Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 40

Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 40
AKi I-V SIN(iASIMINN EH: 22480 í)!Cj0)iwMaí»iÍíj> AU(fLYSIN(«AS!MI\N EH: 22480 JRflrgímbliiíiit) LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977 Einvígi Horts og Spasskys: Stefnt að tveim skák- um um páskahelgina Byrjað að flytja mótsbúnaðinn 1 Menntaskólann við Hamrahlíð „VIÐ stefnum að þvf að tvær næstu skákir f einvígi Horts og Spassky fari fram f samkomu- sal Menntaskólans við Ilamra- hlfð laugardaginn 9. apríl og mánudaginn 2. apríl.“ sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands íslands, f sam- tali við Mbl. f gærkvöldi. Einar sagði að Skáksambandið væri f vandræðum með húsnæði fyrir keppnina þar til umræddan laugardag og hefði FIDE verið tilkynnt um það, en eins og frá hefur verið greint hafði Spassky farið fram á frestun á einvíginu til n.k. fimmtudags. Einar sagði að byrjað væri að flytja búnaðinn sem þarf til einvígisins í Menntaskólann við Hamrahlíð, en í sainum sem teflt verður í, Miklagarði, eru sæti fyrir 400 manns. Auk þess er pláss fyrir 1000—2000 manns í hliðarsölum. Einar sagði að þegar þeir sem stæðu fyrir mótinu yrðu að fresta þvi ætti slíkt ekki að koma niður á keppendum, en hann kvað ekki liggja fyTir enn- þá hvort allir leyfilegir frestunardagar Spassky féllu inn f þessa frestun. FIDE myndi skera úr um það. Þá kvaðst Einar vilja vekja athygli á því að Hort myndi tefla fjöltefli n.k. sunnudag í Menntaskólanum við Hamra- hlíð og munu þar þreyta tafl á móti honum 10 sterkustu skák- menn þjóðarinnar sem ekki taka þátt í skákþingi íslend- inga. Óvíst hvort íslenzka krónan fylgir gengis- lækkun í Skandinavíu Heilbrigdisrád Hafnarf jardar: GENGI sænsku, norsku og dönsku krónunnar mun lækka n.k. mánudag miðaö við gengi Islenzku krón- unnar. Sænska krónan mun lækka um 6% og norska og danska krónan um 3%. Miðað við íslenzka krónu mun sú sænska þá lækka úr 45.60 í 43.07 kr. Sú norska mun lækka úr 32.76131.81 kr. Davíð Ólafsson Seðlabanka- stjóri sagði i samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að íslenzka I þeirri sérkennilegu birtu sem var þegar Friðþjófur ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd, glampaði á rafmagnsvírana eins og það væri ljós á þeim, en myndin er tekin á veginum undir Ingólfsf jalli og í f jarska teygir Hellisheiðin sig til himins. Leyfir ekki frekari bu- setu í nágrenni álversins Bátafloti Grímseyinga í hættu vegna hafíss Smábátar teknir á land og stærri bátar til Eyjafjarðar? Grfmsey, 1. apríl. ÍSJAKAR voru á reki I kring um Grímsey I morgun og er þetta I fyrsta sinn í langan tíma sem is sést hér um slóðir. Jakana rak alla til suðvesturs frá eynni og ef ísrek eykst eitt- hvað má fastlega búast við að stærri bátar héðan flýi inn til Eyjafjarðar og smærri bátar verði settir á þurrt I eynni. Ástæðan fyr- ir þessu er sú að höfnin er algjörlega opin fyrir sunn- an og suðvestanátt og ef Isjaka rekur inn á höfnina er mikil hætta á því að bátarnir stórskemmist. —Alfreð. Alverið í Straumsvfk krónan þyrfti ekki að lækka þótt lækkun þessara mynta kæmi til, þvi íslenzka krónan hefði ekki fylgt gengi innarra nórrænna mynteininga. Sjá yrði til hvernig aðrar myntir myndu bregðast við þessari lækkun og hvaða áhrif lækkunin myndi hafa á þær. Kvað Seðlabankastjóri það væntanlega skýrast í næstu viku. Davíð kvað það hafa komið á óvart að norska krónan lækkaði, því hún hefði verið talin mjög sterk, en hins vegar hefðu verið uppi raddir um það að sænska krónan þyrfti að lækka og óvissa var með dönsku krónuna. HEILBRIGÐISRÁÐ Hafnarfjarð- ar hefur gefið út tilkynningu þar sem ráðið segist ekki geta leyft frekari búsetu f næsta nágrenni við Álverið í Straumsvfk vegna mengunarhættu á svæðinu við íkveðnar kringumstæður. Vitnar 'áðið til upplýsinga Péturs Sigur- ónssonar forstöðumanns Rann- sóknastofnunar iðnaðarins þar sem segir að með tilliti til loft- Fundalotur hjá sátta- semjara ,,ÞAÐ voru þrfr fundir hjá mér í dag,“ sagði Torfi Hjartarson sáttasemjari í samtali við Morgun- blaðið þegar innt var eftir gangi mála í samningaviðræðum, „þetta voru eiginlega kurteisisheimsókn- ir þar sem aðilar Verkamanna- sambandsins, Iðju og Sambands byggingarmanna lögðu fram kröf- ur sínar og skýrðu þær út, en einnig voru á fundunum fulltrúar vinnuveitenda." Torfi sagði að n.k. mánudag yrðu 3 fundir með öðrum aðilum, 3 á þriðjudag og á miðvikudag myndu aðalnefndir koma saman til fundar. streymis og veðurfars f kringum álverksmiðjuna í Straumsvfk, gæti undir vissum kringumstæð- um komið fram jafnmikil eða meiri mengun í andrúmsloftinu f næsta nágrenni staðarins en finnst á starfsvæðinu inni f ker- skálanum. Morgunblaðið innti Pétur Sig- urjónsson eftir því hvað umrætt „næsta nágrenni" þýddi í vega- lengdum og kvað hann þar átt við 1—2 km vegalengd frá Álverinu sjálfu. Innan þess svæðis er býlið Straumur, en þar býr fólk og rek- ið er hænsnabú á staðnum. Pétur sagði að það væri allt annað hvort menn ynnu við slikar kringumstæður ef til vill 8 stund- ir á dag eða hvort þeir byggju á slíkum stað og væru þar ef til vill allan sólarhringinn. Hann kvaðst vera þess sinnis að aldrei ætti að taka áhættu og því bæri að reyna að fyrirbyggja mistök og erfið- leika með ákveðinni afstöðu í þessum málum. Benti hann á að við ákveðnar aðstæður slægi reyk frá verksmiójunni niður í ná- grenni hennar, en þó kvað hann þetta ekki eiga við um Hafnar- fjarðarkaupstað. Morgunblaðið spurði Ragnar Halldórsson forstjóra álversins um álit hans á tilkynningu Heil- Eramhald á bls 22. Nýtt hassmál í rannsókn FÍKNIEFNADÓMSTÖLLINN og fíkniefnadeild lögreglunn- ar hafa nú til rannsóknar nýtt fíkniefnamál. Vegna rann- sóknarinnar var 25 ára gamall maður úrskurðaður f allt að 20 daga gæzluvarðhald í fyrra- kvöld. Að sögn Arnars Guðmunds- sonar, fulltrúa hjá Fíkniefna- dómstólnum, er rannsóknin al- veg á frumstigi og því lítið hægt að segja um hana ennþá. Hann sagði þó að um nýtt mál væri að ræða og ekki hefðu enn a.m.k. fundizt tengsl milli þess og þeirra stórmála, senr upplýst hafa verið á undan- förnum mánuðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.