjórnin
fréttaritara Tass að fara úr landi
innan viku.
Stjórn Carters hefur lofað að
berjast fyrir skilningi á mannrétt-
indum um allan heim, en ekki
aðeins i kommúnistarikjunum.
Vance hefur sagt að Bandarikja-
menn muni tala af hreinskilni ef
þeir telji það nauðsynlegt. Fyrsta
yfirlýsing Carter-stjórnarinnar
um mannréttindi var gefn út fyrir
hálfum mánuði og var til stuðn-
ings andófsmönnum i Tékkó-
slóvakiu.
— Aðmírál
ætlað starfið
Framhald af bls. 1.
úr okkur að við öfunduðum hann
ekki einu sinni," hafði Powell
eftir forsetanum. Carter var 59.
þegar hann og Turner aðmíráll
útskrifuðust.
Theodore Sorensen, sem for-
setinn tilnefndi fyrst í stöðuna
hjá CIA, hlaut ekki samþykki
öldungadeildarinnar, einn allra
helztu ráðgjafa Carters og dró sig
í hlé vegna andstöðu sem hann
mætti. Hann var gagnrýndur
fyrir reynsluleysi í öryggismálum
og sakaður um að hafa notað
leyniskjöl úr Hvítahúsinu í bók
um Kennedy-árin.
Powell sagði að forsetinn og
nokkrir ráðgjafar hans hefðu rætt
tilnefningu Turners aðmiráls við
þingmenn síðustu tvo til þrjá
daga. Hann kvað það hafa átt sinn
þátt í tilnefningunni að Turner
endurskipulagði námsefni flota-
skólans þau tvö ár sem hann
stjórnaði honum.
Turner hefur meistarastigspróf
i utanríkismálum frá Oxford þaf
sem hann stundaði nám með
Rhodes-styrk einu ári eftir Ioka-
prófið frá Annapolis. Hann hefur
viðtæka reynslu úr flotanum og
' stjórnaði tundurduflaslæðara,
beitiskipi og eldflaugafreigátu.
Hann er kvæntur og á tvö börn.
— Reykeitrun
Framhald af bls. 2
sem þarna bar að og stóru tæki,
sem komið var með heiman frá
Garðsvík. Þau dugðu illa, svo að
gripið var til þess ráðs að moka
snjó án afiáts á eldinn. Með því
móti var hægt að halda honum
nokkuð í skefjum þangað til
slökkvibíll frá Akureyri kom um
45 mínútum eftir að eldsins varð
vart. Boðum hafði verið komið til
slökkviliðsins um talstöð hóp-
ferðabílsins. Mikill skafrenning-
ur og ófærð á Svalbarðsstrandar-
vegi töfðu ferðir slökkvibilsins og
sjúkrabils, sem einnig var sendur
á staðinn.
Reykeitrunareinkenna varð
vart hjá fjórum unglingum og
voru þeir sendir með sjúkrabíln-
um til Akureyrar og lagðir inn i
Fjórðungssjúkrahúsið. Þeir höfðu
setið í aftasta sæti hópferðabíls-
ins og því orðið síðastir út úr
honum. Einum þessara fjögurra
unglinga varð að gefa súrefni í
sjúkrabílnum á leiðinni til Akur-
eyrar.
Sumum öðrum i hópi farþega
varð mikið um atburðinn og þeir
voru lengi að jafna sig. Meðan
beðið var aðstoðar var farið með
unglingana heim i Sveinbjarnar-
gerði og hlynnt að þeim þar, en
allir komust heim í nótt eða undir
morguninn.
Líðan þeirra, sem taldir voru
tjafa orðið fyrir reykeitruninni,
vár allgóð í dag og fengu þeir allir
að fara heim af sjúkrahúsinu.
_______— Sv.P.
— Reykjavíkur-
borg
Framhald af bls. 15
sem gert er til þess að bæta aðstöðu
iþróttafólks og almennings til
iþróttahalds Ég vona að við
athugun sjáist að þetta sjónarmið er
haft i huga við niðurröðun verkefna
— Áður en skilist er við fram-
kvæmdir við iþróttamannvirki f
borginni verður að geta þess.að við
skólana er jafnan verið að byggja
nýja iþróttasali eða sundlaugar Það
sem verður á dagskrá á þessu ári, er
sundlaug við Fjölbrautaskólann.
Þetta er mannvirki, sem að stærð og
afkastagetu er svipað og sundlaug
Vesturbæjar Þá verður emnig unnið
að byggingu iþróttasalar við Hliða
skóla Til þessara framkvæmda er
áætlað að verja kr 80 0 millj. úr
borgarsjóði
— Að lokum, Stefan, eru Reykvik-
ingar áhugasamir um iþróttir
—Já, það held ég sé alveg
öruggt Öll iþróttahús eru nýtt frá
morgni til kl. 23.00 á kvöldin, svo
og á laugardögum og sunnudögum
og komast færri að en vilja Sund-
staðir eru mjög vel sóttir og áhugi
fyrir skiðaferðum er mjög mikill .
