Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 11

Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 1 J Vandamál atvinnuveganna SAMKEPPNI MAGNI Guðmundsson mun skrifa fasta þætti hér I blaSið um vandamál atvinnuveganna, verzl- un og viSskipti. Hann hefur skrif- aS I MorgunblaðiS 'áður og er lesendum þvt vel kunnur. Magni hefur veriS að störfum t Kanada um hrtð og jafnframt t framhaldsnámi. Hann lauk doktorsprófi i hagfræSi á s.l. ári og fjallaSi ritgerð hans að megin- efni um „Monopolloven" f Dan- mörku. en á þeim lögum er ts- lenzk verzlunarlöggjöf byggS og væntanlegt lagafrumvarp þess efnis. Innan skamms verður birt við- tal við Magna Guðmundsson hér t blaðinu og segir hann þar frá námi stnu og störfum vestra. Greinar Magna munu birtast mánaSarlega og þá á laugardög- um. Hér birtist fyrsta grein hans. Islendingar hafa búið við verðlagsákvæði um áratuga- skeið. Þau hafa verið með ýmsu móti. Lengstum hafa gilt fastar reglur um álagningar-prósentu. Stundum er hækkun verðs háð takmörkun eða jafnvel stöðvuð með lögum. Tilgangurinn með öllum aðgerðum af þessu tagi er að tryggja hóflegt verðlag í landinu og koma í veg fyrir skyndihækkanir. Við höfum gengið lengra í þessa átt en flestar aðrar þjóðir V-Evrópu, en ekki haft erindi sem erfiði. Verðbólga hefir«verið við lýði hérlendis siðan 1940 nær sam- fellt og hraði hennar á síðustu árum í hámarki. Ástæður þessarar útkomu eru aðallega tvær: (1) Beinar verðlagshömlur geta af eðli- legum orsökum ekki staðizt nema skamma hrið. (2) Slikar hömlur gagna þvi aðeins, að stjórn peningamála sé jafn- framt I góðu lagi og fjárfesting í samræmi við sparnað þjóðar- innar á hverjum tíma. Hvorugt skilyrðanna Iiefir verið fyrir hendi. Með slika reynslu að baki geta landsmenn varla gert sér miklar vonir um árangur beinna verðlagshafta einna saman í framtið. Þess vegna vilja margir reyna nýjar leiðir. Að minni hyggju er fyrir löngu timabært að gera gangskör að þvl að auka samkeppni fyrir- tækja og efla um leið með öll- um tiltækum ráðum verðskyn almennings, sem er slævt orðið. Fregnir hafa borizt um það, að frumvarp til laga, sem stefnir I þessa átt, verði senn lagt fyrir Alþingi. Sá, er þetta ritar, hefir ekki kynnt sér innihald þess. Hins vegar verða sett fram hér að neðan nokkur grundvallar- atriði, sem gjarnan er tekið mið af við slika lagagerð. Hið fyrsta, sem ákveða þarf, er gildissvið laganna I vlðri merkingu. Eiga lögin að taka til markaðsbyggingar eða markaðshegðunar? Fyrra hug- takið vtsar til seljendanna, tölu þeirra og stærðarhlutfalla. Þannig hafa t.d. Bandarikin, Kanada og Japan ákvæði I sinum lögum, sem setja skorður við samruna tveggja eða fleiri fyrirtækja I eitt. Norðurlöndin á hinn bóginn aðhyllast svo- nefnda hegðunarkenningu. Þau fordæma ekki hringa- myndun eða einokun sem slíka, en vilja eftirlit til að hindra misbeitingu markaðsvalds af hálfu þessara fyrirtækja og iðk- un óhollra viðskiptahátta. Þau ríki, sem hlutast til um hegðun markaðsráðandi fyrir- tækja, skiptast aftur I tvo hópa. Sum beita svonefndri bann- reglu (Frakkland, Þýzkaland, Spánn), önnur svonefndri matsreglu (Skandinavla, Niðurlönd, Bretland o.fl.). Skv. fyrri reglunni eru tilteknir við- skiptahættir dæmdir ólöglegir, hvort sem þeir teljast hafa skaðleg áhrif eða ekki. Skv. þeirri seinni verður jafnframt að sanna, að viðskiptahættirnir séu „ósanngjarnir", „ótilhlýði- legir“, „gegn almenningsheill“ eða annað I þeim dúr. Yfirleitt vilja kaupsýslumenn hafa bein og skýlaus ákvæði, þvi að öll óvissa I lögum lamar einka- framtak og tefur hagvöxt. Hér er úr vöndu að ráða, þvl að rökin með og móti hvoru sjónarmiði um sig eru mýmörg. Meginatriði I þessu sambandi er það, að matsreglan leggur mikla ábyrgð á herðar þeirra, sem með úrskurðarvaldið fara. Vandi dómenda vex til muna, þegar samkeppnislög hafa ekki nein boð eða bönn. Mál, sem upp koma, eru þá dæmd eftir hinum sérstöku aðstæðum, sem hlutaðeigandi fyrirtæki býr við. Þræddur er meðalvegurinn milli eiginhagsmuna þess ann- ars vegar og almenningshags- muna af hóflegu verði hins vegar. Málin eru þannig vaxin, að lagakunnáttan ein dugar ekki til að skera úr um þau, heldur þarf víðtæka þekkingu á sviði viðskipta og hagfræði. Norðurlöndin hafa leyst þraut- ina með þvl að láta dómstól leikra manna, sem hafa reynslu úr atvinnullfinu, fjalla um brot á samkeppnislögum. Nokkur landanna (Noregur, Svlþjóð) leyfa ekki að áfrýja úrskurði, sem slíkur