Morgunblaðið - 15.02.1977, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAJJIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
Arsenal-liðið þykir hafa staðið sig vonum framar f vetur og er með f toppbaráttunni þrátt fyrir tap f
leiknum við Manehester City á laugardaginn. Myndin sýnir tvo leikmanna Arsenal f viðureign við Paul
Cheesley, leikmann Bristol City, er lið þessi mættust fyrr f vetur.
Baráttan á toppnum harðnar
MANCHESTER CITY OG IPSWICH UNNU LEIKI SÍNA Á
LAUGARDAGINN OG ERU NÚ STIGI Á EFTIR LIVERPOOL
LJÓST má vera að baráttan um enska meistaratitilinn f knattspyrnu
verður mjög hörð í ár, eins og reyndar svo oft áður. Á laugardaginn
unnu tvö af toppliðunum f 1. deildinni, Manchester City og Ipswich
Town, leiki sfna. en forystuliðið í deildinni Liverpool lék hins vegar
ekki, þar sem völlurinn í Coventry var ónothæfur. Hafa nú Ipswich og
Manchester City aðeins einu stigi minna en Liverpool, og Ipswich
leikið þremur leikjum færra og Manchester City tveimur. Má ætla að
aðalharáttan f vetur verði milli þessara þriggja liða, þótt engan veginn
sé tfmabært að afskrifa lið eins og Aston Villa og jafnvel Manchester
United. Sérfræðingar um málefni ensku knattspyrnunnar virðast þó
að mestu sammála um að slagurinn muni standa milli Liverpool og
Ipswichs og telja að þessi tvö lið leiki nú beztu knattspyrnuna í
Englandi.
Og allar líkur eru einnig á því
að baráttan á botninum við að
halda sæti sínu í 1. deild verði
hörð. Tvö neðstu liðin,
Sunderland og West Ham United,
virðast nú vera að sækja í sig
veðrið á sama tíma og hin gamal-
kunnu lið Derby, Everton og
Tottenham eiga í miklum
erfiðleikum og tapa hverjum
leiknum af öðrum.
Auk leiks Coventry og
Liverpool varð einnig að fresta
leik Newcastle og Middlesbrough
á laugardaginn, en víkjum þá
nánar að þeim leikjum sem fóru
fram:
W.B.A. — Q.P.R. 1 — 1
Gerry Francis sem lék sinn
fyrsta leik á þessu keppnistíma-
bili skoraði fallegt mark á 12.
mínútu leiksins eftir góða send-
ingu frá Don Masson og náði þar
með forystu í leiknum fyrir
Queens Park Rangers, sem yfir-
leitt átti mun meira í þessum leik.
Þannig fékk t.d. Dave Thomas
kjörið tækifæri til þess að auka
muninn, en mistókst illilega þeg-
ar hann var kominn alveg að
markinu. Þegar 13 mínútur voru
eftir tókst John Wiles að jafna
eftir hornspyrnu Johnny Giles.
Áhorfendur að leik þessum voru
18.364.
Derby — Leeds 0—1
Derby byrjaði leik þennan mjög
vel og þegar á fyrstu mínútunum
fengu þeir Kevin Hector og
Charlie George góð marktæki-
færi. Þeir höfðu hins vegar ekki
heppnina með sér í markskotum
sínum. Þegar aðeins 6 mínútur
voru til leiksloka tókst Leeds svo
að skora og tryggja sér sigur í
leiknum. Frankie Gray tók horn-
spyrnu og hrökk knötturinn af
þverslánni út á völlinn þar sem
Joe Jordan kom aðvffandi og
skoraði með skalla. A horfendur
voru 28.350.
Tottenham — Manchester United
1 —3
Leikur þessi þótti hinn
skemmtilegasti, og þá sérstaklega
af hálfu Manchester United-
liðsins. Fyrsta mark leiksins kom
þegar á 3. 'mínútu, en þá varð
vörn Tottenham-liðsins á herfileg
mistök og Lou Macari skoraði
Sammy Mcllroy bætti síðan öðru
marki við á 32. mínútu, en þrem-
ur mínútum síðar bar mjög
fallega útfærð sókn Tottenham-
liðsins árangur og Chris Jones
skoraði. I seinni" hálfleik lék
United-liðið svo eins og sá sem
valdið hefur, en tókst þó ekki að
skora nema einu sinni. Það mark
gerði Pearson á 59. mínútu.
