Morgunblaðið - 13.04.1977, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 19?7'
Kröfugerð bankamanna:
Hæsta krafan á sjö-
unda tug prósenta
SAMBAND Islenzkra banka-
manna hefur lagt fram kröfur
sínar um gerð nýrra kjarasamn-
inga. Sðlon Sigurðsson, formaður
sambandsins, kvað kröfurnar I
meginatriðum hinar sömu og hjá
BSRB, en kröfur sambandsins
eru um 40 til 50% launahækkanir
miðað við laun 1. júlf n.k., en þá
ganga kjarasamningar úr gildi. í
þriðja flokki, 1. þrepi, eru kröf-
urnar 125 þúsund krónur. Þessi
laun eru I dag 75 þúsund krónur
— hækkun 66,6%. Er það algjör
byrjendaflokkur. Þá er krafan
um laun sendla 100 þúsund
krónur.
Þriðji flokkur, 1. þrep, er lægsti
flokkur venjulegs bankamanns,
en í honum eru þó næsta fáir —
BSRB gæti farið í
verkfall eftír 1. júli
BANDALAG starfsmanna ríkis
og bæja hefur í kröfugerð sinni
farið fram á að vísitölubætur á
laun yrðu prósentubætur, sem
legðust á alla launastiga sam-
bandsins og er þetta andstætt
kröfum Alþýðusambands
íslands sem krefst þess að vfsi-
tölubætur verði reiknaðar á
lægstu launin, en sfðan sama
krónutala á hin hærri. Morgun-
blaðið spurði f gær Harald
Steinþórsson, framkvæmda-
stjóra BSRB, um þetta atriði og
spurði, hvers vegna sambandið
fylgdi ekki stefnu ASÍ, sem
miðaði að hæstum vísitölubót-
um á láglaun.
Haraldur sagði, að BSRB
hefði þegar framkvæmt jöfnun
f sambandi við launastigann og
tekið mjög stór stökk í þeim
efnum. „Það er um tvær leiðir
að ræða, að hafa krónutölu-
reglu eða vísitölu. Okkar leið er
sú að taka krónutölureglu í
kröfugerð, en ekki í vfsitölunni.
Hin reglan myndi hleypa öllu f
hnút, sem samræmist ekki þvf,
sem aðrir launþegar þurfa að
búa við, því að allír kjara-
samningar eru tengdir saman
með prósentum."
Vegna þessa sagði Haraldur
að kjarasamningar f svo mikilli
dýrtíð, sem raun bæri vitni,
myndu allir fara úr böndunum
— engin launakerfi standast
slíka verðbólgu, sem hér hefur
verið sagði Haraldur. Þvf verð-
ur BSRB að fara aðra hvora
leiðina. Hin stefnan hefði rask-
að launakerfi opinberra starfs-
manna miðaðviðlaunakerfi ann-
arra launþega.
Þá sagði Haraldur, að þegar
BSRB væri búið að semja um
að mismunur hæstu og lægstu
launa ætti að vera tæplega þre-
faldur, en honum væri síðan
breytt í að vera rúmlega tvö-
faldur, þá kvað hann það senni-
lega meira stökk en nokkru
sinni hefði verið tekið til launa-
jöfnunar í samningum. Ef svo
krónutölureglan í visitölu gilti,
myndi það þýða að meginhluti
umbjóðenda BSRB myndi búa
við skert kjör. Haraldur sagði
að það hefði verið reiknað út að
ef 42% verðbólga yrði tvö ár í
framhald á bls. 17
að sögn Sólons. Flestir eru í 5., 6.,
7. og 8. flokki, en f þeim eru um
59% félaga f Sambandi íslenzkra
bankamanna. Laun í 5. flokki eru
nú 91 þúsund, en krafan er um að
þau hækki í 147 þúsund. Er það
61,5% hækkun, en Sólan kvað það
þýða 45% miðað við þau laun,
sem væntanlega verða 1. júlí, en
samningar bankamanna eru ekki
lausir fyrr.
Sólon kvað hæstu kröfuna
verða í 7. flokki og væri hún um
63%, en það er hæsti launaflokk-
ur almenns bankamanns. Kemst
hann ekki hærra, nema hann fái
einhvers konar stöðu f bankakerf-
inu. Laun í þeim flokki eru nú 112
þúsund, en krafan er 190 þúsund.
Krafan nú er 69.6%.
1 6., 7., 8. og 9. flokki eru um
55% allra bankamanna. I 8. og 9.
flokki eru aðstoðarfulltrúar og
fulltrúar. Hæstu laun þeirra eru
147 þúsund og er krafan um 230
þúsund, en það er 63,9% hækkun.
