Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 40
AKi I-V SIN(iASIMINN EH:
22480
í)!Cj0)iwMaí»iÍíj>
AU(fLYSIN(«AS!MI\N EH:
22480
JRflrgímbliiíiit)
LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977
Einvígi Horts og Spasskys:
Stefnt að tveim skák-
um um páskahelgina
Byrjað að flytja
mótsbúnaðinn 1
Menntaskólann
við Hamrahlíð
„VIÐ stefnum að þvf að tvær
næstu skákir f einvígi Horts og
Spassky fari fram f samkomu-
sal Menntaskólans við Ilamra-
hlfð laugardaginn 9. apríl og
mánudaginn 2. apríl.“ sagði
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambands íslands, f sam-
tali við Mbl. f gærkvöldi. Einar
sagði að Skáksambandið væri f
vandræðum með húsnæði fyrir
keppnina þar til umræddan
laugardag og hefði FIDE verið
tilkynnt um það, en eins og frá
hefur verið greint hafði
Spassky farið fram á frestun á
einvíginu til n.k. fimmtudags.
Einar sagði að byrjað væri að
flytja búnaðinn sem þarf til
einvígisins í Menntaskólann við
Hamrahlíð, en í sainum sem
teflt verður í, Miklagarði, eru
sæti fyrir 400 manns. Auk þess
er pláss fyrir 1000—2000
manns í hliðarsölum.
Einar sagði að þegar þeir sem
stæðu fyrir mótinu yrðu að
fresta þvi ætti slíkt ekki að
koma niður á keppendum, en
hann kvað ekki liggja fyTir enn-
þá hvort allir leyfilegir
frestunardagar Spassky féllu
inn f þessa frestun. FIDE
myndi skera úr um það.
Þá kvaðst Einar vilja vekja
athygli á því að Hort myndi
tefla fjöltefli n.k. sunnudag í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð og munu þar þreyta tafl á
móti honum 10 sterkustu skák-
menn þjóðarinnar sem ekki
taka þátt í skákþingi íslend-
inga.
Óvíst hvort íslenzka
krónan fylgir gengis-
lækkun í Skandinavíu
Heilbrigdisrád Hafnarf jardar:
GENGI sænsku, norsku og
dönsku krónunnar mun
lækka n.k. mánudag miðaö
við gengi Islenzku krón-
unnar. Sænska krónan
mun lækka um 6% og
norska og danska krónan
um 3%. Miðað við íslenzka
krónu mun sú sænska þá
lækka úr 45.60 í 43.07 kr.
Sú norska mun lækka úr
32.76131.81 kr.
Davíð Ólafsson Seðlabanka-
stjóri sagði i samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að íslenzka
I þeirri sérkennilegu birtu sem var þegar Friðþjófur ljósmyndari
Mbl. tók þessa mynd, glampaði á rafmagnsvírana eins og það væri ljós
á þeim, en myndin er tekin á veginum undir Ingólfsf jalli og í f jarska
teygir Hellisheiðin sig til himins.
Leyfir ekki frekari bu-
setu í nágrenni álversins
Bátafloti Grímseyinga í hættu vegna hafíss
Smábátar teknir á land og stærri bátar til Eyjafjarðar?
Grfmsey, 1. apríl.
ÍSJAKAR voru á reki I
kring um Grímsey I
morgun og er þetta I fyrsta
sinn í langan tíma sem is
sést hér um slóðir. Jakana
rak alla til suðvesturs frá
eynni og ef ísrek eykst eitt-
hvað má fastlega búast við
að stærri bátar héðan flýi
inn til Eyjafjarðar og
smærri bátar verði settir á
þurrt I eynni. Ástæðan fyr-
ir þessu er sú að höfnin er
algjörlega opin fyrir sunn-
an og suðvestanátt og ef
Isjaka rekur inn á höfnina
er mikil hætta á því að
bátarnir stórskemmist.
—Alfreð.
