Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
Sorphreinsun í Reykjavík;
Yfirferðin tekur 6—7
daga í stað 4ra áður
„YFIRVINNUBANNIÐ hefur
þau áhrif að þetta þyngist allt hjá
okkur,“ sagði Hilmar Magnússon,
yfirverkstjóri sorphreinsunar hjá
Reykjavfkurborg, f samtali við
Mbl. f gær. „Við förum nú yfir
borgina á 6—7 vinnudögum f stað
fjögurra áður og svo þyngist allt
hjá okkur að auki vegna þess að
fólk er að taka til f görðunum
núna.“
Hilmar sagði að það stæði í
járnum með að þeir hefðu undan,
og ekki mætti mikið út af bregða
til að vandræði kæmu upp t.d.
væri allur bílaflotinn fullnýttur
þessa dagana. Nú er unnið við
sorphreinsun til klukkan 15:20 á
daginn í stað þess að venjulega er
unnið fram undir klukkan 19.
FÁTÆKT FÓLK
OG MÁNASIGÐ
— í samkeppnina um bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja fram
bækurnar Fátækt fólk eftir Tryggva
Emilsson og Mánasigð eftir Thor Vil-
hjálmsson til samkeppninnar um
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs. Þetta er í þriðja skiptið, sem
bók eftir Thor er lögð fram og annað
skiptið f röð, en áður hafa verið
lagðar fram þrjár bækur eftir einn
íslenzkan höfund, Indriða G. Þor-
steinsson.
Svíinn Inge Knutson þýðir bók
Thors, en Daninn Preben Maulen-
gracht-Sörensen þýðir bók Tryggva,
sem eru fyrstu æviminningar, sem af
íslands hálfu eru settar f samkeppnina.
en æviminningar hafa verið lagðar
Tryggvi
Thor
fram áður í keppnina frá öðrum Norð-
urlöndum
Hjörtur Pálsson, dagskrárstjóri, og
Njörður P Njarðvík, lektor, sitja nú f
dómnefndinni fyrir íslands hönd.
Njörður sagði í samtali við Mbl. í gær,
að með því að leggja nú fram Mána-
sigð árið eftir að Fuglaskottís var lagð-
ur fram. vildu þeir, „fylgja Thor eftir í
samkeppninni", en slíkt hefði oft verið
gert áður af hálfu dómnefndarmanna
annarra þjóða. Fyrsta bókin, sem lögð
var fram f Norðurlandasamkeppnina,
eftir Thor var Fljótt, fljótt sagði fuglinn,
árið 1970.
Af samtölum við Njörð, Ólaf Jóns-
son og Helga Sæmundsson, sem sátu f
dómnefndinni á undan Nirði, hafa eftir-
taldir höfundar átt bækur í samkeppn-
inni oftar en einu sinni; Guðmundur
Danfelsson, Jóhannes úr Kötlum,
Hannes Pétursson. Jakobfna Sigurðar-
dóttir og Vésteinn Lúðvíksson — öll
tvær bækur og Indriði G Þorsteinsson
þrjár bækur sem fyrr segir Þá var
sama bók eftir Svövu Jakobsdóttur
lögð fram tvö ár í röð, en að sögn
Framhald á bls. 18
Bamamúsíkskólinn í Lind-
argötuskóla næsta vetur
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi slnum á mánudag a5
ekki færi næsta vetur fram kennsla I
f ramhaldsdeildum F húsi Lindargötu-
skóla. eins og verið hefur undanfarin
ár. Jafnframt var lagt til við borgar-
Pílagríma-
f lug frá
Indónesíu
í athugun
FLUGVÉLAR Flugleiða fóru á sl ári
alls 85 ferðir með pflagríma frá Kano
f Nfgerfu til Jedda f Saudi-Arabfu.
Auk farangursflutninga voru alls
fluttir 15.474 farþegar f þessum
ferðum. Hleðslunýting var 97,3% og
hagnaður af ferðunum var röskar 16
milljónir króna, að því er Alfreð
Elfasson, forstjóri, skýrði frá á aðal-
fundi Flugleiða f gær.
Flutningar þessir eru á þeim árstíma
sem flutningar í áætlunarflugi eru í
lágmarki, og sagði Alfreð að því væri
ráðgert að reyna að ná samningum
áfram og skapa verkefni þegar minnst-
ar annir væru. Alfreð benti og á. að
Flugleiðir hefðu nú aflað sér reynslu
Framhald á bls. 18
ráð að Barnamúsikskólinn fengi
Lindargötuskóla, sem er f eigu borg-
arinnar, til leigu næstu árin, eins og
leitað hafði verið eftir. Samþykkti
borgarráð það á fundi sfnum f gær.