Hæsta krafa er um 305 þúsund
króna mánaðarlaun, en það eru
laun útibússtjóra, aðalbókara og
fleiri. Þeir hafa nú 193 þúsund
Framhald á bls. 32
Jón L. Arnson
Helgi Ólafsson.
Skákþing Islands:
Hörkubarátta er milli
Jóns L. Arnasonar
og Helga Olafssonar
HÖRKUBARATTA er á Skák-
þingi Islands, sem nú er að
Ijúka. t gærkvöldi átti að tefla
11. og sfðustu umferðina og
áttu þar að leiða saman hesta
sfna þeir tveir menn, sen eiga
möguleika á sigri f mótinu, Jón
L. Arnason, sem er aðeins 16
ára gamall, og Helgi Ólafsson.
Skák þeirra var hins vegar
frestað þar til f dag vegna veik-
inda Helga. Jón L. Arnason hef-
ur 8‘A vinning og Helgi 8 vinn-
inga að loknum 10 umferðum,
og nægir þvf Jóni jafntefli í
skákinni við Helga til að hljóta
hinn eftirsótta tslands-
meistaratitil.
Staðan fyrir síðustu umferð-
ina var þessi:
1. Jón L. Árnason TR 84 v.
2. Helgi Ólafsson TR 8 v.
3. Ásgeir Þ. Arnason TR 74 v.
Framhald á bls. 32
V erðbólgan 25% á árs-
grundvelli miðað við
fyrstu mánuði ársins
VERÐBREYTINGAR fyrstu
mánuði þessa árs eða fram til
þessa munu svara til þess að verð-
bólgan á tslandi sé nær 25% á
grundvelli heils árs. Er þá miðað
Norðmenn krafnir
bóta á tjóni Herjólfs
„Ef allt gengur samkvæmt áætl-
un eftir það sem á undan er geng-
ið, þá byrjar Herjólfur aftur áætl-
unarferðir milli lands og Eyja um
næstu mánaðamót,“ sagði Ólafur
Runólfsson framkvæmdastjóri
Ilerjófls í samtali við Morgun-
blaðið i gærkvöldi, en eftir að
lokið var við að styrkja skut
Herjófls kom f Ijós að öxlar að vél
voru bognir og stefnisrörið var
einnig skakkt.
Skipið hefur verið styrkt mjög
mikið að aftan eftir að gallarnir
komu f Ijós við skoðun er skipið
fór f slipp f Reykjavfk 7. marz s.f.,
en upphaf lega var reiknað með að
skipið yrði 10 daga í slipp.
„Við leggjum alla áherzlu á það
að taka við skipinu í 100% lagi og
jafnframt munum við krefjast
framlengingar á ábyrgðartima
skipsins." sagði Ólafur, „Það er
nú verið að draga stefnisrörið úr
skipinu og nýtt verður sett í. Þá
er verið að útbúa tvo af öxlunum
þremur í Noregi, en einn þeirra
reyndist i fullkomnu lagi. Var það
aftasti öxullinn sem skrúfan er
áföst við. Það er Wichman véla-
verksmiðjan sem býr öxlana til og
þeir eiga að vera tilbúnir til af-
hendingar 16. apríl og þann dag
mun Iscargóvél sækja þá þangað.
Þeir flutningar kosta 1.2 milij. kr.
Þannig stefnir allt í þá átt að
endar nái saman og vopum við að
ekki komi fleira til, nóg er komið.
Það hefur sýnt sig tilfinnanlega
undanfarnar vikur að illt er fyrir
okkur Eyjamenn að hafa ekki
skip I daglegum ferðum og reynd-
ar hafa hópar fastalandsmanna
haft samband við okkur að undan-
förnu og spurt um væntanlegar
ferðir skipsins, því stórir hópar
hyggjast sækja Eyjarnar heim
með Herjólfi í vor og sumar, “
Að undanförnu hafa Ríkisskip,
Eimskip og Hafskip aðstoðað með
skipaferðir til og frá Eyjum og
einnig hefur Landhelgisgæzlan
hlaupið undir bagga.
Herjólfur hefur nú ráðið Agnar
Erlingsson skipaverkfræðing til
þess að fylgjast með gangi mála í
viðgerð skipsins og Árna Grétar
Framhald á bls. 32
við reynsluna undanfarna mán-
uði og spár fram til næstu mán-
aðamóta. Þessar upplýsingar fékk
Morgunblaðið f gær hjá Þjóðhags-
stofnun, en á föstudaginn langa
birti Efnahags- og framfarastofn-
un Evrópu, OECD, skýrslu um
verðbólgu aðildarlandanna frá
febrúar 1976 til febrúar 1977 og
reyndist Island þar vera með
mesta verðbólgu 34.5%, en f öðru
sæti var Italfa með 22%. Minnst
var verðbólga f Sviss, 1% á þessu
12 mánaða tfmabili.
