Morgunblaðið - 15.02.1977, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
VIÐSKIPTI
Umsjón: Pétur J. Eiríksson
Þannig sleppur ferðalangurinn bezt frá reikningnum:
Gisting í Jóhannesarborg, bjór 1 Kairó,
hádegismatur í Nairobi, kvöldmatur í Moskvu,
whisky í Birmingham, vín á Kýpur og keyrt á
milli 1 egypzkum leigubíl
Verðið er reiknað í sterlingspundum samkvæmt gegnisskráningu 29. nóvember 1976.
Borg Vísitala Gisting 1 nótt & morgunv Mált. á veit.h. án vlns 1 »1. gott vln 1 Whisky 1 Bjór 1 létt mált. 1.5 km 1 leigub. Borg Vlsitala Gisting 1 nótt 8t morgunv. Mált. á veit.h. án vlns 1 fl. gott vln 1 Whisky 1 bjór 1 létt mált. í 1.5 km leigub.
Abu Dhabi 232 40.43 17.50 «.59 0.95 0.81 3.81 1.14 Varsjá 117 18.79 5.40 11.04 1.79 0.70 0.77 0.61
New York 231 45.«S 11.22 10.94 1.21 1.1« 1.57 2.12 Taipei 115 15.77 4.63 7.98 1.06 0.73 3.03 0.54
Frankfurt 225 32.22 13.5« 2.02 1.89 0.57 5.04 «J0 Sydney 115 20.88 5.47 3.34 0.68 o.«o l.«0 1.23
Bahrain 219 43.«« 9.55 10.7« 0.83 0.72 3.08 0.7« Colombo 115 14.6« 2.11 14.18 0.85 0.62 1.38 1.03
Paris 215 35.44 14.45 «.68 2.43 0.94 3.04 1.94 Lima 212 16.18 (.32 17.83 2.26 0.59 l.«3 0.72
Brússei 20« 23.49 12.09 21.43 1.25 0.66 2.47 6.59 Singapore 107 19.60 5.12 7.12 0.70 0.72 1.11 0.99
Stokkhólmur 195 32.2« 13.34 10.92 2.49 1.72 2.4« 2.32 Nýja Delí 101 10.9« 2.22 13.37 0.98 1.08 1.12 0.41
Bahamaeyjar 191 37.5« 8.57 8.78 1.28 1.22 2.17 2.43 London 100 18.06 7.01 5.17 0.54 0.48 1.30 1.20
Oman 185 34.95 7.92 17.41 0.5« 0.79 2.29 2.20 Kairo 98 21.07 2.87 0.95 0.63 0.22 1.48 0.1«
Tokyo 182 23.99 18.91 21.45 1.34 0.81 3.28 2.25 Aþena 97 19.03 3.78 9.24 0.82 0.50 1.47 0.59
Montreal 177 28.00 9.«2 7.25 1.56 0.85 2.94 4.15 DaresSalam 97 13.78 4.40 7.42 0.87 0.51 1.39 1.23
Ósló 1«0 24.59 11.04 8.29 1.31 1.08 2.61 2.32 Jerúsalem 92 14.12 7.23 3.56 1.24 0.80 1.74 1.25
Algeirsborg 159 28.03 9.24 5.25 3.39 1.14 1.97 1.4« Dublin 88 14.40 6.71 5.13 0.41 0.44 1.00 1.00
Amsterdam 159 29.9« 13.29 9.28 1.49 1.04 1.45 1.49 Mexikóborg 84 14.25 4.53 30.97 1.00 0.49 0.94 0.94
Teheran f 15« 23.10 14.33 24.35 l.«9 0.75 3.45 2.59 Lusaka 83 13.76 10.00 7.69 0.77 0.27 1.15 0.77
Hong Kong 155 28.85 7.92 7.29 0.85 0.55 1.92 0.77 Kuala Lumpur 83 15.03 2.96 11.19 038 0.65 0.72 0.21
Kaupmannahöfn 155 2485 10.38 • 9.28 1.20 1J5 3.61 2.0« Nairobi 81 15.61 4.06 5.39 0.45 0.27 0.72 2.17
Chicago 154 28 .«3 8.79 10.7« 0.93 0.70 3.27 1.82 Damaskus 81 14.0« 3.33 4.00 1.00 1.00 2.00 1.00
Genf 148 2«.74 7.10 5.19 1.74 0.56 2.98 1.74 Birmingham 80 1236 4.00 4.25 0.32 0.31 1.00 1.10
Reykjavik 139 23.01 9.84 5.21 1.00 0.62 1.48 2J0 Salisbury 79 12.24 4.29 5.28 0.74 0.33 088 0.98
