Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 37

Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977 37 U W JT VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI Qgj/JAfrsVi''att'i) ir • Bílaflutningar „Mikið hefur verið rætt um skipakaup, bílaflutningaskip, ferjur og fleira að undanförnu. Væri ekki eins hægt að tala um skip álika stórt og Gullfoss eða litið eitt stærra til þess að þjóna þvi hlutverki, sem Gullfoss gegndi, sigla með farþega og vör- ur til annarra landa. Það eru ekki allir sem vilja fara með flugvélum á ákveðna staði og dvelja þar í hálfan mánuð eða þrjár vikur. Það eru margir sem vilja fara sjóleiðina og skemmta sér þannig og hvila. Það var bent á fyrir nokkrum árum að gott væri fyrir Islendinga að eignast slíkt skip til ferða til Norðurlanda, megin- lands Evrópu og til Miðjarðar- hafslandanna. Þetta væri vel at- hugandi og teldi ég að bezt væri að Eimskipafélag lslands gengist fyrir þessu. Fyrir nokkru kom einhver vakning fyrir þessu, hug- mynd var sett fram i blöðum, hlutafé safnað, en siðan hefur lítið meira heyrzt. En væri þetta ekki athugandi? % Ekkert liggur á Þá iangar mig að minnast á litasjónvarpið, sem nokkuð hefur verið rætt um að undanförnu. Ég held að það sé engin nauðsyn á að koma þvi á strax, við eigum að bæta sjónvarpið sem við höfum og gera það þannig úr garði að allir landsmenn geti haft not af því. Það er alltaf verið að tala um að við þurfum að endurnýja sjónvarpið og við vitum að það er nauðsynlegt að endurbæta og viðhalda hlutum, en við eigum ekki að kasta þeim frá okkur. Ennfremur hefur verið talað um leyfisveitingar til reksturs sjónvarpsstöðva en er það nokkur nauðsyn að bæta þar við. Er ekki búið að gera nóg með útvarpi og sjónvarpi — það má ekki spenna bogann of hátt. Það væri æskilegt að sjónvarpið gæti breytt um ýmsa þætti, sýnt eitthvað sem kæmi betur að gagni — eða vand- að betur til dagskrár sinnar. Flýtum okkur hægt í þessu efni sem öðru, sígandi lukkan er bezt. 0 Þessir hringdu . . . % Tvítaka morgun- stundina? — Ég er ein hinna óánægðu með tíma morgunstundarinnar, sagði kona sem hringdi í vikunni, og drengurinn minn, sem á að mæta í skólann kl. 8:10, er óra- tima að koma sér af stað vegna þess að hann vill sem minnst missa af sögunni. Honum nægir að fara út svona 5 mín. yfir 8, en hann dregur það stundum lengur og verður of seinn fyrir bragðið. Ég reyni að fara vel að honum, en vil þó ekki æsa hann, og þannig gera hann e.v.t. neikvæðan strax að morgni dags fyrir skólann. Hann er 10 ára og hafði t.d. mjög gaman af sögunni sem var á und- an þeirri sem nú er. Það mætti kannski líka tvítaka söguna, rétt eins og er með morgunleikfimina eða og minnka þar með eitthvað SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Halle í A-þýzkalandi í október í fyrra kom þessi staða upp í skákinni sem gerði út um mót- ið: Sovézki stórmeistarinn Balashov hafði hvítt og átti leik gegn kollega sínum pólverjan- um Schmidt: 21. Rd5! — Rxd5 (Eða 21 . . . * Rh5, 22. Re7+ — Kh8, 23. Hf8+ og vinnur) 22. Bxd5+ — Kh8 (Svartur verður mát eftir 22 ... Dxd5, 23. Hf8+ — Kh7, 24. De8) 23. De5! og svartur gafst upp því að hann á enga vörn við 24. Hf7 nema 23 ... Bxh3 en þá vinnur hvítur með 24. Hh4! (En ekki 24. Hf7 — Dg5!) Úrslit mótsins urðu þessi: 1. Balashov 8'A v. af 11 mögulegum. 2. Schmidt 8 v. 3. Malich.A- Þýzkalandi 7'á v. 4—5 Knaak og Vogt (báðir A-Þýzkalandi) 7 v. Þátttakendur voru alls 14, þar af sjö stórmeistarar. af tónlistinni nóg er af henni hvort eð er. — Annað, sem mig langar að nefna og ég sá getið um I Velvak- anda um daginn er, að einhver var að tala um kaþólskuna eða kaþólsk áhrif sem kæmu stundum fram í morgunbæninni. Ég hef tekið eftir þessu líka, þetta eru þó mjög smávægileg atriði, það smávægileg að ég gleymi þeim fljótlega og vinkonur mínar nokkrar, sem ég hef rætt þetta við segjast ekki hafa tekið eftir þessu. En ég er sammála þeim, sem nefndi þetta I Velvakanda um daginn, maður tekur eftir þessu, þótt það sé ekki mjög áberandi. • Styttur harmóniku- þáttur Einar: — Einn hlut langar mig að nefna , sem ég hef oft hugsað um en það er, að harmónikuþáttur- inn, sem er í útvarpinu á þriðju- dagskvöldum, er oftlega styttur mjög. Kvöldsagan eða fréttirnar á undan ná oft fram yfir þann tíma, sem þeim er ætlaður en þáttur- inn, sem kemur á eftir harmónikutónlistinni er alltaf látinn byrja kl. 23, hvort sem harmónikan hefur fengið að hljóma í 10—15 mínútur eða jafnvel enn styttra, en þátturinn á að vera 15 mínútur yfirleitt. Ég veit um fleiri sem eru þessu sammála, það hafa fleiri en ég gaman að harmónikutónlist, og það er sannarlega ekki of mikið af henni í útvarpinu — 15 mínútur á viku. Og mér finnst ekki hægt að leyfa sér að stytta hann þegar dagskráin hefur eitthvað farið fram úr áætlun, það getur varla munað svo miklu þó að Hljóð- bergið hefjist ekki fyrr en nokkr- ar mínútur yfir ellefu. HÖGNI HREKKVÍSI Sjáðu til. Ég skal útskýra fyrir þér hlutverk Lukkutrölla í kappleikjum! OPIÐ TIL HÁDEGIS BEZTA FERMINGARGJÖFIN LL'XO er ljósgjafinn, verndið sjónina, varist eftiriíkingar LJÓS & ORKA Suðurlandsbraut 12 simi 84488 SENDUM í PÓSTKRÖFU LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL Garðabær Frá 1. apríl verður afgreiðsla Morgunblaðsins í Garðabæ hjá frú Þuríði Jónsdóttur, Aratúni 2, sími 42988. iltacgmtlilfiftifc Toyota Til sýnis og sölu, Crown 2000'72 Crown 2300 '71 Corona 2000 MK 1 1 '74 Corona 2000 MK 1 1 '73 Carina 1 600 4ra dyra ' 74 Carina 1 600 2ja dyra ' 74 Corolla '68 Volkswagen 1300 '70 Opið 1 dag og laugardag Toyota umboðið h.f. Nýbýlaveg 8 (bakhús) sími 44144

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.