Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977
37
U W JT
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Qgj/JAfrsVi''att'i) ir
• Bílaflutningar
„Mikið hefur verið rætt um
skipakaup, bílaflutningaskip,
ferjur og fleira að undanförnu.
Væri ekki eins hægt að tala um
skip álika stórt og Gullfoss eða
litið eitt stærra til þess að þjóna
þvi hlutverki, sem Gullfoss
gegndi, sigla með farþega og vör-
ur til annarra landa. Það eru ekki
allir sem vilja fara með flugvélum
á ákveðna staði og dvelja þar í
hálfan mánuð eða þrjár vikur.
Það eru margir sem vilja fara
sjóleiðina og skemmta sér þannig
og hvila. Það var bent á fyrir
nokkrum árum að gott væri fyrir
Islendinga að eignast slíkt skip til
ferða til Norðurlanda, megin-
lands Evrópu og til Miðjarðar-
hafslandanna. Þetta væri vel at-
hugandi og teldi ég að bezt væri
að Eimskipafélag lslands gengist
fyrir þessu. Fyrir nokkru kom
einhver vakning fyrir þessu, hug-
mynd var sett fram i blöðum,
hlutafé safnað, en siðan hefur
lítið meira heyrzt. En væri þetta
ekki athugandi?
% Ekkert liggur á
Þá iangar mig að minnast á
litasjónvarpið, sem nokkuð hefur
verið rætt um að undanförnu. Ég
held að það sé engin nauðsyn á að
koma þvi á strax, við eigum að
bæta sjónvarpið sem við höfum og
gera það þannig úr garði að allir
landsmenn geti haft not af því.
Það er alltaf verið að tala um að
við þurfum að endurnýja
sjónvarpið og við vitum að það er
nauðsynlegt að endurbæta og
viðhalda hlutum, en við eigum
ekki að kasta þeim frá okkur.
Ennfremur hefur verið talað
um leyfisveitingar til reksturs
sjónvarpsstöðva en er það nokkur
nauðsyn að bæta þar við. Er ekki
búið að gera nóg með útvarpi og
sjónvarpi — það má ekki spenna
bogann of hátt. Það væri æskilegt
að sjónvarpið gæti breytt um
ýmsa þætti, sýnt eitthvað sem
kæmi betur að gagni — eða vand-
að betur til dagskrár sinnar.
Flýtum okkur hægt í þessu efni
sem öðru, sígandi lukkan er bezt.
0
Þessir hringdu . . .
% Tvítaka
morgun-
stundina?
— Ég er ein hinna óánægðu
með tíma morgunstundarinnar,
sagði kona sem hringdi í vikunni,
og drengurinn minn, sem á að
mæta í skólann kl. 8:10, er óra-
tima að koma sér af stað vegna
þess að hann vill sem minnst
missa af sögunni. Honum nægir
að fara út svona 5 mín. yfir 8, en
hann dregur það stundum lengur
og verður of seinn fyrir bragðið.
Ég reyni að fara vel að honum, en
vil þó ekki æsa hann, og þannig
gera hann e.v.t. neikvæðan strax
að morgni dags fyrir skólann.
Hann er 10 ára og hafði t.d. mjög
gaman af sögunni sem var á und-
an þeirri sem nú er. Það mætti
kannski líka tvítaka söguna, rétt
eins og er með morgunleikfimina
eða og minnka þar með eitthvað
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Halle í A-þýzkalandi í október í
fyrra kom þessi staða upp í
skákinni sem gerði út um mót-
ið: Sovézki stórmeistarinn
Balashov hafði hvítt og átti leik
gegn kollega sínum pólverjan-
um Schmidt:
21. Rd5! — Rxd5 (Eða 21 . . .
* Rh5, 22. Re7+ — Kh8, 23. Hf8+
og vinnur) 22. Bxd5+ — Kh8
(Svartur verður mát eftir 22 ...
Dxd5, 23. Hf8+ — Kh7, 24.
De8) 23. De5! og svartur gafst
upp því að hann á enga vörn við
24. Hf7 nema 23 ... Bxh3 en þá
vinnur hvítur með 24. Hh4! (En
ekki 24. Hf7 — Dg5!) Úrslit
mótsins urðu þessi: 1. Balashov
8'A v. af 11 mögulegum. 2.
Schmidt 8 v. 3. Malich.A-
Þýzkalandi 7'á v. 4—5 Knaak og
Vogt (báðir A-Þýzkalandi) 7 v.
Þátttakendur voru alls 14, þar
af sjö stórmeistarar.
af tónlistinni nóg er af henni
hvort eð er.
— Annað, sem mig langar að
nefna og ég sá getið um I Velvak-
anda um daginn er, að einhver
var að tala um kaþólskuna eða
kaþólsk áhrif sem kæmu stundum
fram í morgunbæninni. Ég hef
tekið eftir þessu líka, þetta eru þó
mjög smávægileg atriði, það
smávægileg að ég gleymi þeim
fljótlega og vinkonur mínar
nokkrar, sem ég hef rætt þetta við
segjast ekki hafa tekið eftir
þessu. En ég er sammála þeim,
sem nefndi þetta I Velvakanda
um daginn, maður tekur eftir
þessu, þótt það sé ekki mjög
áberandi.
• Styttur
harmóniku-
þáttur
Einar:
— Einn hlut langar mig að
nefna , sem ég hef oft hugsað um
en það er, að harmónikuþáttur-
inn, sem er í útvarpinu á þriðju-
dagskvöldum, er oftlega styttur
mjög. Kvöldsagan eða fréttirnar á
undan ná oft fram yfir þann tíma,
sem þeim er ætlaður en þáttur-
inn, sem kemur á eftir
harmónikutónlistinni er alltaf
látinn byrja kl. 23, hvort sem
harmónikan hefur fengið að
hljóma í 10—15 mínútur eða
jafnvel enn styttra, en þátturinn
á að vera 15 mínútur yfirleitt.
Ég veit um fleiri sem eru þessu
sammála, það hafa fleiri en ég
gaman að harmónikutónlist, og
það er sannarlega ekki of mikið af
henni í útvarpinu — 15 mínútur á
viku. Og mér finnst ekki hægt að
leyfa sér að stytta hann þegar
dagskráin hefur eitthvað farið
fram úr áætlun, það getur varla
munað svo miklu þó að Hljóð-
bergið hefjist ekki fyrr en nokkr-
ar mínútur yfir ellefu.
HÖGNI HREKKVÍSI
Sjáðu til. Ég skal útskýra fyrir þér hlutverk
Lukkutrölla í kappleikjum!
OPIÐ TIL HÁDEGIS
BEZTA FERMINGARGJÖFIN
LL'XO
er ljósgjafinn,
verndið sjónina,
varist eftiriíkingar
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
Garðabær
Frá 1. apríl verður
afgreiðsla
Morgunblaðsins
í Garðabæ hjá
frú Þuríði Jónsdóttur,
Aratúni 2, sími 42988.
iltacgmtlilfiftifc
Toyota
Til sýnis og sölu, Crown 2000'72
Crown 2300 '71
Corona 2000 MK 1 1 '74
Corona 2000 MK 1 1 '73
Carina 1 600 4ra dyra ' 74
Carina 1 600 2ja dyra ' 74
Corolla '68
Volkswagen 1300 '70
Opið 1 dag og laugardag
Toyota umboðið h.f.
Nýbýlaveg 8 (bakhús) sími 44144