Morgunblaðið - 15.02.1977, Síða 41

Morgunblaðið - 15.02.1977, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL 10—11 FRÁ MÁNUDEGI j^juAmFK'usj'D ir dreifingu í skólunum og komi þar með upp um félaga sína og skóla- systkin? Er skoðanakönnun, eins og drepið var á í umræddum Kast- Ijósþætti nægileg? Segir fólk frekar eitthvað þar, eða verðum við bara að bíða og sjá tii, athuga hvort eitthvað kemur ekki uppá sem hægt er að rekja áfram og komst fyrir svoa sölu. Það væri fróðlegt að heyra meira frá unglingum um þetta mál á einhvern hátt — viljið þið svara því, unglingar góðir, í hvaða mæli hass- og vimugjafaneyzla er í ykkar skólum? Geta lögreglu- menn veitt einhverjar haldbærar upplýsingar frekar en orðið er? Þetta eru allt spurningar sem vakna eftir þáttinn og e.t.v. marg- ar fleiri og það væri vissulega fróðlegt ef hægt væri að draga þetta fram í dagsljósið meira en orðið er svo unglingar ánetjist ekki að óþörfu einhverjum ófögn- uði." Undir þetta tekur Velvakandi —r- því það er áreiðanlegt að frek- ari upplýsingar vantar og ekki sízt fræðslu um hvaða áhrif þessir mörgu vimugjafar hafa, svo ung- lingarnir viti hvað þeir eru að fara útí. % Ættfræði Vestur- íslendings Gísli Guðmundsson bað eftirfarandi fyrirspurn og verður orðið við beiðni hans: „Frá Roy F. Björnsson, 4008 — 5th Avenue S.W. Calgary, Alberta, Canada (P.O. T3C OCl) barst mér nýverið eftirfarandi fyrirspurn sem ég vil biðja þig að koma á framfæri: Faðir minn hét Andrés Jonson Björnsson (svo i bréfi) og fæddist á Isafirði 22. maí, 1891. Hann fór frá íslandi til Norður-Ameríku um 1910 og um 1912 settist hann að í Winnipeg þar sem hann bjó uns hann dó í janúar 1972. Móður sína missti hann kornungur en mun hafa alist upp hjá stjúpmóð- ur sinni. Nöfn þeirra og föður hans eru mér ókunn. Hann heim- sótti Island árið 1948 og eftir það minntist hann oft á frændfólk mitt (systkinabörn) svo að hann hefur átt heil- eða hálfsystkini. Mér finnst leiðinlegt að vita svona lítið um ævi föður míns en vonast til að þetta dugi til að fá meira að vita. Þessi maður ætlar að koma til tslands í sumar með konu sinni. Hann kann ekki íslensku og því yrði að skrifa honum á ensku eða hafa samband við mig. Hann seg- ist vera áhugasamur náttúruskoð- ari (jurtir, dýr) og hann segist kenna judo og vill komast í sam- band við félögin hér. Þeir sem vilja verða þessum mikla áhuga- manni að liði mega hringja í mig í síma 32999 (f.h. j Virðingarfyllst, Gísli Guðmundsson." Þessir hringdu . . . Q Þekkjast hjón ekki lengur? H.E.K.: „Margar spurningar hafa vakn- að að undanförnu og orðið áleitn- ar í öllum þessum skollaleik við misindismenn, sem hafa verið á ferli í landinu og ýmsar fleiri spurningar vakna út frá þessu efni. Hvers vegna verður fólk oft svo einmana í borgum? Hvers vegna geta maður og kona ekki skipt öllu til helminga? Hjón hætta næstum því að þekkjast vegna anna, en þetta er víst algengt. Annað langar mig einnig til að minnast örlítið á í leiðinni. Nýlega var maður að nafni Ásgeir að varpa fram þeirri spurningu hvort til væri nokkur afsökun til að ræna ellistyrk af 70 ára göml- um manni. Það er Ijótt að heyra, en hvað segir hann um að ræna manneskju rétti sínum með vald- beitingu?' SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson í sovézku deildakeppninni 1976, sem fram fór í Tbilisi í apríl, kom þessi staða upp í skák Beljavskys (Avangard), sem hafði hvítt og átti leik, gegn Rashkovsky (Spartak): 17. Bxh7 + ! Kxh7 18. Dh5+ Kg8 19. IIf3 Dc6 20. IIg3 De6 21. Hfl Hfe8 (Eftir 21. . . Rxb3 22. cxb3 Bc5 23. Re2 Bc8 24. Hf6 fellur svarta drottningin) 22. Hh3 og