Morgunblaðið - 13.04.1977, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRlL 1877
Uverpool ætti að vera ömggt
í úrslit Evrópubikarkeppninnar
UNDANtJRSLIT r Evrópukeppninni r knattspyrnu hófust miðvikudagskvöldið 6. aprfl s.l. þegar fyrri
leikirnir f undanúrslitunum fóru fram. Vegna þess hve Morgunblaðið fór snemma f prentun þetta
kvöld, var ekki hægt að skýra frá úrslitunum morguninn eftir og verða leikjunum gerð skil hér þótt
um sfðir sé. Segja má að eitt lið, Liverpool, hafi þetta kvöld tryggt sér sæti f úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða með þvf að sigra svissneska liðið FC Ziirich 3:1 á útivelli og Juventus ætti að vera nokkuð
öruggt f úrslit f EUFA-bikarkeppninni með 4:1 heimasigri yfir grfska liðinu AEK Aþena.
Liverpool lék skínandi vel i
Sviss þrátt fyrir að tvo fasta-
menn vantaði vegna meiðsla, þá
Callaghan og Toshack. Heima-
liðið tók reyndar forystuna á 6.
minútu þegar Tommy Smith
brá framherjanum Scheiwiler
innan vítateigs og Risi skoraði
úr vítaspyrnunni, sem dæmd
var. Litlu munaði að Ray
Clemence tækist að verja
spyrnuna. Á 14. mínútu jafnaði
Liverpool metin. Ray Kennedy
sendi langa sendingu inn i víta-
teig Ziirich og þar var bak-
vörðurinn Phil Neal mættur.
Hann drap knöttinn niður, lék
á tvo varnarmenn og skoraði
með þrumuskoti. Á 47. mínútu
tók Liverpool svo forystuna
þegar Steve Heighway lék upp
völlinn af miklu harðfylgi og
skoraði þrátt fyrir að þrír
varnarmenn væru að berjast
við hann. Og á 68. mínútu lék
Heighway í gegn en var brugðið
innan vítateigs af Heer og úr
vítaspyrnunni skoraði Phil
Neal örugglega. Smith og
Zigerlag voru bókaðir. Afar
ólíklegt er að Svisslendingun-
um takist að vinna 3:0 á
Anfield í Liverpool í seinni
leiknum.
I Kiev léku Dynamo og
vestur-þýzku meístararnir
Borussia Mönchengladbach i
hinum undanúrslitaleiknum.
100 þúsund áhorfendur fögn-
uðu mjög þegar Vladimir
Onischenko skallaði knöttinn í
mark Þjóðverjanna 20 mínút-
um fyrir leikslok. Þetta var í
eina skiptið, sem Sovétmönnum
tókst að snúa á sterka vörn
þýzka liðsins. I rússneska liðinu
var Fomenko bókaður en Berti
Vogt i þýzka liðinu. Líklega
dugir þetta eina mark ekki
Sovétmönnunum i seinni leikn-
um.
I keppni bikarhafa var fyrri
hálfleikurinn markalaus hjá
Athletico Madrid og þýzka
liðinu Hamburger SV þegar lið-
in mættust í Madrid. Aftur á
móti voru þá fjórir leikmenn
bókaðir, Cano og Pereira í
spænska liðinu og Volkert og
Nogly í þýzka liðinu. í seinni
hálfleik fóru Spánvarjarnir í
gang og þrisvar tókst þeim að
höggva göt i varnarmúr Þjóð-
verjanna. Ruben Cano skoraði
tvívegis og Lial einu sinni en
mark Þjóðverja skoraði
Magath. Áhorfendur voru 50
þúsund.
I Napoli á Ítalíu léku heima-
menn við belgiska líðið Ander-
lecht í Evrópukeppni meistara-
liða. Helzta stjarna belgíska
liðsins, Bob Rensenbrink, var í
sérstakri gæzlu Ítalans
Bruscolotti og strax á 6. mínútu
rákust þeir á úti á vellinum
með þeim afleiðingum að
Rensenbrink meiddist á höfði.
