Morgunblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977
Evrópufrímerki 2. malnk.
Kílóvara póststjórnarinnar og ranglátur söluskattur af henni
Fyrir stuttu sendi póst- og
símamálastjórnin út tilkynn-
ingu um næstu frímerkjaút-
gáfu sina. Verða það hin svo-
nefndu Evrópufrimerki er út
koma 2. mai nk. Er það Evrópu-
samráð pósts og sima, CEPT,
sem hefur beitt sér fyrir þess-
ari sameiginlegu frímerkjaút-
gáfu síðan 1956. Islenzka póst-
stjórnin hefur tekið þátt í
henni óslitið frá 1960. Er næsta
útgáfan því hin 18. I röðinni af
okkar hálfu. Fram til ársins
1973 fór fram samkeppni meðal
listamanna aðildarríkjanna um
gerð frimerkis, sem væri með
sameiginlegri mynd. Tvisvar
hlutu íslenzkir listamenn verð-
laun í þessar keppni. Hið fyrra
sinnið var árið 1985, er valin
var teikning eftir Hörð Karls-
son, en I seinna skiptið, 1971,
hlaut verðlaunin Helgi Hafliða-
son. Frá 1974 hefur önnur leið
verið farin i þessari sameigin-
legu útgáfu og miklu skemmti-
legri að mínum dómi. Áður var
mynd merkjanna hin sama i
flestum löndunum og því næsta
fábrotið — að ég vil segja
þreytandi — að horfa á þau hlið
við hlið. Þetta hafa vafalaust
margir fundið, og því var breytt
til. Nú ræður hvert iand
myndavali sínu innan sam-
eiginlegs efnis (,,tema“). Árið
1974 gáfu aðildarrikin út fri-
merki með listaverkum
(skulptur). íslenzku frimerkin
prýddu það ár tréskurður frá
18. öld og svo bronsmynd
Ásmundar Sveinssonar mynd-
höggvara „Gegnum hljóðmúr-
inn“, sem stendur við Loftleiða-
hóteiið í Reykjavik. Árið 1975
urðu málverk fyrir valinu.
Póststjórnin islenzka valdi þá
myndir af málverkum eftir Þor-
vald Skúlason og Jóhannes
Kjarval. í fyrra skyldi mynd-
efnið svo vera nytjalistmunir,
og komu þá askurinn og
rokkurinn á íslenzku merkj-
unum. Var það vissulega vel til
fundið.
Að þessu sinni er efnið lands-
lag, og þar verður okkur ekki
skotaskuld úr að velja fallegt
myndefni. Virðist mér líka, að
hér hafi vel til tekizt, svo sem
sjá má á meðfylgjandi mynd-
um. Annars vegar er Ófærufoss
í Eldgjá á Fjallabaksleið (45
kr.) og svo Kirkjufell I
Grundarfirði (85 kr.). Þessi
merki hefur Þröstur Magnús-
son téiknað eftir ljósmyndum,
er tekið hafa Rafn Hafnfjörð og
Gunnar Hannesson. Merkin eru
prentuð hjá Courvoiser S/A í
Sviss. Svo sem ég hef áður rætt
um hér í þættinum, er ég lítill
aðdáandi hinnar svonefndu sól-
prentunar (héliogravure), en
hún getur þó vissulega hentað
nokkuð vel við prentun lands-
lagsmerkja. Á ég þvi von á, að
hin nýju Evrópufrimerki verði
falleg, enda gefur sjálft mynd-
efnið tilefni til þess.
Söfnun Evrópufrimerkja er
mjög almenn sem sérstök
minna- eða mótifsöfnun. Þegar
CEPT-löndin tóku svo að velja
ákveðið efni fyrir hvert ár og
það fór saman við almenna
minnasöfnun, svo sem söfnun
frímerkja með málverkamynd-
um, listaverkamyndum, lands-
lagsmyndum, svo að dæmi séu
nefnd, hlaut eftirspurn eftir
þessum frímerkjum að aukast
verulega. Þá hafa islenzku
Evrópumerkin einnig verið af
þeim verðgildum, sem henta al-
mennu burðargjaldi hverju
sinni. Er því engin furða, þótt
upplag þeirra hafi enzt um
ótrúlega skamman tíma á póst-
húsum landsins sum jafnvel
einungis um nokkra mánuði.
