Morgunblaðið - 13.04.1977, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1977
45
= VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
wmirwmm/T' ,f
jí
ingar á þessum stuttu flugleiðum
hér innanlands, þær lengstu eru
ekki nema rúmur klukkutfmi og
sennilega myndu reykingamenn
geta lifað það af. Að öðru leyti vil
ég ekki tjá mig um þetta, fyrir
mér er þetta ekki stórmál og ég
endurtek þakkir fyrir veitt svör
um daginn.
Flugfarþegi."
Væri ekki kannski hægt að
„hálfbanna" reykingar þ.e. hvetja
flugfarþega til að reykja sem
minnst á þessum styttri flugleað-
um, það þykir víst aldrei vinsælt
að banna hlutina algerlega.
Að síðustu er bréf frá nokkrum
nemendum Flensborgarskóla I
Hafnarfirði: r
£ Misrétti í
þjóðfélaginu
„Kæri Velvakandi.
Við erum hérna sex krakkar,
sem erum á átjánda árinu. Og
okkur langar til að vita hvort hin-
ir háu herrar fari ekki að sjá
sóma sinn I að gera eitthvað I
málefnum fyrir fólk undir tvl-
tugu. Þó ekki væri nema að opna
einn dansstað fyrir okkar aldurs-
flokk. Því að þeir sem hafa náð
þvf langþráða takmarki að verða
tvftugir komast inn á um það bil 9
staði. En við getum ekki gert neitt
annað en að fara f bfó, detta f það
og ráfa um eða snapa saman
rúmum þrjú þúsund krónum og
skella okkur á sveitaball, sem
skólafólk getur ekki leyft sér oft.
Öskum eftir svari frá þeim sem
annast málefni unga fólksins.
Með fyrir fram þökk fyrir birting-
una,
Sex krakkar úr
Flensborgarskóla."
Velvakandi þakkar þessum
ungmennum fyrir bréfið, honum
finnst það alltaf dálftill viðburður
að fá bréf frá ungu fólki, því það
er ekki svo oft. En þetta sígilda
vandamál, hvað eiga unglingar að
gera — er erfitt viðureignar og
sjálfsagt líða mörg ár áður en
unglingar hætta að vera í vand-
ræðum með það.
Þessir hringdu
# Um málefni geð-
sjúkra
Fyrrverandi geðsjúklingur:
—Mig langar að koma á fram-
færi nokkrum spurningum um
vandamál geðsjúkra. Hver er rétt-
ur þeirra sem dveljast á geð-
sjúkrahúsi og hafa ekki verið
sviptir sjálfsforræði, en eru taldir
erfiðir, t.d. varðandi valdbeit-
ingu. T.d. þegar þeim er meinað
að ganga úti og hvað varðar fjár-
mál o.þ.h. hvort ekki sé rétt að
hann fái ætíð fullar skýringar á
þeirri meðhöndlun sem hann sæt-
ir. Þegar sjúklingar lenda í úti-
stöðum við starfsfólkið finnst mér
vera of lítið af því gert að beita
fortölum, frekar eru skammir og
hótanir látnar vaða yfir þá, og
hrffi það ekki er beitt líkamlegu
ofbeldi og sprautugjöfum. Einnig
eru sjúklingar aldrei teknir gildir
sem vitni, aðeins starfsfólkið þeg-
ar um einhver svona tilvik er að
ræða. Þá má einnig nefna að það
kemur manni einkennilega fyrir
sjónir að þeir sem mesta sérfræði-
þekkinguna hafa eru minnst inn-
an um sjúklingana, og spyrja má
hvort það teljist heppilegt.
Einnig finnst mér það of oft
rfkjandi að sjúklingar, sem virki-
lega þurfa á hjálp og meðferð að
halda eru kannski látnir sitja á
hakanum, þeim er hent út í horn
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í áskorendaflokknum í Hast-
ings um síðustu áramót kom þessi
staða upp í skák þeirra Huisl,
V-Þýskalandi, sem hafði hvitt og
átti leik og Lundúnabúans
Franklin
og taldir óalandi og óferjandi,
nánast réttlausir. Ég held að það
skapist miklu verra ástand með
þá en þarf að gera, aðalatriðið er
að vera vakandi fyrir öllum þörf-
um geðsjúkra, líka þeim erfiðu.
Hér eru miklar og erfiðar
spurningar á ferðinni og óvfst er
hvort nokkuð er hægt að fjalla um
þær hér, en Velvakandi taldi eigi
að sfður rétt að koma þeim á
framfæri til að gefa e.t.v. nokkra
mynd af því hve aðhlynning geð-
sjúkra hlýtur að vera erfitt og
viðkvæmt starf. Og úr því að talað
er um sjúkrahúsmál er næsta mál
tekið nú, ekki alveg óskylt:
# Á að leggja hælin
niður?
Kona, sem hefur nýlega rætt
við fólk um sjúkrahúsa- og
„heimilamál" hafði samband við
Velvakanda og vildi mótmæla
þeirri stefnu sem hún kvaðst
halda að ætti að fara að ráða
hérlendis en það væri að Ieggja
niður sem flest hæli eða heimili
fyrir vangefna eða á annan hátt
minni máttar einstaklinga, t.d.
Kópavogshælið og fl. slík og sagð-
ist ekki skilja að hægt væri að
senda þetta fólk meira og minna
umhirðuiaust út í þjóðfélagið.
Þetta hlyti að vera röng stefna og
það yrði að hafa eitthvert afdrep,
ef svo mætti að orði komast fyrir
ýmsa þannig hópa.
HÖGNI HREKKVISI
Tvísöngs-kynning í kvöld?
SlGGA V/öGA £ A/LVE^
LÆRIÐ VELRITUN
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 14. aprfl.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Engin heimavinna.
Upplýsingar og innritun I sima 4131 1.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20.
ÍPJ
M:
VER21UKIN
fra steffens
® $ki
Laugavegi 58
Sími 11699
Þjálfarinn Ken Takefusa 3ja dan Einnig er lögð rfk áherzla á
kennir Goju-Ryu karete sem er Ifkamsrækt með vöðva og önd
bæði keppnisfþrótt og frábær unaræfingum.
sjálfsvarnarlist.
Byrjendanámskeið
í Karate
Innritun verður í dag og á morgun fimmtudag
frá kl. 19.30—21. Getum bætt við einum
byrjendaflokki fyrir bæði konur og karla, 1 5 ára
og eldri. Athugið að karate er ekki einungis
frábær keppnisíþrótt, heldur einnig holl og góð
heilsurækt í sérflokki.
Karatefélag Reykjavíkur
Ármúla 28. R. Sími 35025.
Ath: innanfélagsmót og sýning KFR fer fram sunnu-
daginn 1 7. apríl S fþróttasal Kennaraháskóla fslands v.
Háteigsveg. Mótið hefst kl. 2 e.h.
Keppt verður i opnum flokki karla.
35. Rg5 + ! — Rxg5 (Eða 35. ..
hxg5, 36. Hxe8) 36. Ilxe8 — Re4,
(Auðvitað ekki 36... Hce8, 37.
Dg7 mát) 37. He7+ og svartur
gafst upp. Sigurvegari í áskor-
endaflokknum varð Tisdall,
Bandaríkjunum, en hann hlaut 8
v. af 10 mögulegum. Næstir komu
þjóðverjarnir Huisl og Bachmann
með 7V6 v. hvor.