Þessi sami. Bruscolotti skoraði
siurmark ítalanna niu mínút-
um fyrir leikslok og sigurinn
var verðskuldaður. Ítalska liðið
missti sinn marksæknasta
mann, Luigi Chiarugi, útaf
vegna meiðsla í fyrri hálfleik.
I EUFA-bikarkeppninni fóru
einnig fram tveir leikir í und-
anúrslitunum. í Torina á Italíu
átti Juventus í höggi við AEK
frá Aþenu og sigraði örugglega
4:1 með mörkum Bettega 2,
Causio og Cuccereddu.
Juventus ætti að vera nokkuð
öruggt í úrslit, en það ber að
hafa í huga, að enska liðið QPR
vann gríska liðið í fyrri leik
8-liða úrslitanna 3:0 en féll
samt úr keppninni. í Belgíu lék
Molenbeek við Athletico Bilbao
og Spánverjarnir tóku óvænt
forystuna með skallamarki
Ignacio Churuca. Seint í leikn-
um jafnaði Jaccues Taugels
metin, einnig með skalla, en
hann hafði fyrr í leiknum tekið
vitaspyrnu en Iribar í marki
Athletico gerði sér lítið fyrir og
varði.
\1 *hHH
WsMM > ' IK — áígM**.
EVRÓPUBIKARINN
EVRÓPUMÓTIN f knattspyrnu, miðvikudagur 6.
aprfl, undanúrslit, fyrri leikir. Seinni leikirnir
fara fram miðvikudagskvöldið 20. aprfl:
EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA:
FC Ziirich, Swiss- Liverpool, England 1:3 (1:1).
Mark Ziirich: Risi (v).
Mörk Liverpool: Neal 2 (lv), Heighway.
Dynamo Kiev, Sovétrfkjunum- Borussia
Mönchengladbach, Vestur — Þýzkalandi 1:0
(0:0).
Mark Dynamo: Onischonko.
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA:
Napoli, ltalfu—Anderlecht, Belgíu 1:0 (0:0).
Mark Napoli: Bruxcolotti.
Athletico Madrid, Spáni- Hamburger SV, V-
Þýzkalandi 3:1 (0:0).
Mörk Athletico: Cano 2, Loal.
Mark Hamburger: Magath.
UEFA-BIKARKEPPNIN:
Molenbeek, Belgfu- Athletico Bilbao. Spáni 1:1
(0:1).
Mark Molenbeek: Tougols.
Mark Athletico: Churucz.
Juventus, ftalfu- AEK Aþena, Grikklandi 4:1
(1:1).
Mörk Juventus: Cuccureddu, Bettega 2, Causio.
Mark AEK: Papadopolus.
V-#'
# *
• ' #' #♦
v V.#*' V.#'
Sigurður Haraldsson slær boltann
Ljðsm. Mbl. Sigtryggur,
Sigurður Haraldsson
þrefaldur meistari á
badmintonmótinu
tSLANDSMEISTARAMÓTIÐ f badminton 1977 var haldið f Laugar-
dalshöll um páskana. Undanúrslit fóru fram á laugardaginn en úrslit á
páskadag. Var Höllin svo ásetin f vetur að páskahelgin var eina lausa
helgin fyrir mótið og þurfti leyfi biskups fyrir mótshaldinu. Þátttaka
var góð f mótinu, keppendur um 70 frá 7 félögum og samböndum, TBR,
IA, KR, BH. Gerplu, Val og Vfkingi. Maður mótsins var tvfmælalaust
Sigurður Haraldsson TBR, sem varð þrefaldur meistari og hefur hann
ekki áður náð svo langt að hreppa gullið f öllum greinum, sem hann
hefur keppt f. Lovfsa Sigurðardóttir TBR var sem fyrr sterkust f
kvcnnaflokki. Ahorfendur voru allmargir.
