Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 8

Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 Evrópufrímerki 2. malnk. Kílóvara póststjórnarinnar og ranglátur söluskattur af henni Fyrir stuttu sendi póst- og símamálastjórnin út tilkynn- ingu um næstu frímerkjaút- gáfu sina. Verða það hin svo- nefndu Evrópufrimerki er út koma 2. mai nk. Er það Evrópu- samráð pósts og sima, CEPT, sem hefur beitt sér fyrir þess- ari sameiginlegu frímerkjaút- gáfu síðan 1956. Islenzka póst- stjórnin hefur tekið þátt í henni óslitið frá 1960. Er næsta útgáfan því hin 18. I röðinni af okkar hálfu. Fram til ársins 1973 fór fram samkeppni meðal listamanna aðildarríkjanna um gerð frimerkis, sem væri með sameiginlegri mynd. Tvisvar hlutu íslenzkir listamenn verð- laun í þessar keppni. Hið fyrra sinnið var árið 1985, er valin var teikning eftir Hörð Karls- son, en I seinna skiptið, 1971, hlaut verðlaunin Helgi Hafliða- son. Frá 1974 hefur önnur leið verið farin i þessari sameigin- legu útgáfu og miklu skemmti- legri að mínum dómi. Áður var mynd merkjanna hin sama i flestum löndunum og því næsta fábrotið — að ég vil segja þreytandi — að horfa á þau hlið við hlið. Þetta hafa vafalaust margir fundið, og því var breytt til. Nú ræður hvert iand myndavali sínu innan sam- eiginlegs efnis (,,tema“). Árið 1974 gáfu aðildarrikin út fri- merki með listaverkum (skulptur). íslenzku frimerkin prýddu það ár tréskurður frá 18. öld og svo bronsmynd Ásmundar Sveinssonar mynd- höggvara „Gegnum hljóðmúr- inn“, sem stendur við Loftleiða- hóteiið í Reykjavik. Árið 1975 urðu málverk fyrir valinu. Póststjórnin islenzka valdi þá myndir af málverkum eftir Þor- vald Skúlason og Jóhannes Kjarval. í fyrra skyldi mynd- efnið svo vera nytjalistmunir, og komu þá askurinn og rokkurinn á íslenzku merkj- unum. Var það vissulega vel til fundið. Að þessu sinni er efnið lands- lag, og þar verður okkur ekki skotaskuld úr að velja fallegt myndefni. Virðist mér líka, að hér hafi vel til tekizt, svo sem sjá má á meðfylgjandi mynd- um. Annars vegar er Ófærufoss í Eldgjá á Fjallabaksleið (45 kr.) og svo Kirkjufell I Grundarfirði (85 kr.). Þessi merki hefur Þröstur Magnús- son téiknað eftir ljósmyndum, er tekið hafa Rafn Hafnfjörð og Gunnar Hannesson. Merkin eru prentuð hjá Courvoiser S/A í Sviss. Svo sem ég hef áður rætt um hér í þættinum, er ég lítill aðdáandi hinnar svonefndu sól- prentunar (héliogravure), en hún getur þó vissulega hentað nokkuð vel við prentun lands- lagsmerkja. Á ég þvi von á, að hin nýju Evrópufrimerki verði falleg, enda gefur sjálft mynd- efnið tilefni til þess. Söfnun Evrópufrimerkja er mjög almenn sem sérstök minna- eða mótifsöfnun. Þegar CEPT-löndin tóku svo að velja ákveðið efni fyrir hvert ár og það fór saman við almenna minnasöfnun, svo sem söfnun frímerkja með málverkamynd- um, listaverkamyndum, lands- lagsmyndum, svo að dæmi séu nefnd, hlaut eftirspurn eftir þessum frímerkjum að aukast verulega. Þá hafa islenzku Evrópumerkin einnig verið af þeim verðgildum, sem henta al- mennu