Morgunblaðið - 13.04.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRlL 1977
13
Orgeltónleikar
Ragnar Björnsson dómorgan-
isti hélt tónleika s.l. föstudag, í
tilefni af væntanlegri hljóm-
leikaferð til Norðurlanda.
Fyrsta verkefnið á tónleikun-
um var Toccata og fuga í d-moll
eftir Bach. Það verður að
segjast eins og er, að flutningur
Ragnars á þessu glæsilega
verki var ekki eins og undirrit-
aður telur hann eigi að vera og
eins ekki með því svipmóti, sem
ástæða er til að ætla frá hendi
Ragnars. Annað verkið á efnis-
skránni var eftir Sweelinck,
sem var uppi um 1600 og nam
hjá Giovanni Gabrieli, sem
fyrstur manna samdi verk fyrir
hljómsveit. Á eftir þessu hljóm-
fallega verki eftir Sweelinck
flutti Ragnar Inngang og
Passkagliu eftir kennara og for-
vera sinn Pál ísólfsson. Af
þessu verki stendur ævintýra-
ljómi og geymir þar tóntak, til-
þrif og svipmót mikils orgel-
leikara. Nokkuð kvað við annan
tón í næsta verki, eftir Ragnar
sjáfan. Þarna mátti heyra tón-
ferli, sem er skilgetió afkvæmi
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
tilrauna, er fyrir löngu hafa
verið afskrifaðar og teljast til
„akademiskra" fyrirbæra. Tón-
leikunum lauk með Fantasíu og
fúgu I g-moll eftir Bach. Þetta
rismikla verk var einum of lit-
laust fyrir smekk undirritaðs
og má ef til vill kenna orgelinu
um, en það var sérlega óhreint.
Nú hefur kirkjan öll verió gerð
upp með miklum tilkostnaði og
mætti allt eins eyða fé í nýtt
orgel og minnast um leið Páls
tsólfssonar við vígslu þess með
flutningi tónlistar eftir hann.
Karlakór
Reykjavíkur
KARLAKÓR Reykjavíkur á að
baki 50 ára starf og hefur mark-
að djúp spor í ísl. menningar-
sögu. 1 efnisskrá er þess getið,
að meðal ólokinna verkefna
kórsins sé hljóðritun á verkum
Sigurðar Þórðarsonar tón-
skálds og er þá hljóðritun kórs-
ins orðin all gott safn tónlistar
sem rituð hefur verið á fyrri
hluta aldarinnar.
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Við samanburð á tónlist sem
rituð var upp úr aldamótunum
og efnisskrá Karlakórs Reykja-
víkur í dag, vaknar sú spurning
hvort íhaldssemi valdi því, að
efnisskráin gæti svo vel verið
frá því rétt eftir aldamót, ef frá
eru talin þrjú lög. Starf söng-
félags eins og Karlakórs
Reykjavíkur byggist á því að
hafa eitthvað nýtt fram að
færa, jafnframt því að viðhalda
því besta af eldri verkum. Með
nokkrum undantekningum hef-
ur efnisskrá kórsins undanfar-
ið verið að mestu upprifjun á
eldra efni, sem er gott, að því er
varðar hljóðritun til varðveislu,
en litið nýnæmi fyrir hljóm-
leikagesti. Fyrsti hluti tónleik-
anna minnti á 17. júni hvað
efnisval snertir og fátt þar um
að segja annað en að kórinn
söng vel. „Samesiid:t“ eftir
John Persen eða Samaljóð, eins
og vel mætti kalla það, átti
þarna ekki beint heima. Páll P.
Pálsson er sérlega góður stjórn-
andi á nútimatónlist og var
söngur kórsins sannfærandi, þó
umsögnin í efnisskrá kæmi
ekki heim og saman við upplif-
un verksins. Eftir hlé var svo
haldið áfram með smálög nú frá
Skandinaviu, sem eru fallegar
en litlausar tónsmiðar. Þessum
lögum fylgdi svo negrasálmur
og rússneskt þjóðlag, sem Boris
Bortinskij frá Finnlandi söng
með kórnum. Bortinskij er
raddsterkur, en eftir þvi sem
dæmt verður af þeim fáu lögum
er hann söng, virðist tónmótun
raddarinnar vera mjög misjöfn,
á stundum dauð og slétt, en í
aukalögum, sem hann söng með
undirleik Guðrúnar Kristins-
dóttur, var söngur hans hlýr og
hljómfagur.