markaðsdómstóll hefir fellt, heldur áfrýja aðeins þvl atriði, hvort hann hafir farið út fyrir gildissvið lag- anna. Allt veltur því á hæfni mannanna, sem veljast i þessa dómstóla. Viðhorfin til refsiákvæða I lögum sem þessum mótast af tveim gagnólíkum sjónar- miðum. Annað er það, að fá- mennur hópur kaupsýslu- manna gerist sekur um ótil- hlýðilega viðskiptahætti og hlutverk laganna sé að klófesta þann hóp. Hitt sjónarmiðið er, að löngunin til þess að styrkja stöðu slna á markaðinum (einokunarhneigðin) sé af sama toga spunnin og sjálf hagnaðarhvötin og því sam- eiginleg öllum, sem viðskipti reka. Þetta seinna viðhorf er rlkjandi á Norðurlöndum, sem beita vægum refsingum og telja auglýsinguna bezta vopnið gegn þeim, sem verða of ákafir i gróðakapphlaupinu. Fyrir Islendinga skiptir miklu að sniða sér stakk eftir vexti. Kostnaði við stjórn- sýsluna verður að stilla I hóf. Það ætti að geta tekizt, þvi að möguleikar á frjálsri verð- myndun hérlendis eru tals- verðir. I smásöluverzluninni eru skilyrði samkeppni vlðast góð. Svo er einnig I heildsölu, ekki slzt ef stórfyrirtæki eins og Innkaupastofnun rikisins og Sambandið gerast virkir þátt- takendur. Islenzkur iðnaður býr við samkeppni að utan, enda eru flestar framleiðslu- vörur hans innfluttar lika. Ef unnt er að örva samkeppni i þessum atvinnugreinum, þrengist sviðið, sem verðgæzlan þarf að grlpa inn á . Næsta grein, sem er um óskylt efni, mun birtast fyrsta laugardag I mai. Magni Guðmundsson. Skálafell rúmar 85 manns I sæti. Ljósm. Mbi. Fríðþjófur Nýr veitingastað- ur á níundu hæð Hótels Es ju SKÁLAFELL nefnist nýr veit- ingastaður, sem opnaður var á niundu hæð Hótel Esju I Reykja- vík I gær. Verða þarna á boðstól- um margs konar léttir réttir auk veitinga. 1 einu orni salarins, sem er um 160 fermetrar að flatar- mali, er lltið dansgólf og þar mun tónlistarmaðurinn Jónas Þórir leika á rafmagnsorgel um helgar fyrst um sinn en aðra daga verður leikin hljómlist af tónbandi. 1 Skálafelli verða sæti fyrir 85 manns I sófum og við borð. Loft og slarkynni Skálafells prýða myndskreytingar úr speglum og öðru gleri og eru það listaverk unnin af Leifi Breiðfjörð. Hjartanlegar þakkir til allra sem minntust mín á áttræðisafmælinu mínu 26. marz s.l. Lifið heil. Margrét Magnúsdóttir. Reynimel 23. Á blaðamannafundi með for- ráðamönnum Hótels Esju I gær kom fram, að frá þvi að Esjuberg var opnað á fyrstu hæð hótelsins hefur niunda hæðin staðið svo til ónotuð en hins vegar hefði verið þörf á setustofu fyrir hótelgesti og stað þar sem hægt væri að koma saman og þar sem á boðstól- um væru léttar veitingar I vist- legu umhverfi. Því hefði verið tekin ákvörðun um að breyta innréttingu níundu hæðarinnar og er innréttingum nú komið fyrir með þeim hætti að gestirnir megi sem bezt njóta útsýnis frá staðnum. Fram kom á blaðamanna- fundinum, að skömmu eftir að Flugleiðir keyptu Hótel Esju og tóku við rekstri hótelsins, 1. apríl 1974, hafi gagngerar endurbætur hafizt á húsnæðinu, enda vantaði margt sem nauðsynlegt var vegna reksturs stórs gistihúss, að sögn forráðamanna hótelsins. Með opn- un Skálafells er þessum endur- bótum á núverandi húsnæði hótelsins lokið. Eins og áður sagði prýða salar- kynni Skálafells myndskreyting- ar eftir Leif Breiðfjörð, en hann gerði einnig glermynd þá sem nú prýðir veitingabúðina Esjuberg á neóstu hæð Hótels Esju. Inn- réttingar I Skálafelli eru hannaðar af Teiknistofunni Ármúla 6 en byggingarmeistari var Leifur Glslason. Skálafell verður opið á venjulegum tíma veitingahúsa. STAIMDEX KERFI verzlunarinnrétting Hekla h.f. raftaskjav. húsgögn og innréttingar Rafmagnsveita Reykjavikur v. Ármúla í hvers konar innréttingar og húsgögn Standex-kerfi skapar nýja möguleika í innréttingum og húsbúnaði Standex-kerfið býður ótrúlega marga nýja kosti fyrir þá sem vilja fylgjast með og leita smekklegra og hagkvæmra lausna. Það er notað í þiljur, grindur og skilrúm; hillur, borð, skápa o, m. fl. Meginhlutarnir eru: ferhyrnd álrör með silfur- áferð, tengsl, hengi og fætur. Standex-kerfið hentar vel verzlunar-, skrifstofu- og skólahúsnæði. Einnig á sýningar- svæðum eða þar sem þörf er á búnaði sem fljótlegt er að setja saman, taka niður og nota á ný. Samskeytin eru hins vegar límd, eigi notkun að vera varanleg. Standex-kerfið er dönsk gæðaframleiðsla. Éi Leitið nánari m upplýsinga ^^VLflrLk-SbkL-l Laugavegi 178. Sími 38000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.