Starf iþróttafélaganna hefur marg-
faldast á síðustu árum, skilningur
almennings á gildi iþrótta og útiveru
hefur vaxið og þess vegna stækkar
alltaf sá hópur, sem stundar iþróttir í
einhverri mynd. —E.Pá
— Fékk meira
Framhald af bls. 3
t.d. gil sem þarf að fara yfir. Ég
hef heldur aldrei farið þessa
leið að vetrarlagi og það er allt
annað að sjá land að vetri til en
sumri, svo að maður verður að
taka tillit til þess."
Bæði Ingibjörg og Sigurþór
voru vel undir ferðina búin.
„Ég er ávallt i skinnfötum í
ferðum af þessu tagi, á galla úr
gruskinni, sokka og eins
vettlinga, en auðvitað eru ullar-
nærföt fyrsta skilyrðið. Dóttir
mín var að vísu ekki eins vel
búin ög ég, en í ullarfötum
innan klæða, tvennum buxum
og vindþéttum ytri fatnaði. Við
vorum hins vegar e.t.v. ekki
sem bezt klædd til svona langr-
ar göngu en þó kom aldrei til
greina að fækka fötum eins og
veðrið var,“ sagði Sigurþór að
endingu.
— Varnir
Framhald af bls.46
sem felur I sér mesta hættu Þeir
álíta, að þegar bandarískt herlið sé
einu sinni komið vestur fyrir Atlants-
haf þá verði Vestur-Evrópa um leið
komin á vald Sovétmanna, sem
muni skjótlega snúa aftur með her-
sveitir sinar
Ýmsir evrópskir stjórnmálamenn,
sem á næstu árum geta komizt til
valda í löndum sínum innan fárra
ára, eins og t.d. Francois Mitterand,
halda þvi fram í einkaviðræðum að
jafnhliða samdráttur Varsjárbanda-
lagsins og Atlantshafsbandalagsins
á hernaðarsviðinu sé sú leið, sem
ákjósanlegust sé Þetta hefur verið
einn helzti þátturinn i utanríkis-
stefnu Sovétmanna allt frá því að
Molotov lýsti henni fyrstur yfir í
upphafi sjötta áratugarins. Flestir
hernaðarsérfræðingar, sem ég hef
átt tal við, eru þeirrar skoðunar, að
hvorki brottkvaðning sovézks og
bandarísks herliðs né útrýming
kjarnorkuvopna í Evrópu sé trygging
fyrir stöðugleika til frambúðar í
staðinn mæla þeir með því að NATO
— og þó einkum Bandarikjamenn
— þrýsti á Sovétrikin að draga úr
hinni ógnvekjandi vopnaframleiðslu
og takmarka þannig um leið
hernaðarmátt sinn að þvi er tekur til
venjulegra vopna Það sé hið “eina
„détente", sem vert sé að sækjast
eftir
— KGB
Framhald af bls. 29
svo mjög versnað er uppvíst
varð um njósnamálið i Noregi.
Þá kom fiskimálaráðherra
Sovétríkjanna Alexander
Ishkov, ekki til viðræðna um
hafréttarmál í Osló í siðustu
viku eins og ráð hafði verið
fyrir gert. Er ástæðan fyrir því
að hann hefur ekki komið
þangað sögð vera sjúkleiki
Sovétmannsins, en á sama
tima hefur hann sést á ferli og
við störf í Moskvu.
— Snjóflóð
Framhald af bls. 3
árum féll þarna skriða, sem tók
með sér skreiðarhjall og flutti
niður I fjöru.
Eins og áður segir er titt að
snjóflóð falli í önundarfirði. Árið
1934, í októbermánuði, féll
snjóflóð við Búðanes, en þá létust
tveir Flateyringar. 11 og 12.
febrúar í fyrra féllu snjóflóð á
Selabólsurð, nokkru utar en vant
var. Lenti flóðið á eyðibýlinu
Selakirkjubóli og braut húsin þar.
Háspennulinan skemmdist þá
ekki, því að snjóflóðarplógur var
til varnar.
— Skólabörn
Framhald af bls. 20
kæmist ekki á ákvörðunarstað
þar sem hermenn mundu drepa
það,“ sagði sr. Sommerreisser.
Margir foreldranna kvörtuðu
yfir þvi að þau hefðu fengið
alltof litinn tima til að tala við
börnin. Flest barnanna, sem
fóru heim, voru stúlkur á aldr-
inum 13 til 16 ára. Ein þeirra
sagði að skæruliðarnir, sem
komu til Manama-skólans, væru
enn i Rhódesiu og að hún vildi
ekki fara aftur til Manama af
ótta við þá.
Talsmaður Rhódesiuútvarps-
ins sagði I dag að þrír sjón-
varpsmenn þess sem voru tekn-
ir fastir í Botswana þegar þeir
fylgdust með ferð foreldranna
yrðu leiddir fyrir rétt þar á
morgun.