Tónleikunum lauk með laga-
syrpu, Þýzkum þjóðlögum í
raddsetningu Páls P. Pálssonar
og var niðurlag tónleikanna
eins og söngskemmtan gæti
hafa verið fyrir aldamót. Það
mun tæplega vera að öllu leyti
rétt að kalla þessi lög þjóðlög,
en réttara að nefna þau alþýðu-
lög, þvi samkvæmt tiltækum
heimildum eru sum laganna
verk tiltekinna höfunda.
Söngur kórsins var í alla stað
áferðarfallegur enda reyndi
hvergi á getu hans í þessu
,,stubbaprógrammi“. Hreiðar
Pálsson kom fram sem fulltrúi
kórsins, með þokkafullum ein-
söng sinum i Melodiska vágar
eftir Selim Palmgren.
Nemendasamband Mennta-
skólans á Akureyri
MORGUNBLAÐINU hafur borizt
fréttatilkynning frá NMA:
Aðalfundur Nemendasambands
Menntaskólans á Akureyri var hald-
inn að Hótel Esju, fimmtudaginn 10.
mars s.l. Þetta var þriðji aðalfundur
sambandsins, en það var stofnað 6.
júní 1974. Markmið þess er m.a. að
skapa tengsl milli fyrrverandi nem-
enda MA og stuðla að sambandi
þeirra við nemendur og kennara
skólans.
Á fundinum var ákveðið að senda
fréttabréf til allra árganga, sem
brautskráðst hafa frá skólanum, þvi
að margir munu þeir vera, sem vita
ekki um stofnun sambandsins.
Félagar eru allir, sem hafa lokið
gagnfræða- eða stúdentsprófi frá
MA.
Sambandið hefur látið gera vegg-
skjöld með mynd af skólanum.
Skjöldurinn hefur verið seldur i
Reykjavík og á Akureyri og hefur
salan aflað sambandinu nokkurra
tekna, sem síðar munu renna til
skólans Allar upplýsingar um það
mál eraðfá hjá stjórninni.
Þann 3. júní n.k. verður haldinn
fagnaður að Hótel Sögu. Þar gerir
fólk sér glaðan dag og rifjar upp
minningar frá skólaárunum.
Vilhjálmur Skúlason, formaður,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Stjórnina skipa nú:
Formaður Ragna Jónsdóttir, ritari
Gylfi Pálsson, fulltrúi 25 ára
stúdenta; gjaldkeri Þorsteinn
Marinósson, fulltrúi 10 ára
stúdenta; Jón Gunnlaugsson, fulltrúi
40 ára stúdenta. og Stefán Karlsson.
Í varastjórn eru: Vilhelmlna Þor-
valdsdóttir, Vilhjálmur Skúlason og
Þorvaldur Friðriksson.
Allt á sama stað
Laugavegi 118- Simar 22240 og 15700
áTa Timburverzlunin
▼ Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Völundar gluggar
vandaðir gluggar
Vandaðir gluggar eru eitt aðalatriðið í hverju
húsi og auka verðmæti þess og ánægju þeirra,
sem í húsinu búa. Timburverzlunin Völundur
hefur 70 ára reynslu í smíði glugga. í dag
leggjum við megináherslu á smíði Carda-
hverfiglugga svo og venjulegra glugga samkv.
hinum nýja íslenska staðli. Cardagluggar hafa
marga kosti umfram aðra. Auðvelt er að opna
þá og loka. Hægt er að snúa þeim við, ef hreinsa
þarf þá eða mála. öryggislæsingar geta fylgt.
Hljóðeinangrun uppfyllir ströngustu reglur.
Bæðí vatns- og vindþéttir í lokaðri stöðu. Þá er
einnig hægt að fá smíðaðar veggjaeiningar með
Cardagluggum í, sem síðan má raða saman. Þar
sem Cardagluggum verður ekki viðkomið mælum
við með gluggum smíðuðum samkv. hinum
nýja íslenska staðli, með falsi 20x58 mm. Alla
glugga er hægt að fá grunnaða eða tvímálaða.
Einnig getum við smíðað þá úr gagnvarinni
furu eða oregonfuru.
t sérstökum tilfellum smíðum við einnig giugga
eftir sérteikningum.
24.73