Áhorfendur að leiknum voru
46.946.
West Ham — Stoke 1—0
West-Ham liðið berst nú harðri
baráttu fyrir tilverurétti sinum í
1. deildinni og átti þarna af-
bragðsgóðan leik. 5—0 hefðu ekki
verið ósanngjörn útslit í leik þess-
um, en afbragðsgóð markvarzla
Peters Shiltons í marki Stoke
kom i veg fyrir stórsigur West
Ham. Eina mark leiksins var skor-
að á 8. mínútu og var það Bryan
Robson sem það skoraði, eftir
sendingu frá Alan Taylor. I seinni
hálfleik var dæmd vítaspyrna á
Stoke, en Billy Bonds brást þá
bogalistin og skaut framhjá. Tvi-
vegis í seinni hálfleiknum komust
svo þeir Taylor og Trevor Brook-
ing í dauðafæri við mark Stoke,
en Shilton bjargaði í bæði skiptin
á ævintýralegan hátt. Ahorfendur
voru 20.106.
Manchester City — Arsenal 1—0:
Gifurleg harka og barátta var í
leik þessum, enda mikið i húfi
fyrir báða aðila að ná stigi eða
stigum út úr leiknum. Leikurinn
var með afbrigðum þófkenndur
og langtímunum samana gekk
knötturinn mótherjanna á milli á
miðjum vellinum. Á 53. mínútu
greiddist þó úr flækjunni og átti
Asa Hartford mestan heiðurinn
af því. Hann lék á þrjá leikmenn
Arsenal, sendi síðan knöttinn út á
hægri kantinn þar sem Dennis
Tueart var fyrir og náði góðri
fyrirgjöf fyrir mark Arsenal. Þar
var Joe Royle réttur maður á rétt-
um stað og skoraði örugglega. Var
þetta 16. leikur Manchester City I
röð án taps. Áhorfendur voru
45.368.
Ipswich —Aston Villa 1—0
Þetta var tvímælaalaust leikur
dagsins í Englandi á laugar-
daginn, en bæði þessi lið eru
þekkt fyrir skemmtilega og
baráttumikla knattspyrnu. Leik-
menn Aston Villa tóku þann kost-
inn þegar frá upphafi leiksins að
hætta á sem minnst og var því oft
þröng á þingi á vallarhelmingi
Viila í leiknum. Öðru hvoru átti
Villa svo mjög hættulegar skyndi-
sóknir, en jafnan tókst vörn Ips-
wich að bjarga á síðustu stundu.
Hefur ef til vill ráðið úrslitum að
Villa skorti hinn marksækna leik-
mann sinn Andy Gray í þessum
leik.
Þegar 30 mínútur voru liðnar af
leiknum var dæmd vítaspyrna á
Aston Villa. Kevin Beattie tók
spyrnuna, en skaut framhjá.
Hann bætti mistök sín hins vegar
upp á 43. mínútu er hanri tók
aukaspyrnu og sendi knöttinn
beint á kollinn á Clive Woods sem
skoraði. í seinni hálfleik fékk
Villa svo kjörið tækifæri til þess
að jafna er vörn Ipswich opnaðist
illa vegna mistaka, en John
Deehan skaut þá framhjá. Áhorf-
endur voru 29.750.
Everton — Leicester 1—2
Everton skoraói fyrsta mark
þessa leiks i fyrri hálfleik og var
þar Bob Latchford að verki. Það
dugði Everton þó skammt, þar
sem Leicester hafði öll tök á
leiknum, og áður en lauk höfðu
þeir Steve Earl og Bryan Alder-
son skorað. Er greinilegt að
Everton verður 1 mikilli fallhættu
í vetur, ef liðið bætir ekki veru-
lega ráð sitt á næstunni.
Framhald á bls. 20.