• 1 úrslitaleikjunum á páskadag
fóru leikar sem hér segir:
Einliðaleikur karla, meistara-
flokkur:
Sigurður Haraldsson TBR vann
Jóhann Kjartansson TBR 15:6 og
15:6
Einliðaleikur kvenna, meistara-
flokkur:
Lovisa Sigurðardóttir TBR
vann Hönnu Láru Pálsdóttur
TBR 11:1 og 11:7.
Einliðaleikur karla, A-flokkur:
Víðir Bragason ÍA vann Reyni
Guðmundsson KR 15:12 og 15:12.
Einliðaleikur kvenna, A-flokkur:
Sigríður M. Jónsdóttir TBR
vann Ásu Gunnarsdóttur Val 11:2
og 12:9.
Tvíliðaleikur karla, meistara-
flokkur:
Sigurður Haraldsson og Jóhann
Kjartansson TBR unnu Harald
Korneliusson og Steinar Petersen
TBR 15:6,8:15 og 15:4.
Tvíliðaleikur kvenna, meistara-
flokkur:
Lovísa Sigurðardóttir og Hanna
Lára Pálsdóttir TBR unnu Vildísi
Kristmannsdóttur KR og önnu
Njálsdóttur TBR 15:4 og 15:7.
Tviliðaleikur karla, meistara-
flokkur:
Víðir Bragason og Björn H.
Björnsson lA unnu Ágúst
Sigurðsson og Gylfa Óskarsson
Val 15:7 og 17:15.
Tviliðaleikur kvenna, A-flokkur:
Sigríður M. Jónsdóttir og
Jórunn Skúladóttir TBR unnu
Kristinu Aðalsteinsdóttur og
Jóhönnu Steindórsdóttur IA
15:11 og 18:16.
Tvfliðaleikur Old-Boys:
Rikharður Pálsson og Jón Árna-
son TBR unnu Ragnar Haralds-
son og Gisla Guðlaugsson TBR
15:7 og 15:13.
Tvenndarkeppni meistaraflokk-
ur:
Sigurður Haraldsson og Hanna
Lára Pálsdóttir TBR unnu Stein-
ar Petersen og Lovisu Sigurðar-
dóttur TBR 15:11 og 15:5.
Tvenndarkeppni, A-flokkur:
Guðmundur Adolfsson og
Sigríður M. Jónsdóttir TBR unnu
Viði Bragason og Kristinu Aðal-
steinsdóttur ÍA 18:13, 9:15 og
18:17.
Eins Qg sjá má hlaut TBR lang-
flesta meistaratitla eða 9 talsins
en Akurnesingar hlutu 2 titla.
Um úrslitaleikina er það að
segja, að Jóhann veitti Sigurði
mun minni mótspyrnu í úrslitum
einliðaleiksins en menn áttu von
á og var aldrei vafi á þvi að
Sigurður myndi bera sigur úr být-
um. Sigurður og Jóhann unnu sið-
an Harald og Steinar i tviliða-
leiknum i oddaleik. Það var að-
eins í miðlotunni og þeir
Haraldur og Steinar sýndu klærn-
ar, Hún var jöfn framan af, síðast
8:8, en þá tóku Haraldur og Stein-
ar afgerandi forystu, en hún
dugði þeim ekki til sigurs i keppn-
inni. 1 tvenndarleiknum unnu
þau Sigurður og Hanna Lára
örugglega. Hlutu þær Lovísa og
Hanna Lára tvo meistaratitla báð-
ar.
í A-flokknum var Vfðir Braga-
son ÍA sterkastur í karlaflokki og
Sigríður M. Jónsdóttir TBR í
kvennaflokknum. Jórunn Skúla-
dóttir, sem hreppti sigur í tviliða-
leiknum i A-flokki, er eiginkona
meistarans sigursæla, Sigurðar
Haraldssonar.
—SS.