Morgunblaðið - 25.05.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
3
Aðalfundur Flugleiða:
AÐALFUNDUR Flugleiða hf. fyrir árið 1976 var haldinn I gær í
Kristalsal Hótel Loftleiða Formaður stjómar, Kristján Guðlaugsson,
setti fundinn. Hann minntist Birgis Kjarans, sem lézt á árinu, og
fundarmenn vottuSu hinum látna virSingu sína meS því aS rlsa úr
sætum Fundarstjóri var Ragnar Ólafsson hrl. en fundarritari HörSur
Sigurgestsson. í ræSum forstjóranna Arnar Ó. Johnson, AlfreSs Elías-
sonar og SigurSar Helgasonar, svo og f ræSu stjómarformanns, komu
m.a. fram eftirfarandi atriSi:
Fjárhagsafkoma 1976
Heildartekjur Flugleiða h.f. árið
1976 urðu 15,701 millj. kr., en
voru 12,109 millj kr árið áður.
Árið 1976 var hagnaður af rekstri
Flugleiða h.f 462 millj. kr. og hefur
þá verið tekið tillit til afskrifta og
fjármagnskostnaðar. Þetta er annað
árið í röð, sem hagnaður verður af
rekstri félagsins, en árið 1 974 varð
tap á rekstrinum að upphæð 425
millj. kr Afskriftir á s I ári námu
466 millj. kr.. en voru 295 millj. kr.
árið á undan Fjármagnskostnaður á
árinu nam nettó 41 6 millj kr. en var
377 millj króna árið 1 975
Aðrar tekjur á árinu, einkum af
sölu eigna og tjónabætur, námu
224 millj. kr. í þessum lið vegur
þyngst sala á eignarhlutum f CL-44
flugvélunum þrem. Afgangur til ráð-
veruleg aukning varð þó á leigu-
flugstekjum á árinu Tekjuskipting
er sem hér greinir:
Farþegaflutningar
í áætlunarflugi 77.1%
Vöru-og póstflutningar 7.8%
Leiguflug 7.2%
Samtals jukust tekjur félagsins
um 29 9% reiknað f ísl kr árið
1976 frá árinu á undan. Rekstrar-
gjöld jukust hinsvegar meira, eða
um 34%.
i framhaldi af ofangreindum upp-
lýsingum um fjárhagsafkomu félags-
ins 1976 kom fram að enda þótt
heildarflutningar hafi vaxið um 11%
rá árinu á undan óx framboðið flutn-
ingsmagn aðeins um 5.6%.
Hleðslunýting var með eindæmum
r
l ÍÍ ij|j| Mlfti * iíi
Frá aðalfundi Flugleiða á Hótel Loftleiðum f gœr.
F.I., Loftleiðir og IAB fluttu
665 þúsund farþega á sl. ári
Aukningin um 4,5%
öm Ó. Johnson, forstjóri Flug-
leiða, flytur ræðu sfna um starf-
semi Flugleiðe á sl. árí.
stöfunar samkv. rekstrarreikningi
ársins 1976 er samtals 685 millj.
króna. Sambærileg tala fyrir 1975
var 512 millj. kr.
Rekstrarreikningurinn sýnir einnig
brúttó afkomu fyrirtækisins af eigin-
legum rekstri áður en tekið er tillit til
fjármagnskostnaðar og tekna af
óreglulegri starfsemi. Nemur sú
upphæð 1,408 millj. kr., en var
1.374 millj. kr áriðáður.
Heildareignir Flugleiða h.f í árs-
lok 1976 námu samkvæmt efna-
hagsreikningi 1 1,776 millj. króna
en skuldir samtals 9,650 millj. kr.
Eigið fé félagsins í árslok er því
2,1 26 millj. króna.
Af heildartekjum Flugleiða eru
tekjur af farþegaflutningum í áætl-
unarflugi langstærsti liðurinn, en
góð, 75.7% Við fyrstu sýn og að
lítt athuguðu máli mætti þetta virð-
ast glæsileg afkoma og vissulega er
það fagnaðarefni að félagið skilar nú
hagnaði annað árið I röð. Ef ofan-
greindar tölur eru skoðaðar í réttu
samhengi kemur í Ijós að hagnaður-
inn er aðeins tæplega 3% af heildar-
tekjum Þá er það íhugunarefni að
þessum hagnaði er náð með mjög
hárri hleðslunýtingu og vafasamt er
að lengra verði komist á þeirri braut.
Jákvæð fjárhagsafkoma í tramtíð-
inni mun því krefjast mikillar hag-
sýni og varfærni, einkanlega vegna
þess að allur reksturskostnaður fer
ört hækkandi og sömuleiðis vegna
mjög harðnandi samkeppni flugfé-
laga, sérstaklega á flugleiðum yfir
Norður Atlantshaf (Ofangreindar
tölur ná yfir rekstur Flugleiða h.f.
annan en dótturfyrirtækjanna Inter-
national Air Bahama, Hekla Hold-
ings Ltd. og Hótel Esju. sem eru
gerð upp sérstaklega.)