Ekki neita ég þvi, að mér var
eftirsjá I þvi, er islenzka póst-
stjórnin felldi niður stafina KR
á eftir verðgildinu, enda þótt
krónan okkar sé orðin næsta
lítils virði og aurarnir horfnir
úr reikningsfærslum i því
taumlausa verðbólguþjóðfélagi,
sem við byggjum. Vissulega
viðurkenni ég, að þessi siður að
hafa einvörðungu verðtöluna á
frímerkjunum er vel kunnur
víða og hefur t.d. þekkzt á
öðrum Norðurlöndum um rúma
tvo áratugi. Hins vegar segir
enginn, að við hefðum endilega
þurft að taka þessa venju upp.
Með siðustu frímerkjatil-
kynningu póststjórnarinnar
óskar hún eftir tilboðum í svo-
kallaða kilóvöru fyrir 1. maí nk.
Eins og safnarar vita, eru þetta
notuð íslenzk frímerki, sem
póststjórnin heldur eftir af
póstávísunum og fylgibréfum
og hefur gert um langt skeið,
mörgum söfnurum til sárrar
gremju. En ekki þýðir að deila
við dómarann, eins og þar
stendur, þvi að hæstaréttar-
dómur hefur staðfest eignar-
heimild hennar á þessum not-
uðu frímerkjum fyrir all-
mörgum árum. Segja má og, að
þessi ráðstöfun sé að sumu leyti
ekki óheppileg, þvi að hætt er
við, að einhver hluti þessara
frimerkja færi algerlega for-
görðum, ef þau lentu i höndum
viðtakenda póstávisana og
fylgibréfa, og þá kæmu þau
söfnurum að engum notum. Nú
er það svo, að andvirði þessarar
kilóvöru rennur I Póstmanna-
sjóð, en hann er styrktarsjóður
póstmanna, bæði þeirra, sem
eru í starfi, og eins hinna, sem
:|P|| EUROPA CEFT
iíSLANp 45: ÍSLAIMD 85
FrlmerKi
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
látið hafa af embætti fyrir
aldurs sakir. Samvinna milli
þeirra og frimerkjasafnara hef-
ur alla tið verið ágæt, svo að
þess vegna teljum við þá vel að
því komna að njóta þeirra fjár-
muna, sem inn koma fyrir kiló-
vöruna.
Tilkynning póststórnarinnar
um kílóvöruna hljóðar annars
orðrétt á þessa leið: „Kílóvaran
verður sem fyrr í 250 gramma
pökkum og má hver einstakl-
ingur gera tilboð í minnst einn
pakka (250 gr) og mest 12
pakka (3 kg). Tilboðin skulu
send fyrir 1. mai 1977 I
ábyrgðarbréfi og vera merkt
utan á umslaginu orðunum
„Tilboð í kílóvöru“ .. .Tekið
skal fram, að við síðustu úthlut-
un var lægsta tilboð, sem tekið
var kr. 11.750 fyrir 250 grömm.
Söluskattur bætist við tilboðs-
verðið innanlands." Utan-
áskriftin er svo: Frímerkja-
salan, P.O. Box 1445, 121
Reykjavik.
Hér undirstrika ég síðustu
málsgreinina í tilkynningu
póststjórnarinnar, enda er þörf
að veita henni sérstaka athygli.
Hér er enn á ferðinni þessi
rangláta innheimta rikissjóðs
af seldum og notuðum fri-
merkjum, sem bitnar einungis
á innlendum söfnurum. Hef ég
áður minnzt á þessa ósann-
gjörnu innheimtu rikisins. En
það, sem er með öllu óverjandi
hér, er sú mismunun, sem á sér
stað milli íslenzkra og erlendra
safnara, þar sem hinir síðar-
nefndu sleppa við skattinn og
geta því boðið hærra verð fyrir
en hinir „innfæddu". Það mun-
ar um minna fyrir okkur en
þessi 20%, sem renna beint i
ríkiskassann. Söluskatturinn
hefur hér örugglega þá afleið-
ingu I för með sér, að Islenzkir
safnarar treysta sér almennt
ekki til að keppa við útlendinga
um kilóvöruna, þegar þar við
bætist einnig, að gengið er hin-
um síðarnefndu I vil. Þetta
verður þvi til þess, að kílóvaran
streymir að langmestu leyti úr
landi. Slíkt er með öllu óviðun-
andi, og þá ekki sizt fyrir það,
að í henni er tiltölulega mikið
af háum verðgildum og eftir-
sóttum. Þessi mismunun milli
islenzkra og erlendra frí-
merkjasafnara hefur einnig um
langt skeið átt sér stað í sam-
bandi við uppboð hér á landi.