Helsingfors 132 18.14 12.44 8.42 1.3« 0.92 1.75 1.99 Rabat 79 12.89 4.90 1.87 1.22 0.5« 1.10 0.82
Rio de Janeiro 132 21.24 7.88 8.38 2.4« 0.38 1.77 1.01 Wellington 77 12.04 6.14 5.72 0.65 0.44 1.37 1.34
Vln 132 24.«7 5.86 4.3« 1.40 0.«5 1.95 2.0« Ankara 77 13.35 2.49 2.84 1.12 0.42 0.57 0.76
Port of Spain 132 17.83 11.32 14.25 1.62 0.83 2.40 8.09 Moskva 74 16.86 1.38 2.18 0.50 0.32 0.80 0.80
Buenos Aires 132 24.07 8.09 5.26 2.«3 0.97 0.85 U1 Montevideo 74 12.41 2.71 2.26 1.09 0.50 0.91 0.«3
Caracas 12« 18.1« 5.71 12.07 1.47 0.75 2.27 1.82 Lissabon 72 11.33 «.16 2.64 1.22 0.34 1.15 0.48
Lagos 12« 18.Í9 4.69 7.11 0.75 0.64 1.7« 1.54 Belgrad 69 10.99 2.98 1.91 1.25 0.39 1.31 1.05
Róm 123 21.37 9.«2 10.8« 1.12 0.42 1.40 1.05 Jóhannesarborg «0 9.45 4.42 2.91 0.3« 0.33 1.74 1.71
Madrid 121 19.44 10.59 3.10 1.21 0.38 1.68 1.02 Kýpur 58 10.91 3.0« 1.6« 0.48 0.35 0.73 0.73
Jakarta 118 20.7« 5.95 10.25 0.90 0.90 1.52 1.21 Saudi Arabia. — 38.80 10.99 — — —- — 1.72
Hvað kostar að ferð-
ast um 1 heiminum?
EFTIR undanfarin geng-
issig á sterlingspundinu
kemur vart neinum á
óvart aö brezkar borgir
skuli vera orðnar meö
þeim ódýrustu f heimin-
um. Á nýlegri athugun
The Financial Times, þar
sem borinn er saman
dvalarkostnaður kaup-
sýslumanna í 60 helztu
viðskiptaborgum heims,
kemur það fram að að-
eins fjórar vestur-
evrópskar borgir eru
ódýrari til dvalar en Lon-
don og aðeins ein, Lissa-
bon er ódýrari en Birm-
ingham í Englandi.
Að sama skapi, sem
brezkar borgir hafa orðið
ódýrari fyrir erlenda
kaupsýslumenn hefur
orðið erfiðara fyrir
Breta að leyfa sér sama
munað erlendis og hann
á að venjast heimafyrir.
Verðþróunin skýrist bezt
með því að í könnuninni
í fyrra var London 19.
dýrasta borg heimsins en
er nú komin í 38. sæti.
Reykjavík er nú í 20. sæti
og er 9. dýrasta borg
Vestur-Evrópu, en aðrar
höfuðborgir Norður-
landa að Helsingfors
undanskilinni eru dýr-
ari.
Samkvæmt töflu Financial
Times virðist tiltölulega dýrara
fyrir islenzka kaupsýslumenn,
eins og þá brezku, að fara til
útlanda en það er fyrir helztu
viðskiptavini þeirra að koma til
Reykjavikur. Af helztu við-
skiptalöndum íslendinga, þ.e.
Bandaríkjunum, löndum Efna-
hagsbandalagsins og Efta, eru
aðeins Bretland og Portúgal
ódýrari. Kaupmannahöfn er til
dæmis 16 vísitölustigum dýrari
en Reykjavík, Stokkhólmur 56
og Frankfurt 86.
Aðeins tvær vestur-evrópskar
höfuðborgir, Lissabon og
Dublin, eru ódýrari en London,
fyrir þá sem greiða með pund-
um. Genf, Madrid og Vín, sem í
fyrri athugunum voru ódýrari
en London hafa allar færst upp-
fyrir hana og hótelreikningur í
Paris er næstum tvisvar sinn-
um hærri en í London i ster-
lingspundum reiknað.
