Morgunblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
| Mál og myntíir: Ágúst I. Jónsson
[ og Friðþjófur Helgason
Að sögn Sigurðar Ólafssonar
verða um 170 manns á launaskrá
sjúkrahússins eftir stækkunina
og ef litið er á sjúkrahúsið sem
sjálfstætt fyrirtæki, þá er það eitt
hið stærsta á Akranesi. Daggjöld
á sjúkrahúsinu á Akranesi voru
11.500 á síðasta ári og er það með
þvi lægsta sem gerist á iandinu.
í heilsugæzlustöðinni starfa 2
læknar og auk Akraness sinna
þeir einnig hreppunum sunnan
Heiðar. Leirár- og Melahrepp,
Skilamannahrepp, Hvalfjarðar-
strandahrepp og Innri Akranes-
hrepp.
Um 5200 manns búa á þessu
svæði og sagði Reynir Þorsteins-
son okkur, að það væri drjúgt
starf fyrir tvo menn að sinna öll-
um þessum hópi, en Reynir sagði
að það gerði allt starfið mun auð-
veldara að hafa heilsugæzlustöð-
ina inni á spítalanum. öll aðstaða
væri þá á staðnum, auk þess sem
læknar sjúkrahússins sinntu
einnig hluta þessa fólks enn að
nokkru leyti.
Nú er bygging dvalarheimilis
fyrir aldraða langt komin á Höfða
á Akranesi og sagðist Magnús
Oddsson vonast til að hluti þeirr-
ar byggingar yrði væntanlega tek-
inn í notkun í lok ársins. Er sú
stofnun sameign hreppanna sunn-
an Heiðar ásamt Akranesbæ.
Nýlega var tekin í notkun svart-
oliukyndistöð, sem þjónar sjúkra-
húsinu og iþróttahúsinu og einnig
barnaskólanum innan tiðar. Sagði
Magnús að þessi kyndistöð myndi
spara bæjarfélaginu 3—4 milljón-
ir á ári.
Stoltir af íþróttahúsinn
og bókasafninn
Frá sjúkrahúsinu lá leiðin i
iþróttahúsið á Akranesi og i bóka-
safnið, en af báðum þessum hús-
um sagði Magnús að Akurnesing-
ar væru mjög stoltir. Iþróttahúsið
er eitt hið glæsilegasta hér á landi
og svo sannarlega var þörf'á bygg-
ingu þess, þar sem það er fullnýtt
frá morgni til kvölds — jafnt
virka daga sem helga. íþróttahús-
ið er það stórt að þar geta farið
fram landsleikir i handknattleik,
en aðeins á þremur öðrum stöðum
á landinu eru íþróttahús það stór
að þar eru löglegir handknatt-
leiksvellir fyrir landsleiki, þ.e.
22x44 m. Þessir staðir eru Reykja-
vik, Hafnarfjörur og nú sfðast
Vestmannaeyjar.
Ætlunin er að setja upp tjöld i
sal íþróttahússins á Akranesi,
þannig að salnum verði skipt f
fjóra hluta og er það hugsað til að
nýta salinn sem ailra bezt í leik-
Framhald á bls 30
Úr nýjasta hverfinu, glæsileg einbýlishús og ollumöl á götum.
Unga fólkið tók þvf fegins hendi þegar barnadeild var opnuð f
bókasafninu og þar er setið heilu dagana við lestur skemmtilegra
bóka.
Fyrstu sjúklingarnir á hinni nýju lyflæknisdeild við sjúkrahósið á
Akranesi.
Kaupendur mótmæla harð-
lega verdi á úrgangs-
loðnu frá frystihúsunum
VERÐ á úrgangsloðnu frá frvsti-
húsum var ákveðið á fundi yfir-
nefndar verðlagsráðs sjávarút-
vegsins I fyrradag, og á verðið að
vera það sama og verð á loðnu til
bræðslu samkvæmt tilkynningu
verðlagsráðsins frá þvf f janúar
s.l, en f vetur er verð hvers báts-
farms ákveðið eftir vissum regl-
um.
I frétt, sem Morgunblaðinu,
barst í gær, frá Verðlagsráði sjáv-
arútvegsins, segir, að við afhend-
ingu úrgangsloðnu frá frystihús-
um skuli gæta þess vandlega, að
hráefnið, sem til verksmiðju
gangi, sé sjó- og vatnsfrítt svo sem
frekast sé kostur, og ekki blandað
öðru efni en loðnu. Þá segir, að sé
um óeðlilegt vatnsmagn- eða
magn annars efnis en loðnu að
ræða í innvegnu magni úrgans- |
loðnu, skuli vigtarmaður geta
þess á vigtarnótu og mæla til frá-
dráttar vegnu magni, allt að 15%.