Hefur oft verið bent á þetta
óréttlæti í blöðunum, en fjár-
málaráðuneytið daufheyrist
alltaf við. Er von min sú, að
Landssamband íslenzkra frí-
merkjasafnara láti málið alvar-
lega til sin taka á næsta þingi
nú í sumar. Ætti þá að muna
verulega um stuðning Félags
frímerkjasafnara, sem er að
ganga í Landssambandið um
þessar mundir. Hef ég ekki trú
á öðru en samningar geti tekizt
hér um þetta söluskattsmál á
sama hátt og þeir tókust í
Sviþjóð fyrir fáum árum. Þar
varð fundin lausn, sem allir
gátu unað við og töldu sann-
gjarna. Sannleikurinn er sá, að
í þessum efnum eiga aliir safn-
arar að sitja við sama borð,
hvort sem þeir eru innlendir
eða erlendir. Allt annað er
óhæfa.
Tryggvi Glslason (jakkalaus) er f mótstjórn Islandsmótsins sem
fram fer á Hótel Loftleiðum um páskana. Hér spilar hann gegn
Einari Þorfinnssyni — en Einar er einn af elztu þátttakendum
Islandsmótsins f ár og lætur engan bilbug á sér finna.
Guðmundur og
Ester efst í
parakeppni BK
Fjórum umferðum af fimm
er nú lokið f parakeppni
Bridgefélags kvenna.
Staða efstu para:
stig
Ester Jakobsdóttir
— Guðmundar Pétursson 768
Steinunn Snorradóttír
— Agnar Jörgensson 746
Halla Bergþórsdótt ________
— Jóhann Jónsson 735
Guðriður Guðmundsdóttir
— Sveinn Helgason 732
Sigríður Pálsdóttir
— Jóhann Jóhannsson 714
Sigrún Ölafsdóttir
— Magnús Oddsson 713
Guðrún Bergsdóttir
— Benedikt Jóhannsson 705
Ingunn Bernburg
— Ólafur Karlsson 695
Meðalskor: 624 stig.
Siðasta umferðin í þessari
keppni verður spiluð mánudag-
inn 4. apríl n.k. og hefst kl. 20
stundvislega í Domus Medica.
Síðasta keppni starfsársins er
svo fyrirhuguð paraeveita-
keppni, sennilega með harð-
keppnisfyrirkomulagi, og hefst
sú keppni mánudaginn 18.
april. Þátttökulistar munu
liggja frammi á næsta spila-
kvöldi, og óskað er eftir, að þeir
sem ætla að taka þátt í keppn-
inni láti skrá sig þá.
Tollstjóraembætt-
ið efst í firma-
keppni Ásanna
Firmakeppni Ásanna lauk fyr-
ir nokkru en uppgjör hefur að-
eins dregist á langinn. Þátttaka
var geysigóð, en alls tóku 96
firmu þátt f keppninni, sem
jafnframt var einmennings-
keppni félagsins. Keppt var í 6
••iðlum. Efstu skor tók Toll-
,tjóraembættið f Rvfk, spilari
Lárus Hermannsson.
Úrslit i riðlum urðu þessi:
A-riðill: Kaupgarður .......
Vigfús Pálsson 114 stig.
B-riðill: Tollstj.emb.......
Lárus Hermannseon 123 stig
C-riðill: Vörumerking ......
Sigriður Rögnvaldsdóttir 111
stig
D-riðill: Verzl. Álfhóll....
Trausti Finnbogason 112 stig
E-riðill: Snyrti og hárgr. st.
Edda, Sólheimum ............
