Morgunblaðið - 15.02.1977, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1977
m 1976 VAR BEZTA FRJALSIÞROTTA-
ÁRIÐ 1976 verður að teljast mjög hagstætt ár I fslenzkum frjálsíþrótt-
um. Sjaldan hafa verið sett eins mörg ný lslandsmet f flokki
fullorðinna eins og þá, og árangurinn var yfirleitt jafnbetri en áður.
Má vel vera að Óiympfuleikarnir f Montreal hafi haft sitt að segja, en
allir beztu frjálsíþróttamennirnir stefndu vitanlega að þátttöku f
þeim. Fimm frjálsfþróttamenn voru svo sendir til leikanna, þeir
Bjarni Stefánsson, Elfas Sveinsson, Óskar Jakobsson, Ágúst Ásgeirs-
son og Hreinn Halldórsson, auk tveggja stúlkna Þórdfsar Gfsladóttur
og Lilju Guðmundsdóttur. Þegar á hólminn kom voru þessir fþrótta-
menn nokkuð frá sfnu bezta, nema þau Ágúst og Lilja sem stórbættu
Islandsmetin f þeim greinum sem
Hér á eftir er birt afrekaskrá
vikið nokkrum orðum að hverjum
SPRETTHLAUP
Vilmundur Vilhjálmsson náði
langbeztum árangri í sprett-
hlaupum á árinu, og vann ágæt
afrek. Hæst ber vitanlega met-
jöfnun hans í 200 metra hlaupinu
en hann hljóp það á 21,3 sek.
Metið með Vilmundi eiga þeir
Haukur Clausen og Hilmar Þor-
björnsson og er afrek Hauks það
elzta sem er í efsta sæti á islenzku
afrekaskránni frá upphafi.
Vilmundur kom hins vegar ekki
upp fyrr en komið var fram undir
haust, en afrek hans sýna að hann
á aó ráða við íslandsmetin, senni-
lega í öllum spretthlaupunum,
þegr næsta sumar. Ef til vill
verður þó met Bjarna í 400 metra
hlaupinu nokkuð erfitt viðfangs
fyrir Vilmund, þar sem hann mun
æfa í vetur með styttri hlaup í
huga. Árangur Vilmundar í 100
og 400 metra hlaupi er jafnframt
næst bezti árangur íslendings í
þeim greinum frá upphafi.
MILLIVEGA-
LENGDAIILAUP
Jón Diðriksson náði beztum
tíma í 800 metra hlaupi, 1:52,8
mín., sem teljast verður bæri-
legur árangur. En víst er að Jón á
að geta miklu betur i þessu
hlaupi, og jafnvel ráða við ís-
landsetið þegar næsta sumar. i
1500 metra hlaupinu tvíbætti svo
Ágúst Ásgeirsson met það sem
Svavar heitinn Markússon setti á
Ólympíuleikunum í Róm árið
1960, en það var 3:47,1 mín. Er
árangur Ágústs, 3:45,5 mín., mjög
að nálgast alþjóðlegan mæli-
kvarða, og má líklegt teljast að
hann geti bætt þetta afrek sitt
næsta sumar. Reyndar æfði Ágúst
erlendis allan s.l. vetur, og verður
þvi fróðlegt að sjá hvort fram-
Jón Diðriksson — beztur í
800 metra hlaupi. Er í mik-
illi framför og ofarlega á
blaði í mörgum greinum.
þau kepptu I.
ársins 1976 f karlagreinum og skal
greinaflokki fyrir sig.
farirnar verða eins miklar hjá
honum næsta sumar, þegar hann i
vetur hefur æft hérlendis.
i heild má segja að bjart sé
framundan í millivegalengda-
hlaupunum, eir það eru einmitt
þær greinar sem jafnan setja
mestan svip á frjálsiþróttamót.
Auk þeirra Ágústs og Jóns eru
margir hlauparar sem eru i
mikilli framför og nægir þar að
nefna Gunnar Pál Jóakimsson,
ÍR-ing, og FH-ingana Sigurð P.
Sigmundsson, Einar Guðmunds-
son og Gunnar Sigurðsson.