Flutningar 1976
Atlantshafsflug:
Heildarfarþegafjöldi flugfélaganna
þriggja, þ.e. Flugfélags íslands,
Loftleiða og International Air Ba-
hama, í áætlunarflugi var 665,780
árið 1 976 og hafði aukist um 4.5%
frá árinu áður Heildarfarþegafjöld-
inn skiptist þannig Norður-
Atlantshafsfluq 254.199, Evrópu-
flug 127,749, Innanlandsflug
205.756; Bahamaflug 78,031 og
leiguflug 48.614 Fluttir farþegar í
áætlunarflugi og leiguflugi voru því
á árinu 714,394. Það kom fram að
árið 1976 var hið fyrsta sem aukn-
ingar gætti í flutningum yfir Norður-
Atlantshaf, eftir samdrátt sem varð í
kjölfar olíuverðhækkana. Farþegum
fjölgaði um 4.2% og voru sem fyrr
segir 254,199. Sætanýting var
mjög góð, eða 77.4%. Fraktflutn-
ingar jukust einnig verulega á þess-
ari leið, eða um 33% miðað við árið
áður.
Evrópuflug:
Flutningar í Evrópuflugi 1976
gengu einnig vel á árinu og jukust
farþegaflutningar verulega eða um
11%. Fluttir voru 127,794
farþegar og var sætanýting 63.9%
Fraktflutningar stóðu næstum í stað,
en póstflutningar jukust um rúm
12%. í flugi til Evrópu bættist við
ný flugleið. Reykjavík / Dusseldorf
Sú breyting varð hins vegar að
leiguflugi fyrir SAS malli Kaup-
mannahafnar og Reykjavíkur var
hætt, þar sem það fálag tók eigin
flugkost í notkun á þessum leiðum.
Innanlandsflug:
í innanlandsflugi hafa ekki orðið
miklar breytingar síðastliðin þrjú ár
og hafa flutningar og framboðið
flutningamagn verið svo til óbreytt á
þessu tímabili. Á innanlandsleiðum
voru á s.l. ári fluttir 205,756 far-
þegar, en voru 205,1 76 árið áður.
Sætanýting var 64%. Vöruflutning-
ar námu 4,387 lestum og póstflutn-
ingar 67.7 lestum Fjölförnustu leið-
ir innanlands voru sem áður milli
Reykjavíkur annars vegar og Akur-
eyrar/ Vestmannaeyja/ ísafjarðar/
Egilsstaða og Hornafjarðar hins veg-
ar. Náið samstarf var við Flugfélag
Norðurlands um framhaldsflug frá
Akureyri til staða á Norður- og Norð-
austurlandi.
Bahamaflug:
Aukning varð í flutningum Inter-
national Air Bahama eftir töluverðan
samdrátt árið áður Flutningar á
þessari flugleið eru ekki eins árstíða-
bundnar eins og á öðrum leiðum
félagsins og eru flognar fjórar ferðir
í viku á sumrin en þrjár á vetrum.
Leiguflug International Air Bahama
óx verulega en þar er um að ræða
leiguflug milli Nassau annars vegar
og Zúrich og Vínarborgar hins veg-
ar. Farþegar í áætlunarflugi Inter-
national Air Bahama urðu 78.031
og var sætanýting 74 3%.
Leiguflug:
Mikil aukning var f almennu leigu-
flugi árið 1976 Er þar aðallega um
að ræða flug frá Þýskalandi, Austur-
ríki og Sviss með erlenda ferðamenn
að vori og hausti, ennfremur aukn-
ing á sólarlandaflugi fyrir innlendar
ferðaskrifstofur. Hins vegar hætti,
svo sem fyrr segir, leiguflug fyrir
SAS milli Kaupmannahafnar og
Grænlands sem staðið hafði í nokk
ur ár. Nýr þáttur leiguflugsins var
pílagrímaflug milli Kano f Nígéu og
Jedda í Saudi Arabíu þar sem fluttir
voru Múhameðstrúarmenn frá
Nígeríu á trúarhátfð þeirra f Mekka
Flutningarnir fóru fram á tveim tíma-
bilum; fyrri hlutinn frá því í desem-
ber 1975 fram í janúar 1 976 en þá
var eingöngu fluttur farangur pfla-
gríma í nóvember og desember
1976 tók félagið að sér flutninga
pflagrfma og voru fluttir 15,474
milli Jeddah og Kano. Tvær þotur af
gerðinni DC-8-63 voru notaðar til
ferðanna. Á annað hundrað starfs-
menn unnu að þessum flutningum.
Hótel Loftleiðir
— Hótel Esja —
Bflaleiga Loftleiða
Rekstur hótelanna var með líku
sniði og árið áður og herbergjanýt-
ing var sem hér segir: Hótel Loftleið-
ir 63.4%. en var 59.9% árið áður;
Hótel Esja 62 3%. en var 63% árið
áður. Bílaleiga Loftleiða hafði 93
bíla sumarið 1 976, 1 9 fleiri en árið
áður. Nýting var 72.5%
Fargjöld
og kostnaður
Á aðalfundinum var hluthöfum
gefið yfirlit um þróun fargjalda. svo
og kostnaðar ýmissa veigamikilla
Framhald á bls. 18
Yfir
20
gerðir stereo og sjónvarpsborða
VERÐ 6.130,- 33.200,-
MMdMttrlw.tt.Mi.Uii.i3U9
BUÐIRNAR
Skipholti 19 við Nöatún,
sími 23800 og 23500.
Klapparetlg 26, stmi 19800.
Pöntunarsimi 23500