Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 1
32 SÍÐUR
116. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. MAf 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Belgía:
Leiðtogar fjögurra
flokka mynda stjóm
oiuiaiuyiiu nr
Vagni með matvælum ýtt til skólans þar sem 105 börnum og sex kennurum er
haldið i gfslingu.
Hollenzka stjórnin:
Briissel 24. maí — Reuter.
LEIÐTOGAR fjögurra stjórn-
málaflokka í Belgíu, sem nýlega
hafa náð samstöðu um meirihátt-
ar stjórnarskrárbreytingar, reyna
nú að afla stuðnings fiokksmanna
sinna við stefnu nýrrar sam-
steypustjórnar.
Ef allt fer að óskum, gæti ný
ríkisstjórn tekið við völdum í
næstu viku, fimm vikum eftir
þingkostningarnar, og myndi hún
ráða yfir 173 af 212 sætum á
þingi.
Leiðtogar flokkanna hafa setið
að samnlngaviðræðum í fimm vik-
ur og virtist allt komið í hnút
þegar Leo Tindemans tilkynnti
öllum á övart í morgun, að sam-
komulag hefði náðst um meiri-
háttar stjórnarskrárbreytingar.
Vinnunefndir flokkanna fjög-
urra hittust í dag til að ræða um
hvernig afla eigi fylgis við stjórn-
arsáttmálann á flokksþingum,
sem liklega verða haldin í næstu
viku.
Kröfurnar athugaðar
verði bömunum sleppt
Bovensmilde 24. maí — Reuter.
HOLLENZKA stjórnin
skýrði suður-mólúkkönsku
skæruliðunum, að þeir
yrðu að sleppa 105 börn-
um, sem þeir halda sem
Bretar
skutu á
Frakka
Plymouth, 24. maí. Reuter.
BREZKUR skipherra segir að
hann hafi skotið púðurskotum
að frönskum togurum sem
voru i fylgd með franska togar-
anum Le Corse er færður var
til hafnar f Plymouth vegna
gruns um að áhöfnin hefði
notað net af of lítilli möskva-
stærð.
Skipherrann, Ted Seath, á
hinu nýju fiskverndarskipi
Jersey, sagði að svo virtist sem
einn fimm togara sem voru í
fylgd með Le Corse, Le Mand-
ola, hefði ætlað að setja menn
um borð í Le Corse.
Seath kvaðst hvað eftir
annað hafa sagt skipstjóranum
á Le Mandola að færa sig frá
Le Corse, en þar sem hann
hefði engu sinnt öllum við-
vörunum hefði hann hleypt af
fjórum púðurskotum svo að
hann skildi hvað við væri átt.
Starfsmenn franska sendi-
ráðsins í London fóru til
Plymouth að kanna málið og
brezkir embættismenn athuga
hvort stefna skuli skipstjóra
Le Corse.
gíslum, áður en litið yrði
við kröfum þeirra, að því
er Andras van Agt, dóms-
málaráðherra, sagði.
„Aðaláherzlu verður að
leggja á börnin,“ sagði
hann í sjónvarpsviðtali.
Hann sagði, að stjórnin hefði
tekið þá ákvörðun að börnunum,
sem haldið er fyrir framan byssu-
hlaup i tveimur kennslustofum i
bæjarskólanum i Bovensmilde,
yrði að sleppa áður en samninga-
viðræður gætu hafizt.
Börnin og sex kennarar þeirra
komu sér fyrir á hermannabedd-
um, fyrir aðra nóttina i gíslingu á
meðan órólegir foreldrar biðu fyr-
ir utan. Um það bil 60 gíslum er
haldið af öðrum hópi suður-
mólúkkanskra skæruliða í járn-
brautarlest í um 20 kílómetra
fjarlægð. Skæruliðarnir skutu
með vélbyssum í dag á lögreglu-
þyrlu, sem flaug yfir, án þess að
hæfa hána.
Joop den Uyl, forsætisráðherra,
talaði einnig í sjónvarpi og sagði
að það væri grundvallarafstaða
stjórnarinnar að leyfa skærulið-
unum ekki að taka neinn gislanna
með sér úr landi.
Van Agt, sem er helzti keppi-
nautur forsætisráðherrans í kosn-
ingunum á morgun, sagði að hann
og aðrir ráðherrar, sem eru i
neyðarmiðstöð í Haag, væntu
svars frá skæruliðunum á morg-
un.