LANGHLAUP
Sigfús Jónsson setti nýtt is-
landsmet í 10.000 metra hlaupi
sem fram fór í Sjotsi 12. mai og
hljóp þa á 30:10,0 min. Eftir þetta
ágæta afrek svo snemmá sumars,
áttu flestir von á því að Sigfús
myndi bæta met sitt í 5000 metra
hlaupinu og sigrast á 30 min.
takmarkinu í 10.000 metra hlaup-
inu. En einhvern veginn náði Sig-
fús sér ekki vel á strik það sem
eftir lifði sumars og bætti ekki
árangur sinn. Auk mets Sigfúsar í
10.000 metra hlaupi setti Ágúst
Ásgeirsson nýtt islandsmet í 2
mílna hlaupi á móti i Gateshead
29. maí og Högni Óskarsson bætti
eigið met í maraþonhlaupi i
2:50,56 klst. i keppni sem fram fór
i Rochester í Bandaríkjunum 16.
október.
GRINDAHLAUPIN
Árangur í grindahlaupunum
var heldur slakur s.l. sumar, eins
og svo oft áður. „Gamli maður-
inn“, Valbjörn Þorláksson, var
nánast ósigrandi í 110 metra
grindahlaupi og sennilega myndi
enginn jafnaldri hans geta
hlaupið á 15,0 sek. En ungu
mennirnir eru nokkuð langt á
Jón S. Þórðarson — fjöl-
hæfur fþróttamaður. Náði
bezta árangri ársins f 400
metra grindahlaupi.
Elías Sveinsson — beztur í
hástökki, tugþraut og
stangarstökki, en var nokk-
uð frá sínu bezta.
Guðlaugur Þorsteinss. ÍR 23,7
Óskar Thorarensen, ÍR 23,8
Hjörtur Glslason, KA 23.9
FriSjón Bjarnason, UMSB 24.0
Gunnar Þ. Sigurðss. FH 24,1
Emil Grlmsson, HSÞ 24,1
Jón Benónýss. HSÞ 24.1
Ingi B. Albertss. Val 24,1
400 METRA HLAUP sek
Vilmundur Vilhjálmss. KR 47.3
Bjami Stefínsson KR 47,8
Stefán Hallgrlmss. KR 50,3
ASalsteinn Bernharðss. UMSE 50,4
SigurSur Sigurðss. Á 50,5
Jakob Sigurólas. HSÞ 51,2
Elias Sveinsson KR 51,5
Jón S. ÞórSars. ÍR 51.5
Þorvaldur Þórss. UMSS 51.6
Jón Diðriksson UMSB 51,6
Gunnar Þ. Sigurðss. FH 51,6
Gunnar P. Jóakimss. ÍR 51,8
Einar P. GuSmundss. FH 52.0
Björn Blöndal KR 53,4
FriSrik Þ. Óskarss. ÍR 53.4
Jón Hermannsson Á 54,0
Óskar Thorarensen ÍR 54,3
SumarliSi Óskarss. ÍR 54,3
Ólafur Óskarss. Á 54,4
Þorgeir Óskarss. ÍR 54.4
800 METRA HLAUP Min.
Jón DiSrikss. UMSB 1:52.8
Ágúst Ásgeirss. ÍR 1:53.6
Vilmundur Vilhjálmsson I langstökki. Vilmundur var bezti sprett-
hlaupari landsins á s.l. keppnistimabili og jafnaði tslandsmetið í 200
metra hlaupi.
eftir. Helzt má binda vonir við
Jón Sævar Þórðarson sem hljóp
s.l. sumar á 15,5 sek., en hann
náði einnig bezta ársafrekinu í
400 metra grindahlaupi 55,7 sek.
Þar náði kornungur piltur úr
Skagafirði næst bezta tímanum,
55,9 sek., og má mikið vera ef
hann á ekki eftir að láta verulega
að sér kveða innan tíðar.
HINDRUNARHLAUP
Ágúst Ásgeirsson bætti 15 ára
met Kristleifs Guðbjörnssonar i
þessari grein úr 8:56,4 min i
8:54,0 mín. Má segja hið sama um
hindrunarhlaupið og 1500 metra
hlaupið hjá Ágústi, — hann
nálgast óðfluga það að verða á
alþjóðlegan mælikvarða í þessari
hlaupagrein. En Ágúst var líka sá
eini sem eitthvað kvað að í þessari
grein hérlendis s.l. keppnistíma-
bil, svo sem sjá má af því að næst
bezti maður var með tímann
9:31,2 mín. Var það Jón Diðriks-
son, sem skipar sér samt með því i
hóp beztu hindrunarhlaupara á
íslandi frá upphafi.