Alverið í Straumsvfk
krónan þyrfti ekki að lækka þótt
lækkun þessara mynta kæmi til,
þvi íslenzka krónan hefði ekki
fylgt gengi innarra nórrænna
mynteininga. Sjá yrði til hvernig
aðrar myntir myndu bregðast við
þessari lækkun og hvaða áhrif
lækkunin myndi hafa á þær. Kvað
Seðlabankastjóri það væntanlega
skýrast í næstu viku.
Davíð kvað það hafa komið á
óvart að norska krónan lækkaði,
því hún hefði verið talin mjög
sterk, en hins vegar hefðu verið
uppi raddir um það að sænska
krónan þyrfti að lækka og óvissa
var með dönsku krónuna.
HEILBRIGÐISRÁÐ Hafnarfjarð-
ar hefur gefið út tilkynningu þar
sem ráðið segist ekki geta leyft
frekari búsetu f næsta nágrenni
við Álverið í Straumsvfk vegna
mengunarhættu á svæðinu við
íkveðnar kringumstæður. Vitnar
'áðið til upplýsinga Péturs Sigur-
ónssonar forstöðumanns Rann-
sóknastofnunar iðnaðarins þar
sem segir að með tilliti til loft-
Fundalotur
hjá sátta-
semjara
,,ÞAÐ voru þrfr fundir hjá mér í
dag,“ sagði Torfi Hjartarson
sáttasemjari í samtali við Morgun-
blaðið þegar innt var eftir gangi
mála í samningaviðræðum, „þetta
voru eiginlega kurteisisheimsókn-
ir þar sem aðilar Verkamanna-
sambandsins, Iðju og Sambands
byggingarmanna lögðu fram kröf-
ur sínar og skýrðu þær út, en
einnig voru á fundunum fulltrúar
vinnuveitenda."
Torfi sagði að n.k. mánudag
yrðu 3 fundir með öðrum aðilum,
3 á þriðjudag og á miðvikudag
myndu aðalnefndir koma saman
til fundar.
streymis og veðurfars f kringum
álverksmiðjuna í Straumsvfk,
gæti undir vissum kringumstæð-
um komið fram jafnmikil eða
meiri mengun í andrúmsloftinu f
næsta nágrenni staðarins en
finnst á starfsvæðinu inni f ker-
skálanum.
Morgunblaðið innti Pétur Sig-
urjónsson eftir því hvað umrætt
„næsta nágrenni" þýddi í vega-
lengdum og kvað hann þar átt við
1—2 km vegalengd frá Álverinu
sjálfu. Innan þess svæðis er býlið
Straumur, en þar býr fólk og rek-
ið er hænsnabú á staðnum.
Pétur sagði að það væri allt
annað hvort menn ynnu við slikar
kringumstæður ef til vill 8 stund-
ir á dag eða hvort þeir byggju á
slíkum stað og væru þar ef til vill
allan sólarhringinn. Hann kvaðst
vera þess sinnis að aldrei ætti að
taka áhættu og því bæri að reyna
að fyrirbyggja mistök og erfið-
leika með ákveðinni afstöðu í
þessum málum. Benti hann á að
við ákveðnar aðstæður slægi reyk
frá verksmiójunni niður í ná-
grenni hennar, en þó kvað hann
þetta ekki eiga við um Hafnar-
fjarðarkaupstað.
Morgunblaðið spurði Ragnar
Halldórsson forstjóra álversins
um álit hans á tilkynningu Heil-
Eramhald á bls 22.
Nýtt hassmál
í rannsókn
FÍKNIEFNADÓMSTÖLLINN
og fíkniefnadeild lögreglunn-
ar hafa nú til rannsóknar nýtt
fíkniefnamál. Vegna rann-
sóknarinnar var 25 ára gamall
maður úrskurðaður f allt að 20
daga gæzluvarðhald í fyrra-
kvöld.
Að sögn Arnars Guðmunds-
sonar, fulltrúa hjá Fíkniefna-
dómstólnum, er rannsóknin al-
veg á frumstigi og því lítið
hægt að segja um hana ennþá.
Hann sagði þó að um nýtt mál
væri að ræða og ekki hefðu
enn a.m.k. fundizt tengsl milli
þess og þeirra stórmála, senr
upplýst hafa verið á undan-
förnum mánuðum.