Morgunblaðið - 02.04.1977, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 02.04.1977, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 M0R#dN-M\ KAFr/NJ \ r (í) mTí' o 0 ?2__ &í 1/ JLltíÍ GRANI göslari 125 Viltu tattóvera hérna á hann : Framhlið; nl,li.,' II i' . - \ | I tl I M < * ✓‘J MOVLE- ^ Guð sé oss næstur — ertu bilaður maður! Apakettir eru það, halda að við gleypum þetta! I> jónustan tæp- ast nógu góð BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Sé litið á allar hendurnar i spili dagsins, virðast þrjú grönd spiluð i suður verið auðveldur samn- ingur. En varnarspilararnir voru klókir og gerðu það sem þeir gátu. Suður gefur, allir utan hættu. Norður S. G72 H. Á86 T. ÁK1093 L. K9 Vestur Austur S. K986 S. 43 H. D42 H. 6975 T. G4 T. D872 L. 7653 L. ÁDIO Suður S. ÁD105 H. K103 T. 65 L. G842 Suður hafði sagt spaðalit sinn og þess vegna spilaði vestur út laufsjöu en hann og félagi hans notuðu þá ágætu reglu að spila út hæsta með eingöngu lág spil i litnum. Spilarinn lét lágt frá blindum og austur tók með drottningu. Austur sá, að laufsjöið var ekki fjórða hæsta og hlaut því að vera hæsta spil vesturs i litnum. Þess vegna gat ekki verið rétt að spila aftur laufi. Og ekki var spaðinn líklegri til árangurs úr því suður hafði sagt þann lit. Ennfremir var ljóst að spilarinn gat náð sér I fjóra slagi á tígullitinn og vörnin þurfti þvi að ná slögum sínum strax. Það var því hjartaliturinn, sem varð að gefa slagi varnarinnar. Og austur fann eina spilið, sem gerði sagnhafa erfitt fyrir. Hann spilaði hjartaníu. Suður lét tíuna og drottningin kostaði ásinn. Nú spilaði suður laufkóng og aftur var austur í vanda. Taki hann á ásinn vinnur suður spilið auðveld- lega, hann fær þrjá slagi á spaða og tvo á hven hinna litanna. Og ekki getur austur spilað aftur hjarta þvi þá fær suður á áttu blinds. Hann gaf því laufkónginn. Nú spilaði suður lágum spaða frá blindum og tók á ásinn. Hann mátti ekki svfna því þá nær vörnin að fría hjartað of snemma. Siðan fékk austur á laufásinn og nú var spilið í höfn. Austur gat ekki spilað hjarta frekar en síð- ast, spilaði því tígli og suður hafði tíma til að ná spaðaslögunum, sem voru nauðsynlegir. Borgari skrifar: „Strætisvagnar Reykjavikur veita að mínu mati ekki þá þjónustu sem þeim ber að gera við borgarbúa. Hvar i heiminum skyldi það t.d. þekkjast þegar vagn kemur á biðstöð að vagn- stjórinn hlaupi út og loki vagnin- um, þótt margt fólk bíði eftir að komast inn. Þetta er svo til alls staðar. Þó tekur út yfir eins og sést stundum á leið 2 að vagninn er ekki á sinum stað, heldur við kaffivagninn og vagnstjórinn inni að drekka kaffi eða spila á Rauða koss kassann. Það væri fróðlegt að fá upplýst hvort þetta á að vera svona og jafnframt hvort fleiri vagna vanti, því stundum á mesta annatíma dagsins má sjá 15—20 vagna á stæðinu við Kirkjusand. Einnig langar mig að spyrja hvort ekki væri heppilegra að nota minni vagn á Njálsgötu-leiðinni þar sem sjaldan eru fleiri en 5—6 hræður í hverri ferð. En varðandi vagnstjórana er það að segja að mér finnst þeim vorkunnarlaust að vera i vagninum þá 6 tima sem þeir eru á vakt. % Föstumessur Borgarinn heldur áfram: „Nú liður að páskum og enn hefur engin föstumessa verið haldin í Háteigskirkju frekar en fyrri ár, en messur eru þar m.a. kl. 17 á daginn. Ég fór i eina slíka um daginn og voru um 10 drengir við þá athöfn, sem var aðallega söngur kórsins, sem var mjög góður eins og alltaf. Eg skil ekki þá ráðstöfun prestanna að geta ekki haft messurnar kl. 11 eða 12, því þegar veðrið er gott þá fer fólk út i náttúruna á eftirmiðdög- um. Annar prestanna hefur altarisgöngu við hverja guðs- þjónustu, eins og á hátiðum og það finnst mér of oft. Þá er það dálitið leiðinlegt þegar fólk fer til altaris i gallabuxum og kannski óhreinum úlpum — getur ekki meðhjálpari bent fólki á að þetta eigi tæpast við? Borgari.