Barnamúsikskólinn hefur verið I
miklum þrenglsum í Iðnskólahúsinu,
sem lengi hefur raunar þurft á því
húsnæði að halda Hefur þröngur
húsakostur hamlað mjög starfseminni
og auk þess takmarkað mjög þann
barnafjölda, sem hægt var að veita
viðtöku Fái skólinn Lindargötuskólann
til afnota, verður hægt að færa mjög út
starfsemina og bæta aðstæður hans.
Hús Lindargötuskóla, sem fyrrum
var Franski spítalinn, var gert upp fyrir
nokkrum árum, Barnamúsikskólinn
mundi aðeins þurfa að skipta nokkrum
stofum niður í smærri einingar með
skilveggjum til að hann henti Fól
borgarráð fræðslustjóra og borgarrit-
ara að ganga til samninga um leigu
hússins til Barnamúsikskólans.
Fótbrot
UMFERÐARSLYS varð á mótum
Framnesvegar og Holtsgötu
klukkan rétt rúmlega 15 I gær-
dag. Jeppi og skellinaðra óku
saman og urðu afleiðingarnar
þær að unglingspiltur á skelli-
nöðrunni fótbrotnaði.
Myndin var tekin I gær er Baldur var afhentur sjávarútvegsráðuneytinu
á ný. TaliB frá v: Jón Jónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar.
ÞórBur Ásgeirsson, skrifstofustjóri I sjávarútvegsráSuneytinu. og Pátur
SigurSsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar. Ljósm. Mbl. RAX.
Gæzlan skilar Baldri:
Viðgerðarkostnaður
orðinn 40 millj. króna
LANDHELGISGÆZLAN afhenti
sjávarútvegsráðuneytinu skuttog-
arann Baldur á ný F gær. en sem
kunnugt er hafði Gæzlan Baldur
til afnota á meðan þorskastrFSið
stóð sem hæst. Til stóð að Baldur
yrði afhentur strax en þar sem
skipið skemmdist mikið F átökum
við brezkar freigátur og
dráttarbáta, hefur hann verið F
viðgerð sFðustu mánuði, en bók-
aður viðgerðarkostnaður er þegar
kominn F 40 millj. kr. að þvF er
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar, tjáði Morgun-
blaðinu F gær.
Sagði Pétur, að nú væri lokið
viðgerðum á öllum þeim skipum,
sem hefðu skemmzt I þorskastrlð-
inu, og Baldur verið slðastur I röð-
inni „Við áttum að afhenda Baldur I
því ástandi sem við tókum við hon-
um og tel ég að skipið sé I sízt lakara
ástandi en er við tókum við þvl,"
sagði hann.
Þórður Ásgeirsson. skrifstofustjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, sagði
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann, að rikissjóður hefði keypt
Baldur á slnum tlma frá Dalvik. og
hefði hann þá verið ætlaður til haf-
rannsókna fyrst og fremst Enn ætti
eftir að taka ákvörðun um hvort
skipið yrði fært yfir á nafn Hafrann-
sóknastofnunarinnar eins og hin
hafrannsóknaskipin, að undan-
skildum Hafþór eða yrði áfram
skráður á nafn rikissjóðs Hafrann-
sóknastofnunin hefði engu að siður
borið fram óskir um breytingar á
skipinu og áður en skipið gæti talizt
fullgilt hafrannsóknaskip þyrfti að
breyta því á ýmsan hátt, en til þess-
ara breytinga ætti enn eftir að afla
fjár.
Um 8500ferða-
menn koma með
skemmtiferða-
skipum í sumar
TALIÐ er að um 8500 erlendir
ferðamenn komi hingað til lands
með þeim tðlf skemmtiferða-
skipum, sem vitað er um að koma
i sumar, en nokkur koma tvisvar
og eitt þrisvar sinnum þannig að
alls er vitað um 17 ferðir.
Aukið við
Hótel Es ju
GESTAFJÖLDI og nýting
herbergja Hótel Loftleiða
var betri en árið á undan.
Hagnaður af hótelrekstrin-
um var rétt um 30 mill-
jónir króna eftir afskriftir
og vexti. Tap varð hins
vegar á rekstri Hótel Esju
á sl. ári en af hálfu forráða-
manna Flugleiða er þess
vænzt að tilkoma Esju-
bergs, matstofunnar og
Skálafells á 9. hæð hótels-
ins muni bæta afkomuna
þegar á þessu ári auk þess
sem til munu koma aðrar
f járhagslegar aðgerðir.
I ræðu á aðalfundi Flugleiða i
gær ræddi Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, m.a. um þörf-
ina á að auka ferðamannastraum-
inn til islands en benti á að
verulegt átak til að auka
ferðamannastrauminn yrir há-
sumartímann gæti ekki orðið
nema hótelrými hér yrði auk-
ið. Kvað hann nærtækast af
hálfu Flugleiða að byggja upp
austurhluta Hótel Esju og með
þvi mætti tvöfalda afkastagetu
þess hótels. Væri frumundirbún-
ingur að því verki hafinn en eng-
ar ákvarðanir teknar um fram-
kvæmdir.