,,Við höfum sagt þeim að hægt
sé að ná sambandi við okkur dag
og nótt,“ sagði hann.
Skæruliðarnir hafa krafizt þess
að 21 Mólukki, sem er á bak við
lás og slá í Hollandi fyrir skæru-
liðastarfsemi, verði látinn laus.
Meðal þessara manna eru þeir
sem tóku gisla í járnbrautarlest
og sendiráði Indónesíu i desem-
ber 1975.
Ríkisstjórnin hefur haft síma-
samband við skæruliðana, en ein
kona er meðal þeirra, með hjálp
annarrar stjórnstöðvar í Assen.
Geðlæknar hafa annazt flestar
samræðurnar. Dómsmálaráðherr-
ann sagði að háttsettur aðili í sam-
félagi Suður-Mólúkka í Hollandi
færi í kvöld á vettvang og reyndi
að ná sambandi við skæruliðana.
Hann vildi ekki segja hver
þetta væri en talið er að hér sé um
að ræða prestinn, sem bar orð-
sendingar á milli stjórnarinnar og
skæruliðanna 1975.
Rúm voru flutt á vörubílum í
kvöld hingað til bæjarins handa
börnunum og kennurunum í skól-
anum. Foreldrum barnanna er
haldið frá fréttamönnum og þau
eru í umsjá lækna og geðlækna
sem komið hefur verið upp i bóka-
safninu allan sólarhringinn.
Fleiri geðlæknar og félagsráð-
gjafar eru í sérstakri móttökustöð
í Groningen fyrir ættingja gísl-
anna i lestinni.
Tveir Hollendingar, sem haldið
Framhald á bis. 18
demókratar, stærsti flokkur á
þingi, Sósíalistar og tveir litlir
flokkar Flæmingja og Vallóna.
Tímabundið
lendingar-
bann fram-
lengt í viku
New York 24. mai — Reuter.
ÁFRÝJUNARRÉTTUR fram-
lengdi i dag til 1. júni timabundið
bann við lendingum hljóðfráu
farþegaþotunnar Concorde á
Kennedyflugvelli. 1. júní fer
fram málflutningur vegna áfrýj-
unar hafnaryfirvalda i New York
og New Jersey, sem reka flugvöll-
inn á úrskurði lægri dómstóls um
að þotan fái að fljúga til New
York í 16 mánaða reynslutíma.
Talsmaður Air France, sem ætl-
aði að hefja Concordeflug 20.
júni, sagði að úrskurðurinn i dag
þyrfti ekki að verða til þess að
breyta upphaflegri áætlun félags-
Kreml kemur á óvart:
Podgorny settur úr
stjórnmálaráðinu
Moskvu 24. maí — Reuter.
NIKOLAI Podgorny, forseti
Sovétríkjanna, var settur úr
stjórnmálaráði Sovétrfkjanna f
dag og er litið á það se endalok
st jórnmálaframa hans. Opin-
bera fréttastofan Tass sagði, að
á fundi miðstjórnar komm-
únistaflokksins hefði verið
samþykkt að létta störfum af
Podgorny f stjórnmálaráðinu,
sem er í reynd rfkisstjórn
flokksins. Podgorny er 74 ára
að aldri.
Engin ástæða var gefin fyrir
þessari ákvörðun, sem kemur
mjög á óvart. Podgorny hefur
verið einn þriggja æðstu manna
i Kreml síðan 1965 og virtist
Nýlega fór Podgorny til Afrfku
og sést hér heilsa Nyerere for-
seta Tanzanfu.
vera fastur í sessi sem þjóð-
höfðingi. Hann fór i síðasta
mánuði í ferð um um suður-
hluta Afríku og hlaut mikið lof
í sovézkum blöðum.
Tilkynningin í dag breytir
ekki að svo komnu stöðu hans
sem forseta, en fréttaskýrend-
ur segja að næstum sé vist að
forsetastarfinu verði létt af
honum á fundi æðsta ráðsins i
júni.
Vestrænir fréttamenn segja,
að skýringa á þessu gæti verið
að leita i aldri Podgornys og
heilsu fremur en stjórnmála-
sviptingum. Sovézki fulltrúinn
hjá Sameinuðu þjóðunum taldi
Framhald á bls. 19