Mat þetta gildir, sem afhent
magn. Rísi ágreiningur um þetta
magn á að kveðja til matsmenn
frá Framleiðslueftirliti sjávaraf-
urða og gildir úrskurður hans.
Verðákvörðun þessi var tekin
af oddamanni og fulltrúum
seljenda i yfirnefndinni gegn at-
kvæðum fulltrúa kaupenda, en í
nefndinni áttu sæti: Ólafur Da-
víðsson, sem var oddamaður,
Ingólfur Ingólfsson og Páll Guð-
mundsson af hálfu seljenda og
Guðmundur Kr. Jónsson og Jón
Reynir Magnússon af hálfu kaup-
enda.
Fulltrúar kaupenda gerðu svo-
fellda grein fyrir atkvæði sinu:
„Kaupendur láta bóka, að þeir
átelja harðlea þessa verðákvörð-
un þar sem ekkert tillit er tekið
til þess, að úrgangsloðna frá
frystihúsum er sannarlega af-
urðarýrara hráefni en loðna, sem
landað er beint úr bát til verk-
smiöju, þar sem afurðamesta
loðnan (hrygnan) er skilin frá til
frystingar.
Þá rýrir meðferð á loðnunni i
frystihúsi mjög gildi hennar til
bræðslu, minnkar afköst verk-
smiðjanna og hækkar vinnslu-
kostnað þeirra. Þá benda kaup-
endur einnig á, að mjög takmark-
aður fjöldi verksmiðja tekur við
megin magninu af úrgangsloðn-
unni og mismunar það afkomu
verksmiðjanna meira en hægt er
að sætta sig við.“
Ágúst Blöndal:
Ekki rétt ad dísilvélarnar
í Neskaupstad séu lélegar
VEGNA fréttar I Mbl. 27. janúar
frá fréttaritara Mbl. I Neskaup-
stað langar mig að koma á fram-
færi nokkrum athugasemdum.
Fréttaritari segir m.a.: Fólk hér
um slóðir gæti skilið bilanir á
línum ef um slæmt veður væri að
ræða, en svo hefur ekki verið hér
siðustu daga. Staðreyndin sú að ef
veðurhæð fer yfir 5 vindstig og
einhver bleytuhrið fer allt i
handaskolum, sama hvort það er
rafmagn, útvarp eða sjónvarp.
Starfsmenn Rarik þora ekki að
keyra á fullu álagi vegna þess
o.sv.fr.
Rétt er það, að veður hér á
Norðfirði hafa ekki verið slæm
meðan á þessum truflunum hefur
staðið, enda engar raflínur bilað
innanfjarðar. Fréttaritari hefði
átt að leita sér upplýsinga hjá
þeim, sem fóru að leita að og gera
við bilanir, hvernig veðrið var
þegar komið var upp á fjöll og
heiðar þar sem bilariirnar urðu.
Hann ætti líka að vera minnugur
þess að það þarf enga sérstaka
veðurhæð til þess að snjóflóð
falli, en þau ollu þvi i tvö skipti af
þremur, sem skammta þurfti raf-
magn í Neskaupstað.
Varðandi keyrslu dísilvéla í
Neskaupstað, er það alrangt hjá
fréttaritara að vélarnar séu svo
lélegar að vélgæzlumenn Rarik
þori ekki að keyra þær á fullu
álagi vegna hræðslu um að þær
hrynji. Staðreyndin er sú, að
þurft hefur að draga úr álagi
einnar vélar af þremur, um 200
kw, sennilega vegna óhreininda i
forþjöppu, en þær er ekki auðvelt
að hreinsa á meðan á loðnuvertíð
stendur, þegar helzt ekki má
stöðva vélarnar, svo ekki hljótist
vandræði af. Vil ég svo sem les-
andi og áskrifandi Mbl. vona að
fréttaritari þess afli sér áreiðan-
legri upplýsinga um þær fréttir
sem hann sendir blaðinu fram-
vegis.
Ágúst Blöndal
utog
suður um helgina
Flugfélag íslands býður upp á
sérstakar helgarferðir allan veturinn
fram undir páska: Ferðina og dvöl á
góðum gististað á hagstæðu verði.
Út á land, til dæmis í Sólarkaffið
fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár-
króki eða þorrablót fyrir austan, til
keppni í skák eða í heimsókn til
kunningja. Víða er hægt að fara á
skíði.
Suður til Reykjavíkur vilja flestir
fara öðru hverju. Nú er það hægt
fyrir hóílegt verð. Þar geta allir
fundið eitthvað við sitt.hæfi til að
gera ferðina ánægjulega. Margir hafa
notað helgarferðirnar og kunnað vel
að meta.
Gerið skammdegið skemmtilegt!
Leitið upplýsinga hjá skrifstofum
og umboðum um land allt.
FLUGFÉLAGISLANDS
INNANIANDSFLUG