burðargjaldi hverju sinni. Er því engin furða, þótt upplag þeirra hafi enzt um ótrúlega skamman tíma á póst- húsum landsins sum jafnvel einungis um nokkra mánuði. Ekki neita ég þvi, að mér var eftirsjá I þvi, er islenzka póst- stjórnin felldi niður stafina KR á eftir verðgildinu, enda þótt krónan okkar sé orðin næsta lítils virði og aurarnir horfnir úr reikningsfærslum i því taumlausa verðbólguþjóðfélagi, sem við byggjum. Vissulega viðurkenni ég, að þessi siður að hafa einvörðungu verðtöluna á frímerkjunum er vel kunnur víða og hefur t.d. þekkzt á öðrum Norðurlöndum um rúma tvo áratugi. Hins vegar segir enginn, að við hefðum endilega þurft að taka þessa venju upp. Með siðustu frímerkjatil- kynningu póststjórnarinnar óskar hún eftir tilboðum í svo- kallaða kilóvöru fyrir 1. maí nk. Eins og safnarar vita, eru þetta notuð íslenzk frímerki, sem póststjórnin heldur eftir af póstávísunum og fylgibréfum og hefur gert um langt skeið, mörgum söfnurum til sárrar gremju. En ekki þýðir að deila við dómarann, eins og þar stendur, þvi að hæstaréttar- dómur hefur staðfest eignar- heimild hennar á þessum not- uðu frímerkjum fyrir all- mörgum árum. Segja má og, að þessi ráðstöfun sé að sumu leyti ekki óheppileg, þvi að hætt er við, að einhver hluti þessara frimerkja færi algerlega for- görðum, ef þau lentu i höndum viðtakenda póstávisana og fylgibréfa, og þá kæmu þau söfnurum að engum notum. Nú er það svo, að andvirði þessarar kilóvöru rennur I Póstmanna- sjóð, en hann er styrktarsjóður póstmanna, bæði þeirra, sem eru í starfi, og eins hinna, sem :|P|| EUROPA CEFT iíSLANp 45: ÍSLAIMD 85 FrlmerKi eftir JÓN AÐAL- STEIN JÓNSSON látið hafa af embætti fyrir aldurs sakir. Samvinna milli þeirra og frimerkjasafnara hef- ur alla tið verið ágæt, svo að þess vegna teljum við þá vel að því komna að njóta þeirra fjár- muna, sem inn koma fyrir kiló- vöruna. Tilkynning póststórnarinnar um kílóvöruna hljóðar annars orðrétt á þessa leið: „Kílóvaran verður sem fyrr í 250 gramma pökkum og má hver einstakl- ingur gera tilboð í minnst einn pakka (250 gr) og mest 12 pakka (3 kg). Tilboðin skulu send fyrir 1. mai 1977 I ábyrgðarbréfi og vera merkt utan á umslaginu orðunum „Tilboð í kílóvöru“ .. .Tekið skal fram, að við síðustu úthlut- un var lægsta tilboð, sem tekið var kr. 11.750 fyrir 250 grömm. Söluskattur bætist við tilboðs- verðið innanlands." Utan- áskriftin er svo: Frímerkja- salan, P.O. Box 1445, 121 Reykjavik. Hér undirstrika ég síðustu málsgreinina í tilkynningu póststjórnarinnar, enda er þörf að veita henni sérstaka athygli. Hér er enn á ferðinni þessi rangláta innheimta rikissjóðs af seldum og notuðum fri- merkjum, sem bitnar einungis á innlendum söfnurum. Hef ég áður minnzt á þessa ósann- gjörnu innheimtu rikisins. En það, sem er með öllu óverjandi hér, er sú mismunun, sem á sér stað milli íslenzkra og erlendra safnara, þar sem hinir síðar- nefndu sleppa við skattinn og geta því boðið hærra verð fyrir en hinir „innfæddu". Það mun- ar um minna fyrir okkur en þessi 20%, sem renna