1. DEILD
L Heima Cti Stig
Liverpool 26 11 2 0 33- -7 4 3 6 12- -18 35
Ipswich Town 23 9 4 0 26- -7 5 2 3 <6- -13 34
Manchester City 24 8 4 1 22- —9 4 6 1 14- -7 34
Aston Villa 24 10 1 1 34- -12 4 2 7 12- -17 29
Middlesbrough 24 9 2 2 14—6 2 5 4 8- -15 29
Manchester United 24 6 3 3 24- -15 5 3 4 20- -19 28
Arsenal 25 7 4 1 23- -10 3 4 6 18- -26 28
Leicester City 26 5 5 2 20- -16 3 6 5 12- -22 27
Leeds United 24 3 5 4 15- -18 6 3 3 15- -11 26
Newcastle United 21 7 3 0 19- —7 2 4 5 16- -20 25
Birmingham City 26 6 4 3 24- -17 3 2 8 17- -24 24
Norwich City 25 7 3 3 17- -14 2 3 7 11- -19 24
West Bromwich Albion 24 5 5 2 23- —11 2 4 6 8- -18 23
Coventry City 22 5 4 3 20- —15 3 3 4 8- -12 23
Queens Park Rangers 21 6 1 2 15- -10 1 4 7 12- -21 19
Stoke City 23 6 1 2 10 —7 0 6 8 3- -19 19
Derby County 22 5 4 2 20 —10 0 4 7 7- -21 18
Everton 24 4 4 4 19- -18 2 2 8 14- -29 18
Tottenham Hotspur 24 5 5 4 16 —16 1 0 9 14- -32 17
Bristol City 22 3 4 4 14 —11 2 2 7 7- -15 16
West Ham United 24 4 3 6 12 —15 1 2 8 9- -22 15
Sunderland 26 2 3 7 5 —11 1 4 9 9- -25 13
2. DEILD
Chelsea 26
Bolton Wanderes 25
Wolverhampton Wanderes 25
Blackpool 25
Nottingham Forest 25
Luton Town 25
Millwall 24
Charlton Athletic 25
Oldham Athletic 23
Notts County 23
Bristol Rovers 27
Southampton 25
Hull City 24
Cardiff City 25
Blackburn Rovers 24
Sheffield Untied 23
Plymouth Argyle 26
Fulham 27
Burnley 25
Carlisle Untied 26
Orient 19
Hereford United 23
L Heima (Jti Stig
9 4 0 30- -16 5 4 4 14- -17 36
10 1 1 26- —10 5 3 5 20- -21 34
8 1 3 28- -13 4 8 1 28- -17 33
6 4 3 19- -12 4 6 2 18- -13 30
7 3 2 35- —17 4 4 5 16- -13 29
7 2 2 20- —11 5 1 8 21- -21 27
6 3 4 23- —15 5 2 4 17- -17 27
8 3 2 33- -20 1 6 5 14- -21 27
8 3 1 24 —11 2 3 6 9- -21 26
4 2 4 10 —11 6 2 5 4- -30 24
7 4 3 22- -20 2 2 9 14- -30 24
4 6 3 21- -20 3 3 6 23- -24 23
6 4 1 21 —9 0 7 6 8- -20 23
6 4 4 22- —19 2 3 6 15- -20 23
6 2 3 17 —11 3 3 7 9- -24 23
4 6 3 18- —17 3 3 4 10- -15 23
3 6 5 18- —17 2 5 5 13- -22 21
5 5 4 23- -18 1 4 8 12- -26 21
3 8 3 17- -17 1 3 7 10- -21 19
4 5 5 17- -23 2 1 9 11- -24 18
2 2 4 8- —9 3 5 4 13- -17 17
2 4 4 15- —21 1 4 8 9- -16 14
Knattspyrnuúrsllt
ENGLAND 1. DEILD:
Birmingham — Norwich 3—2
Derby — Leeds 0—1
Everton — Leicester 1—2
Ipswich — Aston Villa 1—0
Manchester City—Arsenal 1—0
Tottenham—Manchester Utd. 1—3
W.B.A. — Q.P.R. 1—1
West Ham — Stoke 1—0
Coventry Liverpool frestað
Newcastle — Middlesbrough frestað
ENGLAND 2. DEILD:
Blackpool—Blackburn 1—1
Bolton — Notts County 4—0
Bristol Rovers — Fulham 2—1
Burnley — Hereford 1—1
Cardiff — Oldham 3—1
Charlton—Eolves 1—1
Chelsea — Millwall 1—1