Verðmætum bat-
ikmyndum stolið
FYRIR Skömmu var stolið fimm
batikmyndum frá Sigrúnu Jóns-
dóttur listakonu. Tvö þessara
verka eru stór en hin eru nokkru
minni. Allt eru þetta verðmæt
verk. Þeir, sem geta gefið upplýs-
ingar um það hvar batikmynd-
irnar eru niðurkomnar, eru
beðnir að hafa sarnband við rann-
sóknarlögregluna i Reykjavík.
Nýrnaveikin stafar af
of háu sýrustigi vatns
- segir Skúli Pálsson á Laxalóni
„MERGURINN málsins er sá. a8 til-
vist sýkils I minum fiski hefur ekki
sannazt og meðan svo er tel ég mig
standa f fullum rétti." sagði Skúli
Pálsson á Laxalóni i samtali vi8 Mbl.
I gær. „Hitt er rétt a8 þaS hefur
or8i8 vart vi8 króníska nýmaveiki,
sem ég tel stafa af of háu sýrustigi i
vatninu. Ég var nú fyrst a8 uppgötva
þetta núna um daginn, þegar ég lét
mæla vatniS og kom i Ijós, a8 sýru-
stigiS er fyrir ofan þau mörk a8
fiskurinn geti veriS heilbrigSur, en
hann smitar ekkl neitt. Vi8 sjáum
strax þau sei8i, sem veik eru, og
vinzum þau úr. Þannig eru þa8
heilber ósannindi a8 ég hafi selt
sjúkan fisk, hvaS þé smitbera."
Þegar Mbl. spurði Skúla, hvað hann
vildi segja um álit skozka sérfræðings-
ins R.H. Richards, sem frá var greint I
blaðinu I gær, sagði Skúli, að hann
tæki ekkert mark á orðum einhvers
manns. sem hann hvorki þekkti haus
né sporð á. „Ég vil að sérfræðingarnir
komi hingað og rannsaki mlna stöð Ég
hef farið fram á það, að hingað verði
fenginn danskur sérfræðingur, sem ég
þekki og ber traust - til. Á hans orð
mundi ég hlusta " Þegar Mbl spurði
Skúla. hve mikinn fisk hann hefði þurft
að vinza úr vegna óheilbrigðis, kvaðst
hann ekki vilja svara þeirri spurningu
Um orsakirnar fyrir óheilbrigðinu
sagði Skúli, að sýrustig vatns fyrir
heilbrigðan fisk væri á bilinu
Framhald á bls. 18
Islenzku kolmunnaskipin;
Heildaraflinn
ÍSLENZKU skipin þrjú. sem stundað hafa kolmunna-
veiðar é Færeyjamiðum i vor. munu nú vera búin að fá
samtals um 4200—4300 lestir af kolmunna, en sam-
tals hafa þau leyfi til að veiSa 25.000 lestir.
Morgunblaðið fékk þær upplýsingar um borð I bræðslu-
skipmu Norglobal I gær að Sigurður væri búinn að landa
þar 980 lestum, en skipið var búið að landa 350 lestum
áður I Færeyjum. Vikingur var búinn að landa 910lestum,
og var áður búinn að landa 450 lestum I Neskaupstað. og
4300 lestir
Börkur var búinn að landa 1 70 lestum í Norglobal en áður
var skipið búið að landa 3 50 lestum i Neskaupstað og var
að landa þar i 900 lestum I gær Eftir þessu að dæma er
Sigurður búinn að fá samtals 1330 lestir, Vfkingur 1340
lestir og Börkur 1 420 lestir.
Ekki er enn vitað hve islenzku skipin halda kolmunna-
veiðunum lengi áfram, en gert er ráð fyrir að kolmunna-
veiðin við Færeyjar geti staðið til loka mai Úr því má búast
við að kolmunninn farí að ganga f átt að austurströnd
íslands.
Ráðinn útibússtjóri
A FUNDI bankaráðs Landsbanka
íslands hinn 20. maf s.l. var sam-
þykkt að ráða Þór Guðmundsson
viðskiptafræðing. útibússtjóra við
útibú bankans á ísafirði, frá 1. júlf
n.k.
Þór Guðmundsson er 4 1 árs gam-
all Hann lauk prófi í viðskiptafræði
frá Háskóla íslands árið 1963, starf-
aði um skeið í Framkvæmdabanka
íslands, en réðst til Landsbanka ís-
lands árið 1 966 og var þá jafnframt
framkvæmdastjóri Atvinnujöfnunar-
sjóðs Sfðastliðin 5 ár hefur Þór
starfað sem aðstoðarmaður banka-
stjórnar.
Þór Guðmundsson tekur við starfi
af Helga Jónssyni, en Helgi tekur
við starfi útibússtjóra á Akranesi.