STÖKKIN
Stökkin voru þær greinar sem
árangur var hvað slakastur i s.l.
sumar. Eini stökkvarinn sem
vænta mátti að léti verulega að
sér kveða, Friðrik Þór Óskarsson,
var meira og minna meiddur nær
allt keppnistímabilið, og voru það
mikil vonbrigði, þar sem Friðrik
Þór hafði búið sig undir keppnis-
tímabilið af mikilli kostgæfni.
Friðrik náði þó langbeztum
árangri í langstökki og þrlstökki.
S.l. sumar stökk enginn hástökkv-
ari yfir 2 metra, og stangarstökkið
var einnig mjög lélegt a.m.k. ef
miðað er við það sem gengur og
gerist hjá öðrum þjóðum í þessari
grein.
KÖSTIN
Eins og svo oft áður var
árangur í kastgreinunum mjög
góður og kúluvarp Hreins
Ííalldórssonar, 20,24 méirSL t-d.
frábært afrek. Eru það örugglega
ekki margar þjóðir sem geta stát-
að af því að eiga þrjá kúluvarpara
sem kasta lengra en sautján og
hálfan metra og þar af einn vel
yfir 20 metra. Hreinn þríbætti
íslandsmet sitt í kúluvarpi s.l.
sumar, fyrst í 19,53 m., síðan í
19,97 m og loks í 20,24 metra.
Skortir Hrein nú aðeins herzlu-
muninn að komast í hóp allra
beztu kúluvarpara heimsins.
Erlendur Valdimarsson vann
mjög gott afrek í kringlukasti er
hann kastaði 62,00 metra, en
Erlendur átti við nokkur meiðsli
að striða fyrri part sumars og var
komið fram undir haust er hann
náði sér verulega vel á strik. Hið
sama má segja um kringlukastið
og kúluvarpið — það eru ekki
margar þjóðir sem eiga fjóra
kringlukastara sem kasta 52
metra og lengra.
Óskar Jakobsson setti svo
íslandsmet í spjótkasti er hann
kastaði 75,86 metra snemma
sumars, en eftir það náði Óskar
sér aldrei verulega vel á strik.
Sleggjukastsárangur Erlends
Valdimarssonar, 58,42 metrar, er
lika mjög frambærilegur árangur,
en sleggjukastið er sú grein
frjálsra íþrótta sem er hálfgerð
hornreka á íþróttamótum hér-
lendis, sennilega vegna þeirra
skemmda sem sleggjan veldur
þegar henni er kastað á grasvelli.
100 METRA HLAUP
Vilmundur Vilhjálmss. KR 10,4
Sigurður Sigurðsson, Á 10,8
Magnús Jónasson, Á 10.8
Bjarni Stefánsson, KR 10.9
Björn Blöndal KR 11.0
Angantýr Jónasson. HVÍ 11
Jón Þ. Sverriss. Aftureld. 11,2
Aðalsteinn Bernharðss. UMSE 11.2
Friðrik. Þ. Oskarsson, ÍR 11,2
Eltas Sveinsson, KR 11.3
Jón Benónýsson, HSÞ 11,3
Jakob Sigurólason, HSÞ 11,3
Jón S. Þórðarson, ÍR 11,5
Stefin Garðarsson, UÍA 11.5
Hilmar Pálsson, HVÍ 11,5
Þorvaldur Þórsson. UMSS 11.5
Haukur Sveinsson.UBK 11,6
Gisii Pálsson, UMSE 11,6
Sumarliði Óskarss. ÍR 11.6
200 METRA HLAUP:
Vilmundur Vilhjálmss. KR 21.3
Sigurður Sigurðss. Á 21,8
Bjarni Stefánsson, KR 22,2
A&lSlninn Bernharðss. UMSE 22,7
Magnús Jónasson, n 22.9
Eltas Sveinsson, KR 23,1
Björn Blöndal. KR 23.1
Jakob Sigurólason. HSÞ 23,1
Jón S. Þórðarson. ÍR 23,2
Stefán Hallgrtmsson.KR 23,3
Angantýr Jónass.. HVÍ 23,4
Stefán Garðarss. UÍA 23.4
Jón Sverriss. Aftureld. 23,6
Sigfús Jónsson — var beztur í
5000 og 10.000 metra hlaupum og
setti íslandsmet I sfðarnefndu
greininni.
Hreinn Halldórsson — vann bezta
afrek frjálslþróttamanns hér-
lendis á sfðasta keppnistfmabili,
en hann kastaði kúlunni 20,24
meTra......