— Lýðræðis-
sinnar...
Framhald af bls. 37
18 mánaða fjarveru. Hins vegar eru
fréttamenn New York Times, Reuter,
AP og annarra fréttastofnana sjaldan
ónáðaðir nú.
Togstreita?
Engu að síður vekur þrasið í sambandi
við Indian Express og The Statesman
mann til umhugsunar. Getur verið að
þessar aðgerðir endurspegli togstreitu
meðal hinna sjálfyfirlýstu hugsjóna-
manna í krangum forsætisráðherrann?
Eru meðal samstarfsmanna hennar
menn, sem hafa látið eitrið ná yfir-
tökunum yfir skynsemi og virðingu,
menn sem eru svo gegnsýrðir af valda-
græðgi, að þeir verða að ná yfirtökum á
öllum málum í landinu, þar á meðal
tveimur heldur bragðlitlum dagblöðum,
sem aðeins brot af 650 milljónum
Indverja lesa? Það hlýtur að vera, þvi að
svona ruddaskapur getur ekki verið
þaulhugsaður af frú Indiru, hann hlýtur
að vera afleiðing taugaóstyrks meðal ein-
stakra manna innan stjórnarinnar.
Eitt vandamálið er, að margir af ráða-
mönnum landsins líta á gagnrýni sem
undirróðursstarfsemi, sem stjórnað sé
erlendis frá. Sagan rennir stoðum undir
slíkan grun að vissu marki, en þvi miður
veldur hann því að ýmsir nánustu
samstarfsmenn forsætisráðherrans láta
hafa eftir sér ummæli, sem varpa skugga
á forsætisráðherrann og það, sem hún er
að vinna að, því að þau hafa orðið til þess
að hún he^ur einangrað sig frá öllum
öflum utan Kongressflokksins og jafnvel
ákveðnum aðilum innan hans.
Mohammes Yunus, sem er einn af
nánustu rágjöfum forsætisráðherrans,
er frægur ræðumaður. Hann sagði við
mig i samtali: „I sumum fylkjum Banda-
ríkjanna hafa konur enn ekki kösninga-
rétt, Bretar héldu ekki kosningar i 11 ár
meðan á striðinu stóð. Ég talaði nýlega
við Iranskeisara og spurði hann hvað
þeir gerðu við fanga sína og hann
svaraði við höfum enga fanga, við
skjótum þá.“
Hr. Yunus er í Indlandi það sem
Enoch Powell er i Bretlandi og jafnvel
meira, en hann er ekki einhver furðu-
fugl, heldur nánasti samstarfsmaður
forsætisráðherrans fyrir utan son
hennar. Engu að síður bendir ekkert til
þess að frú Indíra, þessi harðgera en
jafnframt viðkvæma kona, stefni að
algeru einræði. Kannski er erfitt að gera
sér grein fyrir hvert takmark hennar er.
Hún gæti hafa sent lögreglumenn til að
loka Indian Exprss í eitt skipti fyrir öll
og það hafa verið haldnir margir úti-
fundir, einkum i Tamil i suðurhluta
landsins, þar sem stjórnin hefur verið
gagnrýnd án þess að nokkuð væri
aðhafst.
Margir áhyggjufullir
Margir Indverjar eru þó áhyggjufullir.
Þeir hafa áhyggjur af því tillitsleysi,
sem sýnt hefur verið í sambandi við
fjölskylduáætlunarherferðina, ekki
hugmyndanni, sem liggur á bak við hana.
Annað áhyggjuefni er félagsskapur
forsætisráðherrans i Nýju Delhi, einkum
þar sem stjórnarskrárbreytingarnar
leiði til þess að einræðiskerfið verði tagl-
tækt ef einhverjir hrifsa völdin af
Indíru, jafnvel þótt Indíra sjálf hafi
enga tilhneigingu til sliks stjórnarfars.
Sumir þingmenn Kongressflokksins
hafa jafnvel hvatt til enn rótækari breyt-
inga. Hvers vegna?
Það kann að vera að í Indlandi muni
aldrei dafna stjórnarfar á borð við það
sem varð í Þriðja ríkinu, ef Indírr. tekst
að gefa þjóðinni þó ekki væri nema
örlitla innsýn inn i Þúsunðárarikið,
innan t.d. 2—3 ára, eins og sk- nsamur
indverskur blaðamaður komst að orði.
Hættan fyrir forsætisráðherrann og
hættan á að frelsi og von inversku
þjóðarinnar fari út um þúfur liggur því í
þeim möguleika að mennirnir, sem hafa
tekið stjórnarskrána í sundur bregðist
og geti ekki komið hugsjónum sínum í
framkvæmd. Aziz sagði: „Við þurfum á
konungi að halda, það myndi gera líf
okkar auðveldara." Það er erfitt að segja
að hann hafi haft rangt fyrir sér, en
menn verða að hafa vakandi auga með
hirðmönnunum.