beint i ríkiskassann. Söluskatturinn hefur hér örugglega þá afleið- ingu I för með sér, að Islenzkir safnarar treysta sér almennt ekki til að keppa við útlendinga um kilóvöruna, þegar þar við bætist einnig, að gengið er hin- um síðarnefndu I vil. Þetta verður þvi til þess, að kílóvaran streymir að langmestu leyti úr landi. Slíkt er með öllu óviðun- andi, og þá ekki sizt fyrir það, að í henni er tiltölulega mikið af háum verðgildum og eftir- sóttum. Þessi mismunun milli islenzkra og erlendra frí- merkjasafnara hefur einnig um langt skeið átt sér stað í sam- bandi við uppboð hér á landi. Hefur oft verið bent á þetta óréttlæti í blöðunum, en fjár- málaráðuneytið daufheyrist alltaf við. Er von min sú, að Landssamband íslenzkra frí- merkjasafnara láti málið alvar- lega til sin taka á næsta þingi nú í sumar. Ætti þá að muna verulega um stuðning Félags frímerkjasafnara, sem er að ganga í Landssambandið um þessar mundir. Hef ég ekki trú á öðru en samningar geti tekizt hér um þetta söluskattsmál á sama hátt og þeir tókust í Sviþjóð fyrir fáum árum. Þar varð fundin lausn, sem allir gátu unað við og töldu sann- gjarna. Sannleikurinn er sá, að í þessum efnum eiga aliir safn- arar að sitja við sama borð, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir. Allt annað er óhæfa. Tryggvi Glslason (jakkalaus) er f mótstjórn Islandsmótsins sem fram fer á Hótel Loftleiðum um páskana. Hér spilar hann gegn Einari Þorfinnssyni — en Einar er einn af elztu þátttakendum Islandsmótsins f ár og lætur engan bilbug á sér finna. Guðmundur og Ester efst í parakeppni BK Fjórum umferðum af fimm er nú lokið f parakeppni Bridgefélags kvenna. Staða efstu para: stig Ester Jakobsdóttir — Guðmundar Pétursson 768 Steinunn Snorradóttír — Agnar Jörgensson 746 Halla Bergþórsdótt ________ — Jóhann Jónsson 735 Guðriður Guðmundsdóttir — Sveinn Helgason 732 Sigríður Pálsdóttir — Jóhann Jóhannsson 714 Sigrún Ölafsdóttir — Magnús Oddsson 713 Guðrún Bergsdóttir — Benedikt Jóhannsson 705 Ingunn Bernburg — Ólafur Karlsson 695 Meðalskor: 624 stig. Siðasta umferðin í þessari keppni verður spiluð mánudag- inn 4. apríl n.k. og hefst kl. 20 stundvislega í Domus Medica. Síðasta keppni starfsársins er svo fyrirhuguð paraeveita- keppni, sennilega með harð- keppnisfyrirkomulagi, og hefst sú keppni mánudaginn 18. april. Þátttökulistar munu liggja frammi á næsta spila- kvöldi, og óskað er eftir, að þeir sem ætla að taka þátt í keppn- inni láti skrá sig þá. Tollstjóraembætt- ið efst í firma- keppni Ásanna Firmakeppni Ásanna lauk fyr- ir nokkru en uppgjör hefur að- eins dregist á langinn. Þátttaka var geysigóð, en alls tóku 96 firmu þátt f keppninni, sem jafnframt var einmennings- keppni félagsins. Keppt var í 6 ••iðlum. Efstu skor tók Toll- ,tjóraembættið f Rvfk, spilari Lárus Hermannsson. Úrslit i riðlum urðu þessi: A-riðill: Kaupgarður ....... Vigfús Pálsson 114 stig. B-riðill: Tollstj.emb....... Lárus Hermannseon 123 stig C-riðill: Vörumerking ...... Sigriður Rögnvaldsdóttir 111 stig D-riðill: Verzl. Álfhóll.... Trausti Finnbogason 112 stig E-riðill: Snyrti og hárgr. st. Edda, Sólheimum ............ Sigríður Rögnvalds. 107 stig. F-riðill: Félagsh. Kóp...... Jón Jónsson 105 stig. Sigríður Rögnvalds- dóttir sigraði í einmennings- keppninni Einmenningsmeistari félags ins varð Sigríður Rögnvalds- dóttir, og er hún fyrsta konan sem þann heiður hlýtar í félaginu. Er það að vonum ánægjulegur viðb.urður, og sannar að viðar en á Akureyri geta konar unnið einmenning. Efstu spilarar samanlagt urðu þessir: 1. Sigríður Rögnvalds. 313 stig 2. Lárus Hermannsson 305 stig 3. Trausti Finnbogason 303 stig Aðrir komust ekki yfir 300 stig. Félagið vill eindregið þakka allan veittan stuðning þeirra firma og stofnana sem þátt tóku I hinni árlegu keppni okkar, og stuðluðu þar með að uppbygg- ingu félagsstarfs, sem eingöngu starfar á frjálsum grundvelli. Stjórn Ásanna hefar í hyggju að gefa út I lok reglulegs starfs- árs, rit sem inniheldur almennt yfirlit yfir sl. keppnisár, og þar mun ítarleg skrá vera um þau firmu sem þátt tóku f keppni okkar í ár. Þess má geta að flest þessi firmu hafa styrkt Ásana frá byrjun. Stjórn Asana hefar einnig I hyggju að halda áfram með sumarspilamennsku þá sem hófst sl. sumar, og tókst með miklum ágætum, sérstaklega síðari hluta sumars. Um leið vildum við þó skora á bridge- samb. stjórn., að kanna mögu- leika sina í þá átt, að spila reglulega einu sinni I viku á eigin vegum, því vissulega er það nauðsyn, fjárhagslega séð. Að loknum 19 umferðum af 23, í Barometers-keppni Ás- anna, hafa þeir félagar Ármann og Sigurður Sv. tekið góða for- ystu. Staða efstu para er þessi. Stig 1. Ármann J. Lárusson — Sigurður Sverrisson 1408 2. Lárus Hermannsson — Ólafur Lárusson 1369 3. Jón Páll Sigurj. — Guðbr. Sigurbergss. 1359 4. Þorlákur Jónsson — Haukur Ingason 1343 5. Karl Adólfsson — Georg Sverrisson 1343 6. Magnús Aspelund — Steingrímur Jónasson 1335 7. Kristján Blöndal — Valgarð Blöndal 1315 (Þrjár síðustu fréttir eru frá Ólafi Lárussyni blaðafulltrúa Ásanna í Kópavogi) Blönduð sveit Níelsar sigraði í Siglufirði Fyrir nokkru lauk þriggja kvölda hraðsveitakeppni 1 Briflge eftir ARNÓR G. RAGNARSSON Siglufirði. 1 keppni þessari rugluðu sveitirnar saman reyt- um sínum og lauk keppninni með sigri blandaðrar sveitar Nielsar Friðbjarnarsonar. Röð sveitanna varð þessi: stig 1. sveit Nielsar Friðbjarnars. 1462 2. sveit Jónasar Stefánss. 1391 3. sveit Ástu Ottesen 1258 4. sveit Jóns H. Pálss. 1228 5. sveit Georgs Ragnarss. 1141 Næst verðar spilað firma- keppni og einmenningskeppni. Jöfn keppni hjá Breiðhyltingum Fjórum umferðum af sex er lokið i sveitakeppni Bridge- félags Breiðholts. Spilaðir eru tveir leikir á kvöldi og eru 16 spil f hverjum leik. Staða efstu sveita: stig Baldur Bjartmannsson 65 Eiður Guðjohnsen 62 Pálmi Pétursson 48 Keppninni lýkar á þriðjudag- inn kemur — en þriðjudaginn eftir páska verður eins kvölds tvímenningur. 19. april hefst svo þriggja kvölda Barometer- tvímenningur með tölvugefn- um spilum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.