Miðað við þessa febrúartölu,
sem OECD birti hinn 8. apríl,
34,5%, má geta þess, að tala fyrir
sama tímabil árið áður var 36.2%
og talan fyrir febrúar 1974 til
febrúar 1975 var 53.6%. Frá
febrúar 1973 til febrúar 1974 var
hækkunin hins vegar 32.6%. Eins
og sjá má af þessum tölum hefur
aðeins rénun orðið í ár frá sömu
viðmiðun í fyrra, en þar áður varð
gífurleg rénun verðbólgunnar. Ef
hins vegar er litið á nóvembertöl-
ur verður rénunin nú öllu meiri,
því að þá var verðbólgan á 12
mánaða tímabili komin niður
undir 31 %, frá nóvember 1975 til
nóvember 1976. Má og búast við
að dragi heldur úr í marz, þar sem
meiri verðhækkanir hafa komið
út I verðlagið frá nóvember til
febrúar nú, en var í fyrra — að
því er Morgunblaðið fékk upplýst
hjá Þjóðhagsstofnun.
í Reutersfrétt frá Paris, þar
sem skýrt var frá verðbólgunni
miðað við febrúar i hinum 24
aðildarrikjum OEGD, segir, að
meðaltalsverðbólga I hinum
stærri rikjum Vesturlanda hafi í
febrúarmánuði verið um 1%, en
Framhald á bls. 32
Árni Vilhjálmsson fv.
héraðslæknir látinn
Endanlega ákveðið að
rannsóknarlögregla rik-
isins verði í Kópavogi
Meðfylgjandi mynd er af Kjartani
Hreini Pálssyni vélstjóra sem
drukknaði í Vestmannaeyjahöfn
um fyrri helgi. Kjartan Hreinn
var skipverji á Gunnari Jónssyni
VE 555.
NU hefur verið endanlega ákveð-
ið að Rannsóknarlögregla rfkisins
fái inni f hinu nýkeypta húsi að
Auðbrekku 61 f Kópavogi.
Að sögn Eiríks Tómassonar, að-
stoðarmanns dómsmálaráðherra,
verður brátt hafizt handa við inn-
réttingar í húsinu fyrir hina nýju
starfsemi. Þá er ennfremur unnið
að þvi af fullum krafti, að sögn
Eiríks, að ganga frá þvi hvaða
lögreglumenn komi til með að
starfa við hið nýja embætti.
I lögum um rannsóknarlögregl-
una segir að hún skúli vera í
Reykjavik og þarf því Alþingi að
samþykkja lagabreytingu áður en
rannsóknarlögreglan getur flutzt
í Kópavog.
ÁRNI Vilhjálmsson fyrrverandi
héraðslæknir á Vopnafirói lézt f
Reykjavík s.l. laugardag. Árni
fæddist 23. júní 1894 að Ytri
Brekkum á Langanesi, sonur
hjónanna Vilhjálms Guðmunds-
sonar og Sigrfðar Davfðsdóttur.
Stúdent varð Árni 1914 og cand.
med. frá Háskóla tslands 1919.
Framhaldsnám stundaði Árni sfð-
an f Noregi 1920—1922.
Árni var um hrið staðgengill
héraðslæknisins á Norðfirði og
eins á Reyðarfirði. Siðar var hann
læknir í Vestmannaeyjum 1922 til
1923. Settur héraðslæknir í Flat-
eyjarhéraði um hrið 1923 og síðan
á Seyðisfirði og á Hofsósi.
Árið 1924 var Árni skipaður
héraðslæknir i Vipnafjarðarhér-
aði og gegndi hann því starfi til 1.
janúar 1960 er hann fékk lausn
frá embætti. Bjó Árni eftir það í
Reykjavik og vann hjá
Tryggingarstofnun ríkisins auk
þess sem hann leysti lækna af úti
á landsbyggðinni.
Árin 1925 til 1955 eða um 30 ára
skeið var Árni í hreppsnefnd
Vopnafjarðar. Þar af var hann
oddviti frá 1925—28 og 1934—38.
Árni var kvæntur Aagot
Fougner dóttur Rolfs kaupmanns
Johansen á Reyðarfirði.
Arni Vilhjálmsson