Morgunblaðið - 15.02.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
5
Ingólfur
Arnarson
-fyrsti nýsköpunartogarinn
Ný frædslu- og heimildarmynd eftir
Jón Hermannsson frumsýnd í gær
JÓN Hermannsson, kvik-
myndagerðarmaður,
frumsýndi í gær -mynd
sem hann hefur gert um
Ingólf Arnarson fyrsta
nýsköpunartogarann og
fyrsta togara Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur, sem
formlega er sett á laggir-
ar um svipað leyti.
I myndinni sést þegar Ingólf-
ur Arnarson kemur til landsins
og tekið er á móti honum með
viðhöfn í Reykjavíkurhöfn, en
þá mynd tók Oskar Gíslason við
það tækifæri. Siðan er brugðið
upp myndum sem Jón tók sjálf-
ur úr veiðiferð með Ingólfi
Arnarsyni og það sýnt hátt og
lágt milli stafns og skuts. Þá er
sýnt þegar byrjað var að rifa
innan úr togaranum skömmu
áður en honum var siglt utan,
en togarinn var seldur í brota-
járn. Myndinni lýkur á því þeg-
ar hinn nýi Ingólfur Arnarson
kemur siðan til landsins.
Myndin er í senn heimilda- og
fræðslumynd um Ingólf Arnar-
son, því að Jón kveðst leggja
mikla áherzlu á fræðslugildið í
texta myndarinnar og veita
nokkra innsýn í veiðiaðferðir,
eins og þær voru um borð i
síðutogurunum sem nú eru
nánast alveg horfnir af sjónar-
sviðinu. Ingólfur Arnarson var
afar farsælt skip. Samkvæmt
útreikningum Jóns lætur nærri
að hann hafi fiskað 93 þúsund
tonn af fiski þau 27 ár sem
hann var gerður út, og miðað
við núgildandi verðlag er afla-
verðmæti þessa afla um 5
milljarðar króna. Um það leyti
sem togarinn fór i brotajárn
hafði hann að baki um milljónir
sjómílur.
Myndina gerði Jón algjörlega
á eigin kostnað, en hann kvaðst
áætla að hún hefði kostað hann
um 2 milljónir króna fram til
þessa dags. Hann kvaðst enn
sem komið er aðeins hafa eitt
eintak af myndinni milli handa,
en hann vonaðist til að geta selt
hana til einhverra aðila hér
þannig að hann hefði sjálfur
eitthvað upp í kostnaðinn. Hins
vegar kvað Jón það einskæra
tilviljun, að frumsýningu
myndarinnar bæri upp svo
nálægt 30 ára afmæli Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur, sem er um
næstu helgi, þvi að það hefði
ekki verið neitt takmark af
hans hálfu að geta sýnt mynd-
ina um það leyti enda þótt það
væri óneitanlega viðeigandi.
Á myndinni sjást frá vinstri: Gunnar Friðriksson, forseti SVFI,
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason, formað-
ur Alberts, Magnús Erlendsson, forseti bæjarstjórnar, Jónatan Guð-
jónsson, formaður svd. Bjarna Pálssonar, og Hannes Þ. Hafstein,
framkvæmdastjóri SVFl:
Siglufjördur:
Tunnuverksmiðja
ríkisins seld
Húseiningum hf.?
LAGT hefur verið fram frumvarp
í neðri deild Alþingis um heimild
til að selja Húseiningum hf. hús-
næði Tunnuverksmiðja rlkisins á
Siglufirði. Flutningsmenn eru
Pálmi Jónsson, Páll Pétursson og
Eyjólfur Konráð Jónsson.
í greinargerð með frumvarpitiu
kemur fram, að stjórn Húseininga
í Siglufirði hefui eir.róma óskað
eftir því að aflað verði heimildar
Alþingis fyrir ríkisstjórnina til
þess að selja fyrirtækinu húsnæði
Tunnuverksmiðja rikisins þar í
bænum.
Fram kemur, að Húseiningar
hf. reka starfsemi sina i þessu
húsnæði og hafa það á leigu til
þeirra nota. Fyrirtækið sé i örum
.vexti, en búi, eins og framan-
greint beri með sér, við öryggis-
leysi hvað húsnæði snerti, auk
þess sem þetta öryggisieysi tor-
veldi mjög eðlilega fyrirgreiðslu
fjárfestingarlánasjóða lil fyrir-
tækisins. Tekið er fram af hálfu
flutningsmanna, að frumvarp
þetta sé flutt i samráði við og með
samþykki Ragnars Arnalds, er á
sæti i efri deild.
Stórgjöf Seltjarnarnessbæjar
til slysavama- og björgunarstarfe
BÆJARSTJÓRN Seltjarn-
arnesskaupstaðar sam-
þvkkti á fundi sínum hinn
9. febrúar sl. með sam-
hljóða atkvæðum bæjar-
stjórnarfulltrúa að styrkja
slysavarnadeildina Bjarna
Pálsson og björgunarsveit-
ina Albert með framlagi að
fjárhæð 1.550.000, að því er
segir í fréttatilkynningu
frá Slysavarnafélagi ís-
lands.
Slysavarnadeildin Bjarni
Pálsson var stofnuð árið
1968 og skömmu síðar tók
björgunarsveitin Albert til
starfa innan deildarinnar,
sem þegar í upphafi fékk
aðstöðu fyrir starfsemi
sína í Áhaldahúsi bæjarins.
Þar er geymsla fyrir tæki
og herbergi til fundarhalda
og annarrar félagslegrar
starfsemi.
Næstu daga mun bjsv.
Albert taka í notkun mjög
fuilkomna björgunar- og
sjúkrabifreið en við fjár-
öflun þeirra kaupa hafa fé-
lagar björgunarsveitarinn-
ar notið góðs liðsinnis
fjölda stuðningsmanna á
Seltjarnarnesi.
t fréttatilkynningu SVFÍ
er borið fram þakklæti til
bæjarstjórnar Seltjarnar-
ness fyrir þetta höfðing-
lega framlag til slysavarna-
og björgunarstarfs, svo og
er öllum íbúum bæjarins
þakkað fyrir góðar móttök-
ur þá er félagar úr slysa-
varnadeildinni og björgun-
arsveitinni hafa leitað lið-
sinnis þeirra.
HRIFANDI OG ÞOKKAFULL
MEIRA AUGNAYNDI GETUR
VORTÍZKAN EKKI ORÐIÐ
— og allt getið þér sniðið og saumað sjálfar —
neue
Tizkufatnaður, sem töfrar:
Vortizkan í „NEUE MQDE".
Léttir og þægilegir kjólar, nýstár-
legur og sportlegur stíll, nýtízku-
leg pils og blússur, heillandi
sparikjólar og smekkleg gallaföt
— allt hið fegursta, sem vorið
hefir að bjóða, og fullnægír
itrustu tizkukröfum yðar. Með
aðstoð „NEUE MODE" mun yð-
ur reynast leikur einn að sníða og
sauma sjálfar — eini vandinn er
að velja úr hinum 87 hárná-
kvæmu sniðum. Fyrir byrjendur:
Tvær myndskreyttar sniðaarkir,
sérlega handhægar og greinileg-
ar, til leiðbeininga um sauma-
skap.
oieneue
mode^
Febrúarhefti „NEUE MODE"
fæst nú á öllum útsölustöðum