Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 25

Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977 25 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Sumarbústaður óskast á leigu Upplýsingar i s. 22280, kl. 9—5 og 20942, eftir kl. 6. Nýtt parhús til sölu i Hveragerði. Fullfrá- gengið. Upplýsingar i sima 99-4364. Trésmíðameistari Get tekið að mér verkefni nú þegar. Einnig úti á landi. Hef handhægar trésmiðavélar. Hjörtur Valdimarsson, simi 52627 á kvöldin._______ Verkamenn Tveir verkamenn óskast i byggingavinnu, helst vanir. Uppl. i sima 33776. Enskunám í Englandi Fjögurra vikna sumarnám- skeið hefst i BOURNE- MOUTH INTERNATIONAL SCHOOL 11. júni n.k. Uppl. gefur Sölvi Eysteinsson, Simi 14029. Bílstjórinn á Renault bifreiðinni sem tók tvo farþega upp i Draghálsi 27. marz s.l. og ók þeim niður að Ferstiklu, vinsam- legast hringið í síma 81024 sem allra fyrst. Tapað fundið Svart seðlaveski frá Lands- banka Islands tapaðist á leið frá Reynimel — Miðbær. Finnandi vinsaml. hringi í sima 15621 — 15821. Kúrekastígvél. Til sölu ný og ónotuð, falleg kúrekastigvél úr ekta leðri, nr 40 og 41. Verð aðeins 8.500 kr. parið. Uppl. í sima 15007 og 14704. Til sölu þjóðhátíðarpeningarnir '74 2 silfur og 1 gullpeningur i fallegri öskju. Sérunnin slátta (proof). Uppl. i sima 92- 2339 Keflavík. Munið sérverzlunina með ódýran fatnað Verðlistmn Laugarnesvegi 82. s. 31330. □ HELGAFELL 5977422 IV/V — 5 □ Gimli 597747 — 1. Frl. Samtök Astma- og Ofnæmissjúklinga. Skemmtifundur verður að Norðurbrún 1 kl. 3 i dag. Kvikmyndasýning, veitingar, bingó. Skemmtinefndin. Kristniboðsvikan Amtmannsstíg 2b Á Kristniboðssamkomunni i kvöld kl. 20.30 tala: Guðlaugur Gislason og Astrid Hannesson. Skúli Svavarsson sýnir myndir: Tvisöngur Dagný og Elsa. Allir velkomnir i KFUM - KFUK Lokasamkoma kristni- boðsvikunnar verður sunnudagskvöld kl. 20.30 i húsi félagsins við Amtmannsstig Þröstur Eiriks- son, Rúna Gisladóttir, Vil- borg Dyrset og Skúli Svavars- son tala. Karlakór K. F. U.M. syngur. Tekið verður á móti gjöfum til kristniboðs. Allir velkomnir. Félag Austfirskra kvenna heldur skemmtifund mánu- daginn 4. april að Hallveigar- stöðum kl. 20.30. stundvís- lega. Spiluð verður félags- vist. Stjórnin. Fíladelfia Almenn samkoma i kvöld kl. 20.30 ræðumaður Enok Karlsson. Kvenfélag Laugarnessóknar Fundur verður haldinn mánu- daginn 14. apríl i fundarsal kirkjunnar kl. 8.30 Kvik- myndasýning o.fl. Rætt verður um spilakvöldið sem haldið verður á Hótel Esju föstudagskvöldið 15. april. Stjórnin. ■ ANOifG HREYSa-AUitA HBL ■GEÐVERNOARFSLAQ islanos* 1.0. G.T. Þingstúka Reykjavikur. Aðalfundur er i dag laugar- dag og hefst kl. 2 i Templara- höllinni. SIMAR. 11798 og 19533. Laugardagur 2. ápríl kl. 13.00 Gönguferð. Sléttahlíð- Búrfellsgjá-Búrfell-Kaldársel. Létt og hæg ganga. Farar- stjóri: Gestur Guðfinnsson. Verð kr. 800 gr. v/bílinn. Sunnudagur3. apríl kl. 10.30 Gengið frá Hveradölum um Lágaskarð að Raufarhólshelli. litið inn i hellinn í lok göngunnar. Far- arstjóri: Sigurður B. Jóhann- esson. Verð kr. 1000 gr. v/ bílinn. kl. 13.00 Stóra Reykjafell og nágrenni. Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson. Verð kr. 1 000 qr. v/ bílinn. Ferðafélag íslands. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Lítið verzlunarpláss er til leigu á bezta stað við Laugaveg hentugt fyrir snyrtivörur, gjafavörur og þess háttar. Tilboð sendist Mbl. merkt. K — 2295. Félag bílamálara Skemmtun í Golfskálanum, Grafarholti í kvöld. laugardaginn 2. apríl kl. 21.00. Takið með gesti. Stjórnin. tilkynningar Athugið frá og með 4. apríl, verður lækningastofa mín að Háaleitisbraut 23, gengið inn að vestanverðu. Símaviðtöl og tímar á stofu verða hin sömu og áður, nema miðviku- daga þá verða símaviðtöl kl. 1 — 2 e.h. og viðtöl á stofu kl. 2 — 4 e.h. Sími 30860. Þórður Oddsson. húsnæöi öskast Óskum eftir að taka á leigu strax 150 — 200 fm. húsnæði á góðum stað nálægt miðborginni. Þarf að vera á jarðhæð með góðum bílastæðum. Tilboð sendist fyrir 6.4. ' 77. Tékkneska bifreiðaumboðið á Islandi. Auðbrekku 44—46 Kópavogi JÖFUR HF — Sjávarútvegs- ráðherra Framhald af bls. 17 hrygningarstofninn var stærstur 1.2 millj. tonna árið 1957, en minnkaði niður í 237 þúsund tonn 1967. Vegna göngu frá Grænlandi stækkaði hann i 670 þús. tonn 1970, en síðan hefur stofninum hnignað hratt og er hrygningar- stofninn nú aðeins talinn vera 180 þús. tonn og aldrei verið minni. Kvað Jakob fiskdauða hafa minnkað nokkuð á siðasta ári vegna aðgerða stjórnvalda, en engu að síður væri ástandið geig- vænlegt. Sagði hann, að vísinda- menn væru nú hræddir um að hrygningarstofninn væri kominn að þeim mörkum, að endurnýjun stofnsins væri i verulegri hættu. Það væri kannski ekki gott að bera saman þorsk- og síldarstofn- ana, þar sem um ólikar tegundir væri að ræða, en okkur væri það lífsnauðsyn að þorskurinn hlyti ekki sömu öriög og t.d. norsk- islenzki síldarstofninn, eða v- grænlenzki- þorskstofninn, sem væri gott dæmi um fiskstofn, sem hefði liðið endurnýjunarskipbrot. Minnti hann á að þegar kyn- þroska hluti síldarstofnsins var kominn niður í 1/10 af þvi sem hann var stærstur hefði endur- nýjunarhæfileikann brostið, hrygningarstofn þorsksins væri ekki iangt frá þeSsum mörkum, eða um 15% af þvi sem hann var stærstur. tJtlitið ekki eins dökkt og fyrir 2 árum Ennfremur sagði J :kob, að þótt ástandið i dag væri ekki gott, þá væri framtiðarútlitið ekki eins dökkt og það leit út fyrir svo sem 2 árum. Að visu var þá reiknað með, að árgangurinn frá 1973 yrði sterkur og svo virðist ætla að verða, enda þótt hann komi senni- lega ekki út með þeim styrkleika sem reiknað var með. Hins vegar var gert ráð fyrir að árgangurinn frá 1972 yrði lélegur, en hann virðist ætla koma út sem meðal- árgangur. Hér væri því efniviður til að hressa upp á hrygningar- stofninn. Sogði hann að fræðilega nýttist framleiðni hafsins bezt við að veiða þorskinn 5—7 ára. Þá væri fiskurinn búinn að ná hag- kvæmri stærð og vaxtarhraði og þyngdaraukning þá mest. Eftir að þorskur hefði hrygnt drægi mjög úr vaxtarhraðanum. 155 mm möskvar fyrirbyggi óhóf- legt smáýsudráp Jakob ræddi einnig um ýsu- og ufsastofninn og sagðist vona, að þær aðgeðir.sem gerðar hefðu verið, nægðu lil að vernda stofn- inn, t.d. ætti 155 mm möskvinn vonandi að fyrirbyggja óhóflegt smáýsudráp, og eins bann við veiði þessara fisktegunda i herpi- nót. Á siðasta ári var ýsuaflinn 41 þúsund tonn en talið er að ýsu- stofninn eigi að geta gefið af sér 70—75 þúsund tonn á ári. Ufsa- aflinn var tæp 80 þúsund tonn á sl. ári og hefur verið mælt með 64 þúsund tonna veiði á ufsanum á næsta ári. Þá kvað hann karfa- stofninn eiga að geta gefið af sér 80—90 þúsund tonn á ári, en á s.l. ári hefði veiðin verið 72 þúsund lestir, það væri þó lægð í þessum veiðum. Að lokum vék dr. Jakob að rækjuveiðunum við Djúp og minnti á hver árangurinn hefður orðið síðan farið var að ákveða kvóta á veiðinni. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands isl. útvegsmanna, flutti síðasta framsöguerindið. Ræddi hann um sjóðakerfið í upphafi. í því efni taldi hann eðli- legt að menn ihuguðu hvort rétt eða rangt hefði verið að gera þær breytingar á sjóðakerfinu, nú 1 ári eftir að það var gert. Lét hann i ljós þá skoðun sina, að þar hefði óumdeilanlega verið stigið rétt skref til mikilla bóta fyrir heild- ina, en sagði að fram hjá því yrði ekki gengið, að sjóðakerfisbreyt- ingin hefði valdið mörgum út- vegsmanninum auknum erfiðleik- um. tJtflutnings- gjaldið 3,6 milljarðar Þá gerði Kristján grein fyrir nýju lagasetningunum, sem voru sjóðakerfisbreytingunni samfara og sagði að 6% af útflutnings- gjaldinu væri nú skipt á milli viðtakenda, aflatryggingarsjóðs og fiskveiðasjóðs. Tekjurnar miðuðust við 60 milljarða kr. út- flutning og því yrði útflutnings- gjaldið alls 3.6 milljarðar. Sagði hann, að án breytinganna, sem gerðar voru, hefði útflutnings- gjaldið orðið um 6 milljaiðar þvi það var 16% en fór i 10%. Þá minntist Kristján á hinn geigvænlega olíukostnað út- gerðarinnar og sagði að nú yrði útgerðarmaður að greiða 30 kr. fyrir litrann af oliunni, en fyrir sjóðakerfisbreytinguna hefði litrinn verið seldur á 5.80 kr. og 65% vátryggingargjald hefði nær allt verið greitt af vátryggingar- sjóði. Gerði hann nú grein fyrir verðmyndun á olíunni og gagn- rýndi mjög að ríkisstjórnin skyldi leggja innflutningsgjöld á svo mikilvæga rekstrarvöru. „Þetta þekktist hvergi i samkeppnislönd- um isl'endinga," sagði Kristján. 1500 millj. kr. í vátryggingar Það kom fram hjá honum að vátryggingargjöld fiskiskipa eru nú ákveðin í samvinnu L.l.Ú. og samtaka vátryggingarfélaganna þ.e.a.s. gjöld allra skipa yfir 100 rúmlestir, en Samábyrgð Isl. á fiskiskipum sér um tryggingu á skipum uridir 100 rúmlestum. Samningur L.Í.Ú. og vátrygingar- félaganna hljóðar upp á tæpar 1500 milljónir fyrir yfirstandandi ár, og er meðaliðgjald á skip 3.1% 1 þessu efni gerði Kristján grein fyrir þvi hvernig aðhaldi er beitt i tryggingarmálunum bæði með hárri sjálfsáhættu, sem nemur 500—600 þús. kr. á bátaflotanum og 970—1370 þús. kr. á togara- flotanum. Auk þessa eru sérstök refsigjöld fyrir þá sem valda miklu tjóni, 660 þús. á báta og 1320 þús. kr. á togara. Þá hefur nú verið tekið til athugunar að taka upp sérstakt bónuskerfi fyrir þá sem ekki valda tjóni. Að sögn Kristjáns er innheimtu á vátryggingargjöldunum nú háttað þannig, að hluti þess sem útgerðarmanninum ber að greiða er nú greiddur með sérstöku 5% gjaldi af aflaverðmæti og er það innheimt af viðskiptabanka og fært á sérreikning viðkomandi báts, siðan sér L.I.Ú. um frágang greiðslnanna. Nú vék Kristján að samþykkt stjórnar L.Í.Ú. um það með hvaða hætti takmarka ætti þorskveiðina við 275 þúsund lestir og hið alvar- lega ástand stofnsins. Samþykkt L.Í.Ú. byggist á því að þegar 240 þús. tonna þorskafla er náð, verði skipunum ekki leyft að koma með nema ákveðinn hundraðshluta af þorski í land úr hverri veiðiferð. Iðnaðurinn nýtur betri kjara en sjávarútvegur Að lokum ræddi Kristján Ragnarsson um þann mikla áróður sem nú va'ri viðhafður af iðnaðinum. Nefndi hann sérstök dæmi, þar sem iðnaðurinn nyti miklu betri kjara en sjávarút- vegurinn, t.d. tollfríðinda á tækj- um til iðnaðar, auk þess sem ekki væri nægilega haft i huga, að sjávarútvegurinn ætti í sam- keppni við stórlega styrktan sjávarútveg annarra landa. Varaði hann sérstaklega við sér- stökum auðlindaskatti, sem yrði ekkert annað en sérstök tollvernd fyrir iðnaðinn. Þ.Ó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.