Hull — Carlisle 3—1
Notthingham—Luton 1—2
Plymouth—Orient 1—2
Sheffield Utd. —Southapmton 2—2
ENGLAND 3. DEILD:
Chester — Crystal Palace 2—1
Grimsby — Mansfield 0—1
Northampton—Gillíngham 1—2
Portsmouth — Sheffield Wed 0—3
Port Vale — Lincoln frestað
Preston—Oxford 2—1
Rotherham—Brighton 0—0
Shrewsbury—Wrexham 3—2
Swindon—Chesterfield 3—0
Walsall — Reading 6—1
York — Peterborough 2—1
ENGLAND 4. DEILD:
Aldershot — Torquay 0—1
Barnsley—Swansea 1—0
Bournemouth — Hartlepool 2—0
Bradford — Southport 1 —o
Crewe — Scunthorpe 2—1
Doncaster — Bredford 5—0
Exeter — Colchester 1 —0
Huddersfield — Newport 3—0
Rochadaie — Halifax 4 l
W'atford—Cambridge 2—0
Workington—Southend 0—3
SKOTLAND — ÚRVALDSDEILD:
Celtic — Partick Thistle 2—0
Kilmamock — Hibernian 0—1
Rangers—Dundee Utd. 2—3
Aberdeen — Motherwell frestað
Hearts — Ayr Utd. frestað
SKOTLANDl. DEILD:
Dumbarton — Morton 0—4
Dundee — Raith Rovers 4—0
East Fife — Airdrieonians frestað
Falkirk — Arbroath 1—0
Hamilto — Clydebank 0—2
Queen of the South — Montroese 2—1
St. Johnstone — St. Mirren * 0— §
SKOTLAND 2. DEILD:
Albion Rovers — East Stirling 3—2
Alloa — Stirling Albion 3—0
Cowdenbeath—Clyde 2—0
Queens Park — Dunfermline 2—0
öðrum leikjum I deildinni varð að fresta.
BELGlA
Úrslit f 1. deild f Belgfu á sunnudaginn:
Antwerpen — Anderlecht 1:0
FC Malinois — Charleroi 3:0
Courtrai—Beringen 1:3
AS Ostende — Waregem 2:1
RWD Molenbeek — Lierse 3:2
FC Liegeois — Beerschot 2:1
Beveren — FC Brugge 2:1
CS Brugge — Lokeren 1:4
Winterslag — Standard Liege 0:2
SPANN
Crslit í deildarkeppninni á Spáni um helg-
ina:
Espanol — Real Scoiedad 1:0
Elche—Celta 1:1
Real Betis — Valencia 0:0
Racing — Burgos 1:0
Real Madrid — Sevilla 0:0
Malaga — Hercules 1:1
Salamanca — Barcelona 2:0
Athletico Bilbao
— Athletico Madrid 0:1
Las Palmas — Real Zaragoza 1:4
Að loknum 22 umferðum er Athletico
Madrid efst með 31 stig, Barcelona hefur 30
stig og Valencia er f þriðja sæti með 26 stig.
Espanol og Real Sociedad hafa bæði 25 stig.
ITALIA:
Úrslit f 1. deild á Italfu um helgina:
Bologna — Verona 0:0
Fiorentlna — Cesena 2:1
InterMilan—Foggia 1:1
Juventus — Lazio 2:0
Perugia — ACMilan 3:1
Roma—Genoa ' 1:1
Sampdoria—Torino 2:3
Napoli—Catanzaro 1:0
HOLLAND:
Úrslit f hollensku deildarkeppninni um
helgina:
Sparta — Rotterdam — Ajax 0:3
FC den Haag — NAC Breda 4:0
PSV Eindhoven — VVV Venlo 1:0
Haarlem—FC Twente Enschede 1:2
AZ'67 — Utrecht 2:1
Coetinccm—Telstar Velsen 0:0
NEC Nijmegen—Go Ahead Eagles 2:1
Roda Kerkrade — Feyenoord 1:1
Amsterdam—Eindhoven 0:0
Staðan eftir 23 umferðir er sú, að Ajax er
eíst með 37 stig. Feyenoord hefur 34 stig og
PSV Eindhoven 31 stig.