Astaeðan fyrir „hagstæðri"
verðþróun í Bretlandi er
minnkandi verðgildi pundsins
auk annarra gengisbreytinga,
sem átt hafa sér stað á siðasta
ári, en mismunandi verðbólgu-
hraði hefur einnig breytt röð-
inni. Verðlag, semdlagt er til
grundvallar visitöluútreikningi
töflunnar er reiknað í pundum.
Þó að verðlag hafi haldið áfram
að hækka í London á síðasta
ári, þá hefur hækkunin ekki
vegið upp á móti minnkandi
kaupgetu pundsins í öðrum
borgum eins og Frankfurt eða
París. Ef það kemur á óvart
hvað Reykjavík er neðarlega í
töflunni, þá gildir það sama um
Island. Þrátt fyrir örar verð-
hækkanir er Reykjavík næst
ódýrasta borg á Norðurlöndum
vegna mikils gengissigs.
Fleiri borgir en London hafa
orðið tiltölulega ódýrari. I
Mexiko var verðgildi pesosins
Saman-
burður á
kostnaði
í helztu
borgum
heims
fellt um 43% gagnvart dollar á
árinu og því hefur Mexíkóborg
færst neðar i töfluna. Vegna
gengisfellingaáhrifa hefur
verðlag þar þó stigið ört síðan
taflan var gerð í nóvember.
Litlar breytingar hafa orðið á
efri enda töflunnar. New York,
Frankfúrt og París hafa verið í
efstu sætum síðustu fimm árin.
Sama gildir um olfurikin Abu
Dhabi og Bahrain, en þó svo að
ferðalangur væri reiðubúinn til
að greiða verðið, sem nefnt er í
töflunni, þá mætti hann prisa
sig sælan að fá sömu þægindi
og hann getur átt von á annars
staðar á fyrsta flokks hóteli. í
Abu Dhabi er aðeins eitt fyrsta
flokks hótel og það er alltaf
fullbókað og i Kuwait er það
frægt að menn greiði 20 pund
fyrir að fá að sofa á gólfinu í
danssalnum.
Við útreikning vísitölunnar
var gert ráð fyrir því að ferða-
maðurinn reyndi að finna hótel
sambærileg að gæðum, hvar
sem hann væri staddur í veröld-
inni. Hann myndi borða venju-
legan evrópskan mat í stað þess
að fikra sig fram eftir matseðli
innfæddra og drekka það sem
hann er vanur. Slik stöðlun er
auðvitað ekki með öllu raun-
hæf. Málsverður, sem kostar
£1.35 í Moskvu, getur vart verið
sambærilegur við málsverð á
veitingahúsi í París sem kostar
£14.45, frekar en Kýpurvín á
£1.66 sé af sömu gæðum og tutt-
ugu og eins punds vin í Bríissel
(Þótt hvor tveggja sé álitið gott
að mati heimamanna).
í visitölunni er miðað við
þriggja nátta gistingu og morg-
unverð (fréttaritararnir voru
beðnir um að gefa upp verð á
lúxushótelum og ferðamanna-
hótelum, þó að í sumum lönd-
um séu ekki nein lúxushótel).
Þá eru reiknaðar með tvær
kvöldmáltiðir á hóteli (meðal-
tal allra hótelverða, sem upp
voru gefin), einn kvöldverður á
meðalveitingahúsi, þrjár flösk-
ur af vini hússins (ekki bestu
vín á lista) tvær léttar máltiðir
(eggjakaka, salat og kaffi)
fimm kílómetra ferð í leigubil
og fimm whiskysjússar á barn-
um.
Þó að það sé kannski lítil
huggun þá er það niðurstaða
þessarar könnunar að alltaf má
græða eitthvað alls staðar. Þó
að Abu Dhabi, sem dýrasta
borgin, sem á heildina litið, þá
er ódýrara að drekkja þar sorg-
um sinum í bjór en á Norður-
löndum. Bezta ráðið er líklega
að vera stöðugt á ferðinni, helzt
í egypzkum leigubíl, því þeir
eru ódýrastir, gista og borða
morgunverð I Jóhannesarborg,
fá sér hádegismat i Nairobi,
kvöldverð í Moskvu, drekka vin
á Kýpur, bjór í Kairo og
skreppa svo til Birmingham til
að fá sér whisky fyrir svefninn.