Sigríður Rögnvalds. 107 stig.
F-riðill: Félagsh. Kóp......
Jón Jónsson 105 stig.
Sigríður Rögnvalds-
dóttir sigraði í
einmennings-
keppninni
Einmenningsmeistari félags
ins varð Sigríður Rögnvalds-
dóttir, og er hún fyrsta konan
sem þann heiður hlýtar í
félaginu. Er það að vonum
ánægjulegur viðb.urður, og
sannar að viðar en á Akureyri
geta konar unnið einmenning.
Efstu spilarar samanlagt urðu
þessir:
1. Sigríður Rögnvalds. 313 stig
2. Lárus Hermannsson 305 stig
3. Trausti Finnbogason 303 stig
Aðrir komust ekki yfir 300
stig.
Félagið vill eindregið þakka
allan veittan stuðning þeirra
firma og stofnana sem þátt tóku
I hinni árlegu keppni okkar, og
stuðluðu þar með að uppbygg-
ingu félagsstarfs, sem eingöngu
starfar á frjálsum grundvelli.
Stjórn Ásanna hefar í hyggju
að gefa út I lok reglulegs starfs-
árs, rit sem inniheldur almennt
yfirlit yfir sl. keppnisár, og þar
mun ítarleg skrá vera um þau
firmu sem þátt tóku f keppni
okkar í ár. Þess má geta að flest
þessi firmu hafa styrkt Ásana
frá byrjun.
Stjórn Asana hefar einnig I
hyggju að halda áfram með
sumarspilamennsku þá sem
hófst sl. sumar, og tókst með
miklum ágætum, sérstaklega
síðari hluta sumars. Um leið
vildum við þó skora á bridge-
samb. stjórn., að kanna mögu-
leika sina í þá átt, að spila
reglulega einu sinni I viku á
eigin vegum, því vissulega er
það nauðsyn, fjárhagslega séð.
Að loknum 19 umferðum af
23, í Barometers-keppni Ás-
anna, hafa þeir félagar Ármann
og Sigurður Sv. tekið góða for-
ystu. Staða efstu para er þessi.
Stig
1. Ármann J. Lárusson
— Sigurður Sverrisson 1408
2. Lárus Hermannsson
— Ólafur Lárusson 1369
3. Jón Páll Sigurj.
— Guðbr. Sigurbergss. 1359
4. Þorlákur Jónsson
— Haukur Ingason 1343
5. Karl Adólfsson
— Georg Sverrisson 1343
6. Magnús Aspelund
— Steingrímur Jónasson 1335
7. Kristján Blöndal
— Valgarð Blöndal 1315
(Þrjár síðustu fréttir eru frá
Ólafi Lárussyni blaðafulltrúa
Ásanna í Kópavogi)
Blönduð sveit
Níelsar sigraði
í Siglufirði
Fyrir nokkru lauk þriggja
kvölda hraðsveitakeppni 1
Briflge
eftir ARNÓR
G. RAGNARSSON
Siglufirði. 1 keppni þessari
rugluðu sveitirnar saman reyt-
um sínum og lauk keppninni
með sigri blandaðrar sveitar
Nielsar Friðbjarnarsonar. Röð
sveitanna varð þessi:
stig
1. sveit Nielsar
Friðbjarnars. 1462
2. sveit Jónasar Stefánss. 1391
3. sveit Ástu Ottesen 1258
4. sveit Jóns H. Pálss. 1228
5. sveit Georgs Ragnarss. 1141
Næst verðar spilað firma-
keppni og einmenningskeppni.
Jöfn keppni hjá
Breiðhyltingum
Fjórum umferðum af sex er
lokið i sveitakeppni Bridge-
félags Breiðholts. Spilaðir eru
tveir leikir á kvöldi og eru 16
spil f hverjum leik.
Staða efstu sveita: stig
Baldur Bjartmannsson 65
Eiður Guðjohnsen 62
Pálmi Pétursson 48
Keppninni lýkar á þriðjudag-
inn kemur — en þriðjudaginn
eftir páska verður eins kvölds
tvímenningur.
19. april hefst svo þriggja
kvölda Barometer-
tvímenningur með tölvugefn-
um spilum.