svartur gafst upp, því að 22... Dh6 gengur ekki vegna 23. Dxf7+. Sigurvegari á mótinu varð sveit Burevestnik frá Leningrad. Sveitina skipuðu þau Smyslov, Guljko, Taimanov, Razuvajev, Alburt, Kochiev, Aleksandrija, Akhmilovskja og Akhsjarumova. % Athyglisverd predikun Anna Guðmundsdóttir: „Ég var í kirkju á sunnudaginn, sem er ekki í frásögur færandi í sjálfu sér, hjá sr. Þóri Stephensen og þar flutti hann svo athyglis- verða predikun að mér finnst að hún ætti að birtast einhvers stað- ar. Hún er athyglisvérð ekki að- eins trúarlega séð heldur og þjóð- félagslega, hann ræddi þar ýmis mál og talaði frá eigin reynslu og mér finnst að fleiri eigi að fá að heyra hana. Ræddi hann t.d. um ýmsa mannlega galla, atvinnu- svik, og galla í samskiptum manna á milli og ýmislegt út frá þessum atriðum. HÖGNI HREKKVISI Þetta er kvartettinn úr Rakaranum! Alþjóðleg námskeið SÞ: „Hin nýja skipan efna- hagsmála heims” MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Islandi: Sameiriuðu þjóðirnar efna að vanda til tveggja alþjóðlegra nám- skeiða á sumri komanda, sem íslenzkum háskólastúdentum og háskólaborgurum gefst kostur á að sækja-um. Annað námskeið- anna er ætlað háskólastúdentum og er það haldið i aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna i New York dagana 25. júli til 19. ágúst. Hitt sem ætlað er háskólaborgurum er haldið I aðsetursstað Sameinuðu Þjóðanna í Genf dagana 8.—26. ágúst. Viðfangsefni námskeiðsins I Genf verður „hin nýja skipan efnahagsmála heimsins“ (The New International Ecomomic Order) Megintilgangur námskeiðanna er að gefa þátttakendum kost á að kynnast til nokkurrar hlítar grundvallarreglum, markmiðum og starfi Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra. Hver þátttakandi greiðir sjálfur ferðakostnað og dvalarkostnað. Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna annast val þátttakenda, en Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi hefur milligöngu um til- nefningu úr hópi islenzkra um- sækjenda. Skriflegar umsóknir ásamt upp- lýsingum um ástæður fyrir þvi að- sótt er, sendist Félagi Sameinuðu þjóðanna, pósthólf 679, fyrir 1. marz n.k. Búnaðarsamband Eyjafjarðar: Mótmælir byggingu álvers við Eyjafjörð FULLTRÚAFUNDUR Búnaðar- sambands Eyjafjarðar, sem ný- lega var haldinn, sámþykkti að mótmæla framkomnum hug- myndum um byggingu álvers við Eyjafjörð. í samþykktinni segir að Eyjafjörður sé eitt besta land- búnaðarhérað landsins og komi þar til mikil veðursæld, sem gefi öryggi í búskap og þá sérstaklega hvað snerti fóðuröflun. Þá segir orðrétt i samþykktinni: „Með byggingu og rekstri álvers hér við fjörðinn yrði mjög mikil röskun á öllum búskaparháttum heilla sveita og héraðsins alls, sem hafa mundi í för með sér ýmis félags- leg vandamál og er frá liði tjón af völdum mengunar. Það tjón sem mengun veldur á náttúru lands- ins verður ekki bætt. Hins vegar er ljóst að vinna ber að uppbygg- ingu atvinnufyrirtækja hér við fjörðinn, séu þau þannig að eigi stafi hætta af þeirri uppbyggingu fyrir náttúru héraðsins né valdi verulegri byggðaröskun." Orkta spónplötur A sér/ega hagstæðu verdi vegna tollalækkana um sl áramót 8 m.m. 124 X 250 cm á kr. 1 160 Pr■ stk. 10 m.m. 124 X 250 cm á kr. 1240 pr. stk. 10 m.m. 124 X 274 cm á kr. 1350 pr- stk. 12 m.m. 124 X 250 cm á kr. 1570 pr. stk. 12 m.m. 122 X 274 cm á kr. 1710 Pr■ stk. 19 m.m. 124 X 250 cm á kr. 2050 pr. stk. 22 m.m. 122 X 250 cm á kr. 2300 pr stk. 25 m.m. 124 X 250 cm á kr. 2620 pr stk. W TIMBURVERZLUNIN VÖLUNDUR hf. Skeifunni19, Klapparstig 1, simar 85244 og 18430.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.