“ Hér eru margar spurningar bornar fram og um ólík efni og er viðkomandi aðilum gefinn kostur á að svara ef þeir sjá ástæðu til. Varðandi strætisvagnana er það kannski erfitt að skylda vagn- stjóra til að sitja i vagninum aila þá 6 tíma sem vaktin stendur yfir, hann getur þurft að bregða sér inn i hús í margvíslegum erinda- gjörðum, og vill ekki eiga á hættu að menn svindli á fargjöldum. En til eru kannski frekari svör. Um messurnar í Háteigskirkju getur Velvakandi litið svarað, en hann man ekki betur en að oft hafi þar verið auglýstar messur á sunnudagsmorgnum, en ekki ein- göngu á eftirmiðdögum. ROSIR - KOSSAR - 0G DAUÐI 71 flestir segjast hafa gert. ÉG SVAF. ftg hafði verið á fartinni I marga kiukkutfma. Og þegar klukkan var hálfþrjú og ég var á ieiðinni heim frá tviburafæð- ingunni dottaði ég við stýrið. ftg varð hræddur og ákvað að betra væri að nema staðar og fá sér lúr... Það má segja að það hafi veri kjánalegt af mér að segja þessa sprungusögu mina, en þegar Fanny hríngdi klukk- an fimm um morguninn lá ein- hvern veginn við borð að ég skammaðist min fyrtr að hafa verið þreyttur — og vera það enn — og þá sagði ég þessa hvitu lygi eiginlega alveg ósjálfrátt. Og hvað snerti lög- regluna fannst mér það engu máli skipta hvort ég hefði setið f bllnum mfnum eða iegið und- ir honum að skipta um dekk... Umburðarlyndi Christers hafði fyrir löngu kennt honum að taka létt á yfirsjónum ann- arra og þvf sagði hann nú — ögn þurrlega að vfsu: — Ef það væri bara morðing- inn sem skrökvaði i morðmáli eins og þessu myndi starfið fyr- ir lögregluna verða fjarska meðfærilegt. Hann sneri sér að Helene sem eftir að hafa lokið skriftum sfnum hafði starað út um gluggann og var næstum grá f andliti. — ftg held að þið hafið nú sagt sannleikann bæði tvö og ég er ykkur þakklátur fyrir að gera það. Ég hef fengið skýríngu á sumu sem áður hef- ur valdið mér heilabrotum, til dæmis hinum taugaveiklunar- legu viðbrögðum Helene þegar nafn Jans Axels bar á góma... og einnig þegar dauðinn hefur verið nefndur. Og ég fæ ekki séð að þessi saga hafi nokkur tengsl við morðið á Frederik Malmer. Það getur að minnsta kosti varla verið að hann hafi fengið þessar upplýsingar á sunnudagskvöldið, hann hefði ekki breytt erfðaskrá sinni að þeim fengnum að hann hefði látið Helene fá margar milljón- ir og Björn Udgren sömuleiðis. En það eru samt sem áður nokkrar spurningar sem mig langar að leggja fyrir þig, Helene, ef þér væri sama... Sú fyrsta: Hittir þú nokkurn tfma Gertrud? Helene virtist undrast spurn- inguna. — Nei, aldrei. Ég kom ekki til Rauðhóla fyrr en löngu eftir að hún hvarf. — Minnistu þess að Jan Áxel hafi einhvern tfma talað um hana. — Já, hann gerði það. ftg man hann sagði að hún hefði haft ennþá Ijósara hár en ég og hefði verið mjög giaðlynd stúlka. — Nú bið ég þig að vera al- gerlega hreinskilin Helen. Tel- ur þú að það sé hugsanlegt að Jan Axel sé faðir Björns? — Ég hef sjálf veft þvf fyrir mér, sagði hún seinlega. — Og ég held ég geti svarað spurningunni neitandi. Sjáðu nú til, Jan Axel fannst mjög leitt að hafa ekki eignast son. Hann sagði meira að segja Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýdd« stundum að hann óskaði innst inni að ég yrði ófrfsk eftir hann og að ég fæddi honum son, og hann staðhæfði að hvað sem það orsakaði mikið hneyksli myndi ekkert geta varnað hon- um þess að gangast við barn- inu. Og ég held honum hafi verið alvara. ftg held Ifka að hefði hann átt son eins og Björn hefði hann með stolti og gleði gengist við því gagnvart öllum heiminum. Daniel Severin kinkaði kolli. — Helene hefur rétt fyrir sér. Þannig var Jan Áxel. Og auk þess hafði hann engan beyg af Frederik. Það var engu Ifkara en við hefðum gleymt þvf að sá sem við vorum að ræða um sat mitt á meðal okkar. Hann sat þarna og virtist Ifða hálfónotalega og lét sem allra minnst fyrir sér fara. Dökk augun horfðu skim- andi f kringum sig og hann virtist hafa lifandi áhuga á iillu þvi sem sagt var. Nú opnaði hann allt i einu munninn — okkur til óblandinnar undrun- ar — og sagði dimmri röddu:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.